Föstudagur, 13. mars 2009
Þegar meira að segja Þeim Einhverfa blöskrar...
Ég vildi svo gjarnan prýða heimilið mitt með fjöldanum öllum af grænum pottaplöntum; t.d. drekatrjám (næstum ódrepandi planta) eða burknum (fjandanum viðkvæmari). Og ég hef reynt. Margoft í gegnum árin. En ef það er til eitthvað í andstæðri merkingu við ''græna fingur'' þá endilega leyfið mér að heyra. Því ég hef það.
Ein planta hefur lifað í allt að 2 ár hjá mér núna og það er lítið drekatré í hvítum potti. Ég er afar stolt af þessum grænu blöðum. Þó veit ég það er eingöngu staðsetning plöntunnar sem hefur bjargað henni frá sömu örlögum og fyrirrennurum hennar. Hún fylgist nefnilega með fjölskyldumeðlimum bursta tennur kvölds og morgna, frá borði við vaskinn á baðherberginu.
Og í hvert sinn sem ég sé að hún er farin að drjúpa höfði þá eru hæg heimatökin að skvetta á hana vatni beint úr krananum.
Aðra plöntu á ég sem er mun stærri en þessi á baðherberginu og stendur í stofunni. Hún tórir með naumindum. Það er Fríðu Brussubínu að þakka, sem aumkvar sig yfir hana öðru hvoru, vökvar og fjarlægjir dauð blöð. Klappar henni og hughreystir.
Ég er öll að vilja gerð að hugsa vel um aumingja blómið en ég á það til að gleyma að vökva. Það er að segja: þegar ég er á leið inn í eldhús að ná í vatn til að vökva með, þá gleymi ég á leiðinni hvað ég ætlaði að gera og fer að þurrka af borðum í staðinn.
-----
Fyrir nokkru síðan var ég að bardúsa eitthvað í eldhúsinu þegar Sá Einhverfi kom inn. Opnaði hvern skápinn á fætur öðrum og var klárlega að leita að einhverju.
Hvað viltu Ian, sagði ég. Ég var eiginlega viss um að hann væri að leita að hlaup-köllum. Uppáhalds sælgætinu sínu sem við reynum að fela á mismunandi stöðum. Hann finnur þá samt alltaf á endanum.
Hann svaraði mér engu en dró fram mælikönnu og fyllti hana af vatni.
Æi nei, sagði ég. Ekki fara að sulla núna.
Hann stóð og horfði á mig. Beið eftir að ég skipti um skoðun. Hann var alls ekki tilbúinn til að láta könnuna frá sér.
Ég hugsaði mig um andartak en forvitnin tók yfirhöndina; allt í lagi, þú mátt taka könnuna.
Þá gekk hann rakleiðis inn í stofu, að vesældarlegu plöntunni og hellti vatninu í blómapottinn. Svo skilaði hann könnunni aftur inn í skáp og valhoppaði að því loknu upp í herbergið sitt. Væntanlega til að sinna skriftarþörfinni.
Það má segja að ég skilji núna að ástandið er slæmt. Fyrst Þeim Einhverfa er farið að blöskra hversu mjög ég vanræki blómin þá er aðeins um tvennt að ræða: taka sig taki eða leyfa honum að sjá um þetta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Fimmtudagur, 12. mars 2009
Hárið á hausnum á okkur
Í gegnum árin hefur mig oft langað að ganga berserksgang eftir að hafa eytt stund á hinum ýmsu hárgreiðslustofum... setið fyrir framan spegil og fylgst með stórslysi í uppsiglingu.
Ég hef samt aldrei látið það eftir mér.
Ég verð fjörutíu og eins árs á þessu ári og ég held að það séu ekki nema í mesta lagi tvö ár síðan þessi tilfinning kom yfir mig í síðasta sinn.
Hún byrjar sem kitlandi pirringur í maganum, færist upp eftir líkamanum. Orsakar stífar axlir, herping við munnvikin og stjörnur fyrir augunum.
Allt vegna áreynslu við að halda aftur að lönguninni til að stappa niður fótum, öskra hátt og hömlulaust, bíta sökudólginn, fleygja sér í gólfið og berja gólfefnið með krepptum hnefum, sparka með bífunum út í loftið og gráta fögrum tárum. Og hér erum við ekki að tala um uppúrkreist krókódílatár heldur alvöru vatnsflaum sem kemur beint frá brostnu hjarta.
Það breytir ekki neinu að í flestum... ef ekki öllum... þessum tilvikum, hef ég getað sjálfri mér um kennt. Það hefur verið ég sem ákveð að ''reyna eitthvað nýtt'', ekki verið ánægð með afraksturinn og eigin hugmynd og þá er svo þægilegt að grenja: ''klipparinn misskildi mig''.
Það er ekki ofsögum sagt að hárið skipti okkur konur máli. Við veljum okkur hárgreiðslu eftir því í hvernig skapi við erum. Eftir því hvernig við viljum koma fyrir. Uppsett fyrir virðuleikann, sléttað við dragtina, krullað á tálkvendinu.
En auðvitað eru líka til karlmenn sem leggja mikið upp úr hárinu á sér. Við erum svo sem ekkert einar um þetta.
Óánægður kúnni beit hársnyrtinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Mánudagur, 9. mars 2009
Valdabarátta á heimilinu o.fl.
Ég fór á djammið á laugardagskvöldið. Árlegt þemaball kvennadeildar Fáks. Þemað þetta árið var ''bleikur'' og það er alltaf jafn gaman að horfa yfir hópinn og sjá hugmyndaflugið og vinnuna sem hefur farið í klæðnaðinn hjá hestakonunum.
Ég fór á fætur á sunnudagsmorguninn með Þeim Einhverfa, gaf honum morgunmat en skreið svo aftur upp í með bók. Sofnaði að sjálfsögðu aftur og svaf ansi lengi.
Fannst þó kominn tími til að fara á fætur þegar mig var farið að dreyma vinnufélaga. Það er í sjálfu sér allt í lagi, mér þykir vænt um þennan vinnufélaga minn. En hann var mættur heim til mín og farinn að þrífa. Ég ákvað að vakna þegar hann var farinn að pússa fúgur á milli flísa með tannbursta.
En þetta varð til þess að ég hunskaðist til að taka fram ryksugu og tusku þegar leið á daginn. Og ég er stolt að segja frá því að í dag var slökkt á jólaseríunum á trjánum fyrir framan húsið. Ekki nóg með það.... Bretinn fjarlægði þær líka.
Sá Einhverfi er ansi viljasterkur þessa dagana en við Bretinn reynum að vera enn viljasterkari. Verðum að vera það.
Drengurinn á það jafnvel til að öskra á mig: ''hættu þessu'', þegar ég segi honum að gera eitthvað sem honum ekki líkar.
Svo tekur hann Lottu á þetta reglulega; rekur upp öskur, stappar niður fæti og hrópar: mamma bjáni. Þá spyr ég: ertu Lotta núna og þá hlær hann.
Í gær vildi hann nammi og ég sagði nei. Þá hækkaði hann röddina og sagði í skipunartóni: ég verð að fá nammi.
En þetta breytir því ekki að hann er ennþá með lítið hjarta og í sannleika sagt hálfgerð grenjuskjóða. Og það er engum að kenna nema mér sem hef átt erfitt með í gegnum tíðina að neita honum um vissa hluti.
Eitthvað var hann ósáttur við mig á föstudaginn.. bað um eitthvað og fékk ekki. Hann beygði samstundis af og dramatíkin er svo mikil að hann kreistir aftur augun og neitar að opna þau. En í þetta skipti vildi hann leita huggunar hjá mömmu sinni sem sat í stól í tveggja metra fjarlægð. Og þar sem hann var svo niðurbrotinn að augun voru sem límd aftur, þá gekk hann í áttina til mín, fálmandi með báðum höndum fram fyrir sig, eins og blindur maður í ókunnu umhverfi.
Ég gat ekki stillt mig og hló upphátt, þetta var svo kjánalegt. En stóri strákurinn fann mig, settist í fangið á mér og grét við öxlina á mér.
Ég sagði honum að hann væri orðinn svo stór strákur að hann yrði að hætta að fara að gráta í hvert skipti sem eitthvað væri á móti honum. Tilhugsunin um að sitja með einn átján ára í fanginu sem er mér vaxinn yfir höfuð er ekki beint álitleg.
Ég hef ekki hugmynd um hvort hann skildi mig. En gráturinn hljóðnaði og allt var gleymt nokkrum mínútum seinna.
Á morgun ætla ég að endurnýja kynnin við fólkið hennar Báru í Lágmúlanum og byrja í ræktinni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Miðvikudagur, 4. mars 2009
Heimilisþvotturinn
Þvottahúsið er daglegur viðkomustaður. Hjá fimm manna fjölskyldu er alltaf hægt að finna sér eitthvað að dunda við í þvottahúsinu.
Síðustu mánuði hefur reyndar, hægt og bítandi, þróast hefð á heimilinu, sem ég kann afskaplega vel við;
ég sé um að setja í þvottavél (það felur í sér að tölta með, nær undantekningarlaust fulla, óhreina-taus-körfuna af efri hæðina niður í þvottahús, sortera í vélina og reka svo á eftir fatnaði sem hefur af einhverjum undarlegum ástæðum endað á gólfinu í barnaherbergjunum í staðin fyrir körfunni).
Hreini þvotturinn á sér fastan samastað í betri stofunni. Þar liggur hann í stól. Stundum í marga daga áður en einhver grípur í taumana.
Og þessi ''einhver'' er venjulega Bretinn. Þá kallar hann til krakkaskarann og skipar liðinu í samanbrot á þvotti. Úr verður hin skemmtilegasta samverustund. Glósur fljúga manna á milli vegna fatnaðar sem krökkunum finnst asnalegur, eins og síðar með tippagati eða g-strengur í eigu gömlu konunnar.
Svo er líka hægt að fylgjast með sjónvarpinu í leiðinni. Sá Einhverfi gerir reyndar meira ógagn en gagn en hann er þó farinn að bera þvottinn sinn samanbrotinn upp og ganga frá honum ofan í skúffur.
En Unglingurinn og Gelgjan verða færari í þvottafrágangi með hverri vikunni sem líður... líka Bretinn. Og það venst vel að leyfa öðrum að sjá um þennan hluta heimilisverkanna. Mjög vel.
Í kvöld var ég að rífa út úr þvottavélinni og henda í þurrkarann. Ég missti nokkrar flíkur í gólfið í hamaganginum og beygði mig niður til að taka þær upp. Fann fyrir sokk sem ég var eitt andartak, ekki viss um hvort væri blautur eða þurr og þá hvort hann tilheyrði þvottinum sem ég var að taka úr þvottvélinni eða ekki.
Án þess að hugsa mig um rak ég hann upp að nefinu og andaði djúpt og rækilega að mér. Svona eins og maður gerir þegar maður ætlar að njóta ilmsins af hreinum rúmfötum.
Ég komst að því á sekúndubroti að þessi átti heima í óhreina tauinu. Mæli ekki með þessari aðferð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Þriðjudagur, 3. mars 2009
Atburðum hlaðinn mars-mánuður
Hvar er rigning? spurði Sá Einhverfi í morgun. Aldeilis standandi hlessa á þessum endalausa snjó.
Í gærmorgun var hann ekki jafn umburðarlyndur og argaði á mömmu sína yfir veðurfarinu. Mamman gargaði á móti. Hneyksluð á skilningsleysi krakkans: Ian það er vetur for Gods sake.
EKKI VETUR, gargaði hann á móti.
Sem sagt hugguleg morgunstund sem við áttum þarna mæðginin.
Ég hef ákveðið að bráðlega mun ég yfirgefa landið í vikutíma. Ætla að halda í milda veðrið í Þýskalandi. Það verður þó vinnuferð þar sem ég mun eyða tímanum við skriftir og heimildaöflun á daginn. En kvöldin mun ég eiga með Berlínar-Brynju. Oooo hvað það verður næs, svo ég tali ekta íslensku.
Fleira skemmtilegt er framundan hjá mér í þessum mánuði. Ball, árshátíð, ferming hjá Hafliða uppáhalds frænda, strípur og klipping (mjöög veigamikið atriði) og endahnúturinn verður rekinn í byrjun apríl en þá stendur brúðkaup fyrir dyrum í fjölskyldunni.
Upp úr því þarf svo bara að fara að huga að sumrinu. Almáttugur hvað tíminn líður fljótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 2. mars 2009
Polli = Pólverji ?
Eitt eru ryskingar á milli tveggja drengja á unglingsaldri þar sem hormónaflæði er á fullu blasti, sem kannski endar með smá blóðnösum og særðu stolti. Annað er hrein og bein líkamsárás tveggja drengja á jafnaldra sinn, sem svo endar á slysadeild eða spítala.
Ég er furðu lostin yfir þessu viðtali við skólastjórann sem vill sem minnst úr málinu gera og finnst það blásið upp af fjölmiðlum. Hvað þýðir það? Blásið upp..? Staðreyndirnar liggja fyrir og þær eru ekki fallegar.
Ég er viss um (eða vona allavega) að þjálfarar í bardaga- og sjálfsvarnaríþróttum hvers konar leggja ríka og mikla áherslu á drengskap og það að nota ekki kunnáttuna utan æfinga og keppna. Nema að sjálfsögðu í sjálfsvörn.
Að mínu mati er þetta mál hið alvarlegasta af fleiri en einni ástæðu. Og ég er afar ósátt við þá vörn (eða kannski afneitun) sem skólastjórinn virðist vera í. Hún minnist ekki orði á að tekið verði á atvikinu og það rætt til að koma í veg fyrir endurtekningu. Hver eru eiginlega skilaboðin til annarra nemenda í skólanum ef tekið er á þessu af slíkri léttúð?
Og nú spyr sá sem ekki veit: getur verið að Polli sé nýyrði og sé notað sem uppnefni og í niðrandi tón um Pólverja?
Blóðug slagsmál skóladrengja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Laugardagur, 28. febrúar 2009
Hvaðan kemur fýlan
Ég fór í Kolaportið í dag og keypti mér hvít stígvél fyrir 500 kall. Þess utan græddi ég skó og tösku sem Helgu hálfsystur vantaði að losna við. Guð blessi hana Helgu hálfsystur. Svo keypti ég mér hallærisleg gleraugu í Tiger. Lillablá með steinum. Þurfti að skerpa sjónina fyrir saumaskapinn. Það má eiginlega segja að saumaskapurinn hafi átt hug minn allan í þunglyndiskastinu undanfarið. Enda hefur skotgengið með myndina sem ég er að sauma.
Nú hef ég kveikt á 9 kertum í stofunni og borðstofunni. Kveikt er á lömpum í öllum hornum en að öðru leyti eru ljósin slökkt. Gelgjan er hjá Viðhenginu, Unglingurinn hangir uppi í herberginu sínu, Bretinn lagði sig.. er eitthvað slappur, og Sá Einhverfi er í sínu herbergi að stúdera hulstur af DVD myndum.
Ég er því ein með sjálfri mér, sofandi hundi og blogginu sem ég hef heimsótt ansi takmarkað síðustu vikur.
Það er huggulegt og lágstemt í kringum mig, þó að Sá Einhverfi hafi komið hlaupandi niður stigann rétt áðan með hávaða og látum. ÞEGIÐU, kallaði hann í sífellu. Ég veit að hann er ekki að tala við mig og nenni ekki að ávíta hann.
Uppþvottavélin suðar, mér á vinstri hönd og hundurinn hrýtur lágt í antiksófanum hennar ömmu, hér hægra megin við mig.
Sem sagt huggulegt, rólegt og akkúrat eins og laugardagskvöld eiga að vera. Það eina sem brýtur upp stemninguna er þessi skítafýla sem leggur fyrir vit mér. Ég þarf virkilega að fara og finna út hvort þetta komi frá hesthúsahverfinu í Víðidal, eða hvort einu af heimilisdýrunum hafi orðið brátt í brók, hér í einhverju horninu.
Að því loknu ætla ég að steikja hamborgara ofan í þá fjölskyldumeðlimi sem hafa áhuga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 20. febrúar 2009
Gulur litur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 29. janúar 2009
Vafrað um í huganum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 28. janúar 2009
Þú ert alltaf...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 1640371
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2019
2018
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- solskinsdrengurinn
- skrifa
- jenfo
- gelgjan
- annambragadottir
- marzibil
- brynja
- hk
- gurrihar
- lehamzdr
- katlaa
- eddaagn
- jahernamig
- hronnsig
- martasmarta
- katrinsnaeholm
- palmig
- ipanama
- hallarut
- tommi
- ktomm
- poppoli
- svavaralfred
- kollajo
- bergruniris
- bene
- bennason
- jensgud
- solrunedda
- heidathord
- ringarinn
- tofraljos
- kjaftaskur
- ormurormur
- zeriaph
- unns
- ellasprella
- hjolagarpur
- salka
- nonniblogg
- markusth
- rebby
- birna-dis
- garun
- landsveit
- olofannajohanns
- brylli
- evaice
- ingolfurasgeirjohannesson
- rustikus
- singer
- jaxlinn
- krossgata
- mummigud
- blekpenni
- gerda
- baddahall
- holi
- grafarholt
- gudnylinda
- thegirl
- gretarorvars
- thordis
- herdis
- mammzan
- sigthora
- bet
- saedis
- emmgje
- sigurjonsigurdsson
- janus
- astromix
- overmaster
- thorasig
- gudni-is
- sunnadora
- kjarrip
- 810
- gislihjalmar
- beggagudmunds
- sirrycoach
- betareynis
- ilovemydog
- rannveigmst
- stormadis
- perlan
- bergdisr
- skondrumamma
- snar
- stormur
- ljonid
- raggipalli
- hjordiz
- almaogfreyja
- katja
- lady
- sigrunfridriks
- zunzilla
- olinathorv
- bidda
- smjattpatti
- jogamagg
- disadora
- harpao
- fuf
- alexm
- larahanna
- juliaemm
- saemi7
- gudrunmagnea
- svala-svala
- kari-hardarson
- hlf
- hlinnet
- annagisla
- einari
- lena75
- hector
- saethorhelgi
- ernafr
- birnarebekka
- heidistrand
- kerla
- hannamar
- jara
- supermamma
- monsdesigns
- malacai
- solveigth
- siggathora
- senorita
- snjaldurmus
- photo
- stingi
- pollyanna
- steingerdur
- icekeiko
- majaogco
- skordalsbrynja
- danjensen
- lilly
- heidabj
- omarpet
- helgamagg
- nori
- jamesblond
- gretaulfs
- rattati
- hogni
- ragjo
- kolgrima
- skjolid
- hugrunj
- egill75
- amman
- liljabolla
- asgerdurjoh
- okurland
- rannthor
- svalaj
- siggith
- vefritid
- zsapper
- laz
- graceperla
- rannug
- agbjarn
- alliragg
- fjarki
- birtabeib
- roslin
- lindape
- rosa
- tinnaeik
- muszka
- krummasnill
- lindalea
- fjola
- solan
- scorpio
- evabenz
- isleifure
- karitryggva
- ellasiggag
- beggita
- ollabloggar
- madddy
- songfuglinn
- emm
- lindagisla
- turettatuborg
- einarsigvalda
- huldadag
- siggasin
- credo
- loathor
- carma
- komaso
- fifudalur
- rosabla
- lillagud
- eythora
- griman
- eyrunelva
- svanurg
- strumpurinn
- godihundur
- hallidori
- annriki
- sibbulina
- helgurad
- huldumenn
- julianamagg
- berglindnanna
- huldam
- joik7
- venus
- osland
- liso
- amaba
- asako
- hryssan
- mammann
- leyla
- gunnarggg
- sigrunzanz
- fanneyunnur
- himmalingur
- helgabst
- bostoninga
- christinemarie
- jea
- elisabeta
- perlaoghvolparnir
- meyjan
- wonderwoman
- coke
- ragnhildurthora
- gullilitli
- tommi16
- ea
- mariaannakristjansdottir
- einarorneinars
- lindalinnet
- joninaros
- reynzi
- rosagreta
- lauola
- reynir
- elinora
- ma
- olapals
- bestalitla
- kolgrimur
- handtoskuserian
- vonin
- kaffi
- einarhardarson
- gleymmerei
- brandarar
- alf
- hreinsamviska
- litlakonan
- lucas
- reisubokkristinar
- jgfreemaninternational
- olofdebont
- thjodarblomid
- vilma
- ollana
- gudrununa
- holar
- gotusmidjan
- huldastefania
- mubblurnar
- bjarnihardar
- vild
- skrudur
- jyderupdrottningin
- sifjan
- letilufsa
- hrundt
- robbitomm
- brudurin
- anitabjork
- blindur
- astabjork
- bailey
- gattin
- draumur
- einhugur
- trygg
- eskil
- evags
- gudrunkatrin
- gudrunss
- nf26b
- topplistinn
- helgaas
- helgatho
- hildurhelgas
- drum
- innipuki
- ingal
- kikka
- astroblog
- oliskula
- joklamus
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- kariaudar
- vga
- thorolfursfinnsson
- motta