Mánudagur, 17. nóvember 2008
Mamma bjáni
Það er svo skrýtið hvað þráðurinn er stuttur í mér eftir langa fjarveru við börnin mín. Maður skyldi ætla að því væri öfugt farið. Kannski er það ég sem er öfugsnúin.
Þegar ég fer í burtu í tvo daga eða fleiri, eða krakkarnir, þá er þolinmæði mín gagnvart þeim ansi lítil þegar við hittumst á ný. Ég þarf aðlögun. Eins og lítið barn að byrja á leikskóla. Reyndar gera endurfundir við Bretann mig líka svona grömpí. Guði sé lof fyrir að ég er ekki sjómannskona, eða börnin á heimavistarskóla. Þá er nú hætt við að ég þyrfti að fara að poppa gleðipillur eða kvíðatöflur til að verða þolanleg í sambúð.
Sá Einhverfi fór í sumabústaðinn yfir helgina með Fríðu stuðningsmömmu og co. Hann var farinn að bíða eftir að komast heim, fyrri partinn í dag en stuðningsfjölskyldan dílaði við hann eins og þeim er von og vísa.
Þau enduðu svo helgina í mat hjá Fríðu-foreldrum, Lúlla og Önnu Laufeyju í Mosó. Og þangað sótti ég kútinn minn. Hann stóð alklæddur og beið eftir mömmunni sinni. Ég sagði honum að ég ætlaði að þiggja kaffibolla en samt opnaði hann útidyrahurðina á meðan ég klæddi mig ÚR skónum, tilbúinn að stökkva af stað út í bíl. ''Fara heim'' sagði hann vongóður.
Ég fékk hann þó til að setjast aftur niður fyrir framan Harry Potter á meðan ég svolgraði í mig kaffinu. Og þarna sat hann. Strákurinn minn. Stjarfur á stól, með Spiderman húfuna á höfðinu og Spiderman fingravettlinga á höndunum. Algjörlega í startholunum. Hver taug þanin og allir fingur útglenntir.
Og þegar við loks fórum fann ég hversu hræddur hann var um að ég myndi skipta um skoðun í miðjum stigagangi. Var ekki í rónni fyrr en hann var sestur inn í bíl með beltið spennt.
Eftir að við komum heim var einhver pirringur í honum yfir því að tölvan hagaði sér ekki eins og hann vildi. Þar áður var það snjórinn sem klárlega var ekki velkominn og Sá Einhverfi heimtaði rigningu. Tók það alls ekki gott og gilt að mamma hans ætti enga greiða inni hjá veðurguðunum.
Ég, eftir heila fríhelgi og í aðlögunarþörfinni, missti þolinmæðina og talaði höstuglega til hans. Það var nóg. Hann varð alveg miður sín, fór að hágráta og breyttist í mannlegan plástur sem límdist við mig.
Ó hvað mér fannst ég vond mamma. Drengurinn örugglega verið með kvíðahnút í maganum frá hádegi yfir því að ég væri búin að gefa hann, og dagurinn því verið honum erfiður.
Hann grét og grét og ætlaði aldrei að geta hætt. En ósköp fannst mér ljúft að hafa þennan plástur á mér. Finna hvernig handleggirnir hans vöfðust þétt utan um mig og hvað hann þurfti mikið á mér að halda. Við þurfum að finna það.. stundum.. við mömmurnar.
Og þó að hann, seinna um kvöldið, stappaði niður fæti og galaði ''mamma bjáni'' þá vissi ég að það var ekki illa meint.
Þegar ég var búin að breiða yfir hann og kyssa góða nótt fylgdu mér glaðlegar skammir fram á gang: ''síld á sunnudegi - fjandinn hafi það''.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2019
2018
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- solskinsdrengurinn
- skrifa
- jenfo
- gelgjan
- annambragadottir
- marzibil
- brynja
- hk
- gurrihar
- lehamzdr
- katlaa
- eddaagn
- jahernamig
- hronnsig
- martasmarta
- katrinsnaeholm
- palmig
- ipanama
- hallarut
- tommi
- ktomm
- poppoli
- svavaralfred
- kollajo
- bergruniris
- bene
- bennason
- jensgud
- solrunedda
- heidathord
- ringarinn
- tofraljos
- kjaftaskur
- ormurormur
- zeriaph
- unns
- ellasprella
- hjolagarpur
- salka
- nonniblogg
- markusth
- rebby
- birna-dis
- garun
- landsveit
- olofannajohanns
- brylli
- evaice
- ingolfurasgeirjohannesson
- rustikus
- singer
- jaxlinn
- krossgata
- mummigud
- blekpenni
- gerda
- baddahall
- holi
- grafarholt
- gudnylinda
- thegirl
- gretarorvars
- thordis
- herdis
- mammzan
- sigthora
- bet
- saedis
- emmgje
- sigurjonsigurdsson
- janus
- astromix
- overmaster
- thorasig
- gudni-is
- sunnadora
- kjarrip
- 810
- gislihjalmar
- beggagudmunds
- sirrycoach
- betareynis
- ilovemydog
- rannveigmst
- stormadis
- perlan
- bergdisr
- skondrumamma
- snar
- stormur
- ljonid
- raggipalli
- hjordiz
- almaogfreyja
- katja
- lady
- sigrunfridriks
- zunzilla
- olinathorv
- bidda
- smjattpatti
- jogamagg
- disadora
- harpao
- fuf
- alexm
- larahanna
- juliaemm
- saemi7
- gudrunmagnea
- svala-svala
- kari-hardarson
- hlf
- hlinnet
- annagisla
- einari
- lena75
- hector
- saethorhelgi
- ernafr
- birnarebekka
- heidistrand
- kerla
- hannamar
- jara
- supermamma
- monsdesigns
- malacai
- solveigth
- siggathora
- senorita
- snjaldurmus
- photo
- stingi
- pollyanna
- steingerdur
- icekeiko
- majaogco
- skordalsbrynja
- danjensen
- lilly
- heidabj
- omarpet
- helgamagg
- nori
- jamesblond
- gretaulfs
- rattati
- hogni
- ragjo
- kolgrima
- skjolid
- hugrunj
- egill75
- amman
- liljabolla
- asgerdurjoh
- okurland
- rannthor
- svalaj
- siggith
- vefritid
- zsapper
- laz
- graceperla
- rannug
- agbjarn
- alliragg
- fjarki
- birtabeib
- roslin
- lindape
- rosa
- tinnaeik
- muszka
- krummasnill
- lindalea
- fjola
- solan
- scorpio
- evabenz
- isleifure
- karitryggva
- ellasiggag
- beggita
- ollabloggar
- madddy
- songfuglinn
- emm
- lindagisla
- turettatuborg
- einarsigvalda
- huldadag
- siggasin
- credo
- loathor
- carma
- komaso
- fifudalur
- rosabla
- lillagud
- eythora
- griman
- eyrunelva
- svanurg
- strumpurinn
- godihundur
- hallidori
- annriki
- sibbulina
- helgurad
- huldumenn
- julianamagg
- berglindnanna
- huldam
- joik7
- venus
- osland
- liso
- amaba
- asako
- hryssan
- mammann
- leyla
- gunnarggg
- sigrunzanz
- fanneyunnur
- himmalingur
- helgabst
- bostoninga
- christinemarie
- jea
- elisabeta
- perlaoghvolparnir
- meyjan
- wonderwoman
- coke
- ragnhildurthora
- gullilitli
- tommi16
- ea
- mariaannakristjansdottir
- einarorneinars
- lindalinnet
- joninaros
- reynzi
- rosagreta
- lauola
- reynir
- elinora
- ma
- olapals
- bestalitla
- kolgrimur
- handtoskuserian
- vonin
- kaffi
- einarhardarson
- gleymmerei
- brandarar
- alf
- hreinsamviska
- litlakonan
- lucas
- reisubokkristinar
- jgfreemaninternational
- olofdebont
- thjodarblomid
- vilma
- ollana
- gudrununa
- holar
- gotusmidjan
- huldastefania
- mubblurnar
- bjarnihardar
- vild
- skrudur
- jyderupdrottningin
- sifjan
- letilufsa
- hrundt
- robbitomm
- brudurin
- anitabjork
- blindur
- astabjork
- bailey
- gattin
- draumur
- einhugur
- trygg
- eskil
- evags
- gudrunkatrin
- gudrunss
- nf26b
- topplistinn
- helgaas
- helgatho
- hildurhelgas
- drum
- innipuki
- ingal
- kikka
- astroblog
- oliskula
- joklamus
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- kariaudar
- vga
- thorolfursfinnsson
- motta
Athugasemdir
Yndisleg færsla, eins og alltaf.
Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 00:23
Það er svo yndislegt þegar börnin manns tala í svona frösum Minn sonur tilkynnti einu sinni í heyranda hljóði (ca. 3 ára) að hann væri "veikur fyrir fögrum meyjum (frasi úr einhverri teiknimynd)!! Fólk horfði að sjálfsögðu forviða á þetta stórskrýtna barn!!
Anna Lilja Torfadóttir (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 00:25
Ása Ninna. Þakka þér fyrir
Anna Lilja. ''Veikur fyrir fögrum meyjum'' Æi en yndislegt. Er hann það enn?
Jóna Á. Gísladóttir, 17.11.2008 kl. 00:29
hahaha, síld á sunnudegi - fjandinn hafi það
Mikið væri ég til í að heyra þessar skammir, þó ég hafi heyrt þær einu sinni í Lottu...
Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.11.2008 kl. 00:33
Klárlega fá bara eðalmömmur dona eðalskammir frá eðaldreng.
Steingrímur Helgason, 17.11.2008 kl. 00:42
Góður plástur, góð færsla
Sigrún Jónsdóttir, 17.11.2008 kl. 01:19
Mannlegur plástur, þetta er alveg yndisleg skýring á svona atviki þar sem barn þarf mikið á mömmu sinni að halda.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 17.11.2008 kl. 01:23
Lífið þitt er öðruvísi en margra annarra. þú ert hetjan mín og ég er glöð að hafa kynnst ykkur knústu Bóthildi frá mér, er alltaf á leiðinni
Ásdís Sigurðardóttir, 17.11.2008 kl. 02:37
hahaahha ''síld á sunnudegi - fjandinn hafi það'' Þetta fékk mig til að hlæja.
Við erum bara mannlegar þótt að mömmur séum. En sem betur fer þekkja börnin okkar okkur og vita hvar þau hafa okkur.
Sporðdrekinn, 17.11.2008 kl. 03:19
hann er bara frábær, sem og thid øll.
hafdu gódan dag Jóna
María Guðmundsdóttir, 17.11.2008 kl. 06:29
Knúsi knús kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 17.11.2008 kl. 07:31
Ragnheiður , 17.11.2008 kl. 08:03
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 12:26
Finn oft samnefnara með okkur í skrifum þínum. Gott að heyra það á prenti svo maður telji sig ekki "Palla einn í heiminum"
Strax farin að sakna hjúrí stundanna með mínum strák þegar hann stækkar. Örlar á því nú þegar
M, 17.11.2008 kl. 12:27
Yndsisleg frásögn eins og þín er von og vísa.
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.11.2008 kl. 13:14
Elísabet Sigurðardóttir, 17.11.2008 kl. 13:37
takk fyrir frásögn
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 17.11.2008 kl. 14:08
Maður þarf greinilega að ná í bókina og fara að lesa.
Jóhann G. Frímann, 17.11.2008 kl. 14:34
Takk fyrir að lofa mér að fylgjast með.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 17.11.2008 kl. 15:39
úffff....skil þig svo vel...
geturu ýmindað þér hvernig heimilislífið er hjá mér núna... ég kom heim á föstudaginn eftir 3ja vikna fjarveru....
Held í alvörunni að sonur minn hafi haldið einhverfunni í sér í þessar 3 vikur...
......og hafi sleppt henni lausri þegar ég kom aftur heim :=)
Sifjan, 17.11.2008 kl. 17:56
Hvorugur minna stráka er einvherfur en voru báðir svona ofur viðkvæmir. Ég varð að passa mig á að hvessa mig aldrei við þá því þá urðu þeir nánast óhuggandi. Ég er kannski bara svona gribbuleg.
Helga Magnúsdóttir, 17.11.2008 kl. 19:26
Jóna öfugsnúna er fínt heiti á þína næstu bók
Ómar Ingi, 17.11.2008 kl. 19:32
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.11.2008 kl. 21:21
æ þið eruð svo yndisleg fjölskylda
Dísa Dóra, 19.11.2008 kl. 16:46
hahahah elsku kallinn.. ég skil sko hvað þú átt við með þessu.. fæ oft sting í magann þegar drengirnir skæla ef ég hef pirrast við þá
Guðríður Pétursdóttir, 19.11.2008 kl. 23:26
Sæl Jóna!
Frábærlega skrifuð bók svo beint frá hjartanu og svo er svo gott að sjá að það eru fleyri sem eru að takast á við sömu hluti og maður sjálfur
móðir með 2 einhverfa
liney Tómasd (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 17:43
Vá! Snilld að lesa póstana þína! Ég þekki þetta svo mikið af eigin raun!
Skil ,,vondu-mömmu tilfinninguna" svo vel ;)
MBK
,,mamma í kreppu"
Mamma einhverfs drengs (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 02:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.