Leita í fréttum mbl.is

Alls staðar...

 

...rekumst við á dæmi um að veikir og fatlaðir einstaklingar fá ekki þá þjónustu sem þeir eiga rétt á. Þjónustu sem getur skipt sköpum fyrir lífsgæði þeirra.

Ríkið eða sveitarfélögin virðast ekki taka þátt í að ''teygja sig örlítið lengra'' þar sem þess er þörf. Ég hætti aldrei að furða mig á hvernig ráðamenn svo fámennrar þjóðar fari að því að réttlæta fyrir sjálfum sér, hvernig komið er fram við veikt fólk og aðstandendur þeirra.

Ég hef tekið þetta beint af síðunni hjá Höllu Rut:

Elísabet Sigmarsdóttir er fædd með sjaldgæfan sjúkdóm sem kallast Encephalocele. Hún er sú eina á landinu sem hefur lifað hann af hingað til. Afleiðingar hans eru ýmsar. Henni fer stöðugt aftur og er í dag í hjólastól. Elísabet er búin að fara í u.þ.b. 60 aðgerðir. Oft var henni ekki hugað líf en er í dag lífsglöð og bjartsýn ung kona þrátt fyrir alla þá þröskulda sem lífið hefur sett henni.

Elísabet leitar nú eftir stuðningsmanneskju eða liðsveislu, eins og það er kallað. Liðsmaður er hugsaður sem félagslegur stuðningur og er um 16 tíma á mánuði að ræða. Er það samkomulagsatriði á milli Elísabetar og þess sem stuðninginn veitir hvernig þessum tíma er varðveitt og hvenær. 

Það er í raun Reykjavíkurborg sem á að útvega stuðningsmanneskju en þeim hefur ekki tekist það og hefur Elísabet verið án þessarar þjónustu í 7 mánuði.  Engin vilji er þar á bæ til að ganga lengra til að bjarga málunum. Þetta fellur ekki undir forgangsröð borgaryfirvalda. Það vitum við öll.  Þetta skiptir hinsvegar öllu máli fyrir tilveru Elísabetar Sigmarsdóttur.

Viðkomandi hlýtur laun fyrir en samt óskum við eftir manneskju sem hefur áhuga á því að láta gott af sér leiða og gefa nærveru sína og félagsskap til þessarar fallegur og hugrökku vinkonu minnar.

Ef þú hefur tök á því og tíma, gerðu þá góðverk. Ef þú hefur verið að hugsa í mörg ár að þú ættir kannski að gefa eitthvað til baka þá er núna tækifærið.

Síminn hjá Elísabetu er: 587 - 6278 og netfangið: liso@internet.is eða þú getur sent mér (Halla Rut) E-mail: halla@kjosehf.is ef þú vilt frekari upplýsingar.

Ég hér bið ykkur öll um að birta þetta á ykkar síðu sem færslu ef þið sjáið ykkur það fært.

Og svo er bara líka "nice" að senda henni kveðju: Elísabet.

Með samhug og kærleik

Halla Rut

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 20.7.2008 kl. 21:54

2 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 20.7.2008 kl. 22:49

3 Smámynd: Elísabet Sigmarsdóttir

Sæl Jóna,

Ég þakka þér fyrir að byrta þetta af síðu Höllu Rutar. Að öllu óbreyttu hefur málinu verið bjargað

Elísabet Sigmarsdóttir, 20.7.2008 kl. 23:22

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Elísabet, það er frábært. Til hamingju með það.

Jóna Á. Gísladóttir, 20.7.2008 kl. 23:29

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

GN eigðu ljúfa viku

Ásdís Sigurðardóttir, 21.7.2008 kl. 00:14

6 identicon

Þetta er vandamál sem margir fatlaðir einstaklingar og aðstandendur þeirra þekkja vel.  Það er alveg ótrúlegt hvað yfirvöld leyfa sér að draga fæturna í svona málum og hreinlega brjóta á mannréttindum fatlaðra án þess að skammast sín nokkuð.  Og verandi utan að landi frá litlu sveitarfélagi þá hef ég það á tilfinningunni að Reykjavíkurborg sé meðal þeirra sveitafélaga sem standa sig langverst.

Ástríður (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 10:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband