Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Þriðjudagur, 4. september 2007
Tölvupóstur á toppana í dag kl. 10-12 - sýnum samstöðu
Ég skora hér með á íslensk stjórnvöld að leiðrétta þegar í stað kjör öryrkja og aldraðra til samræmis við íslenskan veruleika.
Raunveruleiki þessarar ungu einstæðu móður sem berst við krabbamein er skyldulesning fyrir ykkur.
http://thordistinna.blog.is/blog/thordistinna/entry/299482/
Það er löngu ljóst að meðferðin á öryrkjum, fötluðum, sjúkum og öldruðum er til skammar í þessu þjóðfélagi okkar sem á að heita velferðarþjóðfélag. Það er í ykkar höndum að snúa þessu upp í manneskjulegt umhverfi. Að fólki sé ekki fleygt út í horn eins og notuðum tuskum.
Sýnið okkur í verki að við kusum rétt. Að þið séuð verðugir fulltrúar. Að þið valdið ábyrgðinni og verkefninu sem við hin völdum ykkur til að stjórna.
Með vinsemd
Jóna Á. Gísladóttir / http://jonaa.blog.is/blog/jonaa/#entry-301471
kt. 2309684119
- - - - - - - - - - - - - - -
Ofangreindur texti er kominn í tölvupóst sem bíður nú eftir því að klukkan slái 10. Mun hann þá verða sendur á eftirtalin netföng:
Félagsmálaráðuneytið: postur@fel.stjr.is
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið: postur@htr.stjr.is
Guðlaugur Þór heilbrigðisráðherra: gudlaugurthor@althingi.is
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra: johanna@althingi.is
Og þar sem þessir geta stundum komið að gagni við hin ýmsu mál, þá fá þeir líka að vera með: sjonvarpsfrettir@ruv.is, ser@365.is, steingrimur@365.is, svanhildur.holm@365.is, ritstjorn@mbl.is,
Nú skalt þú lesandi góður barasta gera copy/past og senda samskonar tölvupóst á milli kl. 10 og 12 í dag. Það tekur aðeins um eina mínútu af tíma þínum en getur skipt sköpum í að vekja athygli á málinu. Leggðu þitt að mörkum.
Laugardagur, 1. september 2007
Sá Einhverfi - Sá Einhverfi - Sá Einhverfi - Sá Einhverfi - Sá Einhverfi - Sá Einhverfi
Nú er ég að láta skoðanir ókunnugs fólks fara fyrir brjóstið á mér. Afhverju ætli maður geri það? Er það vegna þess að þegar allt kemur til alls er sjálfsmynd okkar byggð á áliti annarra?
Í þessu, eins og svo mörgu öðru, er hárfín lína á milli öfga og þess sem eðlilegt getur talist. Það er ekki nema eðlilegt að álit okkar nánustu hafi áhrif á mann. Svo getur það aftur á móti farið út í öfgar.
Ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvernig standi á því að skyndilega, eftir að hafa verið nær daglega með bloggfærslu í 5 mánuði, komi allt í einu upp þessi gagnrýni. Allt í einu er orðið áberandi í kommentakerfinu hjá mér hvað það fer fyrir brjóstið á sumum að ég skuli kalla son minn Þann Einhverfa.
Þessi færsla er ekki til að útskýra þessa nafngift á einn eða annan hátt. Ég er aðeins að velta því fyrir mér afhverju í ósköpunum mér finnist ég þurfa að verja þetta orðalag fyrir ókunnugu fólki. Fólki sem greinilega hefur ekki sama húmor og ég, ekki sömu sýn á lífið, og greinilega ekki sömu reynslu.
Sonur minn heitir Ian Anthony. Hann er skírður Ian út í loftið og Anthony eftir pabba sínum. Fyrsta baráttan sem ég háði fyrir Ian var við mannanafnanefnd. Hann hét Drengur í þjóðskrá fram til 2ja ára aldurs. Þegar þeirri baráttu lauk með sigri eftir mikla þrjósku af minni hálfu tók við annars konar barátta. Og hún mun ekki taka enda fyrr en ég er öll. Því miður.
Ian er yndislegur gutti. Hann er stórskrýtinn og gefur lífinu alla liti regnbogans. Ég er afar þakklát fyrir að fá að kynnast þessum skrýtna dreng og upplifa að lífið er aldrei bara svart eða hvítt. Hann er endalaus uppspretta hláturs. Stundum vegna þess að hann er einfaldlega fyndinn og stríðinn. Stundum vegna þess að hann er svo skrýtinn. Skrýtinn á mælikvarða okkar hinna sem teljum okkur ''normal''.
Í bloggheimum heitir Ian Sá Einhverfi. Þeir sem hafa eitthvað við það að athuga getið heimsótt aðrar bloggsíður en mínar. Nóg er af þeim.
Fimmtudagur, 30. ágúst 2007
Dagskrá vikunnar - Spjallið við Guð gleymdist
Í dag er Dagskrá vikunnar borin út á 75.000 heimili. Þetta tiltekna tölublað er merkilegt fyrir þær sakir að í því birtist bloggfærsla eftir moi. Þetta þótti mér gaman, en það sem mér þykir leiðinlegt er að einhver mistök urðu í uppsetningunni. Það vantar niðurlagið á textanum í blaðinu. Einmitt þar sem Sá Einhverfi situr að spjalli með sjálfum Guði.
Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá er ég bara drullufúl yfir þessu.
Því set ég hér link inn á færsluna eins og hún birtist 8. ágúst.
http://jonaa.blog.is/blog/jonaa/entry/282006
Mánudagur, 27. ágúst 2007
Fékkstu þér silikon í sumar?
Dagurinn byrjaði nokkurn veginn eins og ég var búin að plana. Ég vaknaði 06:45 og dreif mig út. Vel klifjuð af tösku með sunddóti, fötum fyrir daginn, andliti (þ.e. make-uppi) og hárvörum. Jiminn hvað það er plássfrekt að vera kona. Í fleiri en einum skilningi.
Það runnu á mig tvær grímur þegar ég sá aðeins örfáa bíla fyrir utan sundlaugina. Og þá mundi ég það. Laugin er lokuð vegna viðhalds til 17. september takk fyrir.
Ég brunaði því niður í Laugardalslaug og fór í smá nostalgíu kast því þarna fór ég í sund sem barn og sótti mitt skólasund. Hef ekki komið þangað í fjölda ára. Svei mér þá ef baðverðirnir eru ekki þeir sömu.
Ég dreif mig í einn ljósatíma á sunnudaginn til að fólk fengi ekki ofbirtu í augun þegar ég mætti í sund en ég uppskar aðeins tvöfalda athygli út á humarbleikan húðlitinn. Brann svona skemmtilega í ljósabekknum. Og þegar maður er svona breiður þá nær ljósabekkurinn ekki utan um þetta svo ég er með hvíta náttúrulega Adidas rönd niður með báðum hliðum.
Ég næstum því drukknaði á fyrstu 100 metrunum... sumpart vegna kulda held ég. En svo fann ég mig í þessu og synti bringusund, baksund og hundasund til skiptins. Synti nú samt bara 300 metra því ég var orðin svolítið sein eftir flakk á milli sundlauga.
Svo tók við púlið í búningsklefanum. Koma sér í leppana yfir vel brennda og viðkvæma húð. Klína á sig andliti og reyna að fela bleika litinn í andlitinu. Og svo hárið maður. Ákvað að ég gæti bara ekki staðið í þessu á hverjum morgni. Þvo mér um hárið og blása það þurrt. Hárgreiðslumeistarinn minn setur extra tíma á mig því hárið á mér er svo lengi að þorna. Svo ég keypti mér sundhettu. Svona smokkadæmi. Mátaði hana þegar heim kom fyrir Gelgjuna, Viðhengið og eina skólasystur í viðbót. Tók nokkur dansspor til að auka á niðurlægingu Gelgjunnar.
Í vinnunni var haft orð á því hvað ég væri brún. Sólarpúðrið er semsagt alveg að virka og einhverju hefur ljósatíminn skilað.
Í kvöld var fyrsti Herbalife heilsuklúbbsfundur eftir sumarið og það er ljóst að ég er ekki ein um að hafa eytt sumrinu í að éta. Fríða vinkona og stuðningsmamma með meiru mældi á mér kroppinn og ég bannaði henni að finna síðustu mælingar fyrir sumarfrí, til að bera saman. Hún gat samt ekki stillt sig og fletti upp 3 mánaða gamalli mælingu. Jiiiiii fékkstu þér silicon í sumar?
Svo hló hún. Helvítið á henni.
Stundum veit Gelgjan hvað hún syngur. Minntist hún ekki eitthvað á huge brjóst um daginn?
Sunnudagur, 26. ágúst 2007
Its out there now - I'm fat
Í framhaldi af innhverfri íhugun varðandi hreyfingu og breytt og betra (aðallega minna) mataræði, og breyttan lífsstíl, hef ég tekið ákvörðun. Frá og með morgundeginum, fyrsta vinnudegi eftir sumarfrí, verður tekið á því. Og ef þessi ákvörðun hefði ekki verið tekin í gær þá hefði hún svo sannarlega verið tekin í dag eftir að ég fjárfesti í nýrri baðvog.
Ég ætlaði að vera sparsöm og kaupa digital baðvog í Tiger í Kringlunni. Held hún hafi kostað 1600 krónur. Hún var auðvitað búin þegar ég mætti þar í dag.
Ég dreif mig því yfir í Byggt & Búið og keypti mér eina á 4.100 krónur, því vigt skyldi ég fá. Þetta er mikið eðaltæki því hún gerir allt nema að vekja mig á morgnana. Á meðan ég skellti mér í kökuhlaðborð yfir til Önnu frænku þá settist Bretinn niður með vigtina og hóf að lesa manualinn. Þegar ég kom til baka, útblásin af kökum og fleira góðgæti, hófst sýnikennslan.
Bretinn lét mig stíga á vigtina og þar komst ég að því að kílóin fimm sem ég hef bætt á mig í sumar eru allt í einu orðin átta. OMG!!! Og svo bíðurðu aðeins sagði Bretinn... og núna máttu stíga og þá sérðu fituprósentuna.
Og áfram hélt hann: Og svo hérna er tafla yfir æskilega fituprósentu.... and you are.... no, Im not gonna say it.
Láttu ekki svona sagði ég.
Hann horfði á mig döpru augnaráði sem lýsti yfir samúð í minn garð; you are fat.
Og þar hafið þið það: opinberlega og samkvæmt bókinni er ég feit. FEIT. Fyrir 39 ára konu sem er 162 cm á hæð er ég ekki normal samkvæmt staðli, eða overweight. Nei, ég er feit.
Og fyrst við erum með þetta allt out in the open þá kemur þetta hér...... ég er..... ég er... what the hell 72 kg. Andskotinn.
Úr þessu verður bætt og það verður gert á eftirfarandi hátt (og þið eruð vitni mín, aðhald mitt og samviska mín):
- Hreyfing: Sundsprettur alla virka daga fyrir vinnu (hugsað til að koma blóðinu á hreyfingu, hjarta og lungum í betra horf og auka vöðvamassa). Jafnvel einstaka göngutúr með Vidda hund.
- Mataræði: Prótein/Herbalife shake eftir sund og í hádeginu (bragðbættur með skyri/banana/berjum/ávaxtasafa). Muna Omega hylkin, vítamínið og trefjatöflurnar (svo gott fyrir hægðirnar). Heitur kvöldmatur eldaður af Bretanum af ást og umhyggju fyrir mér.
- Svefnvenjur: Komin upp í rúm ekki seinna en á miðnætti. Sofnuð alls ekki seinna en 12:30. Ef á að stunda kynlíf þá verður það að gerast á öðrum tímum.
- Aðhald: Bloggheimar og Herbalife heilsuklúbburinn minn.
Andskotinn.
En nú er Bretinn að kalla á mig í mat. Egg og beikon með smjörsteiktum sveppum.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (42)
Fimmtudagur, 23. ágúst 2007
Nauðgunarlyfið út af lyfjaskrá - hagur okkar allra
Heiða bloggvinkona hefur verið að kanna mál sem snertir okkur öll, hvort sem við viljum sjá það eða ekki.
Í mars á þessu ári sagði Heiða frá því á blogginu sína að hún hefði kynnt sér svefnlyfið Flunitrazepam. Flestir kannast betur við það undir nafninu Rohypnol eða nauðgunarlyfið.
Hún skrifaði m.a.:
''Þetta tiltekna svefnlyf hefur enga sérstöðu sem er til bóta fyrir þá sjúklinga sem þurfa á svefnlyfi að halda. Á markaðnum eru tugir svefnlyfja sem gagnast sjúklingum alveg jafn vel og sem ekki hafa þá "kosti" sem nauðgarar sækjast í, þ.e. minnisleysi og almennt rænuleysi til að veita nauðgara mótspyrnu.
Augljósasti ''kostur'' lyfsins er að sjálfsögðu sá að nauðgarar geta verið nokkuð vissir um að fórnarlambinu er nánast ómögulegt að kæra eða framfylgja kæru vegna þessa minnisleysis. Lyfið er stundum notað við dáleyðslu vegna þess að það er nánast hægt að fá fólk til að gera hvað sem er undir áhrifum þess.''
Á síðu Heiðu eru nánari og ítarlegri upplýsingar um lyfið og svör sem hún fékk frá Landlæknisembættinu í þessari ''könnunarferð'' sinni.
Þrátt fyrir að auðveldlega væri hægt að nota önnur lyf fyrir sjúklinga í stað Flunitrazepam, hefur lyfið ekki verið tekið út af lyfjaskrá.
Heiða hefur nú beðið okkur (bloggara) um aðstoð til að vekja athygli á málinu, með því að blogga um það og/eða senda Lyfjastofnun tölvupóst. Hann má vel vera saminn af ykkur sjálfum eða bara copy/paste á textann hér undir:
Svefnlyfið Flunitrazepam hefur enga jákvæða virkni fyrir þá sjúklinga sem neyta þess fram yfir þá tugi annara svefnlyfja sem eru á lyfjaskrá.
Virka efnið í lyfinu hefur þó þau neikvæðu áhrif að af því skapast algjört minnisleysi og getuleysi til að greina umhverfi sitt. Þessi atriði hafa valdið því að lyfið hefur þann vafasama heiður að vera þekkt sem "nauðgunarlyf" (Date-Rape). Lengi hefur tíðkast, hér á landi sem annars staðar, að lauma því í drykki fólks til að ná fram áðurnefndu minnis- og getuleysi og ef allt fer samkvæmt áætlun fylgir nauðgun í kjölfarið. Það er nánast ógerlegt fyrir fórnarlamb þessa að kæra til lögreglu sökum minnisleysis.
Árið 2006 var Flunitazepam ávísað í ríflega 11.000 skömmtum. Þar sem lyfið hefur enga sérstöðu til bóta fyrir þá sjúklinga sem nota það fer ég þess á leit að Flunitrazepam verði tekið af lyfjaskrá hér á landi hið snarasta.
Öryggi barnanna okkar sem og annarra ástvina hlýtur að vega þyngra en svo að nauðsyn teljist að hafa þetta hættulega lyf í umferð
Virðingarfyllst
Jóna Á. Gísladóttir
Föstudagur, 17. ágúst 2007
Ekki neglur og ekki IKEA
Klukkan er bara hálfellefu. Ég hef nógan tíma ennþá til að laga og lakka neglurnar á mér. Gæti meira að segja skvísað tánöglunum inn í prógrammið.
Hvað er opið lengi í IKEA? Hef ég enn tíma til að kaupa náttborð?
Bretinn þurfti óvænt að skutlast í vinnuna til að sitja fund. IKEA ferðinni var því frestað. Hann verður þó að fá að hafa eitthvað að segja um hlut sem er það síðasta sem hann sér áður en hann sofnar og það fyrsta þegar hann vaknar. Og þá er ég að tala um náttborð. Er ég of tillitssöm?´
Ég ákvað því að viðra aðeins Bresku konuna. Við lögðum bílnum við Hallgrímskirkju og töltum niður Skólavörðustíginn. Ég taldi að hún væri orðin aðframkomin af löngun í lestur breskra blaða svo við fórum á Súfistann. Það var virkilega huggulegt. Ég fékk mér cappuchino og hún fékk Latte í súpuskál. Á meðan ég blaðaði í gegnum Hjemmet og Norsk ukeblad las hún eitthvað menningarlegt breskt dagblað og var alsæl alveg. Við ræddum líka aðeins löngun mína í fartölvu og ég sá að konan á næsta borði var orðin hrædd um tölvuna sína. Ég hef sennilega verið ansi áköf.
Ég ákvað svo að kaupa bókina Engill meðal áhorfenda, eftir Þorvald sæta Þorsteinsson. En hún er víst ófáanleg. Ég fór í tvær fornbókabúðir á Hverfisgötunni en fann ekki bókina. Veit einhver hvar ég get fengið hana?
Við enduðum niðri við tjörn. Það er víst búið að setja hákarl í tjörnina sem nefnist Mannafæla. Komið skilti og allt.
Föstudagur, 17. ágúst 2007
Neglur og IKEA
Í fyrsta skipti í fjölda ára er mér að takast að safna nöglum. Samt er ég í sumarfríi. Hef því nægan tíma til að naga neglurnar, kroppa í naglaböndin og bara gera það sem ég geri venjulega. Sem er að misþyrma á mér fingrunum. Sem er algjör synd því hendurnar eru minn fallegasti líkamspartur. Píanófingur, sagði einhver þegar ég var krakki.
Í dag ætla ég að taka fram naglaþjöl, handáburð og nýja naglalakkið mitt og dúlla við hendurnar á mér. Svo fer ég kannski bara í IKEA. Þó að Breska konan þoli ekki búðarráp. Látum Bretann sjá um Bresku konuna. IKEA ferðin verður bara mín golfferð.
Þriðjudagur, 14. ágúst 2007
Elísa hvar ertu?
Ég auglýsi hér með eftir konu. Þetta má ekki vera hvaða kona sem er. Sú sem ég leita að heitir Elísa og á mann sem heitir Hermann.
Elísa sá mér fyrir fyrsta sumarjobbinu. Ég passaði fyrir hana lítinn kút sem heitir líka Hermann. Hann er auðvitað ekki lítill lengur. Sennileg um 25 ára.
Fyrsta daginn sem ég passaði Hemma litla fór ég með hann heim og amma kafnaði næstum því úr hlátri við að horfa á mig reyna að koma hreinni bleyju á kútinn. Ég kunni ekkert til verka og þetta var á tímum taubleyjanna og plastsins sem maður batt utan um litlu kroppana. Hemmi litli var sprækur snáði og skreið alltaf út úr höndunum á mér. Það var held ég á því andartaki sem ég ákvað að eignast ekki sjálf börn fyrr en einhver finndi upp bréfbleyjur.
Elísa gladdi mig mikið um daginn þegar hún setti inn komment hjá mér og svo bað ég hana um netfangið hennar. Hún gaf mér það upp hér á blogginu en það er sama hversu oft ég skrolla hér fram og til baka í færslunum mínum.. ég finn þetta ekki.
Svo Elísa mín. Ef þú lest þetta viltu þá senda mér tölvupóst á jonag@icelandair.is. Mig langar afskaplega mikið að heyra í þér.
Mánudagur, 13. ágúst 2007
Ég hef tekið áskorun Ellýar.......
......og ráðleggingum Jennýar.
Ég á fund með útgefanda í fyrramálið. Fokk it... eða þannig.
Hef ákveðið að taka Secret-ið á þetta. Hugsa jákvætt... allt að því hrokafullt. AUÐVITAÐ kemur eitthvað jákvætt út úr þessu. AFHVERJU ætti það ekki að gera það?
Aldingarðurinn my arse....
Og svo er það hin hliðin. Rowling, mamma Harry Potter, þurfti að tala við þó nokkuð marga útgefendur áður en hún fékk samning. Svo að fá ''nei'' er ekki banvænt.
Ég er farin á taugum.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (61)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 1640754
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2019
2018
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
-
solskinsdrengurinn
-
skrifa
-
jenfo
-
gelgjan
-
annambragadottir
-
marzibil
-
brynja
-
hk
-
gurrihar
-
lehamzdr
-
katlaa
-
eddaagn
-
jahernamig
-
hronnsig
-
martasmarta
-
katrinsnaeholm
-
palmig
-
ipanama
-
hallarut
-
tommi
-
ktomm
-
poppoli
-
svavaralfred
-
kollajo
-
bergruniris
-
bene
-
bennason
-
jensgud
-
solrunedda
-
heidathord
-
ringarinn
-
tofraljos
-
kjaftaskur
-
ormurormur
-
zeriaph
-
unns
-
ellasprella
-
hjolagarpur
-
salka
-
nonniblogg
-
markusth
-
rebby
-
birna-dis
-
garun
-
landsveit
-
olofannajohanns
-
brylli
-
evaice
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
rustikus
-
singer
-
jaxlinn
-
krossgata
-
mummigud
-
blekpenni
-
gerda
-
baddahall
-
holi
-
grafarholt
-
gudnylinda
-
thegirl
-
gretarorvars
-
thordis
-
herdis
-
mammzan
-
sigthora
-
bet
-
saedis
-
emmgje
-
sigurjonsigurdsson
-
janus
-
astromix
-
overmaster
-
thorasig
-
gudni-is
-
sunnadora
-
kjarrip
-
810
-
gislihjalmar
-
beggagudmunds
-
sirrycoach
-
betareynis
-
ilovemydog
-
rannveigmst
-
stormadis
-
perlan
-
bergdisr
-
skondrumamma
-
snar
-
stormur
-
ljonid
-
raggipalli
-
hjordiz
-
almaogfreyja
-
katja
-
lady
-
sigrunfridriks
-
zunzilla
-
olinathorv
-
bidda
-
smjattpatti
-
jogamagg
-
disadora
-
harpao
-
fuf
-
alexm
-
larahanna
-
juliaemm
-
saemi7
-
gudrunmagnea
-
svala-svala
-
kari-hardarson
-
hlf
-
hlinnet
-
annagisla
-
einari
-
lena75
-
hector
-
saethorhelgi
-
ernafr
-
birnarebekka
-
heidistrand
-
kerla
-
hannamar
-
jara
-
supermamma
-
monsdesigns
-
malacai
-
solveigth
-
siggathora
-
senorita
-
snjaldurmus
-
photo
-
stingi
-
pollyanna
-
steingerdur
-
icekeiko
-
majaogco
-
skordalsbrynja
-
danjensen
-
lilly
-
heidabj
-
omarpet
-
helgamagg
-
nori
-
jamesblond
-
gretaulfs
-
rattati
-
hogni
-
ragjo
-
kolgrima
-
skjolid
-
hugrunj
-
egill75
-
amman
-
liljabolla
-
asgerdurjoh
-
okurland
-
rannthor
-
svalaj
-
siggith
-
vefritid
-
zsapper
-
laz
-
graceperla
-
rannug
-
agbjarn
-
alliragg
-
fjarki
-
birtabeib
-
roslin
-
lindape
-
rosa
-
tinnaeik
-
muszka
-
krummasnill
-
lindalea
-
fjola
-
solan
-
scorpio
-
evabenz
-
isleifure
-
karitryggva
-
ellasiggag
-
beggita
-
ollabloggar
-
madddy
-
songfuglinn
-
emm
-
lindagisla
-
turettatuborg
-
einarsigvalda
-
huldadag
-
siggasin
-
credo
-
loathor
-
carma
-
komaso
-
fifudalur
-
rosabla
-
lillagud
-
eythora
-
griman
-
eyrunelva
-
svanurg
-
strumpurinn
-
godihundur
-
hallidori
-
annriki
-
sibbulina
-
helgurad
-
huldumenn
-
julianamagg
-
berglindnanna
-
huldam
-
joik7
-
venus
-
osland
-
liso
-
amaba
-
asako
-
hryssan
-
mammann
-
leyla
-
gunnarggg
-
sigrunzanz
-
fanneyunnur
-
himmalingur
-
helgabst
-
bostoninga
-
christinemarie
-
jea
-
elisabeta
-
perlaoghvolparnir
-
meyjan
-
wonderwoman
-
coke
-
ragnhildurthora
-
gullilitli
-
tommi16
-
ea
-
mariaannakristjansdottir
-
einarorneinars
-
lindalinnet
-
joninaros
-
reynzi
-
rosagreta
-
lauola
-
reynir
-
elinora
-
ma
-
olapals
-
bestalitla
-
kolgrimur
-
handtoskuserian
-
vonin
-
kaffi
-
einarhardarson
-
gleymmerei
-
brandarar
-
alf
-
hreinsamviska
-
litlakonan
-
lucas
-
reisubokkristinar
-
jgfreemaninternational
-
olofdebont
-
thjodarblomid
-
vilma
-
ollana
-
gudrununa
-
holar
-
gotusmidjan
-
huldastefania
-
mubblurnar
-
bjarnihardar
-
vild
-
skrudur
-
jyderupdrottningin
-
sifjan
-
letilufsa
-
hrundt
-
robbitomm
-
brudurin
-
anitabjork
-
blindur
-
astabjork
-
bailey
-
gattin
-
draumur
-
einhugur
-
trygg
-
eskil
-
evags
-
gudrunkatrin
-
gudrunss
-
nf26b
-
topplistinn
-
helgaas
-
helgatho
-
hildurhelgas
-
drum
-
innipuki
-
ingal
-
kikka
-
astroblog
-
oliskula
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
kariaudar
-
vga
-
thorolfursfinnsson
-
motta