Leita í fréttum mbl.is

Og enn grenja ég

Ég þurfti virkilega á einhverju upplífgandi að halda í kvöld. Fyrir valinu varð að leggjast yfir DVD, nánar tiltekið Love actually.

Hvort sem þið trúið því eða ekki þá hef ég aðeins einu sinni séð þessa mynd og guð minn góður..... Ef ég grenjaði svona yfir henni í fyrsta skipti þá má ég hundur heita.

Þegar kreditlistinn rúllaði í endann þá var ég gjörsamlega uppgefin af því að reyna að halda aftur af gráthviðunum sem vildu brjótast út.

En samt var þetta upplífgandi á skrýtinn hátt. Ég held að þetta sé sætasta mynd sem framleidd hefur verið og minnir mann á það enn og aftur að við hlið bretans (og þá meina ég ekki Bretans) er kaninn hreinlega lásí í kvikmyndagerð og handritagerð og húmor og hljóði og klippingu.... nei, aðeins komin fram úr mér, en þessi mynd er barasta snilld. Hvernig hún er byggð upp og hvernig allir þessir karakter tengjast á einhvern hátt á endanum. Leikararnir eru frábærir... sorry, ég er bara að missa mig yfir þessu.

Ég held ég geti kosið þetta bestu rómantísku gamanmynd sem framleidd hefur verið, án þess að blikna. Og það þýðir ekki að vera með neitt skítkast yfir því. Þannig er það bara og hananú.

405px-Love_Actually


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Auðunsdóttir

Þetta er yndisleg mynd,

Helga Auðunsdóttir, 9.8.2007 kl. 04:33

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég ætla að verða mér úti um hana!

Edda Agnarsdóttir, 9.8.2007 kl. 06:47

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Ekki gráta það kemur aftur þjóðhátíð að ári liðnu.

Georg Eiður Arnarson, 9.8.2007 kl. 09:28

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Er myndin ekki fyrir karlmenn?

Þröstur Unnar, 9.8.2007 kl. 09:30

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég tek þessa næst.  Þá sjaldan að ég leigi DVD er ömurlegt að vera með tvær jafnleiðinlegar.  Ghostrider var önnur.  Er orðin svo leið á myndum um fólk sem selur sál sína djöflinum, að það er ekki fyndið.  Alltaf gott að gráta af og til.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.8.2007 kl. 09:40

6 Smámynd: Daði Einarsson

Þröstur, auðvitað er hún líka fyrir karlmenn. Ég á þessa mynd og hef nokkuð gaman að horfa á hana einstaka sinnum.  Alveg frábær mynd og eins og þú segir gott dæmi um að Bretar kunna að búa til alvöru myndir með góðum söguþræði með skemmtilegum húmor. 

Daði Einarsson, 9.8.2007 kl. 10:02

7 Smámynd: Birna Dís

Ég er svo sammála - var að vinna í Sambíóunum jólin sem þessi mynd var sýnd. Stalst alltaf snemma inn í sal og sá endann 5 sinnum á dag. Táraðist alltaf

Þetta er myndin sem ég horfi á þegar ég er í viðkvæmu skapi og langar til að skæla smá

Birna Dís , 9.8.2007 kl. 10:12

8 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Hefurðu séð in Amerika......Svaka krúttleg mynd, ég grenjaði voða mikið yfir henni en ég verð að viðurkenna að ég er ekki enn búin að sjá þessa mynd, það er næst á dagskrá hjá mér Sú mynd sem ég horfi oft á þegar mig langar að komast í gott skap er Amelie.....hún er eins og frönsk Políanna Hafðu það gott í dag Knús

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 9.8.2007 kl. 10:29

9 Smámynd: Ómar Ingi

Awwwww

Ómar Ingi, 9.8.2007 kl. 10:38

10 Smámynd: Halla Rut

Myndin er æðisleg í einu orði sagt.

Halla Rut , 9.8.2007 kl. 10:51

11 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Þetta er æðisleg mynd - ein af mínum uppáhalds.

Björg K. Sigurðardóttir, 9.8.2007 kl. 10:57

12 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Ég grenja alltaf reglulega yfir þessari mynd

Brynja Hjaltadóttir, 9.8.2007 kl. 12:40

13 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég verð að viðurkenna það að mér fanst þessi biomynd ÖMURLEG... Besta vinkonan mín sat við hliðina á mér og dásamaði þessa mynd upp í hæstu hæðir meðan ég reikspólaði hneikslun yfir lágkúrunni.... Þessi mynd er tíbísk ástarsöguþvæla sem byggir á óskhyggju um hvernig ástin og lífið getur EKKI samtvinnast í raunveruleikanum en ekki hvernig ástin er í raun og veru.  Úff ég fæ vægan skamt af velgjutilfinningu við tilhugsina  um þessa mynd ... sérstaklega í restina þegar tjaldið opnaðist og forsettisráðherran og gengilbeinan kysstust..... og allir í salnum fóru að klappa..... OJ BARA KVENNLEGGT TILFINNINGASORAKLÁM ..   

Brynjar Jóhannsson, 10.8.2007 kl. 15:37

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Brynjar. Rólegur!  Það er ekki eins og við séum að horfa á raunveruleikann þegar við horfum á Indiana Jones, Die hard eða einhvern matsjó gæja í bang bang og stökkva á milli lesta leik. Stundum má bara láta sig dreyma um fallegan heim og að öll dýrin í skóginum séu vinir. Að lokum.... GENGILBEINAN? hahahaha. Alltaf hatað þetta orð.

Jóna Á. Gísladóttir, 10.8.2007 kl. 16:13

15 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

NEI NEI    ... svo sem ekki (INDJÁNA) Jóna ....  EN SAMT... ég fæ ælun upp í kok þegar ég hugsa um þessa mynd það eru útbrot farin að myndast á líkamanum nú þegar.. 

Indjána jón hvað ?  

Þú ættir nú að sjá mig fara sumar póstferðinar niður í bæ ? ... PIFFF.. þá myndir þú nú ekki gefa mikið fyrir Indjána JÓN. Hver svaðilförin á fætur annari er farin á milli veitingarstaðanna og slepp ég oft með naumindum fram hjá grautfúlum kúnnum sem hugsa mér gott til glóðarinnar.   Lipurðinn er með ólíkindum enda er ég fimari en VILLIKÖTTUR og skjótari hlébarði í hreifingum... Sannkallað kattadýr í manslíki sem  lætur engan ósnortin sem verður á minni för.

Brynjar Jóhannsson, 10.8.2007 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 1639923

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband