Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Sunnudagur, 18. nóvember 2007
Hverju á að trúa?
Ég er ein af þessum jó-jó manneskjum. Hef alltaf verið. Rokkað upp og niður í vigt. Allt farið eftir veðri og vindum, skapsveiflum, meðgöngum, stöðu ástarlífsins o.sfrv.
Hef tekið tarnir og drukkið í mig allt sem skrifað er um heilsu, líkamsrækt, mataræði og svo mætti endalaust telja.
Ég veit að margir þekkja sig í þessari lýsingu. Kannski sérstaklega kvenfólk. Við erum manískar á eigið útlit og líkama. Finnum okkur alltaf eitthvað til foráttu. Ef það er ekki til staðar þá búum við það til.
Ég hélt aldrei að ég myndi þroskast og finnast ég verða sátt við sjálfa mig. Þessi tilfinning sem mér skilst að þroskaðar konur finni oft fyrir. Séu búnar að finna sjálfar sig og séu sáttar eins og þær eru. Andlega og útlitslega.
En mér finnst ég finna þennan þroska læðast upp að mér. Í litlum skömmtum. Smáum skrefum. Hann lýsir sér í því að ég sætti mig við minna. Þá á ég við að mér finnst ég ekki þurfa að vera fullkomin. Hvorki í útliti né að öðru leyti. En ég hef lofað mér því að þegar fertugsafmælið mitt (september 2008) rennur upp ætla ég að:
- Að vera í því besta líkamlega formi sem ég hef nokkru sinni verið (og trúið mér, það er alls ekki óraunhæft þar sem ég hef aldrei stundað íþróttir og reykti frá 15 ára aldri þar til í febrúar á þessu ári)
- vera í kjörþyngd (kemur að sjálfu sér ef ég hreyfi mig og borða minna en ég brenni)
- líta frísklega út (kemur að sjálfu sér ef ofagreind atriði eru uppfyllt)
- vera heilbrigð (ekki undir mér komið að öllu leyti, en góðar líkur ef öll ofangreind atriði eru uppfyllt)
Og út af því að ég er orðin þroskuð kona og búin að slá af kröfunni um fullkomleikann, þá er ég að leita að lífsstíl. Ekki átaki í 8 vikur eða 12. Heldur lífsstíl sem ég fylgi það sem eftir er ævinnar.
Og þá kem ég að kjarna málsins. Við teljum okkur öll vita hvernig hinn rétti lífsstíll á að vera. Hvað sé hollt. Hvað sé nægjanleg eða nauðsynleg hreyfing til að halda sér í formi. En ef grannt er skoðað þá eru skilaboðin þarna úti svo mismunandi að það getur gert hvern meðalgreindan mann brjálaðan.
Frá hinum og þessum líkamsræktastöðvum, einkaþjálfurum, læknum, misvel upplýstum blaðamönnum sem skrifa um málefnið, næringafræðingum og alls konar besservisserum streyma upplýsingar og leiðbeiningar. Og ekki hafa allir sömu sögu að segja.
Ég ætla að nefna hér dæmi:
Líkaminn byrjar ekki að brenna umframorku fyrr en stanslaus hreyfing hefur átt sér stað í 20-30 mínútur.
Með öðrum orðum: ef þú ætlar að hreyfa þig, dont bother ef þú sérð aðeins fram á 15 mínútna hreyfingu því það hefur ekkert upp á sig.
Hvað þá með alla predikunina um að ganga út í búð í stað þess að keyra þangað? Eða fara úr strætó einni stoppustöð fyrr og ganga rest? Eða ganga upp stigana í stað þess að taka lyftu.
Ekkert af þessu gefur okkur 20-30 mínútna hreyfingu. Jú ef við ætlum í Kaupfélagið á Króknum, eða förum úr strætó áður en við stígum upp í hann, eða ef við höfum stigana í Eiffelturninum í huga.
Nauðsynlegt er að hreyfa sig minnst 3 sinnum í viku í lágmark 3o mínútur í senn.
Með öðrum orðum; ef þú sérð ekki fram á að komast frá heimilinu oftar en 2x í viku til að stunda einhvers konar líkamsrækt, slepptu því þá bara. Það tekur því ekki.
Hvað þýðir þetta? Þýðir þetta að þú ert í jafngóðum/slæmum málum, hvort sem þú hangir í sófanum heima hjá þér 7 daga vikunnar eða 5 daga vikunnar. I dont think so.
Ég veit um nýlegt dæmi þess að læknir sagði við mann sem er um 8 kg of þungur en í fullkomlega góðu líkamlegu ástandi: það er ekki nóg að fara í göngutúra!!!
Ekki nóg til hvers!! Að ná af sér þessum 8 kílóum? Eða til að halda heilsu?
Það fauk í mig hreinlega. Hvað ef þessi maður hefur ekki tök á, eða engan áhuga á að fara inn á líkamsræktarstöð? Er þá betur heima setið en farið í röskan göngutúr 3x í viku?
Mér finnst hreinlega ábyrgðaratriði hvað fólk í þessum geira lætur út úr sér.
Hvað með allt fólkið þarna úti sem hefur ekki hreyft sig í 30 ár, en vill taka sig á? Svona skilaboð frá lækni eða líkamsræktarfrömuði fær suma til að missa kjarkinn. Fallast hendur. Verkefnið vex þeim í augum og verður of stórt.
Er eitthvað betra en að byrja á göngutúrum á þeim hraða sem fólk ræður við og feta sig smám saman upp í röskan gönguhraða sem aftur skilar auknu blóðrennsli og reynir mátulega mikið á hjarta og lungu?
Mín trú er sú að öll hreyfing er af hinu góða. Ef ég hreyfði mig 20 mínútur í dag, þá voru þær 20 mínútur svo sannarlega þess virði. Betri en 10 mínútur. Og ef ég hreyfði mig í 10 mínútur í dag þá voru þær betri en 2 mínútur. Slagsmál við Þann Einhverfa í fimm mínútur geta svo sannarlega skilað mér stærri upphandlegssvöðvum.
Það sem ég er að reyna að segja er: látum ekki segja okkur að til þess að hreyfing skili okkur einhverju þurfum við að fara eftir einhverjum stöðlum og uppskriftum. Nýtum þann tíma sem við höfum, þegar við höfum orku og löngun og munum að 10 mínútur hér og 15 mínútur þar gera sitt gagn. Ætlum okkur ekki of mikið og verum ánægð með það sem við afrekum.
Þetta var pistill í boði Jónu besservisser.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
Sunnudagur, 18. nóvember 2007
Ég fitna ekki í dag - það er alveg ljóst
Síminn hringdi í gærkvöldi. Það var Fríða brussubína, stuðningsmamma með meiru.
Ég ætla bara að segja þér hvað sonur þinn er æðislegur og ég elska hann út af lífinu.
Mér hitnaði um hjartaræturnar. Nú? Sagði ég þó ég væri henni hjartanlega sammála. Hvað var hann að gera?
Æi, ekki neitt. Hann er bara svo mikið yndi.
Svo sagði hún mér að hann hefði orðið eitthvað fúll út í sig og verið með tárin í augunum en þau sættust og þá fékk hún faðmlag og knús.
Það er nefnilega það sem Sá Einhverfi gerir þegar hann verður vondur út í mann. Hann fær samviskubit og móral eftirá og þarf þá mikið á faðmlagi að halda. Þessi faðmlög gefa manni svoooo mikið því samkvæmt handbók einhverfra um hvernig eigi að hegða sér þá brýtur hann held ég reglu nr. 7, grein 4, með svona eðlilegri hegðun.
Sá Einhverfi var sem sagt hjá stuðningsfjölskyldunni sinni í nótt og Gelgjan var hjá Viðhenginu þar til seint í gærkvöldi. Við Bretinn ætluðu því að hafa það huggulegt en það skemmdi fyrir að mér leið eitthvað undarlega. Var óglatt og drusluleg (ég kalla það að vera tussuleg en ég kann ekki við að nota það orð hér).
Ég dröslaði því bala inn í herbergi þegar ég fór að sofa. Alveg handviss um að ég myndi vakna í nótt og kasta upp. Það gerðist ekki en deginum í dag hef ég eytt að mestu upp í rúmi því hver hreyfing vekur hjá mér ógleði. NEI ÉG ER EKKI ÓLÉTT.
Samt er dagurinn búinn að vera góður þó undarlegt sé.
Ég svaf að sjálfsögðu út. Sá Einhverfi ekki heima og þá notar maður tækifærið og sefur út. Á þessum tímapunkti vissi ég ekki ennþá hversu illa mér leið. Enda steinsofandi.
Um hádegisbilið hringdi Lísa bloggvinkona. Hún ætlaði að koma og fá lánað hjá mér eitthvað smádót sem hana vantaði fyrir þemakvöld hjá Senu. Ég tók verkjatöflu og tvíelfdist. Við sátum heillengi yfir kaffibolla og spjölluðum.
Eftir það skreið ég upp í rúm og sofnaði. Vaknaði við að Fríða og co voru komin með Þann Einhverfa sem lék á alls oddi. Ég rétt hékk á fótum þangað til þau fóru og svo var það bara rúmið aftur.
En ég hef fengið heimsóknir upp í rúm til mín í dag, eins og sönnum sjúklingi sæmir. Unglingurinn lá hér um stund við hliðina á mér og fletti Séð & Heyrt. Kettir og hundur hafa veitt mér félagsskap inn á milli. Gelgja með tíkarspena liggur nú við hliðina á mér og les það sem ég skrifa. Sá Einhverfi hefur nokkrum sinnum kastað sér yfir mig með allan sinn þunga og æpt; hjálp hjálp, hjálpiði mér. Það var nú meira ég sem þurfti á hjálp að halda.
Bretinn hefur komið reglulega og spurt hvort hann eigi að færa mér eitthvað. Breiddi yfir mig aukasæng í dag þegar mér var kalt, þrátt fyrir dúnsæng, heitan ofn og lokaðan glugga.
Á milli svefns og vöku í dag og í kvöld hef ég hlustað á vindinn gnauða fyrir utan gluggann og fjölskyldumeðlimi, jafnt fjórfætta og þá sem ganga um á tveimur fótum, athafna sig í húsinu. Og mitt í ógleðisköstum og beinverkjum hef ég flissað aðeins ofan í koddann. Verið glöð og fundið fyrir þakklæti.
Ég hlustaði á Bretann berjast við að fá Þann Einhverfa til að hætta í tölvunni og fara að bursta tennurnar. Á endanum kippti Bretinn tölvunni úr sambandi. Að heyra orminn minn, sem eitt sinn var mállaus góla á pabba sinn; Pabbi, hvað ertu að gera?!! er ekkert nema yndislega tilfinning. Og inni á baði við tannburstun; Pabbi, farðu fram.
Ekki aðeins hefur hann aukið við orðaforðann heldur eykst tilfinningin í röddinni. Orðin koma ekki vélrænt upp úr honum lengur.
Hvernig get ég annað en verið þakklát fyrir svona dag? Ekki aðeins fékk ég að fylgjast með fjölskyldunni úr fjarlægð og uppgötva hana á nýjan hátt, heldur lifði ég matarlausan dag sem þýðir hvað...? Að minnsta kosti eitt kg niður á vigtinni.
Þriðjudagur, 13. nóvember 2007
Í anda dömubindisauglýsinganna
Ek af stað í vinnuna. Er of sein svo sólin er að koma upp.
Kem við á hverfisbensínstöðinni. Gamall brosandi kall tekur á móti mér.
Góðan daginn segir hann með sönglandi röddu. Fylla'ann? Ég brosi á móti, kinka kolli og drattast svo með minn prinsessurass inn í afgreiðsluna. Læt þann gamla um skítverkin. Bíð eftir að hann ljúki við að dæla og virði á meðan fyrir mér allt sælgætið sem ég ætla ekki að kaupa því ég er svo fjandi stapil.
Nikka til gamla mannsinns og veifa eins og Bretadrottning um leið og ég keyri í burtu. Vantar bara hvíta hanskann á hendina.
Klukkan er rúmlega níu svo gatan er greið. Umferðin víkur fyrir mér eins og Rauðahafið vék fyrir Móses og hans fylgdarliði í denn. Allir gefa séns í dag. Tillitsamir og kurteisir.
Á Suðurlandsbrautinni sé ég bíl úti í kanti. Lögreglubíl er lagt fyrir aftan með bláu ljósin blikkandi, hljóðlát og hæversk. Lögreglumaður og ökumaður hins bílsins standa á móti hvor öðrum. Herðar þess fyrrnefnda hristast örlítið. Þegar ég keyri fram hjá snýr hann höfðinu og við mér blasir ungt, hlæjandi andlit. Ökumaðurinn er talandi og brosandi. Sá hefur náð að kjafta sig út úr þessari sekt.
Ég stöðva á gangbraut og syngjandi hópur leikskólabarna ganga yfir hvítu strikin. Eldri kona fer fyrir hópnum og önnur yngri rekur lestina. Litlu kropparnir eru allir klæddir í skærgul vesti og sólargeislarnir dansa á endurskinsmerkjunum. Ég bíð bara eftir að hvít dúfa setjist á húddið á bílnum mínum. Það gerist ekki en mávur skilur eftir sig hvítt merki á framrúðunni. Ég gretti mig og held ferðinni áfram.
Miðaldra hjón skokka eftir gangstéttinni hægra megin í samstæðu átfitti, bláum adidasgöllum og glænýjum svörtum hlaupaskóm með neonhvítum reimum. Það á greinileg að taka á því og skapa sér nýjan lífsstíl.
Ég gef séns í hliðargötu og uppsker taugaveiklað bros frá háaldraðri og ævafornri konu. Hún fær sennilega ekki að endurnýja ökuskírteinið sitt þessi. Ég læt skína í tennurnar svo hún sjái örugglega að ég brosi á móti.
Léttur úði er í loftinu og yfir Höfða er regnboginn skýr og bjartur.
Ég legg fyrir utan vinnustaðinn og geng léttfætt upp stigana. Stíg inn fyrir dyrnar og stimpla mig inn. Alltof sein.
Góðan daginn segi ég glaðlega.
Sæll segir Rúnar. Nokkrir rymja og aðrir segja ekki orð. Ég gleymdi því að hér talar fólk ekki saman fyrr en upp úr kl. 10.
Lífið getur ekki alltaf verið eins og Stayfree auglýsing með hástemmdu gleðipoppi í bakgrunninum.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
Föstudagur, 9. nóvember 2007
Af barnatrú og dæmisögum
Ég ólst upp hjá ömmu og afa.
Amma var virk í kvenfélagi Langholtskirkju og trúuð kona. Þegar ég segi trúuð þá meina ég á þann hátt að henni þótti gaman að fara í messu á sunnudögum, hún trúði á Guð og fór með bænir fyrir mig á fyrir svefninn..
Að öðru leyti varð ég ekki mikið vör við trúnna sem slíka. Minnist þess ekki að amma hafi mikið talað um Guð.
Sonur ömmu og afa dó í slysi 27 ára gamall, en ég heyrði t.d. ömmu aldrei tala um að ''trúin hefði komið henni yfir þá erfiðu lífsreynslu'' eða eitthvað í þeim dúr.
Það var sem sagt ekkert endilega talað mikið um trúnna á heimilinu. Hún bara var þarna. Ég átti mína barnatrú án þess nokkurn tíma að trúa sögunni um Evu og Adam eða taka hana bókstaflega.
Það eina sem benti til þess að afi deildi þessari trú með ömmu var að hann kenndi mér bæn;
Vertu Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni.
Mér hefur alla tíð þótt afar vænt um þá bæn. Því afi kenndi mér hana.
Ég hef alltaf verið ánægð með mína barnatrú. Í rauninni verið þakklát fyrir hana. En ég hef líka lagt próf fyrir Guð. Og merkilegt nokk, ekki í mína þágu. Einhvern tíma skipaði ég Guði að hjálpa manneskju sem mér fannst hafa þolað nóg. Manaði hann til að sanna fyrir mér að hann væri til. Enn hefur hann ekki sannað neitt fyrir mér en barnatrúin lifir þrátt fyrir það.
Ég hef reynt að feta sömu leið með börnin mín. Hef kennt þeim bænir og á hverju kvöldi eyði ég smá stund með þeim upp í rúmi, strýk á þeim bak eða handlegg, segi bænirnar og signi.
Stundum höfum við Gelgjan rætt Guð og trú. Hún hefur spurt mig hvort ég trúi og hverju ég trúi. Og ég hef ætíð gætt þess að fullyrða ekki neitt, heldur útskýrt hverju ég trúi og á hvaða hátt. Hef líka sagt henni að það séu mismunandi trúarbrögð í heiminum og ekki kalli allir sinn guð sama nafni.
Í vikunni hrikti aðeins í stoðunum hjá mér. Gelgjan var að læra heima í kristinfræði og námsefnið var boðorðin og einhverjar dæmisögur. Það sem kallaði fram nýja og óþekkta tilfinningu í þá átt að finnast boðskapurinn óásættanlegur var dæmisagan um týnda sauðinn.
''Nú á einhver yðar hundrað sauði og týnir einum þeirra. Skilur hann ekki þá níutíu og níu eftir í óbyggðinni og fer eftir þeim, sem týndur er, þar til hann finnur hann? Og glaður leggur hann sauðinn á herðar sér, er hann finnur hann. Þegar hann kemur heim, kallar hann saman vini sína og nágranna og segir við þá: ,Samgleðjist mér, því að ég hef fundið sauðinn minn, sem týndur var.' Ég segi yður, þannig verður meiri fögnuður á himni yfir einum syndara, sem gjörir iðrun, en yfir níutíu og níu réttlátum, sem ekki hafa iðrunar þörf.
Að lesa þetta, og horfa á, með augum dóttur minnar þá fannst mér skilaboðin vera eitthvað á þessa leið: Gefa bara skít í þá sem haga sér almennilega til að elta uppi einhvern vitleysing og dyntina í honum. Eða eins og þetta er orðað í þroskaþjálfa bransanum: að verðlauna óæskilega hegðun.
Gelgjan átti að segja hvaða merkingu hún legði í þessa dæmisögu og bað mig um hjálp. Ég gerði mitt besta. Las söguna yfir mörgum sinnum og margbyrjaði á einhverri gáfulegri útskýringu.
Skyndilega datt upp úr mér: Veistu það Anna Mae að þetta er bara bull.
Hún horfði á mig með vandlætingarsvip og sagði þóttalega; ég trúi á Guð.
Já elskan mín, það geri ég líka, sagði ég. En það þýðir ekki að ég trúi öllu sem stendur í biblíunni.
Þetta fékk mig til að spekúlera í kristinfræðikennslu í barnaskólum. Sjálfri þótti mér gaman í kristinfræði í skóla og fékk alltaf háar einkunnir í faginu. Ólst upp við kristna trú en fékk fyllilega að mynda mér mínar eigin skoðanir.
Þarna yfir skólabókunum með Gelgjunni fór ég að hafa áhyggjur af því að hún væri ekki að mynda sér sínar eigin skoðanir heldur af kennslubókum. Því kennslubækurnar kenna kristna trú eins og hún sé það eina sanna, biblían staðreynd og óvéfengjanleg. Biblíuna er vissulega hægt að túlka á marga vegu. En þegar maður er 10 ára þá túlkar maður ekki. Maður les og annaðhvort tekur maður trúanlega eða ekki. Eða hvað?
Ég held að það sé kominn tími til að taka kristinfræði út af stundaskrá barnaskólanna og taka upp trúabragðafræði. Kenna á hlutlausan hátt um hin ýmsu trúarbrögð í heiminum.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
Miðvikudagur, 7. nóvember 2007
Næst vel ég gufuna takk
Í dag hugsaði ég mér gott til glóðarinnar eftir vinnu.
Alla jafna get ég ekki farið í ræktina eftir vinnu, þar sem ég þarf að vera komin heim í tíma fyrir Þann Einhverfa. En hann fór í skammtímavistunina í dag og Gelgjan á fimleikaæfingu. Mér fannst ég frjálsasta manneskjan í öllum heiminum.
Planið var að fara í ræktina kl. 16:30 og taka allan pakkann. Nýta allar 50 mínúturnar sem eru í boði, fara í sturtu á eftir og svo í GUFU. Fíla mig eins og Hollywood stjörnu sem væri á launum við að liggja í dekri og vera á egó-flippi.
En stundum fara hlutirnir ekki eins og ætlað er, ég rauk út úr vinnunni allt of seint, keyrði til Báru vinkonu minnar (JSB) og 2 mínútur í leikfimitíma var ekkert stæði að finna. Ég tók skyndiákvörðun. Ég þoli ekki að missa af upphitun í þessum tímum svo ég ákvað að drífa mig heim, galla mig upp og fara með Vidda hund hringinn í kringum Rauðavatn. Þessi göngutúr tekur klukkutíma ef ég geng rösklega og það er jafn góð líkamsrækt og hver önnur. Að vísu er engin vatnsgufa heima hjá mér en alveg ágætis sturta.
Um leið og Viddi sá mig taka fram gönguskóna og vindbuxurnar byrjaði hann að hoppa og hringsnúast í forstofunni eins og upptrekktur leikfangahundur. Upp, vinstri snúningur, upp, hægri snúningur...
Loksins var kellingin komin í allan gallann og út héldum við. Regndroparnir voru kaldir viðkomu en það var næstum því logn. Viddi var eins og kálfur á vori og afskaplega kátur.
Niðri við Rauðavatn höndlaði hann illa spenninginn þegar úr einni átt nálguðust okkur tveir hestar með knapa og kona með svarta labradortík úr annarri. Viddi byrjaði að gelta enda Íslendingur af lífi og sál og vildi fá að þefa af þeirri svörtu. Fannst hún eflaust afar myndarleg og spennandi. Labradortíkin var laus, enda hlýðin og róleg stelpa.
Ég bauð glaðlega góðan dag en tíkin sýndi Vidda netta fyrirlitningu og eigandi hennar sýndi okkur báðum ýkta fyrirlitningu. Hunsaði kveðjuna frá mér og strunsaði áfram. Fannst þessi geltandi íslenski vitleysingur hvorki sér né tíkinni samboðin og ég sennilega mjög neðarlega í goggunarröðinni fyrir að eiga hund sem geltir.
Við Viddi héldum í humátt á eftir þeim mægðum, ég hálfmóðguð en Viddi fann greinilega lyktina af tíkinni allan hringinn í kringum fjandans vatnið og hagaði sér eins og vitleysingur. Það verður sko klippt undan honum fljótlega.
Skömmu seinna mættum við virðulegum bulldog með eiganda sínum. Viddi sýndi enga stillingu frekar en fyrri daginn og rauk til á hans allra heilagasta. Sko hundsins. Vonaðist sennilega til að hafa hitt á aðra tík. Bulldoginn var ekki par hrifinn af þessum yfirgangi, urraði valdsmannslega og áður en Viddi vitleysingur vissi hvaðan á sig stóð veðrið, lá hann skjálfandi undir hundinum og þorði sig ekki að hreyfa. Hinn stóð virðulegur og sigri hrósandi yfir honum og vissi sem var, að hann hafði sýnt Davíð hvar hann keypti ölið.
Það hlakkaði örlítið í mér og ég róaði órólegan eigandi hundsins sem hélt sennilega að ég yrði brjáluð. Ég veit bara að ef Viddi væri krakki þá væri hann lagður í einelti í skóla því hann færi svo í taugarnar á hinum krökkunum. Öðrum hundum finnst hann bara ótrúlega pirrandi.
Við komum heim eftir klukkustundar göngutúr, blaut eins og hundar af sundi dregnir. Ég fann hvorki egóistann né Hollywood stjörnuna í sjálfri mér á þessum klukkutíma.
Þriðjudagur, 6. nóvember 2007
Ofbeldi á konum og börnum - Opnum umræðuna upp á gátt
Hún Dísa Dóra er að opna umræðuna svo um munar með sínu framtaki.
Samtökin Styrkur - Úr hlekkjum til frelsis er undan hennar rifjum runnið og segir sitt um kjark og ákveðni þessarar konu.
Ég er svo heppin að í vinnunni hefur verið afar rólegt það sem af er degi. Ég hef eytt tímanum hér opinmynnt við lestur reynslusagna á þessari heimasíðu. Það er alveg ljóst að ég mun lesa hvern krók og kima hennar í kvöld þegar ég hef hent börnunum blíðlega í rúmið.
Það er alveg með ólíkindum hvað sum börn og konur þurfa að lifa við. Og svo er reistur múr í kringum fjölskylduna, sem enginn kemst í gegn um. Börn og konur lifa í andlegri og/eða líkamlegri kvöl og þögn. Þögnin er það versta því hún er leyfisbréf geranda ofbeldisins til að stunda sína iðju óáreittur.
Í gær átti ég tal við yndislega konu sem er innvikluð í Stígamót. Hún segir það staðreynd að opin umræða hefur átt stóran þátt í því að nú leita fórnarlömb kynferðisofbeldis sér hjálpar og aðstoðar mun fyrr á ævinni.
Og það sem meira er, að þau eru betur í stakk búin til að takast á við og bægja frá ranghugmyndum um eigin sök á ofbeldinu og skömminni sem sem eru ófrávíkjanlegir fylgifiskar.
En betur má ef duga skal. Það þarf að halda umræðunni galopinni og sjá til þess að nágrannar, vinir, ættingar og aðrir sem verða varir við hverskyns heimilisofbeldi hiki ekki við að láta vita af slíku. Það þarf líka að sjá til þess að almenningur jafnt sem yfirvöld líti heimilisofbeldi jafn alvarlegum augum og ofbeldi gagnvart ókunnugu fólki.
Það er líka annað sem gleymist og ekki allir gera sér grein fyrir. Og það er að allir... allir geta fundið sig í þessum aðstæðum. Hversu margar konur hafa ekki komið fram... sterkir karakterar, sjálfstæðar konu á framabraut, uppfullar af sjálfstrausti.. og sagt frá því hvernig þær voru brotnar niður á lúmskan og markvissan hátt þar til ekkert var eftir annað en rústir einar.
Fordómarnir eru miklir og ég er svo sannarlega ekki saklaus af þeim. Ég er samt að þroskast og læra og skilja meira. Guði sé lof. Það væri ekki mikið vit í lífinu ef maður lærði ekki stöðugt eitthvað nýtt. Það eru ekki bara heimskar, illa menntaðar, veikgeðja konur sem lifa við ofbeldissambönd. Og það sama gildir um gerandann.
Munið bara að þið þekkið örugglega einhvern sem felur eitthvað á bak við veggi heimilisins. Jafnvel glæp í sinni verstu mynd.
Kíkið á Dísu Dóru og verið dugleg að kommenta. Sýnið í verki að framtakið er mikils virði og vel metið og takið beinan eða óbeinan þátt í því.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Föstudagur, 2. nóvember 2007
Ég er ítölsk trukkalessa
Ég var full í gær. Og skemmti mér viðurstyggilega vel. Undanfarinn voru operation fundir í vinnunni síðustu tvo daga sem á mættu starfsmenn frá erlendu stöðvunum.
Í gærkvöldi fór svo allt liðið út að borða og lögðum við Vínbarinn undir okkur í það. Borðaður var dýrindismatur og drukkið enn meira dýrðarvín. Slatti af því. Einn af starfsmönnunum okkar frá Brussel sat opinmynntur við borðið. Held hann hafi verið hálf hrærður yfir því hvað við erum skemmtileg hérna á klakanum og ekki síður yfir því hversu rugluð við erum með víni.
Þarna hitti ég Theresu frá NY sem ég tala við næstum daglega í síma, en við höfum aldrei hist. Það urðu fagnaðarfundir og við smullum.
Í gærkvöldi hitti ég líka mann sem einu sinni var yfirmaður minn. Fyrir mörgum mörgum árum síðan. Það var yndislegt að hitta hann og rifja um rúmlega 20 ára gamla tíma. Þegar ég var 16 ára og þótti hann bara kall. Hann var þá 22 ára. Knús til þín Á.B.
Eins og drukknum Íslendingum (og reyndar útlendingum líka) er von og vísa vorum við ekki búin að fá nóg klukkan eitt þegar staðirnir loka. Röltum um miðbæinn og þá voru einhverjir orðnir svangir og við fórum inn á Nonnabita þar sem steiktir eru svona brauðbátar með allskonar misgirnilegu áleggi. Inn á þessum litla, steikingamettaða stað, situr misdrukkið fólk og gúffar mismikið í sig. Orðið banhungrað eftir alla áfengisdrykkjuna.
Þarna inni datt ég í spjallgírinn eins og ég á til. Við bláókunnugt fólk. Eiginlega bara krakka. Böggandi kerling.
Eftir þetta lá leiðin upp á hótel þar sem úttttlendingarnir okkar dvöldu á meðan þeir stoppuðu á landinu. Þar var spjallað og ruglað þar til ég loksins ákvað að kominn væri tími til að halda heim. Það var ansi seint.
Ég skrollaðist hérna inn úr dyrunum heima. Afklæddi mig í svefnherbergisholinu svo ég myndi ekki trufla Bretann of mikið, burstaði tennur og skreið pen og hljóðlát undir sæng.
Bretinn svaf lítið það sem eftir lifði nætur. Og það var ekki út af áfengisangandi konunni hans eða hrotum í henni.
It was like an Italian lesbian truck driver had crawled into my bed, sagði Bretinn í morgun. The smell was awful. Hann var þreytulegri en ég.
Þegar ég tók fötin mín og rak þau upp að nefinu á mér þá skyldi ég aumingja manninn. Steikingafýlan frá Nonnabitum var ekki af þessum heimi.
Í allan dag hefur Bretinn líkt mér við ítalska trukkalessu og það er ekkert lát þar á. Hann er sennilega líkari mömmu sinni, Litla Rasistanum, en ég hélt.
Og hvað lærði ég?
Að maður étur undir beru lofti á fylleríi.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Fimmtudagur, 1. nóvember 2007
Gestabókin mín
Ég gleymi alltaf að kíkja í gestabókina mína hér á blogginu. Svo gerði ég það um daginn þegar Edda bloggvinkona sagðist hafa skilið eftir skilaboð til mín þar.
Mikið svakalega gladdi það mitt litla hjarta að sjá allar kveðjurnar í gestabókinni. Gaman að sjá þar skilaboð frá bloggvinum.
Yndislegt að rekast þar á nöfn fólks úr fortíðinni sem ég hef hvorki séð né heyrt í mörg herrans ár. Allt upp í 20 ár takk fyrir.
Svo var agalega gaman að fá kveðju frá ömmu-Brynju Nordquist.
Sérstaklega þótti mér vænt um að sjá kveðjur frá fólki sem á börn með þroskahömlun. Það er svo góð tilfinning að skrifin mín vekji samhug.
Kærar þakkir til ykkar allra.
Föstudagur, 26. október 2007
Bloggdömur á sjónvarpstöðinni ÍNN í kvöld kl. 21
Minni ykkur á þáttinn hennar Ólínu Þorvarðardóttur á sjónvarpsstöðinni ÍNN, kl. 21 í kvöld.
Til voru kallaðar Jenný Anna Baldursdóttir, Salvör Gissurardóttir og Marta B. Helgadóttir. Ég hljóp svo í skarðið fyrir Jenný þar sem hún var vant við látin á þeim tíma sem upptakan fór fram.
Þáttinn átti að sýna á föstudagskvöldið í síðustu viku en þá var tæknin eitthvað að stríða þeim á ÍNN.
Börnin góð, ekkert mál, bara að finna rás 20 á afruglaranum sínum og volla... við ykkur blasa þessi glæsikvendi sem Marta, Ólína og Salvör kynna svo vel á sínum bloggum, með ljósmyndum og alles.
Ef rás 20 er ekki inni hjá ykkur þá finnið þið hana einhvern veginn svona:
- ýtið á menu-takkann á afruglara-fjarstýringunni
- veljið automatic search á skjánum
- Veljið ''All''
- Ef beðið er um pin númer veljið þá núll (eins mörg núll og þarf)
- Þá rúlla upp á skjáinn einhver númer og rugl í góðan tíma og svo byrja stöðvarnar að detta inn.
bara vera þolinmóður.Þetta er fyrsti sjónvarpsþátturinn hennar Ólínu í 15 ár, og því nokkurs konar ''comeback'' hjá henni. Ég óska henni innilega til hamingju með það.
Þetta verður góð skemmtun.... á einhvern hátt allavega
Föstudagur, 26. október 2007
Það sést hverjir drekka Egils Kristal
Ég er kókisti. Sko Coca-cola-isti. Það rennur skiljiði.
En undur og stórmerki gerðust fyrir nokkrum mánuðum síðan og það var að ég ánetjaðist Egils Kristal með sítrónubragði og nú tek ég Kristalinn fram yfir kókið. Nema með sumum mat. Þetta er stórt skref í rétta átt. Næst verður það kristaltært bergvatn sem ég verð háð og þá er þetta komið.
En þegar ég datt niður á Kristalinn þá hugsaði ég; jahá.. það sést hverjir drekka Egils Kristal og nú verð ég gangandi auglýsing fyrir Egil Skallagrímsson. Lagði mjög jákvæða, heilbrigða og jafnvel mjónu-lega merkingu í þetta slogan hjá Agli. En ekkert gerist. Enginn segir við mig; Það sést að þú drekkur Kristal.
Svo ég er farin að velta því fyrir mér hvort ég sé að misskilja þetta allt saman. Hvað meinar Egill eiginlega með þessu?
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 9
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 1640751
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2019
2018
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
-
solskinsdrengurinn
-
skrifa
-
jenfo
-
gelgjan
-
annambragadottir
-
marzibil
-
brynja
-
hk
-
gurrihar
-
lehamzdr
-
katlaa
-
eddaagn
-
jahernamig
-
hronnsig
-
martasmarta
-
katrinsnaeholm
-
palmig
-
ipanama
-
hallarut
-
tommi
-
ktomm
-
poppoli
-
svavaralfred
-
kollajo
-
bergruniris
-
bene
-
bennason
-
jensgud
-
solrunedda
-
heidathord
-
ringarinn
-
tofraljos
-
kjaftaskur
-
ormurormur
-
zeriaph
-
unns
-
ellasprella
-
hjolagarpur
-
salka
-
nonniblogg
-
markusth
-
rebby
-
birna-dis
-
garun
-
landsveit
-
olofannajohanns
-
brylli
-
evaice
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
rustikus
-
singer
-
jaxlinn
-
krossgata
-
mummigud
-
blekpenni
-
gerda
-
baddahall
-
holi
-
grafarholt
-
gudnylinda
-
thegirl
-
gretarorvars
-
thordis
-
herdis
-
mammzan
-
sigthora
-
bet
-
saedis
-
emmgje
-
sigurjonsigurdsson
-
janus
-
astromix
-
overmaster
-
thorasig
-
gudni-is
-
sunnadora
-
kjarrip
-
810
-
gislihjalmar
-
beggagudmunds
-
sirrycoach
-
betareynis
-
ilovemydog
-
rannveigmst
-
stormadis
-
perlan
-
bergdisr
-
skondrumamma
-
snar
-
stormur
-
ljonid
-
raggipalli
-
hjordiz
-
almaogfreyja
-
katja
-
lady
-
sigrunfridriks
-
zunzilla
-
olinathorv
-
bidda
-
smjattpatti
-
jogamagg
-
disadora
-
harpao
-
fuf
-
alexm
-
larahanna
-
juliaemm
-
saemi7
-
gudrunmagnea
-
svala-svala
-
kari-hardarson
-
hlf
-
hlinnet
-
annagisla
-
einari
-
lena75
-
hector
-
saethorhelgi
-
ernafr
-
birnarebekka
-
heidistrand
-
kerla
-
hannamar
-
jara
-
supermamma
-
monsdesigns
-
malacai
-
solveigth
-
siggathora
-
senorita
-
snjaldurmus
-
photo
-
stingi
-
pollyanna
-
steingerdur
-
icekeiko
-
majaogco
-
skordalsbrynja
-
danjensen
-
lilly
-
heidabj
-
omarpet
-
helgamagg
-
nori
-
jamesblond
-
gretaulfs
-
rattati
-
hogni
-
ragjo
-
kolgrima
-
skjolid
-
hugrunj
-
egill75
-
amman
-
liljabolla
-
asgerdurjoh
-
okurland
-
rannthor
-
svalaj
-
siggith
-
vefritid
-
zsapper
-
laz
-
graceperla
-
rannug
-
agbjarn
-
alliragg
-
fjarki
-
birtabeib
-
roslin
-
lindape
-
rosa
-
tinnaeik
-
muszka
-
krummasnill
-
lindalea
-
fjola
-
solan
-
scorpio
-
evabenz
-
isleifure
-
karitryggva
-
ellasiggag
-
beggita
-
ollabloggar
-
madddy
-
songfuglinn
-
emm
-
lindagisla
-
turettatuborg
-
einarsigvalda
-
huldadag
-
siggasin
-
credo
-
loathor
-
carma
-
komaso
-
fifudalur
-
rosabla
-
lillagud
-
eythora
-
griman
-
eyrunelva
-
svanurg
-
strumpurinn
-
godihundur
-
hallidori
-
annriki
-
sibbulina
-
helgurad
-
huldumenn
-
julianamagg
-
berglindnanna
-
huldam
-
joik7
-
venus
-
osland
-
liso
-
amaba
-
asako
-
hryssan
-
mammann
-
leyla
-
gunnarggg
-
sigrunzanz
-
fanneyunnur
-
himmalingur
-
helgabst
-
bostoninga
-
christinemarie
-
jea
-
elisabeta
-
perlaoghvolparnir
-
meyjan
-
wonderwoman
-
coke
-
ragnhildurthora
-
gullilitli
-
tommi16
-
ea
-
mariaannakristjansdottir
-
einarorneinars
-
lindalinnet
-
joninaros
-
reynzi
-
rosagreta
-
lauola
-
reynir
-
elinora
-
ma
-
olapals
-
bestalitla
-
kolgrimur
-
handtoskuserian
-
vonin
-
kaffi
-
einarhardarson
-
gleymmerei
-
brandarar
-
alf
-
hreinsamviska
-
litlakonan
-
lucas
-
reisubokkristinar
-
jgfreemaninternational
-
olofdebont
-
thjodarblomid
-
vilma
-
ollana
-
gudrununa
-
holar
-
gotusmidjan
-
huldastefania
-
mubblurnar
-
bjarnihardar
-
vild
-
skrudur
-
jyderupdrottningin
-
sifjan
-
letilufsa
-
hrundt
-
robbitomm
-
brudurin
-
anitabjork
-
blindur
-
astabjork
-
bailey
-
gattin
-
draumur
-
einhugur
-
trygg
-
eskil
-
evags
-
gudrunkatrin
-
gudrunss
-
nf26b
-
topplistinn
-
helgaas
-
helgatho
-
hildurhelgas
-
drum
-
innipuki
-
ingal
-
kikka
-
astroblog
-
oliskula
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
kariaudar
-
vga
-
thorolfursfinnsson
-
motta