Þriðjudagur, 18. nóvember 2008
Einhverfur afkomandi Litlu hafmeyjunnar
Sá Einhverfi er nú á sundnámskeiði tvisvar sinnum í viku.
Öðru hverju rek ég mig á varðandi það hvað ég vanmet getu barnsins. Þegar ég fékk skilaboð frá skólanum um það að sennilega væri stráksi nú tilbúinn til að sækja sundnámskeið hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra, var ég aldeilis standandi hlessa barasta. Ekki það að ég viti ekki hversu vel honum líður í vatni og hversu gaman hann hefur af sundlaugum.. sérstaklega sundlaugum með myndarlegum rennibrautum. En ég hélt hreinlega að hann væri langt í frá tilbúinn til að taka við fyrirmælum um sundtök frá ókunnugu fólki hvað þá að halda sér á floti hjálparlaust.
Svo mættum við á sundnámskeið, Sá Einhverfi og ég. Ég reyndar sat alklædd á sundlaugabakkanum og gapti. Ég er enn að gapa í 5. eða 6 tíma.
Er þetta barnið sem ég er sífellt hrædd um að drukkni í baðkarinu? Sem við troðum neon-appelsínugulum kútum á bústnu handleggina á, þegar við (lesist Bretinn) förum með hann í sund?
Barnið er flugsynt. Ekki með hefðbundnu bringu-, bak- eða skriðsundi. En hann þýtur áfram með einhverjum heimatilbúnum sundtökum. Jafnt yfir grunna sem djúpa laug. Fer í kaf og hagar sér á allan hátt eins og afkomandi Litlu hafmeyjunnar. Ekki kannski alveg, en þið vitið hvað ég meina.
Ég þarf að leggja hausinn í bleyti núna. Reyna að finna út á hvaða fleiri sviðum ég er að halda aftur af barninu.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2019
2018
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- solskinsdrengurinn
- skrifa
- jenfo
- gelgjan
- annambragadottir
- marzibil
- brynja
- hk
- gurrihar
- lehamzdr
- katlaa
- eddaagn
- jahernamig
- hronnsig
- martasmarta
- katrinsnaeholm
- palmig
- ipanama
- hallarut
- tommi
- ktomm
- poppoli
- svavaralfred
- kollajo
- bergruniris
- bene
- bennason
- jensgud
- solrunedda
- heidathord
- ringarinn
- tofraljos
- kjaftaskur
- ormurormur
- zeriaph
- unns
- ellasprella
- hjolagarpur
- salka
- nonniblogg
- markusth
- rebby
- birna-dis
- garun
- landsveit
- olofannajohanns
- brylli
- evaice
- ingolfurasgeirjohannesson
- rustikus
- singer
- jaxlinn
- krossgata
- mummigud
- blekpenni
- gerda
- baddahall
- holi
- grafarholt
- gudnylinda
- thegirl
- gretarorvars
- thordis
- herdis
- mammzan
- sigthora
- bet
- saedis
- emmgje
- sigurjonsigurdsson
- janus
- astromix
- overmaster
- thorasig
- gudni-is
- sunnadora
- kjarrip
- 810
- gislihjalmar
- beggagudmunds
- sirrycoach
- betareynis
- ilovemydog
- rannveigmst
- stormadis
- perlan
- bergdisr
- skondrumamma
- snar
- stormur
- ljonid
- raggipalli
- hjordiz
- almaogfreyja
- katja
- lady
- sigrunfridriks
- zunzilla
- olinathorv
- bidda
- smjattpatti
- jogamagg
- disadora
- harpao
- fuf
- alexm
- larahanna
- juliaemm
- saemi7
- gudrunmagnea
- svala-svala
- kari-hardarson
- hlf
- hlinnet
- annagisla
- einari
- lena75
- hector
- saethorhelgi
- ernafr
- birnarebekka
- heidistrand
- kerla
- hannamar
- jara
- supermamma
- monsdesigns
- malacai
- solveigth
- siggathora
- senorita
- snjaldurmus
- photo
- stingi
- pollyanna
- steingerdur
- icekeiko
- majaogco
- skordalsbrynja
- danjensen
- lilly
- heidabj
- omarpet
- helgamagg
- nori
- jamesblond
- gretaulfs
- rattati
- hogni
- ragjo
- kolgrima
- skjolid
- hugrunj
- egill75
- amman
- liljabolla
- asgerdurjoh
- okurland
- rannthor
- svalaj
- siggith
- vefritid
- zsapper
- laz
- graceperla
- rannug
- agbjarn
- alliragg
- fjarki
- birtabeib
- roslin
- lindape
- rosa
- tinnaeik
- muszka
- krummasnill
- lindalea
- fjola
- solan
- scorpio
- evabenz
- isleifure
- karitryggva
- ellasiggag
- beggita
- ollabloggar
- madddy
- songfuglinn
- emm
- lindagisla
- turettatuborg
- einarsigvalda
- huldadag
- siggasin
- credo
- loathor
- carma
- komaso
- fifudalur
- rosabla
- lillagud
- eythora
- griman
- eyrunelva
- svanurg
- strumpurinn
- godihundur
- hallidori
- annriki
- sibbulina
- helgurad
- huldumenn
- julianamagg
- berglindnanna
- huldam
- joik7
- venus
- osland
- liso
- amaba
- asako
- hryssan
- mammann
- leyla
- gunnarggg
- sigrunzanz
- fanneyunnur
- himmalingur
- helgabst
- bostoninga
- christinemarie
- jea
- elisabeta
- perlaoghvolparnir
- meyjan
- wonderwoman
- coke
- ragnhildurthora
- gullilitli
- tommi16
- ea
- mariaannakristjansdottir
- einarorneinars
- lindalinnet
- joninaros
- reynzi
- rosagreta
- lauola
- reynir
- elinora
- ma
- olapals
- bestalitla
- kolgrimur
- handtoskuserian
- vonin
- kaffi
- einarhardarson
- gleymmerei
- brandarar
- alf
- hreinsamviska
- litlakonan
- lucas
- reisubokkristinar
- jgfreemaninternational
- olofdebont
- thjodarblomid
- vilma
- ollana
- gudrununa
- holar
- gotusmidjan
- huldastefania
- mubblurnar
- bjarnihardar
- vild
- skrudur
- jyderupdrottningin
- sifjan
- letilufsa
- hrundt
- robbitomm
- brudurin
- anitabjork
- blindur
- astabjork
- bailey
- gattin
- draumur
- einhugur
- trygg
- eskil
- evags
- gudrunkatrin
- gudrunss
- nf26b
- topplistinn
- helgaas
- helgatho
- hildurhelgas
- drum
- innipuki
- ingal
- kikka
- astroblog
- oliskula
- joklamus
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- kariaudar
- vga
- thorolfursfinnsson
- motta
Athugasemdir
Hólmdís Hjartardóttir, 18.11.2008 kl. 01:50
Örverpið mitt sem er 11 ára er ekki synd, en frá 5 ára aldri hefur hún synt í kafi og verið dugleg í sundlauginni. Hún kann ekki að synda með hausinn uppúr, allavega ennþá.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.11.2008 kl. 01:53
ÆÐI!
Sporðdrekinn, 18.11.2008 kl. 02:40
Þarna er gríðarleg orka sem er aðeins nýtt að litlu leyti. Nei, grínlaust, skemmtileg frásögn hjá þér Jóna.
Jóhann G. Frímann, 18.11.2008 kl. 03:09
Helga skjol, 18.11.2008 kl. 06:13
Flottur strákur og yndislegurknús inn í ljúfan dag elsku fjölskylda
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 18.11.2008 kl. 07:27
held vid gerum thetta soldid mømmurnar....thú ert ekki ein um thetta...say no more
en frábært hjá honum
hafdu gódan dag Jóna
María Guðmundsdóttir, 18.11.2008 kl. 07:43
þú ert örugglega alveg eins og ég ... ég myndi hafa minn á brjósti ennþá ef það væri socially acceptable (hann er 97 módelið)
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 18.11.2008 kl. 08:13
Stráksi flottur eins og ávallt.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 08:32
Glæsilegt. Þetta er athyglisverð spurning sem þú spyrð þig, "á hvaða fleiri sviðum ég er að halda aftur af barninu."
Ég held að allir foreldrar ættu að spyrja sig að hinu sama.
kveðja
Róbert Tómasson, 18.11.2008 kl. 11:29
Yndislegar fréttar af stráksa, alltaf jafn gaman að lesa hjá þér darling.
Ásdís Sigurðardóttir, 18.11.2008 kl. 12:50
Frábært!
Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 13:37
frábært að hann skuli una sér svona vel í sundi...hann kemur sífellt á óvart
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 18.11.2008 kl. 15:12
Æ! en æðislegt.
Steingerður Steinarsdóttir, 18.11.2008 kl. 15:27
Já þetta er snillingar sem við eigum Jóna
Ómar Ingi, 18.11.2008 kl. 16:31
Tek undir undrun og gleði þína Jóna, what´s next kkv. eva
Eva Benjamínsdóttir, 18.11.2008 kl. 18:30
Það er náttúrulega bara best að vera í sundi......þetta er ein besta íþrót sem hægt er að stunda, bæði fyrir líkama og sál.
Spáðu í hvernig þér á eftir að líða þegar Ian vinnur sitt fyrsta sund á sundmóti.....(hlakka til að lesa þá færslu) og hver veit kannski erum við að tala um framtíðar-ólympíufara.
Haltu bara áfram að halda aftur af honum - það eflir hann bara
Anna Þóra Jónsdóttir, 18.11.2008 kl. 20:49
Minn strákur sem er 15 ára er frekar illa syndur því fyrsta árið sem hann átti að læra sund var hann í æfingum hjá Lömuðum og fötluðum vegna vanda við fínhreyfingar á sama tíma og sundið var. En vitanlega getur Sá Einhverfi synt. Hann lumar örugglega á mörgum svona leyndarmálum.
Helga Magnúsdóttir, 18.11.2008 kl. 22:11
Það er þá bara spurningin hvort er þá litla hafmeyjan þú eða Bretinn ?
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 18.11.2008 kl. 22:25
Sæl Jóna.
Um daginn rambaðir þú inn á síðuna mína.
Þú varst svo kurteis að kvitta fyrir komu þinni.
Ég varð forvitin og kíkti á þína síðu.
Ég kvittaði ekki.
Ég hef ekki kvittað síðan.
En ég er daglegur gestur og finnst alveg einstaklega gaman að lesa hvað þú kemur vel fyrir þig orði.
Mér fannst einkennilega gaman að sjá bókina þína í hillu í bókabúð um daginn, næstum eins og ég loksins þekkti fræga manneskju.
Ætla að halda áfram að vera daglegur gestur.
Ætla að leggja mig í líma við að vera kurteis stúlka og kvitta fyrir komu minni.
Þetta er fyrsta kvitt og stefni ég að því að hafa þau sem á eftir koma ekki eins löng.
Takk fyrir mig.
LBH
LBH (IP-tala skráð) 19.11.2008 kl. 00:26
Dóttir mín var flugsynd 2ja ára gömul á svokölluðu hundasundi. Ég man alltaf hvað ég var hrædd í fyrsta sinn sem hún stakk sér í kaf með sundhringinn um sig miðja, bara bossinn stóð upp úr. Að mér fannst í eilífðartíma, meðan ég synti björgunarsund til hennar á fljúgandi ferð.
En þegar ég kom að henni kom hún úr kafinu skellihlæjandi. Eftir þetta notaði hún ekki sundhring né kúta.
því hefur verið haldið fram í ýmsum fræðiritum, að maðurinn hafi lifað í vatni í árdaga og þess vegna séu konur með svona sítt hár til þess að börnin ættu auðveldara með að ná taki á móður sinni. Líklega vegna þessa eru sundgenin ennþá svona virk í sumum börnum nú til dags
Svava frá Strandbergi , 19.11.2008 kl. 18:24
En frábært að hann fílar þetta svona vel..! Skil að þú hafir orðið hissa.. hheheh
Guðríður Pétursdóttir, 19.11.2008 kl. 23:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.