Leita í fréttum mbl.is

Átmaraþon, bakstur og magakveisa

 

Ég stimplaði mig ekki inn í vinnu í morgun þar sem sá Einhverfi var með magakveisu. Reyndar get ég unnið hér heima. Það hjálpar upp á sakirnar.

Í dag er síðasti dagurinn sem ég er þrjátíu-og-eitthvað og DV hringdi í mig eftir hádegi. Þeir eru alltaf svo æstir að segja frá afmælum fólks. Þegar ég var að vinna á smáauglýsingadeild blaðsins þá var þetta þannig að þeir sendu öllum bréf sem áttu stórafmæli og skilaboðin voru þau að ef fólk vildi EKKI láta segja frá afmælisdeginum þá átti það að hringja í blaðið og láta vita. Að öðrum kosti yrði nafn, fæðingardagur o.þ.h. birt.

Mér fannst þetta alltaf flokkast undir frekju á hæsta stigi og finnst ennþá. En samt er eitthvað fyndið við þetta. Ég veit ekki hvert fyrirkomulagið er í dag. Hvort þeir kunni sig betur og hringi í alla eða hvað.

En það hringdi sem sagt í mig hress og indæll maður og bað um leyfi. Ég bað hann vinsamlega að gera aðra tilraun eftir 10 ár. Hann tók því vel og sagðist myndi skilja eftir miða á borðinu sínu ef hann skyldi vera hættur. Það þótti mér fyrirtaks hugmynd og við kvöddumst með virktum.

Seinnipartinn í dag fór ég í hár-dekur þar sem hárgreiðsludaman lýsti yfir hrifningu á því hvað gráu hárin mín rynnu skemmtilega saman við strípurnar, svona platinum ljós. Minn náttúrulegi háralitur er sem sagt orðinn silfurgrár. Ekki amalegt það. Bráðum get ég bara hætt þessu strípuveseni.

Ég er ennþá með magaverk eftir að hafa tapað mér í 5 klukkustunda áti hjá Önnu systur í gær, þar sem hennar yngsti gaur átti afmæli.

Í kvöld gætti ég þess að vera búin að gúffa í mig kjúklingasalati áður en Bretinn kom heim. Ég vissi nebblega hvað til stóð. Nú stendur hann í eldhúsinu og brælan af beikoni og eggjum leggur um húsið.

Sá Einhverfi gerði okkur klárlega ljóst að magakveisan væri á undanhaldi þegar hann heimtaði kjúkling og hrísgrjón í matinn upp úr þurru. Svo vonandi get ég hent honum í skólabílinn í fyrramálið.

Ég ætla að druslast út í göngu-/skokktúr og telja mér trú um að það leki af mér allar 5876 kaloríurnar sem ég setti ofan í mig í gær.

Á mínum vinnustað er brottrekstrarsök að koma ekki með köku á afmælisdaginn sinn og því mun ég seinna í kvöld þurfa að standa í svínafitusteikingarbrælunni og hræra í eins og eina súkkulaðiköku.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Njóttu síðustu tímunum fyrir fertugt....
Annars er sagt að bestu ár kvenna eru á milli fimmtugt og sextugs....

Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.9.2008 kl. 19:48

2 Smámynd: M

English breakfast í kvöldmat :-) Ekki amarlegt.

Annars fundu DV ekki uppá mér þegar ég komst á fimmtugsaldur eða fourty something sem hljómar betur :-)

Gangi þér vel að baka.

M, 22.9.2008 kl. 19:56

3 Smámynd: Ómar Ingi

Age aint nuthing but a number honey

Ómar Ingi, 22.9.2008 kl. 19:59

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Njóttu síðustu veiganna í þrjátíuogeitthvað bikarnum.  Hann fyllist ALDREI aftur.

Have I told you lately...

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.9.2008 kl. 20:18

5 Smámynd: Margrét Ingibjörg Lindquist

Það er alltaf skrítið að skipta um tug.. reyndar finnst mér það svo aðdáunarvert og skemmtilegt.. þannig að ég eigilega öfunda þig að kunna að telja svona hátt.. fyrir sjálfan þig ...

Margrét Ingibjörg Lindquist, 22.9.2008 kl. 20:33

6 identicon

Aldur er bara tölustafir á pappír, en njóttu þess að vera bara 30 og eitthvað sem lengst.

Til hamingju með daginn á morgun 

Erla (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 20:41

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Til hamingju með daginn á morgun Elsku Jóna mín

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 22.9.2008 kl. 21:32

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

"Hún á afmæli á morgun, hún á afmæli á morgun, hún á afmæli á morgun, hún á afmæli á morgun! ..."  Just in case að ég gleymi að syngja á morgun.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 22.9.2008 kl. 22:11

9 Smámynd: Steingrímur Helgason

Æji Jóna, er þetta að verða búið hjá þér líka, 'silfurskottan' mín.

Samúð er frí, héddna færð þú heddlíng, enda ég dáldið meira búinn en þú.

Ekki trúa velmeinandi fólki sem segjir að "lífið byrji um fertugt" eða skrifar svoleiðis 'kokkteilpylzu' fraza til huggunar þó a' það viti betur.

*hanz&hágrétukveðjur*

Steingrímur Helgason, 22.9.2008 kl. 23:24

10 Smámynd: Gulli litli

Fínt ad vera med "orginal" strípur......

Gulli litli, 22.9.2008 kl. 23:43

11 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Til hamingju með afmælið elskan mín ;)

Hlakka til að hitta þig á morgun

Elsk you ógó mikið ;)

Anna Margrét Bragadóttir, 23.9.2008 kl. 00:04

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Innilega til hamingju með daginn, elskan mín. Njóttu þess endilega. Þú ert kannski eldgömul geit miðað við 15 ára barn ... en þú ert kornungur krakki miðað við mig.

Guðríður Haraldsdóttir, 23.9.2008 kl. 00:53

13 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Til hamingju með afmælið  

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.9.2008 kl. 01:13

14 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Heill þér hálf áttræðri

Kv. Steini

Þorsteinn Gunnarsson, 23.9.2008 kl. 05:20

15 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 til hamingju med daginn Jóna min, vonandi verdur hann thér gódur,sem og adrir dagar.

María Guðmundsdóttir, 23.9.2008 kl. 06:37

16 Smámynd: Tína

Innilega til hamingju með daginn Jóna mín. Vonandi er Ian alveg búin að jafna sig á magakveisunni.

hörku knús inn í afmælisdaginn þinn.

Tína, 23.9.2008 kl. 08:47

17 identicon

Til hamingju með daginn

Í kringum mig eru bara tvítugar konur - sama hvað fæðingarvottorðið segir!  Eftir að þeim aldri er náð stendur maður í stað (aldurslega séð) og allir verða jafnaldrar   Vertu velkomin í hópinn minn - ef þú átt erfitt með þessa tölu ... sem er jú BARA tala

Vona að dagurinn verðið þér góður og að Ian sé betri í maganum

Margrét L. Laxdal (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 08:54

18 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Fertugs afmælið mitt er með skemmtilegri dögum lífs míns og vona ég að þinn verði þér minnisstæður líka.

Eigðu hamingjustund á þessum stóra degi.

Rúna Guðfinnsdóttir, 23.9.2008 kl. 09:26

19 identicon

Til hamingju með afmælið

jón þór (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 09:40

20 Smámynd: Brynja Dögg Ívarsdóttir

 Til hamingju með afmælið, Njóttu dagsins og njóttu aldursins, því þú berð hann vel. Alltaf jafn ung, í anda.

Megi þér og þínum vegna vel.

Brynja Dögg Ívarsdóttir, 23.9.2008 kl. 09:56

21 identicon

Til hamingju með nýjan tug og af fenginni reynslu er lífið betra við hvern tug. Lifðu heil. Þuríður 51 í miðbænum

Þuríður (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 11:14

22 Smámynd: Jón Agnar Ólason

Til lukku með daginn!

Jón Agnar Ólason, 23.9.2008 kl. 11:49

23 Smámynd: Sigríður Hafsteinsdóttir

Til hamingju með daginn! Ég hlakka reyndar til fertugsafmælisins, hef gert það síðan ég var átta, svo ég vona bara að það standi undir væntingum!

Allt er fertugum fært, mundu það bara!

Sigríður Hafsteinsdóttir, 23.9.2008 kl. 11:56

24 identicon

Innilegar hamingjuóskir á afmælisdaginn þinn,afmæliskoss til þín

alva (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 12:11

25 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Til hamingju með afmælið elsku mýslan mín

Heiða B. Heiðars, 23.9.2008 kl. 13:53

26 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Hamingjuóskir með afmælið.

Svava frá Strandbergi , 23.9.2008 kl. 14:24

27 Smámynd: Brynja skordal

Innilegar hamingju óskir með stór Afmælið hafðu ljúfan og skemmtilegan afmælisdag Elskuleg

Brynja skordal, 23.9.2008 kl. 14:42

28 identicon

Innilegar hamingjuóskir með afmælið, elsku besta Jóna!!! Þú ert algjör snillingur og demantur!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 15:47

29 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Innilega til hamingju með afmælið sæta

Marta B Helgadóttir, 23.9.2008 kl. 16:05

30 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Til hamingju með daginn mín kæra  Gleður mig að þú sért búin að ná mér í aldri

Brynja Hjaltadóttir, 23.9.2008 kl. 16:09

31 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

* Til hamingju þú, til hamingju þú, Til hamingju þúJónaaaaa.......

Til hamingjuuuuu þú
*

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.9.2008 kl. 16:40

32 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Til hamingju með daginn, frú Jóna. Ég skal minna Kjartan á að hringja í þig þegar þú verður fimmtug.

Helga Magnúsdóttir, 23.9.2008 kl. 16:45

33 identicon

 Til hamingju með afmælið!!!!!!

hm (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 18:26

34 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

til hamingju með afmælið "kegling".. and again,sorry hvað ég var lengi að kvitta...

ég hlakka til þegar mín hár verða grá

Guðríður Pétursdóttir, 30.9.2008 kl. 07:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband