Leita í fréttum mbl.is

Takk þið

 

Mikið þakka ég ykkur vel fyrir afmælis- og heillaóskirnar. Bæði hér á blogginu, fésbókinni, tölvupóstinum og in real life.

Það er svo gott og gaman að finna að fólk hugsi til manns.

Ég var vakin upp með afmælissöng, kortum og gjöfum í morgun og það var ekki leiðinlegt.

Svo tókst einum manni (nefnum engin nöfn en hann er ekki breskur) að móðga mig í morgun svona aldurslega séð. Hann sá að sér og reyndi að klóra í bakkann en eins og þið vitið þegar karlmenn fara í það panikk ástand, þá gera þeir illt verra. W00t

Ég skundaði út af vinnustaðnum mínum um kl. tvö í dag og það sást varla í mig fyrir blómvendinum sem ég fékk frá vinnunni. Honum fylgdi einnig gjafabréf fyrir tvo á veitingastaðinn VOX svo ég og Bretinn munum gera okkur glaðan dag þar fljótlega. Takk fyrir það G.M.S. Kissing (og Íris að sjálfsögðu).

Mitt yndislega samstarfsfólk laumaði líka að mér afmælisgjöf en hún var í formi Evra og er það ekki ónýtt fyrir Berlínar ferðina sem stendur fyrir dyrum í lok næstu viku. Ég þakka fyrir það, en ekki síður Bretinn. Þetta mun skila mér heim frá úttttlöndum með lægri visa reikning en ella. Heart

Útgefandinn minn og frú ritstjóri sendu mér yndislegan blómvönd og kvöldinu ætla ég að eyða með mínum nánustu við át og drykkju.

Mun væntanlega skila mér bæði syfjuð og létttimbruð í vinnu á morgun. Og þá verð ég komin á fimmtugsaldurinn.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Hafðu það Engillinn

Ómar Ingi, 23.9.2008 kl. 19:28

2 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og bestu kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.9.2008 kl. 19:47

3 Smámynd: Ragnheiður

Í alvörunni! Ég hef gleymt að óska þér til hamingju, er ég nokkuð of sein ?

Ji minn eini, ég sárskammast mín

Innilega til hamingju elsku Jóna mín

Ragnheiður , 23.9.2008 kl. 19:57

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Njóttu kveldsins Jóna mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.9.2008 kl. 20:09

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.9.2008 kl. 20:18

6 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Ó...úbbs...innilega til hamingju með stóra daginn og kvöldið!!!!

Bergljót Hreinsdóttir, 23.9.2008 kl. 20:26

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Til hamingju með afmælið Jóna mín

Sigrún Jónsdóttir, 23.9.2008 kl. 20:26

8 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Til hamingju með daginn.

Bergdís Rósantsdóttir, 23.9.2008 kl. 20:33

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með daginn krúttið mitt

Hrönn Sigurðardóttir, 23.9.2008 kl. 20:42

10 Smámynd: Ragnhildur Þóra

Innilega til hamingju með daginn;)

Fínt tækifæri fyrir innlitskvitt. Vona að litla kút fari að batna og ég sjái hann hlaupa brosandi um gangana í skólanum á morgun:)

Ragnhildur Þóra , 23.9.2008 kl. 20:44

11 Smámynd: Erna

Til hamingju með daginn Jóna og góða ferð til Berlínar með evrunum þínum

Erna, 23.9.2008 kl. 20:45

12 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 21:13

13 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

Hallgrímur Óli Helgason, 23.9.2008 kl. 21:17

14 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Innilegar hamingjuóskir á þessum merkis degi Jóna mín.  Njóttu vel kvöldsins.

Ía Jóhannsdóttir, 23.9.2008 kl. 21:26

15 identicon

sæl

Ég les þig reglulega og hef gagn og gaman af.

Ég óska þér til hamingju með afnælið um leið og ég kvitta fyrir mig.

takk takk.

Kveðja Jóhanna

Jóhanna Ragnarsdóttir (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 22:03

16 identicon

Til hamingju með daginn dúllan mín Valli og Co.

þorvaldur Stefánsson (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 22:29

17 Smámynd: Brynja skordal

Æðislegt að fá svona yndislegan Afmælis dag enn og aftur til hamingju

Brynja skordal, 23.9.2008 kl. 22:33

18 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Til hammó með ammó  (þú færð bara galdrakarla frá bloggurum)

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 23.9.2008 kl. 22:57

19 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

lukku með þig 'skan

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 23.9.2008 kl. 22:59

20 Smámynd: Anna Þóra Jónsdóttir

Til lukku með daginn!

Gott að vera komin á fimmtugsaldurinn...það finnst mér amk.

Þá loks fer fólk að taka mark á manni (heldur að maður sé orðinn svo "old and wise" ) Megi gæfan gæla við þig á þessum merkisdegi og öllum dögum sem honum fylgja.  

Anna Þóra Jónsdóttir, 23.9.2008 kl. 23:04

21 Smámynd: Jón Svavarsson

Til hamingju með daginn unga mær, eða eins og ég segi gjarna; Ungar huggulegar konur eldast ekkert þær eiga bara afmæli. Lifðu heil, kæ kveðja

Jón Svavarsson, 23.9.2008 kl. 23:20

22 Smámynd: Steingrímur Helgason

Gratjú með ammælið, gæzkan mín.

Steingrímur Helgason, 23.9.2008 kl. 23:27

23 identicon

Þú ert og verður alltaf ein af mínum uppáhalds. Allt frá því að þú varst Marline Monroe og skrifaðir svo fallega færslu hjá mér í upphafi þíns bloggferils. Við erum og höfum verið samferðamenn á þeirri braut nánast upp á dag. 

Ég bað þig skömmu síðar kurteyslega að breyta þeirri nafngift og myndinni sem þú notaðir þá og það gerðir þú, ég veit samt ekkert hvort mín orð hafi þar átt sinn þátt í því, enda skiptir það ekki máli.

Þú ert einstök og frábær og innilegar hamingjuóskir með þig og allt sem þú hefur gert. Þú ert yndisleg manneskja.

Bestu kveðjur frá Tomma úr Mosó eins og þú kallaðir mig lengi vel.

Tommi (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 23:37

24 Smámynd: Sporðdrekinn

Til hamingju með daginn

Sporðdrekinn, 24.9.2008 kl. 03:19

25 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mmmmmm...gott afmæli, góðar gjafir og góður matur. Góðir timburmenn?

Það jafnast ekkert á við fjört'íuogeitthvað aldurinn...og Berlín er heitasti staðurinn í dag. Farðu vel með evrurnar þínar stelpa og eyddu þeim bara í eitthvað dekur fyrir þig sjálfa. Hrukkukrem og sokkabuxur með lyftingi..muhahaaa!!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.9.2008 kl. 09:15

26 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Hjartanlegar hamingjuóskir með afmælið Jóna Fimmtugsaldurinn; no problem, ég fer að komast á sextugsaldurinn..... og enn á lífi!

Ragnhildur Jónsdóttir, 24.9.2008 kl. 09:41

27 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þegar ég varð fimmtug um daginn og var nýbúin að myrða einhvern sem sagði að ég væri komin á sextugsaldurinn, var mér tjáð að ég þyrfti að verða 51 árs til að geta kallast það. Nú væri ég bara fimmtug og fram í ágúst á næsta ári. Þannig að þú verður bara fertug í ár í viðbót.

Guðríður Haraldsdóttir, 24.9.2008 kl. 09:45

28 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

innilega til hamingju með afmælið mín kæra

Guðrún Jóhannesdóttir, 24.9.2008 kl. 11:24

29 identicon

Og hvenær á maður svo að mæta í veisluna? Til hamingju kona!

Ibba Sig. (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 11:59

30 Smámynd: Gunna-Polly

velkomin í hóp fullorðinna

Gunna-Polly, 24.9.2008 kl. 19:00

31 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með afmælið jóna mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 24.9.2008 kl. 19:24

32 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Hjartanlega til hamingju með afmælið aftur  og skvettu nú ærlega úr klaufunum í Berlin með Bretanum.
' Allt er fe......   ehemm,  þrjátíu og níu b,  fært' 

Svava frá Strandbergi , 24.9.2008 kl. 22:35

33 Smámynd: Halla Rut

Til hamingju með daginn. Vissi ekki að við ættum sama afmælisdag.

Þá hljótum við að vera eins, ef marka má stjörnuspár...

Halla Rut , 25.9.2008 kl. 10:17

34 Smámynd: Hanna

Innilega til hamingju með afmælið og takk fyrir öll yndislegu skrifin þín :)

Hanna, 27.9.2008 kl. 08:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband