Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Föstudagur, 10. ágúst 2007
Ljúf kvöldstund þrátt fyrir brjóst með útþrá
Í gærkvöldi hittumst við þrjár vinkonurnar heima hjá Ellisif bjútí-vinkonu; Ellisif, Brynja Berlínar-búi og ég. Tilefnið var koma Brynju á Frón. Ásta var fjarri góðu gamni sökum götugrills á heimaslóðum.
Ég var í sjöunda himni yfir að fá tilefni til að komast út úr húsi og í burtu frá hundahárunum sem eru að yfirtaka heimili mitt eins og illa viðráðanlegt meindýr. Ég var svo glöð að ég ákvað að taka fína-pakkann á þetta. Sturta mig og mála og fara í svolítið svona hugguleg föt. Og þá stóð ég frammi fyrir vandamáli.
Vandamálið er ekki að ég eigi engin hugguleg föt. Vandamálið er ekki einu sinni að ég komist ekki í þessi föt þrátt fyrir að eitt og eitt kíló hafi skvísað sér á kroppinn á mér í sumar.
En eitt er að komast í fatnað. Annað er að hann sitji vel. Svo er líka allt annað að hann haldist utan á manni.
Ég ákvað að fara í þykkum sokkabuxum, hnéháum stígvélum og skyrtukjól, smelltum að framan. Ég var bara bráðhugguleg þegar ég fór að heiman.
Eftir tvö rauðvínsglös, fjöldann allan af snittubrauðs-sneiðum með hráskinku og parmisan og hvítmygluosti þöktum hnetum, möndlum og sírópi, þá fór að halla undan fæti hjá huggulegu konunni.
Við hverja hlátursroku smelltist ein smella á skyrtukjólnum frá. Brjóstin á mér bókstaflega brutust út úr kjólnum og svo mjaðmir og magi. Huggulegt!
Í félagsskap þessara kvenna þykir þetta nú ekki mikið má og kemur ekki að sök og þar sem ég á annað borð var komin langleiðina úr leppunum þá fékk ég yndislegt nudd hjá Ellisif.
Eins og oft vill verða þá tók kveðjustundin við útidyrahurðina hátt í hálftíma og á endanum vorum við allar búnar að krossleggja fæturnar þar sem við stóðum, til að pissa ekki í okkur af hlátri. Spurning um að herða á grindarbotnsæfingunum.
Ég náði heim undir morgunn. Var í fötum sem betur fer og ekki pissublaut. Geri aðrir betur.
Fimmtudagur, 9. ágúst 2007
HEFNDARÞORSTI - Glæpasaga - 3. hluti - ekki fyrir viðkvæma
Forstjórinn dugmikli og gullfallega frúin hans skildu og upphófst hatrömm forræðisdeila þeirra á milli. Hann tapaði. Baráttan tók marga mánuði og andleg átök voru mikil.
Hún nýtti sér tækifærið. Sparkaði með glöðu geði í liggjandi mann. Með kænsku og útsjónarsemi þess sem hatar, sá hún til þess að ungi maðurinn varð uppvís af tilraun til fjárdráttar í starfi sínu. Af nákvæmni bjó hún svo um hnútana að eigendum fyrirtækisins var meira í mun að losna við hann en að gera málið opinbert. Síst af öllu vildi hún missa hann á bak við rimlana.
Áttundi bekkur. Fyrsti skóladagur eftir nýár. Hún var lokuð inni í verkfæraskúrnum í syðsta enda skólalóðarinnar. Sat róleg og beið. Öllu vön. Vissi að fyrr eða seinna kæmi einhver sem myndi opna fyrir henni. Hún þurfti bara að leggja við hlustir og fylgjast með.
Hún heyrði einhvern nálgast og stóðu upp. Byrjaði að nötra og skjálfa gegn eigin vilja þegar hún heyrði að þetta voru kvalarar hennar. Þeir voru hvíslandi og hlógu niðurbældum hlátri. Það vissi ekki á gott. Hún heyrði þá bjástra fyrir utan skúrinn og svo heyrðist hviss sem hún áttaði sig ekki á. Dyrnar opnuðust og einhverju var fleygt inn. Hurðinni var skellt aftur. Í myrkrinu sá hún neista af einhverju, andartaki áður en hvellurinn kom. Hún fann fyrir óbærilegum sársauka í höfðinu og sekúndum síðar fann hún, frekar en sá, að það skíðlogaði allt í kringum hana.
Kannski er þetta þá búið, hugsaði hún glöð, áður en myrkrið miskunnaði sig yfir hana.
Fyrsta kafla er lokið. Annar kafli bíður.
Forstjórinn fyrrverandi keyrir útaf í Kömbunum og er um tíma vart hugað líf. Brotinn á sál og líkama hefur hann enga hugsun á því að eitthvað var undarlegt við þetta slys. Kennir þreytu og vínglasi um.
Loksins finnst henni sér miða eitthvað fram á við.
Níunda aðgerð. Líkamlegi sársaukinn var á undanhaldi, en ekkert gat linað þær andlegu kvalir sem hún gekk í gengum.
Flugeldurinn var gallaður. Þessi sem sprakk í andlitið á henni. Ekki að það skipti neinu máli. Hinn kveikti í skúrnum.
Enginn gaf sig fram. Enginn kannaðist við að bera ábyrgð á að 13 ára stúlka lá örkumla og afmynduð á sjúkrahúsi. Hún tók af þeim ómakið. Um leið og hún gat haldið á blýanti skrifaði hún nokkur orð á blað. Játaði að hafa verið að fikta með flugelda.
Eftir nokkurra mánað endurhæfingu hefur hann náð það mikilli leikni með gervifótinn að hann stingur aðeins örlítið við. Á erfitt með að venjast því að horfa á stubbinn þar sem einu sinni var fótleggur.
Eftir langa leit fær hann starf. Hann er eiginlega undrandi á sjálfum sér að finna enn til minnstu lífslöngunar. Honum þykir það íronískt að gerast fasteignasali. Hitta og eyða tíma með fólki á hverjum degi sem er fullt tilhlökkunar. Pör sem sjá fram á líf með maka sínum og börnum á fallegu heimili sem þau skapa saman. Allt það sem hann eitt sinn átti. Allt það sem hans líf snerist um en er nú aðeins sætbeisk minning.
Henni tókst að blekkja þá alla. Geðlæknana. Sálfræðingana. Félagsfræðingana. Allir báru henni vel söguna. Dugleg, atorkusöm, ótrúlega bjartsýn, með þroskaða sýn á lífið. Þvílík ummæli. Hún hló innra með sér daginn sem þeir hleyptu henni út af stofnuninni. Ef sá hlátur hefði fengið að hljóma upphátt hefði engum verið rótt. Hún var sextán ára og sálin var kolsvört.
(4. og síðasti hluti verður birtur seinna í dag)
Fimmtudagur, 9. ágúst 2007
Og enn grenja ég
Ég þurfti virkilega á einhverju upplífgandi að halda í kvöld. Fyrir valinu varð að leggjast yfir DVD, nánar tiltekið Love actually.
Hvort sem þið trúið því eða ekki þá hef ég aðeins einu sinni séð þessa mynd og guð minn góður..... Ef ég grenjaði svona yfir henni í fyrsta skipti þá má ég hundur heita.
Þegar kreditlistinn rúllaði í endann þá var ég gjörsamlega uppgefin af því að reyna að halda aftur af gráthviðunum sem vildu brjótast út.
En samt var þetta upplífgandi á skrýtinn hátt. Ég held að þetta sé sætasta mynd sem framleidd hefur verið og minnir mann á það enn og aftur að við hlið bretans (og þá meina ég ekki Bretans) er kaninn hreinlega lásí í kvikmyndagerð og handritagerð og húmor og hljóði og klippingu.... nei, aðeins komin fram úr mér, en þessi mynd er barasta snilld. Hvernig hún er byggð upp og hvernig allir þessir karakter tengjast á einhvern hátt á endanum. Leikararnir eru frábærir... sorry, ég er bara að missa mig yfir þessu.
Ég held ég geti kosið þetta bestu rómantísku gamanmynd sem framleidd hefur verið, án þess að blikna. Og það þýðir ekki að vera með neitt skítkast yfir því. Þannig er það bara og hananú.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 02:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Mánudagur, 6. ágúst 2007
Frídagur verslunarmanna þýðir......?
Í dag er frídagur Verslunarmanna. Sem á að vera, eins og nafnið ber með sér, frídagur verslunarfólks. Það er að segja, fólk sem vinnur í verslunum á að eiga frí í dag. Are you with me so far?
Það er nú öðru nær eins og við öll vitum. Ein stétt af fáum sem er ekki í fríi frá sinni vinnu á þessum degi er verslunarfólk. Sem er bara næstum því sorglegt. Þó tel ég mig vita að í dag sé enginn þvingaður til vinnu á þessum degi. Ég held að mestmegnis sé það fégráðugt skólafólk (ekkert neikvætt við það) sem taki vaktinni fegins hendi. Ég vona það.
Allavega tel ég sjálfri mér trú um að svo sé, þegar ég geng inn í Nóatún á eftir, til að versla ýmislegt sem vantar til heimilisins. Sá verslunarleiðangur hefði vel getað verið farinn í gær. Og það hefði að sjálfsögðu verið gert ef ég hefði ekki verið alveg handviss um að ég kæmi að opnum dyrum í flestum matvöruverslunum í dag.
En ég er material girl og fer bara hnarreist í minn verslunarleiðangur á frídegi verslunarmanna og skammast mín ekkert fyrir það. Það er lasagne í matinn í kvöld og það bráðvantar hráefni. Maður verður að forgangsraða. Ég um mig frá mér til mín.
Sunnudagur, 5. ágúst 2007
Þrjár Þjóðhátíðar í Eyjum og Benny Hinn
Þrisvar hef ég farið á Þjóðhátíð í Eyjum. Skemmti mér konunglega í öll skiptin.
Fyrsta skiptið var ég fimmtán ára. Systir mín bjó í Eyjum á þessum tíma og ég fékk að fara undir því yfirskini að ég væri að fara að heimsækja hana. Sem og ég var. Eyddi samt litlum tíma undir hennar þaki. Aðeins yfir blánóttina.
Í annað skiptið var ég 24 ára og flaug frá Bakka með tveimur vinkonum mínum. Á þeirri Þjóðhátíð gerði ég allt sem ég gat til að koma vinkonu minni saman við einhvern breskan hljóðmann. Í dag gengur hann undir nafninu Bretinn í bloggheimum.
Í þriðja skiptið fór ég í félagi við Todmobile og má segja að ég hafi upplifað Þjóðhátíðina ''baksviðs'' í það skiptið. Eina Þjóðhátíðin sem ég var edrú allan tímann.
Að fara á Þjóðhátíð er sannkallað upplifelsi. Brekkusöngurinn og flugeldasýningin eru náttúrlega barasta gæsahúðarmóment og jákvæð múgsefjun. Algjörlega yndislegt. Það er stórkostleg upplifun að sjá 10 þúsund haugfulla Íslendinga setjast á rassgatið eins og þæg leikskólabörn og kyrja gamla útileguslagara og lög eftir Ása í Bæ með laglausan mann á kassagítar sem forsöngvara. Og hrópa awwww.... óóóóó... vááááá með tárin í augunum yfir glæsilegri flugeldasýningu.
Benny Hinn nær ekki upp betri stemningu á sínum besta degi
Sunnudagur, 5. ágúst 2007
Ég væli yfir öllu
Anna frænka kom yfir í mat í kvöld. Hún var meiriháttar grasekkja þangað til fyrir klukkustund síðan. Kallinn í veiði og börnin þrjú (sem eru nú engin börn lengur) út um hvippinn og hvappinn (eða er það kvippinn og kvappinn?).
Á borðum var nautasteik Ala Breti steikt upp úr hvítlauk, lauk og engiferi, með frönskum kartöflum og hrikalega góðri sósu. Með þessu var drukkið Coca-cola light 2007.
Í kvöld horfðum við Bretinn á Monster in Law með Jane Fonda og Jennifer Lopez. Engin óskarsverðlaunamynd en ég hafði gaman af henni. Og ég vældi í endann.
Damn.... ég væli yfir öllum væmnum atriðum í bíómyndum. Held þetta sé aldurinn. Er ekki sagt að maður verði meyrari með aldrinum?
Föstudagur, 3. ágúst 2007
Rómantísk fokkferð
Fyrir nokkru síðan tilkynnti Bretinn það að hann ætlaði til Englands í sumar að kaupa sér golfsett og ég ætti að koma með honum. Úr þessu myndum við gera stutta flóttaferð. Bara við tvö. Ég held hann hafi ekki fengið neinar brjálæðislegar undirtektir frá mér. Mér finnst svo mikið mál að koma krökkunum fyrir, og þó merkilegt megi teljast, meira mál með Gelgjuna en Þann Einhverfa.
Hef þó hugsað þetta svona í hljóði... fjandinn fjarri mér að ef ég loksins kemst í rómantíska fokkferð að það verði til tengdó..... I dont think so.
Ég laumaði hugmynd af Brynju vinkonu í Berlín. Væri ekki sniðugt ef við færum í heimsókn til hennar?
Við Bretinn hefðum dagana út af fyrir okkur því hún er auðvitað að vinna. Gætum ráfað um Berlín, drukkið kaffi eða rauðvín eða what ever, skoðað eitthvað merkilegt (t.d. golfsett) og jafnvel bara skrúað á sófanum hennar Brynju. Gætum svo eytt kvöldunum í notalegheitum með Brynju eða án, út að borða eða heima að elda.
Margar flugur drepnar þarna; Róleg og næs helgi með Bretanum, ég fengi tækifæri til að hitta og eyða tíma með ástkærri vinkonu sem ég sakna hræðilega mikið, frítt húsnæði (held allavega ekki að Brynja myndi rukka okkur um leigu. Brynja er það nokkuð?), laus við krakkaormana í smá tíma. Væri hægt að hafa það betra.
Það var aðeins eitt sem þurfti að gera til að ég hefði tromp á hendi þegar ég bæri þetta upp við Bretann. Brynja samþykkti að fara á stúfana og athuga hvað golfsett myndi kosta í Berlín. Gæti bara ekki verið dýrara en í Englandi. Ekkert mál sagði hún. Það er golfbúð hérna handan við hornið sem ég geng fram hjá á hverjum degi. Droppa þar inn og finn út úr þessu.
Ég fékk tölvupóst frá henni í dag þar sem hún segir.... hér kemur það, kópí peist, beint úr Lótusnum:
Golfbúðin sem að mér fannst vera í næstu götu við mig reyndist vera hestabúð - ég veit það, ég er keppnisíþróttamanneskja og hef alltaf verið, ég held áfram að hafa augu "opin" og læt þig svo vita hvað gólfsettið kostar í Berlín.
Ég velkist því enn í vafa um hvort Bretinn og ég munum eyða nokkrum rómantískum nóttum hjá tengdó í smábæ á Englandi or what.
Föstudagur, 3. ágúst 2007
Afmælisdagafóbía
Ég er vonlaus í að muna dagsetningar. Reyndar, þegar ég hugsa um það, þá er tölu-minni mitt yfirhöfuð, afar lélegt.
Ég veit að þetta mun sjokkera marga en ég get alls ekki munað klukkan hvað ég var rist á hol í þessi tvö skipti sem ég fæddi börn í þennan heim. Né hversu stór eða þung þau voru.
Og þó að ég skvetti þessu hér fram eins og ég sé blygðunarlaus þá skammast ég mín fyrir þetta. Þið getið alveg trúað því. Sem betur fer man ég hvenær þau eiga afmæli en þarf þó stundum að hugsa mig aðeins um því ég á það til að víxla tölunum. Gelgjan er fædd 11. janúar og Sá Einhverfi 7. september. Ég vil stundum klína 7. janúar á hana og 11. september á hann. Ég veit það, þetta er ótrúlegt. GSM símar og þeirra innbyggðu hæfileikar voru því mikil blessun fyrir mig. Smátt og smátt er ég að setja inn í símann alla afmælisdaga fólks sem mér þykir vænt um og læt hann pípa á mig með dagsfyrirvara.
En ég er með fóbíu og ég vil að hún verði skráð og skjalfest sem slík. Afmælisdagafóbía. Ég vil að þetta verði viðurkennt sem sjúkdómur.
Einkennin eru hnútur í maga, ör hjartsláttur og svitaköst.
Kastið kemur fyrirvaralaust ef eitthvað verður til þess að mér dettur í hug að ég hafi gleymt afmælisdegi. Fékk þrjú svona köst eftir að ég, til og með, mætti í afmæli hjá Fríðu vinkonu með gjöf og allan pakkann.
Þrisvar sinnum eftir afmælið datt mér skyndilega í hug: Ó Guð, átti Fríða ekki afmæli í gær... eða dag... eða þessa dagana. Og hjartað róast ekki fyrr en ég skyndilega man að ég fór í afmælið, borðaði köku og knúsaði afmælisbarnið.
Ég lifi í stöðugri hræðslu við að gleyma afmælisdegi einhvers sem mér þykir vænt um og særa hann. Ég á eldri systir sem er líka afmælisdagarati og það er hreinlega yndislegt að gleyma afmæli hvor annarrar og hafa barasta engar áhyggjur af því.
Jebb. Nú er það opinbert. Ég er stórskrýtin.
Sunnudagur, 29. júlí 2007
Indverskur og appelsínusafi
Bretinn og ég áttum notalega kvöldstund í gær.
Við fórum á Indverskan stað þar sem gin og tónik er borið fram í lágum víðum glösum með engum klaka, gleymdist að láta okkur fá hnífapör og starfsfólkið veit ekki hvað kokteill er. Yndislega frumstætt og afslappað. Þjónarnir voru eins fjölþjóðlegir og það gerist og svei mér þá ef við vorum ekki með einn Samurai-a þarna. Ótrúlega flott andlit.
Við fórum á Kaffi París til að fá okkur kaffibolla og virtum fyrir okkur mannlífið þar. Einn þjónninn, ung stúlka, örugglega undir 11% í líkamsfitu með beran nafla, gekk um með glaðleg andlit. Brosti fallega til Bretans þegar hún átti leið fram hjá borðinu okkar. Bretanum fannst þetta eitthvað persónulegt og leit í kringum sig til að athuga hvort brosið hefði verið ætlað einhverjum öðrum. Leit svo hneykslaður á mig og sagði: She is like, twelve!!!
Þarna var 12 manna hópur og við lékum okkur að því að giska á félagsskapinn á bak við hann. Bretanum fannst trainspotters líklegast. Fyrir þá sem ekki vita er trainspotters fólk (venjulega afar sérstakt fólk) sem situr á lestarstöðvum og tekur niður lestarnúmer og spáir og spekúlerar í áætlunum, áfangastöðum, lestartýpum o.sfrv.
Svo röltum við aðeins um bæinn áður en við héldum í heimsókn til Hafliða og Ellisifar. Var ákveðið að sleppa kaffinu. Ég fékk rauðvín og Bretinn appelsínudjús. Þar áttum við góða stund.
Kl. 1:45 komum við keyrandi eftir götunni að húsinu okkar og ég sá að það var ljós í herberginu hjá Gelgjunni. Fimm mínútum seinna stóð ég í herbergisdyrunum hennar og þá var allt slökkt. Hún virtist steinsofandi.
Ég veit þú ert vakandi, sönglaði ég. Ég sá ljósið í glugganum.
Ég gat næstum séð hugsanirnar brjótast um í litla hausnum hennar áður en hún játaði sig sigraða og opnaði augun.
''Busted'' sagði hún.
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 1640754
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2019
2018
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
-
solskinsdrengurinn
-
skrifa
-
jenfo
-
gelgjan
-
annambragadottir
-
marzibil
-
brynja
-
hk
-
gurrihar
-
lehamzdr
-
katlaa
-
eddaagn
-
jahernamig
-
hronnsig
-
martasmarta
-
katrinsnaeholm
-
palmig
-
ipanama
-
hallarut
-
tommi
-
ktomm
-
poppoli
-
svavaralfred
-
kollajo
-
bergruniris
-
bene
-
bennason
-
jensgud
-
solrunedda
-
heidathord
-
ringarinn
-
tofraljos
-
kjaftaskur
-
ormurormur
-
zeriaph
-
unns
-
ellasprella
-
hjolagarpur
-
salka
-
nonniblogg
-
markusth
-
rebby
-
birna-dis
-
garun
-
landsveit
-
olofannajohanns
-
brylli
-
evaice
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
rustikus
-
singer
-
jaxlinn
-
krossgata
-
mummigud
-
blekpenni
-
gerda
-
baddahall
-
holi
-
grafarholt
-
gudnylinda
-
thegirl
-
gretarorvars
-
thordis
-
herdis
-
mammzan
-
sigthora
-
bet
-
saedis
-
emmgje
-
sigurjonsigurdsson
-
janus
-
astromix
-
overmaster
-
thorasig
-
gudni-is
-
sunnadora
-
kjarrip
-
810
-
gislihjalmar
-
beggagudmunds
-
sirrycoach
-
betareynis
-
ilovemydog
-
rannveigmst
-
stormadis
-
perlan
-
bergdisr
-
skondrumamma
-
snar
-
stormur
-
ljonid
-
raggipalli
-
hjordiz
-
almaogfreyja
-
katja
-
lady
-
sigrunfridriks
-
zunzilla
-
olinathorv
-
bidda
-
smjattpatti
-
jogamagg
-
disadora
-
harpao
-
fuf
-
alexm
-
larahanna
-
juliaemm
-
saemi7
-
gudrunmagnea
-
svala-svala
-
kari-hardarson
-
hlf
-
hlinnet
-
annagisla
-
einari
-
lena75
-
hector
-
saethorhelgi
-
ernafr
-
birnarebekka
-
heidistrand
-
kerla
-
hannamar
-
jara
-
supermamma
-
monsdesigns
-
malacai
-
solveigth
-
siggathora
-
senorita
-
snjaldurmus
-
photo
-
stingi
-
pollyanna
-
steingerdur
-
icekeiko
-
majaogco
-
skordalsbrynja
-
danjensen
-
lilly
-
heidabj
-
omarpet
-
helgamagg
-
nori
-
jamesblond
-
gretaulfs
-
rattati
-
hogni
-
ragjo
-
kolgrima
-
skjolid
-
hugrunj
-
egill75
-
amman
-
liljabolla
-
asgerdurjoh
-
okurland
-
rannthor
-
svalaj
-
siggith
-
vefritid
-
zsapper
-
laz
-
graceperla
-
rannug
-
agbjarn
-
alliragg
-
fjarki
-
birtabeib
-
roslin
-
lindape
-
rosa
-
tinnaeik
-
muszka
-
krummasnill
-
lindalea
-
fjola
-
solan
-
scorpio
-
evabenz
-
isleifure
-
karitryggva
-
ellasiggag
-
beggita
-
ollabloggar
-
madddy
-
songfuglinn
-
emm
-
lindagisla
-
turettatuborg
-
einarsigvalda
-
huldadag
-
siggasin
-
credo
-
loathor
-
carma
-
komaso
-
fifudalur
-
rosabla
-
lillagud
-
eythora
-
griman
-
eyrunelva
-
svanurg
-
strumpurinn
-
godihundur
-
hallidori
-
annriki
-
sibbulina
-
helgurad
-
huldumenn
-
julianamagg
-
berglindnanna
-
huldam
-
joik7
-
venus
-
osland
-
liso
-
amaba
-
asako
-
hryssan
-
mammann
-
leyla
-
gunnarggg
-
sigrunzanz
-
fanneyunnur
-
himmalingur
-
helgabst
-
bostoninga
-
christinemarie
-
jea
-
elisabeta
-
perlaoghvolparnir
-
meyjan
-
wonderwoman
-
coke
-
ragnhildurthora
-
gullilitli
-
tommi16
-
ea
-
mariaannakristjansdottir
-
einarorneinars
-
lindalinnet
-
joninaros
-
reynzi
-
rosagreta
-
lauola
-
reynir
-
elinora
-
ma
-
olapals
-
bestalitla
-
kolgrimur
-
handtoskuserian
-
vonin
-
kaffi
-
einarhardarson
-
gleymmerei
-
brandarar
-
alf
-
hreinsamviska
-
litlakonan
-
lucas
-
reisubokkristinar
-
jgfreemaninternational
-
olofdebont
-
thjodarblomid
-
vilma
-
ollana
-
gudrununa
-
holar
-
gotusmidjan
-
huldastefania
-
mubblurnar
-
bjarnihardar
-
vild
-
skrudur
-
jyderupdrottningin
-
sifjan
-
letilufsa
-
hrundt
-
robbitomm
-
brudurin
-
anitabjork
-
blindur
-
astabjork
-
bailey
-
gattin
-
draumur
-
einhugur
-
trygg
-
eskil
-
evags
-
gudrunkatrin
-
gudrunss
-
nf26b
-
topplistinn
-
helgaas
-
helgatho
-
hildurhelgas
-
drum
-
innipuki
-
ingal
-
kikka
-
astroblog
-
oliskula
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
kariaudar
-
vga
-
thorolfursfinnsson
-
motta