Leita í fréttum mbl.is

Einhverfur eða ekki einhverfur

 

Ég sat við skrifborðið mitt í vinnunni fyrri part kvölds við skriftir. Kom heim rétt fyrir kl níu og var ákveðin í að sjá fyrsta þáttinn í íslensku þáttaröðinni um Ástríði.

Sá Einhverfi lá makindalega og afslappaður í sófanum fyrir framan sjónvarpið þegar ég kom inn og það breiddist lymskulegt glott yfir varirnar á honum þegar hann sá mig. Ég átti ekki von á góðu, þó ég vissi það ekki á þessu andartaki.

Ég skellti silung og kartöflum sem Bretinn hafði eldað í kvöldmat, á disk og inn í örbylgjuofn. Á þessum tveimur mínútum sem tók að hita matinn var Sá Einhverfi búinn að æsa sig upp í dramakast. Hann heimtaði gulan lit. Ég benti honum kurteislega á að hann ætti fullt af gulum litum. Hann hélt nú ekki.

Til að fá frið þá sagðist ég myndi koma heim með gulan lit handa honum á morgun. Venjulega tekur hann svona málamiðlunum. En nú brá svo við að það hentaði honum ekki.

Ég varð drullufúl. Ætlaðir krakkaskömmin að vera með læti rétt á meðan þessi þáttur væri á skjánum. Ég ákvað að gefa dauðann og djöfulinn í krakkann og hlammaði mér inn í stofu með silunginn minn og hvítvín í glasi. Þegar Ástríður byrjaði var Sá Einhverfi hágrátandi inn í borðstofu. Reiður út í heiminn og mig og var stórlega misboðið.

Ég hækkaði sjónvarpið upp úr öllu valdi því ekki hafði ég texta til að styðjast við. En texti nýtist mjög vel þegar maður er með öskrandi börn yfir sjónvarpinu.

Ég ákvað að ég ætlaði að láta drenginn um að ráða sjálfur fram úr þessari krísu. Þetta var hans krísa, ekki mín.

Hann grét sárt í svolítinn tíma en þegar það dugði ekki til að ég veitti honum athygli, brá hann á annað ráð.

Gelgjan gerði sig líklega til að standa upp en ég stoppaði hana af. Anna Mae láttu hann eiga sig.

Mamma! hann er að berja sig í hausinn með DVD diski sagði ábyrgðar- og áhyggjufulla stúlkan mín.

Mér er alveg sama, sagði ég rólega. Þá gerir hann það bara.

Svo gleymdi ég drengnum barasta. Mér tókst að gjörsamlega draga gardínur fyrir eyrun og gleyma krakkanum.

Ég hálfhrökk í kút þegar hann byrjaði allt í einu að hlæja. Fyrst hélt ég að þetta væri svona geðsveifluhlátur en ég þurfti ekki að hafa áhyggjur af því.

Drengurinn var búinn að gefast upp! Hann gafst upp!! Og það tók ekki nema 15 mínútur. Húrra fyrir mér. Hann var búinn að finna eitthvað á netinu sem honum fannst svona bráðskemmtilegt og ég heyrði ekki meira minnst á gulan lit.

Þetta atvik opnaði augu mín svo um munaði. Eins og önnur smábörn (því þrátt fyrir bráðum full 11 ár er hann enn smábarn að mörgu leyti) sýnir hann foreldrum sínum aðra og verri hegðun en hann myndi sýna öðru fólki. Og foreldrarnir spila með og hlaupa eftir duttlungum barna sinna. Þetta heitir slæmt uppeldi.

Einhverfur eða ekki einhverfur..... Að uppskera athygli, hvort sem hún er jákvæð eða neikvæð, vegna óæskilegrar hegðunar fær barnið til að hefja skipulega könnun á teygjanleika þolinmæðisgens foreldra sinna.

Ég er hætt, ég segi það satt.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Til hamingju með áfangann. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.8.2009 kl. 00:39

2 Smámynd: Halla Rut

Frábær færsla. Þú segir það upphátt svo margir hugsa oft en mundu aldrei þora að viðurkenna.

Heyrðu á ég ekki að fara að koma í heimsókn með Ívan.

Halla Rut , 20.8.2009 kl. 01:02

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Takk fyrir að deila þessu hér með okkur J'ona mín.

Ía Jóhannsdóttir, 20.8.2009 kl. 07:15

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta er í boði Ástríðar.  Þakkaðu fyrir það.  Frábært.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.8.2009 kl. 08:31

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 20.8.2009 kl. 08:48

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Jamm.

Gott að geta dregið fyrir smá stund.

Annars eru þessi korter kvöl og pína á meðan á þessu stendur, en svo uppsker maður líka frið í hjarta og ánægjulegt sjónvarpsgláp svona eftirá.

Góðan dag til þín og þinna.............

Þröstur Unnar, 20.8.2009 kl. 12:20

7 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Takk fyrir mig.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 20.8.2009 kl. 13:03

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Frábært, takk fyrir að deila.

Ásdís Sigurðardóttir, 20.8.2009 kl. 13:25

9 Smámynd: Jens Guð

  Sætt.

Jens Guð, 20.8.2009 kl. 14:06

10 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Tékk og takk fyrir. 

Jenný Stefanía Jensdóttir, 20.8.2009 kl. 15:28

11 identicon

Ein taktíkin í uppeldi er að "hunsa" hegðun.

Hef notað hana oft og er hún nauðsynleg í litrófi viðbragða við óæskilegri hegðun. 

Auðvitað grípum við inní ef barnið hegðar sér þannig að því eða öðrum stafar hætta af

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 20.8.2009 kl. 16:04

12 Smámynd: Sifjan

ég hef reynt að hunsa svona hegðun hjá mínum dreng... og það endar yfirleitt með ósköpum.  Síðast þegar ég gerði það  þá endaði það með ferð á slysavarðsstofuna... drengnum datt í hug að taka teikniborðið sitt og renna sér á því niður stiga.  Já ... það er allt reynt til að fá athygli !!!!

Sifjan, 20.8.2009 kl. 23:54

13 Smámynd: Ómar Ingi

Snillingur ertu Jóna

Ómar Ingi, 22.8.2009 kl. 02:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband