Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Heilbrigðismál

Markmiðasetning og megrun í beinni

Frábært sumar er senn á enda. Þetta sumarið hef ég notið útiveru sem aldrei fyrr og fengið að spila golf í miklum mæli, ekki síst vegna þess að okkur áskotnaðist hjásætur fyrir "litla barnið," hver annarri dásamlegri. Ég hef oft sagt að ég var ekki viðlátin þegar var verið að úthluta íþróttageninu og er golfið þar engin undantekning. En það sem golfið hefur fram yfir aðrar íþróttir er að sama hversu lélegur þú ert geturðu stundað íþróttina með hverjum sem er, byrjendum jafnt sem afreksfólki. Ekki má gleyma því að engin önnur íþrótt býður upp á át, áfengisdrykkju og reykingar á meðan á ástundum stendur. Þetta hef ég nýtt mér óspart í sumar og sé ekki eftir neinu. En nú er tími að linni og ég víki af villu míns vegar.

Það er auðvitað óttaleg klisja, haustátakið. Í kjólinn fyrir jólin og Að sjá tólin fyrir jólin. Allir í megrun og allskonar bönn og bindindi á þessum árstíma. En það er bara allt í lagi, þó að auðvitað eigi þetta að heita lífsstílsbreyting og vera slík. Hver og einn þarf að finna sína leið og áherslur. Við prófum allskonar, lærum af mistökum og finnum hvað hentar okkur best.

Ég, sem hef stundað líkamsrækt svo að segja allt árið síðustu 6 ár, fjórum til sex sinnum í viku, skrópaði í allt sumar í ræktinni. Ég viðurkenni að ég dauðkvíði því að fara að rífa mig á fætur eldsnemma á morgnana og mæta með aukakílóin og aðþrengdu lungun mín á hlaupabrettið. En ég vinn hörðum höndum að því að sjá skjannabjörtu hliðarnar á því, sem eru:

  1. það er orðið bjart kl 6 á morgnana (ennþá)
  2. það eru afar fáir bílar á götum borgarinnar til að fara í taugarnar á mér kl 6 á morgnana
  3. ég mun mæta á réttum tíma í vinnuna aldrei þessu vant
  4. ég verð svo þreytt á kvöldin að ég hef styttri tíma til að drekka rauðvín

 

En það er ekki nóg að hreyfa sig. Ég hef verið dugleg að safna maga, lærum og mjúkum línum síðustu mánuði. Það klæðir suma afskaplega vel en ég kann ekki nógu vel við takmarkanirnar á nýtingu klæðanna sem ég á í fataskápnum. Mataræðið mitt þarfnast gífurlegrar tiltektar eftir sumarið til þess að öll fötin mín séu nothæf og til þess að mér líði sem best.

Ég er eindreginn talsmaður sjálfsvals í mataræði, hvort sem það heitir að vera grænmetisæta, grænkeri, lágkolvetna, keto eða alæta. Fátt fer meira í taugarnar á mér en yfirlýst skoðun fólks á því hvað aðrir leggja sér til munns. Ég verð þó að viðurkenna að ég skil alls ekki af hverju grænkerar vilja ekki ganga í lopapeysum. Kannski getur einhver útskýrt það fyrir mér.

Ketó mataræði hefur reynst mér óskaplega vel að mestu leyti; ég þarf aldrei að vera svöng, meltingin er í toppstandi, uppþemba lætur ekki á sér kræla og þeir sem hafa prófað ketó vita hversu mikið kjaftæði það er að þú prumpir af sunnudagssteikinni. Kolvetni eru prumpfæða (í bókstaflegri merkingu) ekki prótein eða fita. Ketó fólk prumpar ekki. Heilagur sannleikur.

Í þessari lotu ætla ég nú samt að prófa lágkolvetnafæði. Því mig langar að geta gripið í AB mjólk og epli. Borðað melónur og svolítið af hnetu-tegundum sem eru hærri í kolvetnum en ketófæði kallar á.

Ég, menntaður markþjálfinn, hef aldrei verið góð í setja mér sjálfri markmið. Eða öllu heldur, ég hef ekki verið góð í að fylgja eftir þeim markmiðum sem ég hef sett mér. Allir vita að markmið á að setja niður á blað til að gera þau raunverulegri og ég hef svo sem gert það. En blaðið þarf að vera sýnilegt og ekki ofan í skúffu. Og það er breytingin sem ég ætla að gera í þetta sinn. Ekki nóg með það, heldur ætla ég að hafa ,,blaðið‘‘ sýnilegt, hverjum þeim sem kærir sig um að lesa. Nefnilega hér, í pistlaformi.

Í stað þess að gleypa allan heiminn á einum degi og ætla mér að hoppa beint á þann stað sem ég var í síðasta vetur hef ég sett niður fyrir mig skrefin sem ég ætla að taka jafnt og þétt næstu vikurnar. Langtímamarkiðin eru ekki fullmótuð enn og því horfi ég stutt fram á veginn til að byrja með.

Fyrsta vikan er aðeins fimm atriði. En þessi fimm atriði hafa verið úti hjá mér í allt sumar og ég mun án efa eiga fullt í fangi með að standa við þau. En ég ætla svo sannarlega að gera mitt besta. Reykingaleysi er viljandi ekki á listanum. Drap í þeirri síðustu á sl föstudagskvöld og er þar með reyklaus eins og ég hef verið síðustu sex ár.

 

Vika 1 - 2.–8. September

1) Taka vítamínin mín og lýsi (hef trassað það í allt sumar)

2) Mæta á 3 æfingar kl 6:10  (hef ekki mætt á 6-æfingu í amk 3 ár)

3) Drekka 2 x 750 ml af vatni yfir vinnudaginn (ég er þessi sem fylli vatnsglasið að morgni og stundum er það óhreyft þegar ég fer heim í lok dags)

4) Taka út kökur, sælgæti, brauð og gos annað en sódavatn (hef verið frekar hömlulaus í sumar)

5) Í rúmið ekki seinna en 22:15 (er yfirleitt að leggjast á koddann um 00:30)

 

Ég finn að bara það að skrifa þetta niður hefur gert mig spenntari og bjartsýnni á komandi viku. Ég efast ekki um að vinnufélagarnir þrái að mér mistakist að einhverju leyti svo þeir geti gert grín að mér og ekki læt ég þar gerast, er það nokkuð? Eitthvað stolt verður maður að hafa.

Gaman væri að heyra frá ykkur hvaða markmið þið eruð að vinna með í augnablikinu


Helgarfjör

Í gærmorgun horfði ég á blánandi andlit sonar míns þar sem hann lá á gólfinu. Líkaminn kipptist til í flogaköstunum og froðan lak út um hægra munnvikið. Alveg eins og í bíómyndunum. Á enninu var ófögur blóðug kúla til marks um að lendingin hafði verið langt frá því mjúkleg. Á gólfinu við hlið hans lágu gleraugun sem höfðu bognað, en ekki brotnað, við höggið. Pabbi hans sem hafði verið sekúndubrotinu á undan mér fram úr rúminu og niður stigann sat við hlið hans og gerði það sem hann gat til að vernda líkama stráksins okkar fyrir frekara hnjaski og halda honum í hliðarstellingu svo öndunarvegurinn lokaðist ekki. Meira er ekki hægt að gera. Aðeins bíða með hamrandi hjarta eftir því að sekúndurnar silist áfram. Vona að flogakastið standi yfir sem styst og alls ekki lengur en tvær mínútur. Vona hann nái andanum aftur áður en það er orðið of seint. Vona að hann fari ekki úr axlarlið í þetta skiptið. Hringja með skjálfandi fingrum á sjúkrabíl til öryggis. Ef þetta skiptið skyldi ekki fá hamingjusaman endi. Hendast upp stigann aftur og ná í slopp fyrir manninn minn sem alltaf sefur eins og guð skapaði hann og sat því allsnakinn á gólfinu á neðri hæðinni.

Í þann veginn sem kastið gengur yfir, andardrátturinn að verða nokkuð eðlilegur og blái liturinn að hverfa úr andlitinu ganga inn tveir fallegir karlmenn merktir slökkviliðinu. Allir karlmenn sem ganga hér inn merktir slökkviliðinu eru fallegir í mínum huga og þeir hafa verið þó nokkrir. Hvort það sé vegna þess léttis og öryggis sem fylgir þeim skal ósagt látið. Drengurinn sýnir þó aldrei af sér mikla gestrisni í þeirra garð. Til þess þekkir hann einkennisbúninginn of vel. Nærvera þeirra þýðir að það er vesen í uppsiglingu. Heimsókn á bráðamóttökuna til að kippa öxlinni í lið. Það er bæði langt og sársaukafullt ferli sem hann hefur gengið of oft í gegnum. Hins vegar er enn sársaukafyllra að vera úr lið, svo af tvennu illu velur hann að vera samstarfsfús þegar svo ber undir og fara á bráðamóttökuna.

Í þetta skiptið gefur hann þeim illt auga undan ört stækkandi kúlunni á enninu. Með okkar hjálp bröltir hann á fætur og sest aftur við tölvuna, þaðan sem hann hafði fallið nokkrum mínutum áður. Hann ber fyrir sig báðar hendur og þar með er ljóst að öxlin er á sínum rétta stað. Það kemur gleðilega á óvart. Ekkert sem skýrir af hverju lengsta og óhugnalegasta flogið í langan tíma, með harkalegasta fallinu, sé svo til það eina sem endar með öxl til friðs.

Ég útskýri fyrir tvímenningunum að ungi maðurinn sé einhverfur og muni ekki svara spurninunum þeirra og alveg örugglega ekki vilja fara með þeim. Þeim þykir þó full ástæða til vegna fröken kúlu sem er á góðri leið með að fylla út umsókn um ríkisfang og eigin kennitölu.

En ungi maðurinn kýs að láta eins og hann sé einn í heiminum. Vart með fulla meðvitund ennþá heldur hann áfram þar sem frá var horfið; með heyrnartólin á höfðinu og Söngvaborg á tölvuskjánum hefur hann upp kraftlitla raust og raular með Siggu Beinteins, Maríu og Masa einhvern ógreinilegan texta. Hann lætur eins og hann viti hvorki af okkur, gestunum eða síamstvíburanum sem vex og dafnar á enninu á honum.

Sjúkraflutningamennirnir myndarlegu, merktir slökkviliðinu, geta ekki annað en kímt út í annað. Málin eru rædd fram og tilbaka, sjúkrasagan hans sögð, ekki í fyrsta og ekki síðasta skipti. Á endanum er ákvörðun tekin um að koma sjúklingnum ekki í frekara uppnám og leyfa honum að halda sig heima. Skýr fyrirmæli um að hringja aftur ef hegðun hans verði á einhvern hátt óvenjuleg. Gestirnir fara, eftir sitjum við og horfum hvert á annað. Foreldrarnir og systirin. Helgarfríið er hafið. Góður laugardagur, segi ég, sest niður og brynni músum.

Í sannleika sagt er hjartað á mér að springa og heilinn að vinna yfirvinnu sem ég næ ekki utanum. Hvað ef og hvað með og hvernig og hvenær…. Allan daginn er ég að upplifa þessa einu og hálfu mínutu aftur og aftur í huganum. Sé fyrir mér blátt andlitið og líkamann í krampaflogum. Skelfingu lostin að þetta endurtaki sig. Næstum því hræddari um hvaða skaða fall gæti gert en flogið sjálft. Hrædd við að sofna. Hrædd við að vakna.

Einhverfi flogaveikissjúklingurinn virtist nokkuð áhyggjulaus. Hans lausn á þessu öllu var að skella plástri á ennið á sér. Plásturinn er 1/10 af stærð kúlunnar og situr akkúrat á toppnum á henni. Límið í sárinu.

Ég fór að hugsa um þá andlegu ánauð sem maður gengur sjálfviljugur inn í þegar maður verður foreldri. Að elska einhvern á þann hátt sem maður elskar börnin sín getur verið svo andskoti sársaukafullt. Ekkert gerir mann jafn vanmáttugan og að standa frammi fyrir því að geta ekki hjálpað barninu sínu. Ég hugsa til allra foreldra sem upplifa andlegan sársauka, einmitt vegna ástar á börnum sínum. Hvort sem þau eru börn að aldri eða fullorðin. Fötluð, eiga við geðræn vandamál að stríða, langveik, glíma við félagslega einangrun eða eru týnd í heimi neyslu, afbrota og ofbeldis.

Ég geri mér grein fyrir hversu lánsöm við erum. Hvert flogakast er áfall en ekki partur af daglegri rútínu. Hversu þakklátur getur maður ekki verið fyrir það? Eins og gleraugun í gærmorgun, þá bogna ég örlítið en brotna ekki. Ég er ákveðin í því.

Það er sunnudagsmorgunn. Kyrrlátur og án dramatískra uppákoma enn sem komið er (7-9-13). Í herberginu sínu situr sonur minn Quasimodo og horfir sáttur á Mjallhvíti og dvergana sjö.

snowwhite


Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband