Leita í fréttum mbl.is

Brúðkaup, afmæli, bókin og hin týpíska fataleit

 

Jæja. Þetta er heldur betur búið að vera vinnutörn hjá mér. Hef vakað til þrjú og fjögur á nóttunni til að leggja lokahönd á bókina. Hef farið á langa fundi með ritstjóranum næstum hvern dag vikunnar og þessar elskur sem vinna með mér hjá Icelandair Cargo hafa ekki verið neitt nema elskulegheitin og horft í gegnum fingur sér með þessar miklu fjarverur mínar frá vinnu.

Ég er komin með handritið í hendur og á bara eftir að gera smávægilegar breytingar og viðbætur áður en allt verður klárt fyrir prentun.

Annars konar törn tekur nú við og það er eldhúsvinna sem er svo sem ekki mitt uppáhald. Sá Einhverfi verður 10 ára á morgun og nú þarf ég að bretta upp ermarnar í kökugerð og sollis því kl. 5 í dag á ég að vera mætt í brúðkaup.

Og mikið svakalega hlakka ég til. Ég þarf að sjálfsögðu að taka andlitið með mér í tösku því ég grenja alltaf í brúðkaupum. Í kirkjunni sko. Hef nú svo sem ekki gert mikið af því að væla í veislum. þannig að maskarinn og fleira tengt andlitinu verður að vera með í för svo ég geti lappað upp á útlitið á milli kirkju og veislu.

Hulda og Haukur. Innilega til hamingju með daginn elskurnar mínar.

Ég er að sjálfsögðu búin að standa í hinni klassísku fataleit. Gerði nú ekki miklar kröfur. Vildi finna einhvern topp við pils sem ég á. Og ég ætlaði sko ekki að eyða í þetta fleiri fleiri þúsundköllum. Djöfuls bilun er þetta verðlag. Ég hefði sko getað keypt mér toppa... sko toppa, engir hlýrar hvað þá ermar, fyrir tíu þúsund. Og þegar maður er að drepast úr keppa-komplexum þá verslar maður sér ekki erma- eða hlýralausan topp fyrir tíuþúsundkall.

En mér hefur tekist að taka þetta allt saman á æðruleysinu, vitandi það að keppa-komplexarnir eru á undanhaldi (ég er svo dugleg í mataræðinu og göngutúrunum) og fann mér barasta jakka í gömlu góðu Hagkaupum með 50% afslætti. Getur verið að ég sé að verða sparsöm á gamals aldri? Æi nei, sennilega ekki. Það væri kraftaverk og við búumst ekki við slíku.

En nú þarf ég að drífa mig í Bónus og freista þess að koma Þeim Einhverfa út í bíl og heim til Fríðu brussubínu. Þessi drengur er að brillera á öllum sviðum þessa dagana. Það er efni í aðra færslu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: M

Vá dugnaðurinn í þér kona  

Skemmtu þér vel í brúðkaupinu keppa eða keppalaus og innilega til hamingju með strákinn þinn á morgun

M, 6.9.2008 kl. 10:14

2 Smámynd: lady

innilega til hamingju með allt sendi innilega góða helgi kv Ólöf Jónsdóttir

lady, 6.9.2008 kl. 10:33

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og kveðjur.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 6.9.2008 kl. 11:10

4 Smámynd: Ómar Ingi

Ekki drekka OF mikið

Náðirðu þessum hehe

Ómar Ingi, 6.9.2008 kl. 11:17

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Haga sér í nýja jakkanum.

Vinkona þín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.9.2008 kl. 12:34

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

þú ert forkur

Hólmdís Hjartardóttir, 6.9.2008 kl. 14:15

7 Smámynd: María Guðmundsdóttir

dugnadur er thetta..skemmtu thér vel i brúdkaupinu

María Guðmundsdóttir, 6.9.2008 kl. 14:34

8 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Þú ert meiri kraftakonan..ó mæ god...bara flott

Bergljót Hreinsdóttir, 6.9.2008 kl. 16:05

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég hlakka svo til að fá bókina í hendur.  Bestu hamingjuóskir með Ian 10 ára og góða skemmtun í brúðkaupinu

Sigrún Jónsdóttir, 6.9.2008 kl. 16:24

10 Smámynd: Sporðdrekinn

Til hamingju með strákinn á morgun, já og alla aðra daga

Sporðdrekinn, 6.9.2008 kl. 16:36

11 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

til hamingju með strákinn þinn á morgun og bókina sem bráðum verður gefin út.

kærleikur til þín frá lejrekotinu.

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 6.9.2008 kl. 17:03

12 Smámynd: Anna Þóra Jónsdóttir

Til lukku með afmælisstrákinn á morgun....ég á reyndar líka afmælis"barn" á morgun. Yndislega 17 ára stelpu.....þetta er greinilega toppafmælisdagur.

Anna Þóra Jónsdóttir, 6.9.2008 kl. 17:06

13 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Aðra færslu takk?

Högni Jóhann Sigurjónsson, 6.9.2008 kl. 18:02

14 identicon

Innilega til hamingju með peyjann á morgun.... vonandi verður dagurinn ánægjulegur. 

Reyndar á dóttir mín afmæli í dag, og veislan verður haldin á morgun.  Er svona að vonast til að einhver góðhjartaður bjóðist til að taka minn einhverfa peyja svona rétt á meðan afmælisveislan er... En kannski lokar hann sig bara inni á baði á meðan, en það gerir hann oft þegar honum finnst vera of mikil mannþröng hér á heimilinu...

hmmmm verst að það er bara eitt baðherbergi í húsinu... æji gestirnir geta þá bara pissað úti í garði :=)

Sif (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 18:05

15 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 6.9.2008 kl. 18:32

16 Smámynd: Halla Rut

Ég bara bíð eftir bókinni.

Halla Rut , 6.9.2008 kl. 19:25

17 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Ég ætla bara bíða eftir myndinni þ.e.a.s. kvikmyndinni

Kjartan Pálmarsson, 6.9.2008 kl. 20:00

18 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 20:39

19 identicon

Hæ gamla vinkona. Til hamingju með strákinn á morgun. Gaman að bók eftir þig sé að verða að raunveruleika.'Eg er viss um að þér var alltaf ætlað að hanna föt eða skrifa bók . . . . . . . nema hvorutveggja sé málið         Bestu kveðjur Nonni

Jón Hinrik (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 21:51

20 Smámynd: Steingrímur Helgason

Geitin ég veit að bókin er alltaf betri, þú lætur eftir mér áritun á mitt eintak, eftir þriðja lesturinn minn.

Steingrímur Helgason, 7.9.2008 kl. 00:52

21 Smámynd: Tína

Til hamingju með gullmolann þinn og ég óska þess innilega að hann skemmti sér hjartanlega í afmælisveislunni

Bíð síðan spennt eftir bókinni.

Megaknús á þig ofurkona. Ég dáist að þér.

Tína, 7.9.2008 kl. 07:52

22 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Til hamingju með daginn.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 7.9.2008 kl. 11:29

23 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Til hamingju með Ian!

Hlakka til að fá bókina.

Edda Agnarsdóttir, 7.9.2008 kl. 11:45

24 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

til hamingju með daginn Ian og þið öll

Guðrún Jóhannesdóttir, 7.9.2008 kl. 13:21

25 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Hjartanlega til hamingju með þann "Einhverfa"
Ég ætla sko sannarlega að sjá til þess að einhver kaupi fyrir mig bókina þegar hún kemur út... bíð spenntur!

PS. Skoðaðu þetta

Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.9.2008 kl. 14:28

26 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Innilega til hamingju með Ian ;)

Stórt afmælisknús á hann og ykkur öll

Anna Margrét Bragadóttir, 7.9.2008 kl. 15:22

27 Smámynd: Sigríður Þórarinsdóttir

Til hamingju með afmælisbarnið.

Sigríður Þórarinsdóttir, 7.9.2008 kl. 15:43

28 Smámynd: Sigríður Þórarinsdóttir

Klukk eða var búið að klukka þig?

Sigríður Þórarinsdóttir, 7.9.2008 kl. 15:43

29 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sunna Dóra Möller, 7.9.2008 kl. 17:04

30 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Til hamingju med strákinn thinn og bókina.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 7.9.2008 kl. 18:50

31 identicon

Til hamingju með þennan yndislega dreng - vona að dagurinn hafi verið honum góður!

Til hamingju ÍSLAND með að bókin hennar Jónu fari að koma út - mikið hlakka ég til!

Margrét Laxdal (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 20:09

32 identicon

Kæra Jóna,

ég hef mikla trú á bókinni þinni og flott að þetta er allt að smella saman. Ég tók mér það bessaleyfi að senda þér smá póst ... vona að þú takir vel í hann

Kærar kveðjur úr norðri! 

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 21:15

33 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

7_5_137

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 7.9.2008 kl. 22:24

34 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Til hamingju, til hamingju með þetta allt - og toppinn líka :)  Vá hvað ég vildi hafa orku til að vaka svona og vinna.  Ég þyrfti svo á því að halda þannig að ef þú ert búin að nota þína þá máttu senda mér hana.  Þarf að vinna upp einmitt svona vinnufjarvistir þar sem litlan mín er búin að vera veik síðan hún byrjaði á leikskólanum..........

knús

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 7.9.2008 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband