Leita í fréttum mbl.is

Gods children

 

Ég á mína barnatrú. Þetta hljómar kannski eins og versta klisja en þá er klisjan sönn. Ég trúi á Guð eða einhvern æðri mátt. Eitthvað hlýtur að vera okkur æðra.

En eins og Jenný Anna skrifar um hér, þá myndi ég aldrei treysta á þann mátt til að redda mér einu eða neinu eða fría sjálfa mig ábyrgð á eigin lífi og limum vegna þess að mér finnist að hann eigi barasta að sjá um þetta.

Aldrei á ævi minni hef ég sagt eða hugsað: ''það getur ekki verið til Guð sem lætur þetta eða hitt gerast.''

Þvi allt hið illa sem gerist í heiminum er af manna völdum. Í öðrum tilfellum, þar sem ég get ekki klínt sökina á mannvonsku, eins og t.d. þegar ungt fólk fellur frá vegna veikinda, þá trúi ég því staðfastlega að viðkomandi sé ætlað eitthvað annað hlutverk á öðrum stað. Ég trúi því að daginn sem ég dey, verði dagurinn sem mér var alltaf ætlað á deyja.

Þegar ég dey vil ég að erfidrykkjan verði fjörug. Ég vil að fólk fái að borða, dansi við Abba og Bo og ég vil að það verði hvítvín á boðstólnum.

Ég trúi því ekki að Guð eða hinn æðri máttur skapi drepsóttir, flóð, aids og jarðskjálfta til að refsa. Ég trúi ekki að guðsótti sé jákvætt orð.

Og ég trúi því að okkur sé gefin kímnigáfa til að njóta hennar og til þess að sjá spaugilegu hliðarnar á erfiðum stundum.

Þess vegna fylgir þessi litli brandari hér með:

If we are all God's children, what the hell is then so special about Jesus?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

...

Róslín A. Valdemarsdóttir, 14.11.2008 kl. 17:30

2 identicon

Ekkert af því að trúá að Guð.

Jesús virðist orðið hálfgert skammaryrði, sem er synd, trúin er að hjálpa mörgum á þessum erfiðu dögum. En tíska dagsins er að vera trúlaus, flettum bloggsíðunum bara til að sjá þetta. Góð þróun? Um það verða aðrir að deila, kannski uppalendurnir, hvort sem þeir eru heima eða skólatengdir.

kær Kveðja,

Vilhjálmur (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 17:31

3 Smámynd: Brynja Dögg Ívarsdóttir

Innlitskvitt

Það er gott að trúa á Guð það er ekkert að því og hann er til, vertu viss.

Hafðu það gott um helgina.

Kv Gleymmerei og Emma.

Brynja Dögg Ívarsdóttir, 14.11.2008 kl. 17:54

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 14.11.2008 kl. 18:34

5 Smámynd: Karl Tómasson

Þú mín kæra Jóna Gísla og vinkona þín Jenný Anna sem þú vitnar í, eruð einstakar konur og eins og ég hef áður sagt gerið svo miklu meira gott en ykkur grunar. Takk fyrir það.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 14.11.2008 kl. 18:59

6 Smámynd: Róbert Tómasson

Guð er til og hann er húmoristi, annars held ég að ég væri ekki til.

Róbert Tómasson, 14.11.2008 kl. 19:07

7 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

Ef það er gott, er það Guð, ef það er ekki gott, þá er það ekki Guð. Ég trúi því að þegar ég upplifi erfiða tíma og óréttlæti, sé Guð jafn sorgmæddur og ég, hann grætur líka þegar börnin hans gera ljóta hluti, við erum nefnilega öll börnin hans og hann elskar okkur öll jafnt.  Ég tek það fram að þegar ég tala um Guð, á ég við æðri mátt samkvæmt mínum skilningi á honum, ég kalla hann Guð því það er þægilegt, algengt þriggja stafa orð sem gott er að muna.

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 14.11.2008 kl. 19:10

8 Smámynd: Ómar Ingi

Þegar ég dey vil ég að erfidrykkjan verði fjörug. Ég vil að fólk fái að borða, dansi við Abba og Bo og ég vil að það verði hvítvín á boðstólnum.

Hva ertu kannski skyld mér nema hvað það yrði aldrei Abba

Ómar Ingi, 14.11.2008 kl. 19:52

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er þér 100% sammála.

En heyrðu ef ég lifi þig má ég þá hafa EITTHVAÐ um það að segja hvaða músík verður spiluð í paríinu?  Það er ekki eins og þú verðir með til að grípa fyrir eyrun.

Ég bíð mig hér með fram í skemmtinefnd þessarar erfisdrykkju.  Srkáðu mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.11.2008 kl. 20:56

10 identicon

Ef fólk er að fara til himnaríkis þá er nú ekki nein ástæða til þess að fagna, helvíti gæti verið skárra :=)
Hugsanlega fá himnaríkisbúar að fara í sumarfrí til helvítis einu sinni á milljón ára fresti ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 21:27

11 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús kveðjur og góða helgi elsku Jóna mín

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 14.11.2008 kl. 22:31

12 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Brandarinn góður

Sigrún Jónsdóttir, 14.11.2008 kl. 23:48

13 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir, það er mín trú. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.11.2008 kl. 23:54

14 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég tek undir orð Jónu Kolbrúnar.

Brandarinn er æði!

Sporðdrekinn, 15.11.2008 kl. 00:20

15 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Búin að lesa vikuna... hlakka til að lesa bókina þína. Frábært framtak dugnaðarforkur

Linda Lea Bogadóttir, 15.11.2008 kl. 00:26

16 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 naglinn á høfudid Jóna, sem og oft ádur.

Brandarinn snilld

María Guðmundsdóttir, 15.11.2008 kl. 08:44

17 identicon

Vá hvað þetta var góð færsla. Ég stóð sjálfa mig að því að kinka kolli til samþykkis! Og frábær brandari! ;)

Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 10:33

18 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég held að ég taki bara undir orð hennar Ásu...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 15.11.2008 kl. 20:38

19 Smámynd: Hrund Traustadóttir

Góð færsla. Sammála hverju orði. Datt samt í hug hvort það væri ekki punkturinn yfir i-ið að mánudagsdanshópurinn dansaði með sínu nefi í erfidrykkjunni? Eftir því sem fleiri ár líða frá þessum danstímum, eftir því verður það bara áhugaverðara? Sérstaklega eftir 2-3 hvítvínsglös... 

Hrund Traustadóttir, 16.11.2008 kl. 15:39

20 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Tad er yndislegt ad trúa á tad góda...Tad er kannski Gud.Hver veit.

Brandarinn gódur.

Gudrún Hauksdótttir, 16.11.2008 kl. 16:14

21 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég var alin upp við trúleysi og gæti því ekki átt neina barnatrú þótt ég vildi. Ég hef kynnt mér hin ýmsu trúarbrögð en ekkert fundið sem höfðar til mín. Trú getur samt varla verið algjört frat miðað við hversu margir aðhyllast einhverja tegund af trú.

Helga Magnúsdóttir, 16.11.2008 kl. 16:59

22 identicon

Þínar færslur eru altaf yndislegar, og takk fyrir þig  . Ég er sammála þér í sambandi við erfidrykkjuna, og svona eiga þær að vera  . Lifðu heil. Kv. Svala B

SvalaBirgisdóttir (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 17:28

23 identicon

Við horfum greinilega afskaplega líkt á trúmálin. Ég er komin aðeins lengra en þú í jarðarfararplönum (enda talsvert eldri) ég er BÚIN að ákveða lögin  

Hlakka til að lesa bókina - og kaffibollinn stendur klár á borðinu þegar þú mætir norður

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 17:42

24 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Ég er þér alveg sammála um Guðs-volæðið.... ég trúi líka á æðri mátt án þess að vita nákvæmlega hvað maður trúir á. Stundum er bara samt gott að geta sagt við sjálfan sig; "þetta var ekki í mínum höndum, það var eitthvað æðra sem vildi og skipulagði þetta"...... og líka þegar hlutir eru manni ofviða, þá er það gott að geta lagt þá í "aðrar hendur", hverjar svo sem þær eru, og vonað það besta.

Mig langaði samt að óska þér til hamingju með viðtalið í Vikunni, þú komst vel út og varst sæt á myndunum, enda ekki við öðru að búast

Lilja G. Bolladóttir, 16.11.2008 kl. 20:20

25 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

Helga, trú og trúarbrögðum skal ekki rugla saman

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 16.11.2008 kl. 21:22

26 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

sko..

ég trúi ekki að það sé sérstakur dagur sem ég drepst á og er löngu ákveðinn fyrir mig...

Ég held ekki að allt gerist út af ástæðu.. nema reyndar þeirri ástæðu sem við sköpum. Við fáum kvef af þeirri ástæðu að okkur verður of kalt og við deyjum ef við hröpum niður fjallbrún...

Ég bara neita að trúa að það sé fyrir fram ákveðin kvöl sem foreldrar og börn séu látin ganga í gegnum þegar barn td greinist með krabbamein og deyr jafnvel þess vegna..

Ég hugsa ekki þannig að Hörður og Flóki were meent to be.. Þeir eru til af því ég svaf hjá pöbbum þeirra..

ég meina ekkert illt og vil alls ekki gera lítið úr því sem þú trúir.. ég trúi alveg að það sé eitthvað sem er óútskýranlegt en ég trúi samt að flest sé hægt að útskýra vísindalega...

you know i love you

Guðríður Pétursdóttir, 19.11.2008 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband