Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Fimmtudagur, 17. janúar 2008
Snerting er unun
Ég fór í strípur í gær til hans Óla á Solid. Nauðsynleg aðgerð með reglulegu millibili. Tilhlökkunarefni í marga daga. Og ekki bara vegna þess að útlitið er alltaf aðeins betra þegar maður fer en þegar maður kemur. Að ganga inn á stofuna, vitandi það að næstu 2-3 klukkustundirnar eru mínar og öll ábyrgð er skilin eftir í höndum einhverra annarra... bara nautn.
Setjast niður og láta dúlla í hárinu á mér. Láta mig svo hverfa í kaffihornið, útlítandi eins og vera frá öðrum hnetti með allan álpappírinn í hausnum. Fá mér ljúffengan kaffi latte, lagaðan af starfsfólki sem hefur án efa fengið spes þjálfun á kaffivélina. Lesa slúður og jórtra á nikótíntyggjó. Fá svo hárþvott með höfuðnuddi... það besta. Besta. Var nudduð í gær af einhverri megadúllu. Ungum nema. Snillingur drengurinn sá.
You must have been a pussycat in your previous life, segir Bretinn. Enda mala ég þegar hann strýkur með um hárið.
Mér finnst að fólk sem þolir illa að vera strokið og nuddað þurfi að leita sér hjálpar. Ég meina, þetta fólk veit ekki af hverju það er að missa.
Stundum múta ég Gelgjunni til að strjúka mér um höfuð eða axlir og hún er farin að gera það sama við mig. Það læra börnin...
Frá fyrstu stundu hélt ég krökkunum mínum rólegum með léttum strokum um kroppinn. Og enn þann dag í dag fá krakkarnir strokur með kvöldbænunum. Ég er svo þakklát fyrir þann vana í dag. Það eru miklar líkur á að Sá Einhverfi væri snertifælinn ef hann hefði ekki fengið að kynnast slíkri snertingu frá fæðingu. Reyndar hefur hann eiginlega tekið öfgarnar í hina áttina, því hann á til að rífa upp um sig bolinn hvar sem er og heimta baknudd. Og hann elskar að láta strjúka á sér handleggina. Þá sér maður hárin rísa af nautn.
Snerting er unun. Prófið bara.
Mánudagur, 14. janúar 2008
Love is in the air....
Sá Einhverfi finnur sífellt upp á nýjum öskuraðferðum.
Ég held hann geri þetta gagngert til að gera okkur hin í fjölskyldunni jafn klikkuð og hann er. Og stundum er maður alveg á mörkunum.. rambar á litlu þunnu línunni sem skilur á milli geðheilbrigðis og geðveiki.
Og þegar við gólum öll í kór með taugarnar þandar til hins ítrasta: Iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaaaaaaaaaaaaaaaan þá hlær hann svo dátt og innilega að það er erfitt að halda sér alvarlegum lengi.
Nýjasta öskrið er Áááátsj... En þar sem Sá Einhverfi á það til að víxla stöfum í framburði á orðum þá verður þetta Ááááásssst.
Hann er líka nýbúinn að uppgötva að athöfnin að prumpa er kannski stundum ekki við hæfi. Svo núna hefur hann tekið upp á því að reka upp smá viðvörunarboffs áður en hann lætur vaða og svo segir hann: Áááááássst.
Þá dettur mér þetta lag í hug: http://www.youtube.com/watch?v=NNC0kIzM1Fo
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
Laugardagur, 12. janúar 2008
Nýtt eða gamalt samband?
Það var farið út að borða með afmælisbarnið í gær. Að hennar eindregnu ósk. Foreldrarnir, Gelgjan og Unglingurinn. Sá Einhverfi var hjá Fríðu Brussubínu & co, sem var afskaplega gott. Það er ekki beint til að slaka á að taka hann með sér á fjölfarinn veitingastað á kvöldmatartíma. Og þess utan átti Gelgjan að hafa alla athyglina.
Þó var annað sem fangaði athygli mína og það var par á næsta borði. Myndarlegir krakkar. Og ekki beint krakkar reyndar, ég giska á að þau hafi verið 25-30 ára. Ég á ofsalega erfitt með að ákvarða aldur fólks.
Þau sátu á móti hvort öðru og struku handarbök hvors annars og töluðu saman.
Nýtt samband, hugsaði ég. Svo einbeitti ég mér að mínum eigin sessunautum.
En þar sem þau voru í beinni sjónlínu við mig þá komst ég ekki hjá því að gjóa á þau augunum öðru hvoru og alltaf voru þau jafn vel fléttuð saman í gegnum hendurnar. Þangað til herrann sleppti hægri hendinni af dömunni sinni til að skafa úr jöxlunum með litla putta. Þau hafa þá líklega verið búin að snæða þegar þarna var komið sögu.
O jæja, hugsaði ég. Þau eru allavega ekki svo nýtt par. Orðin sátt við að sýna á sér mannlegu hliðarnar. Kannski jafnvel farin að ropa upphátt í návist hvors annars.
Ég fylgdist með af áfergju. Var spennt að vita hvað hann myndi finna og hver yrði nýtingin af þeim fundi. En hann virtist ekki finna neitt svo hann greip aftur um hendur stúlkunnar og hóf að strjúka á henni handarbakið með umræddum litla putta.
Þá runnu á mig tvær grímur. Ég get ekki ímyndað mér á hvaða tímapunkti þetta par er statt í þróun sambandsins.
Fimmtudagur, 10. janúar 2008
11. janúar fyrir 11 árum
Á morgun föstudaginn 11. janúar verður Gelgjan mín 11 ára.
Þennan dag árið 1997 gerði hún heiðarlega tilraun til að koma í heiminn hina hefðbundnu leið en hafði ekki erindi sem erfiði. Móðirin virkaði ekki eins og ætlast er til og auk þess var þetta svokölluð andlitsfæðing, þ.e. í staðinn fyrir að hvirfillinn sneri niður var það andlitið. Ekki á mér sko, heldur á barninu.
útvíkkunin gekk ekki eftir. Ég náði aldrei meiru en 3 í útvíkkun held ég. Eftir að teymið í kringum mig hafði ofgert barninu; hjartsláttur þess dottið niður hvað eftir annað og andlit þess gekk alltaf lengra og lengra niður í grindina við harðar hríðarnar, kom hún Hildur læknir, bjargvættur okkar, og hundskammaði liðið. Ég var mænudeyfð með hraði og skutlað upp á skurðstofu. Og þrátt fyrir að ég lægi galopin á skurðarborðinu gekk ekkert að ná barninu út því hún hafði gengið svo langt niður í grindina að hún sat föst. Það liðu krítískar mínútur og á endanum brá snillingurinn hún Hildur á það ráð að skera á vöðva hjá mér til að rýmka um barnið og þannig náðu hún henni út.
Enginn grátur heyrðist og panikkið var svo mikið að það gleymdist að segja okkur hvort kynið það var. Þegar barnið heyrðist loksins gráta fór ég að væla og spurði snökktandi einhverja grænklædda veru sem stóð yfir mér hvort ég hefði eignast strák eða stelpu.
Ji minn sagði veran. Var ekki búið að segja ykkur það?
Á vinstri upphandlegg litlu stúlkunnar var smávegis skurður því hnífurinn lenti í henni þegar ég var skorin. Þessi skurður var örstuttur og fínlegur en klemmupásturinn sem var notaður til að loka honum virkaði ótrúlega stór á litla handleggnum.
11 árum seinna hefur örið vaxið með gelgjunni og er ekki lengur stutt en hárfínt er það. Hvít línan hlykkjast upp eftir handleggnum og er skemmtileg áminning. Ekki síst um það hversu heppin við vorum þennan dag að hafa lækni sem telur ekki að ''eðlileg'' fæðing sé eitthvað sem þurfi að þrautreyna þar til allt er komið í óefni.
Oft hef ég hugsað hvað ég er fegin að það var ekki fæðing Hins Einhverfa sem gekk svona. Ég hefði ekki viljað þurfa að lifa með þeim efasemdum að súrefnisskortur eða önnur mistök í fæðingu hefðu orsakað hans fötlun.
Í fyrramálið mun fjölskyldan vekja Gelgjuna með afmælissöng, ristuðu brauði og heitu kakói. Ég er búin að tilkynna Bretanum og Unglingnum að þeir þurfi að vera vel vaknaðir upp úr sjö og uppskar miður vinsamlegt augnaráð. Sá Einhverfi mun líklega verða vaknaður á undan okkur öllum en það er lítil hætta á að hann þjófstarti partýinu.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (66)
Mánudagur, 7. janúar 2008
Meira ruglið í þessum femínistum... eða hvað?
Ekki alls fyrir löngu las ég athugasemd í kommentakerfi við bloggfærslu. Færslan sem athugasemdin var gerð við, snerist að einhverju leyti um stöðu kvenna. Ég man í sannleika sagt ekki nákvæmlega um hvað málið snerist. En þessi athugasemd situr í mér.
Athugasemdin var eitthvað á þessa leið: Djöfulsins kjaftæði er þetta alltaf hreint í ykkur feministum. Þið eruð löngu komnar með jafnan rétt. Hættið þessu andskotans væli.
Öðru hverju hef ég sótt þessi ummæli í minniskubbinn í heilanum og velt merkingunni fyrir mér. Og í rauninni afleiðingunni af því, að í augum sumra er þetta staðreynd.
Í tölublaði Vikunnar frá 3. janúar sl. er fróðleg upptalning á margskonar tölulegum staðreyndum varðandi stöðu kvenna í heiminum. Þessi atriði sýna svo um munar, að þó að við séum löngu komnar út úr moldarkofanum, þá er mikið starf óunnið.
Fátt þykir mér sárara en að heyra konur lýsa því yfir með áherslu og jafnvel stolti að þær séu ekki feministar. Hvað í ósköpunum þýðir það? Hvernig er hægt að vera kona og vera ekki feministi? Maður hlýtur að spyrja sig hvort kona sem segist ekki vera feministi viti hvað orðið feli í sér.
Ef þú ert kona og telur þig ekki vera femínista, lestu þá vel og vandlega listann hér á eftir. Athugaðu hvort þér finnist það sem hér kemur fram barasta allt í lagi. Alveg ásættanlegar staðreyndir. Gott mál barasta.
Því ef þér finnst það ekki þá ertu femínisti.
Vissir þú...
...að konur vinna 2/3 hluta allra vinnustunda en eiga aðeins 1% eigna í heiminum og fá aðeins 10% af heimstekjum í sinn hlut?
...að um 2 milljónir stúlkna eru umskornar á hverju ári?
...að konur og börn eru um 80% flóttamanna heims?
...að konur framleiða og selja 3/5 hluta af fæðu í heiminum?
...að þriðja hver kona í heiminum verður á lífsleiðinni fórnarlamb kynbundins ofbeldis?
...að konur eru aðeins 17% þingmanna í heiminum?
...að fjölgun kvenna á þjóðþingum heims er um 0,5% á ári? Það þýðir að jafnrétti kynjanna á þjóðþingum verður náð árið 2068!
...að konur eru aðeins 9% allra borgar- og bæjarstjóra í heiminum og þær eru 21% bæjar- eða borgarfulltrúa heimsins?
...að 1,2 milljarður manna um heim allan lifir á einum Bandaríkjadollara eða minna á dag? Af þeim eru 70% konur
...að í öllum löndum heims þéna karlar að meðaltali meira en konur?
...að á alheimsvísu er talið að ofbeldi gegn konum dragi jafnmargar konur til dauða og krabbamein?
...að á alheimsvísu er talið að ofbeldi gegn konum sé algengari ástæða heilsubrests kvenna en umferðaslys og malaría til samans?
...að sumir sérfræðingar áætla að milli 50-100 milljónir stúlkubarna ættu að vera á lífi en var eytt á fósturstigi vegna þess að þau voru stúlkur?
...að árið 2000 dóu fimm konur á Indlandi dag hvern vegna ''slysabruna'' í eldhúsi sem eiginmenn eða tengdaforeldrar ollu?
Hvað finnst þér eftir þennan lestur? Eru þetta staðreyndir sem þú vilt breyta?
Ertu ekki bara femínisti eftir allt saman?
Mánudagur, 7. janúar 2008
Skotið upp á náttfötum og Golfblaðið kvatt
Við höfðum ákveðið að taka niður allt jólaskraut í dag og var búið að vara Þann Einhverfa við með tveggja daga fyrirvara. Af fenginni reynslu frá jólunum 2006, bjóst ég við meiri látum. Og reyndar komin reynsla á málið þessi jólin, því á fimmtudaginn þegar jólatréið var tekið niður í Vesturhlíð, þá grét hann fögrum tárum með ekki eins fögrum hljóðum. Ef hann hefði getað tjáð sig við starfsfólkið þá hefði hann sennilega sagt eitthvað á þessa leið:
Mér finnst þið andstyggileg og ekki síður afar þröngsýnt fólk að sjá ekki að ekkert er því til fyrirstöðu að skreytt tré standi hér á gólfinu árið um kring.
Ekki gekk planið eftir því hér stendur enn jólatré í fullum skrúða en ég er þó búin að fylla borðstofuborðið af jólaóróum, glanslengjum, rauðum kertum, jólaljósum og öðru dóti sem hefur verið rifið hér niður úr gluggum, hillum og af veggjum.
Sá Einhverfi fór aðeins yfir pakkana sem eru undir jólatréinu (í flestum tilfellum eru það eintök af Golfblaðinu sem hann hefur pakkað inn). Tók þá og bar í stól, las upphátt á til/frá kortin og klappaði aðeins á pappírinn. Svo raðaði hann þeim öllum undir tréið aftur. Á morgun munum við taka fram kassana undan tréskrautinu og láta hann hjálpa okkur að ganga frá þessu öllu.
Eftir að búið var að reka Gelgjuna í náttföt hér í kvöld vegna þess að það lá svo á að koma barninu í rúmið, var skyndilega ákveðið að kveikja í þeim flugeldum sem eftir voru frá gamlaárskvöldi. Fyrir vikið græddi hún heilan klukkutíma á fótum.
Feðginin fóru hérna út í götu og héldu smá sprengi-show. Utan yfir náttfötin fór Gelgjan í náttslopp og svo úlpu þar utan yfir. Mjög hentugt því þegar þau komu inn aftur var hún tilbúin til að fara beint upp í rúm. En hún leit út eins og lítil bag-lady í þessari múnderingu.
Hér eru feðginin kampakát eftir sprengingarnar
Föstudagur, 14. desember 2007
Plastið byrjað að hitna
Það var nokkuð ljóst að ef breski hluti þessarar fjölskyldu ætti að fá jólagjafirnar fyrir jólin 2007, þyrfti ég að hefjast handa. Og það gerði ég í kvöld.
Tætti í Kringluna vopnuð plasti og stóð mig eins og hetja. Landaði UK-jólagjöfum og fimm til.
Sá pott í Byggt & Búið sem mér leist vel á og til þess að ég keypti ekki eitthvað alveg út í loftið sneri ég mér að ungum manni sem þarna var að afgreiða.
Nú átt þú að segja mér hversu frábær þessi pottur er, skipaði ég.
Hann leit á mig, brosti alveg yndislega fallega og sagði: þessi pottur er alveg frábær.
Gott, sagði ég. Ég ætla að fá hann.
Svona getur verið einfalt að finna góðar og nýtilega jólagjafir.
Í Blend hitti ég á annan ungan afgreiðslumann sem fékk sko ekki sitt þjónustuskírteini úr cocoa puffs pakka. Hann mátaði fyrir mig peysur og hélt á vörum fyrir mig á meðan ég skoðaði fleiri.
Hitti svo fyrir skemmtilegt fólk sem var að kynna nýtt íslenskt jólaleikrit; Lápur, Skrápur og jólaskapið. Tveir piltar stóðu þarna í búningum og ung stúlka með þeim sem var með allt á hreinu. Spjallaði við þau um leikritið og ég ætla að skella mér á sýninguna þeirra með krakkana. Held þetta sé bráðsnjallt leikrit fyrir alla fjölskylduna.
Þegar ég ákvað að ég hefði afrekað nóg í jólagjafadeildinni fór ég á Cafe Bleu og mætti þar sama yndislega viðmótinu og annars staðar, hjá stúlku sem var að þjóna og svo kaffimeistaranum sem lagði fyrir mig dásamlegan Latte í takeaway bolla. Það er ekki annað hægt en að komast í ekta jólaskap þegar þjónustan er svona fyrsta flokks, hvar sem maður kemur.
---------------
Rétt í þessu læddist ég inn í herbergi hjá krökkunum og kíkti í gluggann. Svona rétt til að sjá hvort jólasveinninn væri búinn að koma. Ekki var það nú. Hann bíður sennilega eftir því að við Bretinn skríðum í koju.
Í glugganum hjá Gelgjunni var orðsending til jólasveinsins, undir mjólkurglasinu sem ætlað er fyrir þyrstan, önnum kafinn Nikulás. Á miðanum stendur: Afsakið, en ég á ekki piparkökur. Svo er teikning af andliti með skeifu og tvö tár og undir stendur; Fyrirgefið!
Ég hafði Gelgjuna grunaða um að þykjast trúa á jólasveininn ennþá, því hún væri hrædd um að fá annars ekki í skóinn. En núna.. núna er ég ekki viss. Þetta er svo innileg afsökunarbeiðni. Ég vona að Sveinki taki hana til greina.
Englands-jólagjafirnar standa vandlega innpakkaðar í jólapappír ofan í stórum pappakassa frammi í forstofu. Ég vil að Bretinn hnjóti um þær í fyrramálið svo hann muni að fara með þær á pósthúsið bright and early. Búið að sækja jólaskrautið ofan af háalofti en jólagardínurnar eru enn ófundnar.
Miðvikudagur, 12. desember 2007
Dóttir þín hefur verið misnotuð í 3 ár. Er það ekki bara allt í fínu? Ha?
Æi kallinn minn, það var nú leiðinlegt að heyra þetta með dóttur þína. Ha! Kennarinn hennar náttúrlega misnotaði sér aðstöðu sína sonna soldið en það má nú virða greyinu til vorkunnar að hann var þó ástfanginn af henni. Enda er tekið tillit til þess í þessum dómi. Ég meina refsiramminn var alveg upp í 12 ár í fangelsi en hann fer ekkert inn. Enda eins gott. Ég meina.. 13 ára stelpur vita nú alveg hvað þær eru að gera ekki satt? Ha! kallinn minn. Ertu ekki sammála mér kallinn!?
Hefur þú nokkuð orðið var við þessa vanlíðun hjá henni sem er talað um? Er 'etta ekki bara einhver svona afsökun hjá henni fyrir drusluskapinn. Æ sorry kallinn minn ég meinti það ekki þannig en er það ekki alltaf þannig bara. ha? Þær sjá eftir öllu saman og fara þá að væla og kenna karlmanninum um. Þær eru nú orðnar ansi kræfar oft á þessum aldri þessar stelpur.
Græðir hún svo ekki bara á þessu? Fær fimmhundruðþúsundkall og allt ma'r. Takið þið hana ekki bara í gott frí eitthvert til útlanda og þetta verður allt gleymt. Gera bara gott úr 'essu. Ha!? Ha? Kallinn minn.
ÁTT ÞÚ DÓTTUR UNDIR LÖGALDRI? MYNDIR ÞÚ SITJA UNDIR ÞESSARI RÆÐU FRÁ VINI ÞÍNUM? Nei? Ég hélt ekki.
HVERNIG LIÐI ÞÉR ÞÁ AÐ ÞURFA AÐ TAKA ÞESSU RUGLI FRÁ HÉRAÐSDÓMI? Þeir gefa út veiðileyfi á börn.
ÉG ER BÚIN AÐ FÁ NÓG. EN ÞÚ?
Og til að það sé á hreinu, þá á þetta að sjálfsögðu við um bæði drengi og stúlkur. Svipað mál kom upp Svíþjóð um daginn, nema að þar er gerandinn kona og fórnarlambið drengur. Dómurinn í því máli var ekki mikið skárri.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (102)
Sunnudagur, 9. desember 2007
Fastar fléttur
Í gær var jólaball í dansskóla Gelgjunnar og spennan var mikil þar sem hennar hópur átti að sýna dansatriði. Þær áttu að vera klæddar í svartar leggings, svarta hlýraboli og með fastar fléttur. Ég er einskis nýt í föstu-fléttu-deildinni svo Gelgjan hvarf að heiman um miðjan dag til að fá þjónustuna heima hjá vinkonu sinni.
Ég var reyndar til fleiri verka einskis nýt í gær, sökum eftirkasta af áfengisdrykkju kvöldinu áður. En frúin bar sig vel og naut góðs af heitum faðmi Bretans á meðan við biðum eftir dansatriðinu. Áður en að því kom dönsuðu krakkarnir í kringum jólatréð og jólasveinn kom í heimsókn. Var sá óvenju skemmtilegur og ég rak upp hlátursrokur öðru hverju.
Amma og afi sáu um spilverkið, þ.e. amma og afi einhvers. Afinn spilaði á harmonikku og amman barði trommurnar. Frekar sérstök upplifun að sjá þessa tignarlegu, eldri konu, í dökkblárri buxnadragt og hvítri blússu með blúndu við hálsinn, slá taktinn.
Ekki náðust góðar myndir af dansatriðinu sjálfu, en hér er mynd af skvísunum fyrir sýningu (Gelgjan er t.v.).
Og hin myndin sem ég læt hér fylgja sýnir skemmtilegt sjónarhorn. Fullt af litlum stelpum, öllum eins, að taka við fyrirmælum frá kennaranum sínum. Ég þekki ekki einu sinni barnið mitt í hópnum.
Í bílnum á leiðinni heim sagði ég við Gelgjuna: Það þarf nú alveg sérstakan hæfileika til að brosa svona allan tímann eins og þú gerðir.
Já, hún gat alveg samþykkt það. En mamma, sagði hún. Ég hætti samt að brosa því mér fannst ég vera eins og fáviti.
Ég skil ekki hvaðan krakkinn hefur þennan talsmáta.
Föstudagur, 7. desember 2007
Refsivert að borða yfir sig?
Jahá! Fjörið er rétt að byrja krakkar mínir.
Forræðishyggjan á eftir að gleypa okkur með húð og hári.
Sýn Adolfs Hitlers á hinn fullkomna heim, mun á endanum verða að veruleika.
Allir sem ekki eru ljóshærðir, bláeygðir, með hvíta húð, í kjörþyngd og færir um að geta af sér börn á náttúrulegan hátt, verða réttdræpir og gefið út veiðileyfi á þá.
Skilaboðin um offitu eða yfirvigt verða sífellt skýrari og ef okkur hefur þótt hingað til að börn séu lögð í einelti vegna holdarfars síns, þá höfum við lítið séð ennþá.
Smám saman verður bannað með lögum að borða of mikið og vera of feitur því það hefur áhrif á einhvern hátt á gróðurhúsaáhrifin. Ef þú hreyfir þig of lítið og notar bílinn til allra þinna ferða, þá ertu að hleypa of miklum koltvísýringi út í loftið.
Ef þú kýst að nota bílinn minna og ganga meira þá hleypirðu jafnvel enn meira af koltvísýringi út í loftið. Og afhverju er það. Jú vegna þess að matvælaframleiðsla er svo orkufrek og þú þarft vissan fjölda af kalóríum til að brenna í þessum gönguferðum. Sem sagt, ef þú gengur þá þarftu að borða meira og þá eykst matvælaframleiðsla......
Og sannið til... útkoman úr þessari hringavitleysu verður á endanum að fólk sem er of feitt verður álitið umhverfismengandi og sjónmengandi. Við verðum öll vigtuð þegar við mætum til skóla eða vinnu á morgnana og útkoman hengd á kennitöluna okkar.
Finnst ykkur ég vera komin fram úr mér? Bíðið bara....
![]() |
Ganga skaðlegri en akstur? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2019
2018
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
-
solskinsdrengurinn
-
skrifa
-
jenfo
-
gelgjan
-
annambragadottir
-
marzibil
-
brynja
-
hk
-
gurrihar
-
lehamzdr
-
katlaa
-
eddaagn
-
jahernamig
-
hronnsig
-
martasmarta
-
katrinsnaeholm
-
palmig
-
ipanama
-
hallarut
-
tommi
-
ktomm
-
poppoli
-
svavaralfred
-
kollajo
-
bergruniris
-
bene
-
bennason
-
jensgud
-
solrunedda
-
heidathord
-
ringarinn
-
tofraljos
-
kjaftaskur
-
ormurormur
-
zeriaph
-
unns
-
ellasprella
-
hjolagarpur
-
salka
-
nonniblogg
-
markusth
-
rebby
-
birna-dis
-
garun
-
landsveit
-
olofannajohanns
-
brylli
-
evaice
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
rustikus
-
singer
-
jaxlinn
-
krossgata
-
mummigud
-
blekpenni
-
gerda
-
baddahall
-
holi
-
grafarholt
-
gudnylinda
-
thegirl
-
gretarorvars
-
thordis
-
herdis
-
mammzan
-
sigthora
-
bet
-
saedis
-
emmgje
-
sigurjonsigurdsson
-
janus
-
astromix
-
overmaster
-
thorasig
-
gudni-is
-
sunnadora
-
kjarrip
-
810
-
gislihjalmar
-
beggagudmunds
-
sirrycoach
-
betareynis
-
ilovemydog
-
rannveigmst
-
stormadis
-
perlan
-
bergdisr
-
skondrumamma
-
snar
-
stormur
-
ljonid
-
raggipalli
-
hjordiz
-
almaogfreyja
-
katja
-
lady
-
sigrunfridriks
-
zunzilla
-
olinathorv
-
bidda
-
smjattpatti
-
jogamagg
-
disadora
-
harpao
-
fuf
-
alexm
-
larahanna
-
juliaemm
-
saemi7
-
gudrunmagnea
-
svala-svala
-
kari-hardarson
-
hlf
-
hlinnet
-
annagisla
-
einari
-
lena75
-
hector
-
saethorhelgi
-
ernafr
-
birnarebekka
-
heidistrand
-
kerla
-
hannamar
-
jara
-
supermamma
-
monsdesigns
-
malacai
-
solveigth
-
siggathora
-
senorita
-
snjaldurmus
-
photo
-
stingi
-
pollyanna
-
steingerdur
-
icekeiko
-
majaogco
-
skordalsbrynja
-
danjensen
-
lilly
-
heidabj
-
omarpet
-
helgamagg
-
nori
-
jamesblond
-
gretaulfs
-
rattati
-
hogni
-
ragjo
-
kolgrima
-
skjolid
-
hugrunj
-
egill75
-
amman
-
liljabolla
-
asgerdurjoh
-
okurland
-
rannthor
-
svalaj
-
siggith
-
vefritid
-
zsapper
-
laz
-
graceperla
-
rannug
-
agbjarn
-
alliragg
-
fjarki
-
birtabeib
-
roslin
-
lindape
-
rosa
-
tinnaeik
-
muszka
-
krummasnill
-
lindalea
-
fjola
-
solan
-
scorpio
-
evabenz
-
isleifure
-
karitryggva
-
ellasiggag
-
beggita
-
ollabloggar
-
madddy
-
songfuglinn
-
emm
-
lindagisla
-
turettatuborg
-
einarsigvalda
-
huldadag
-
siggasin
-
credo
-
loathor
-
carma
-
komaso
-
fifudalur
-
rosabla
-
lillagud
-
eythora
-
griman
-
eyrunelva
-
svanurg
-
strumpurinn
-
godihundur
-
hallidori
-
annriki
-
sibbulina
-
helgurad
-
huldumenn
-
julianamagg
-
berglindnanna
-
huldam
-
joik7
-
venus
-
osland
-
liso
-
amaba
-
asako
-
hryssan
-
mammann
-
leyla
-
gunnarggg
-
sigrunzanz
-
fanneyunnur
-
himmalingur
-
helgabst
-
bostoninga
-
christinemarie
-
jea
-
elisabeta
-
perlaoghvolparnir
-
meyjan
-
wonderwoman
-
coke
-
ragnhildurthora
-
gullilitli
-
tommi16
-
ea
-
mariaannakristjansdottir
-
einarorneinars
-
lindalinnet
-
joninaros
-
reynzi
-
rosagreta
-
lauola
-
reynir
-
elinora
-
ma
-
olapals
-
bestalitla
-
kolgrimur
-
handtoskuserian
-
vonin
-
kaffi
-
einarhardarson
-
gleymmerei
-
brandarar
-
alf
-
hreinsamviska
-
litlakonan
-
lucas
-
reisubokkristinar
-
jgfreemaninternational
-
olofdebont
-
thjodarblomid
-
vilma
-
ollana
-
gudrununa
-
holar
-
gotusmidjan
-
huldastefania
-
mubblurnar
-
bjarnihardar
-
vild
-
skrudur
-
jyderupdrottningin
-
sifjan
-
letilufsa
-
hrundt
-
robbitomm
-
brudurin
-
anitabjork
-
blindur
-
astabjork
-
bailey
-
gattin
-
draumur
-
einhugur
-
trygg
-
eskil
-
evags
-
gudrunkatrin
-
gudrunss
-
nf26b
-
topplistinn
-
helgaas
-
helgatho
-
hildurhelgas
-
drum
-
innipuki
-
ingal
-
kikka
-
astroblog
-
oliskula
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
kariaudar
-
vga
-
thorolfursfinnsson
-
motta