Leita í fréttum mbl.is

Komin heim

 

Ég er komin heim. Eftir langa og stranga daga á sjávarútvegssýningu í Brussel. En skemmtilegir voru þessir fjórir dagar.  Það er að segja kvöldin. Hvernig getur annað en verið skemmtilegt að sitja undir berum himni á hverju einasta kvöldi í skemmtilegum félagsskap, borða góðan mat (oftast), drekka (ótæpilega) mikið af rauðvíni og hlæja þar til manni verkjar í magann?

Það er reyndar ekki rétt að það hafi bara verið skemmtilegt á kvöldin.  Það myndast smávegis kunningsskapur á milli sýnenda svo rölt var á milli sýningarbása og spjallað. Ég hef eytt töluverðum tíma með frönskumælandi fólki og er orðin mjög frönsk. Eða þannig. Er alveg að ná handahreyfingunum. Talið kemur einhvern tíma seinna. Kannski.....  Bonsjour...

Ég hef ekki haft tíma til að blogga eða yfirfara tölvupóst: Vaknað um klukkan átta á morgnana. Sýningin opnar kl. 10 og er opin til 18. Þá upp á hótel í sturtu og yfirhalningu (sem tók sífellt lengri tíma eftir því sem leið á vikuna), og svo út í matarborð, að hitta kúnna o.sfrv. Auðvitað hangir fólk mislengi uppi á kvöldin en þetta hefst allt einhvern veginn.

Svo kostar það heila helvítis formúgu að tengjast interneti á hótelum. Barasta gat ekki réttlætt þann kostnað.

Þessi sjávarútvegssýning er árlegur viðburður . All about buisness. Á sýningartíma á daginn, en ekki síður á kvöldin. Á kvöldin safnast sýningargestir saman á Grand Place torgi í Brussel og maður gæti alveg eins verið staddur á Lækjartorgi á íslensku sumarkvöldi. Torgið er gjörsamlega mökkað af Íslendingum og halda þeir sig aðallega við einn pöbb. Á næsta pöbb eru Norðmenn. Þetta er auðvitað bara fyndið. Svolítið súrrealískt. Sjávarútvegsráðherra mætti eitt kvöldið og hélt uppi fjöldasöng. Stóð sig vel.

Brussels Town Hall (þessi stórfenglega bygging gnæfir yfir torgið)

townhall

Og haldið ykkur núna: Ég fór ekki í eina einustu búð. Núll, nix, zero, nét... Kom samt heim færandi hendi. Hljóp um á Heathrow og bjargaði andlitinu. Bretinn fékk sælgæti í tonnavís og krakkarnir DVD myndir.

Núna liggur Sá Einhverfi eins og skata fyrir framan sjónvarpið og horfir á sína mynd. Sem auðvitað er Toy Story. En eitthvað hefur hann smitast af mömmslunni sinni því hann þverneitar að velja annað tal á hana en frönsku.

GLEÐILEGT SUMAR BÖRNIN GÓÐ. Megi þetta sumar verða eins magnað veðurfarslega séð, og það síðasta.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Velkomin heim og gleðilegt sumar.

Kv. Anna Lilja

Anna Lilja Torfadóttir (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 19:05

2 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Sammála þér Jenný.  Ég var þarna líka stórgóð sýning skemmtilegt fólk,flott veður,  heldur heitt í höllinni.

Einar Vignir Einarsson, 25.4.2008 kl. 19:09

3 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Velkomin heim, já það er huggulegt að sitja úti og sötra eitthvað gott úr glasi á kvöldin. Gott hjá þér að sleppa búðarrápi, það er alltaf hægt að versla Spennandi að heyra af Þeim Einhverfa þegar hann fer að þræta við þig á frönsku. Bíddu bara það gæti sko alveg komið einhver frasi út úr þessu

Knús og klemmur frá Norge. 

Sigrún Friðriksdóttir, 25.4.2008 kl. 19:09

4 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Gleðilegt sumar!  Ég var líka á faraldsfæti og kom heim í nótt.  Var á húsgagnasýningu í Mílanó að taka inn strauma og stefnur.  Verð að viðurkenna að ég er alveg uppgefin eftir allt hafaríið.  Kveðja, Þórdís.

Þórdís Guðmundsdóttir, 25.4.2008 kl. 19:09

5 Smámynd: Ómar Ingi

Velkomin heim , gleðilegt sumar og sástu nú marga fiska ?

Ómar Ingi, 25.4.2008 kl. 19:23

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Velkomin heim Jóna og gleðilegt sumar.

Huld S. Ringsted, 25.4.2008 kl. 19:27

7 Smámynd: Helga skjol

Gleðilegt sumar á þig og þína

Helga skjol, 25.4.2008 kl. 19:28

8 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Velkomin heim og gleðilegt sumar :-)!

Sunna Dóra Möller, 25.4.2008 kl. 19:31

9 Smámynd: Gunna-Polly

Velkomin heim og gleðilegt sumar

Gunna-Polly, 25.4.2008 kl. 19:33

10 Smámynd: Hanna

Velkomin heim - Gleðilegt sumar - gott að fá þig aftur hingað :)

Hanna, 25.4.2008 kl. 19:33

11 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Velkomin heim ég saknaði þín ;)

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturin

Knús á alla fjölskylduna

Anna Margrét Bragadóttir, 25.4.2008 kl. 20:12

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Velkomin heim krútta mín.  Saknaði þín sárt.  Gelðilegt sumar og takk fyrir allt þetta gamla.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.4.2008 kl. 20:15

13 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Velkomin heim og gaman að allt skildi ganga svona vel og að þú skemmtir þér vel, alveg æðislegt að fá nokkurra daga "frí"  svona til að breyta út af vananum.  Eigðu ljúft sumar og takk fyrir frábæran bloggvetur snillan mín, tökum snúning  Cinco Dancer  Cinco Drinker

Ásdís Sigurðardóttir, 25.4.2008 kl. 20:20

14 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Velkomin heim og gleðilegt sumar...

það verður gaman að sjá á næstu dögum færslurnar þínar þar sem sá einhverfi verður farinn að quota á frönsku..

gott að þú fékkst þó allavega toystory.. hann hefur verið himinlifandi mað það

Þetta er svolítið skondið með pöbbana, en það meikar alveg sens samt þannig, líkir sækja líkan heim eða eitthvað þannig...

Guðríður Pétursdóttir, 25.4.2008 kl. 20:57

15 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Velkomin heim Jóna og gleðilegt og gott sumar.

Sigrún Jónsdóttir, 25.4.2008 kl. 23:27

16 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hæ Jóna, velkomin heim
Úff, ég hef liggur við saknað þess að geta kommentað hjá þér, en mér finnst gott að þú sért komin heim, hlakka til að lesa næstu færslur frá þér

Róslín A. Valdemarsdóttir, 25.4.2008 kl. 23:43

17 identicon

   Gleðilegt sumar, Jóna og velkomin heim.  Þín hefur verið saknað á þessu heimili.  Dagbókarfærslur þínar hafa opnað mér og mínum nýja sýn á raunveruleika sem okkur var hulinn.  You go girl.  Ég meina láttu ekki deigan síga þú ert yndislegur penni og ég bíð spennt eftir hverri færslu.

Sólveig M. Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 00:26

18 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Gleðilegt sumar og takk fyrir bloggvináttuna í vetur.

Svava frá Strandbergi , 26.4.2008 kl. 00:42

19 Smámynd: Halla Rut

Velkomin heim og gleðilegt sumar.

Halla Rut , 26.4.2008 kl. 01:32

20 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Velkomin heim og gleðilegt sumar

Svanhildur Karlsdóttir, 26.4.2008 kl. 02:21

21 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Velkomin heim og gleðilegt sumar

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 26.4.2008 kl. 02:37

22 Smámynd: Inga Dóra

gleðilegt sumar og velkomin heim

Inga Dóra, 26.4.2008 kl. 02:49

23 identicon

Gleðilegt sumar og velkomin heim skvísa

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 11:12

24 Smámynd: M

Gleðilegt sumar.

M, 26.4.2008 kl. 12:04

25 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Velkomin heim og gleðilegt sumar.

Kristín Katla Árnadóttir, 26.4.2008 kl. 13:37

26 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Gleðilegt sumar

Högni Jóhann Sigurjónsson, 26.4.2008 kl. 21:39

27 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Velkomin heim! Og Gleðilegt Sumar! Við létum okkur ekkert leiðast á meðan þú varst úti ,,ekkert blogg frá þér'' Við tókum þetta allt með trukki og eggja ídýfu á meðan. Já já það var gaman bara.

Kjartan Pálmarsson, 26.4.2008 kl. 21:48

28 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Velkomin heim og gleðilegt sumar.  Við fjölskyldan komum heim úr okkar utanlandsferð 23.

Bergdís Rósantsdóttir, 26.4.2008 kl. 22:32

29 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Velkomin heim úr skemtilegri ferð og gleðilegt sumar

Eyrún Gísladóttir, 26.4.2008 kl. 22:35

30 Smámynd: Heiða  Þórðar

Velkomin heim og gleðilegt sumar

Heiða Þórðar, 27.4.2008 kl. 00:32

31 Smámynd: Sigríður B Sigurðardóttir

Gott að fá þig aftur heim  Minn maður var eitthvað að tala um að þú hefðir farið til útlanda án þess að kveðja hann Einn sem þykir vænt um nágranna sína

Sigríður B Sigurðardóttir, 27.4.2008 kl. 01:03

32 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Vertu velkomin heim Jóna! - Gleðilegt sumar og kærar þakkir fyrir ómetanlega bloggvináttu, og  fræðandi, gefandi og skemmtilega pistla í vetur.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 27.4.2008 kl. 01:53

33 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Velkomin heim og gleðilegt sumar

Marta B Helgadóttir, 27.4.2008 kl. 10:41

34 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Velkomin úr sollinum og tollinum. Sá Einhverfi er allavega með pottþéttan kvikmyndasmekk. Toy Story er klassastykki! Sju tema alveg þá ræmu

Kv. Steini

Þorsteinn Gunnarsson, 29.4.2008 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 1640368

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband