Leita í fréttum mbl.is

Á morgun segir sá lati

 

Það er frábært að finna sig í því að eiga allt að því samræður við Þann Einhverfa. Athugasemdum frá okkur foreldrunum, sem áður kölluðu samstundis á grát og uppnám, er nú tekið af rósemi. Sá Einhverfi er meira að segja farinn að semja. Koma með málamiðlanir.

Ég: Ian, viltu fara úr stuttbuxunum. Ég ætla að setja í þvottavél.

Sá Einhverfi: Nei ekki fottavél

Ég: jú stuttbuxurnar eru skítugar. Leyfðu mér að setja þær í þvottavélina.

Sá Einhverfi (vonglaður á svip): Fottavél á morgun

Ég: Ok á morgun þvoum við stuttbuxurnar

Sá Einhverfi (sigrihrósandi og með áherslu): JÁ

 

Reyndar er þetta uppáhaldsmálamiðlunin hans; Á morgun. Allt á að gerast á morgun. Hann ætlar að bursta tennurnar á morgun. Þvo hendurnar á morgun. Fara í bað á morgun, slökkva á frönsku Toy story á morgun og hann ætlar jafnvel ekki að sofa fyrr en á morgun.

Stundum er það ''seinna'' en helst er það ''á morgun''.

Amma sagði alltaf: á morgun segir sá lati en ég kann betur við útgáfuna frá mömmu hennar Laufeyjar samstarfskonu minnar: Aldrei að gera í dag það sem þú getur gert á morgun.

Þetta er lífsmottóið mitt.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Semsagt, ert það þá þú, sem hefur kennt honum þetta "á morgun" dæmi!  Aldrei að gera í dag, það sem þú getur gert, á morgun. - Svo mátar hann, og mátar, hvað, hann getur komist upp með, að geyma, að gera, þar til á morgun. - Hann er svo klár þessi sonur þinn.-  Algjör dásemd!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 30.4.2008 kl. 00:34

2 identicon

 Jamm, á morgun      samþykkt    K.kv.  E.

Edda (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 00:49

3 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Það er óþarfi að troða öllu á einn dag, það sem má bíða til morguns eða lengur...

Annars var ég einmitt að hugsa áðan þegar ég labbaði inn í eldhús og labbaði strax út úr því aftur:æææi ég geri þetta bara á morgun

Guðríður Pétursdóttir, 30.4.2008 kl. 01:32

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Jóna mín bara að líta inn til þín.  Á morgun segir sá lati , var sagt við mig þegar ég var barn og ég, asskotakornið er enn að segja þetta við mína krakka sem eru 34 og 32 ára gömul.

Sem sagt lífið heldur áfram sinn vana gang, just like that!  

Ía Jóhannsdóttir, 30.4.2008 kl. 01:57

5 Smámynd: Signý

hehehe "aldrei að gera í dag það sem þú getur gert á morgun"... þetta er nákvæmlega það sem afi minn sagði alltaf... greinilega til margir snillingar.. þetta er nefnilega gott mottó!

Signý, 30.4.2008 kl. 03:16

6 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Ó hvað ég sé hann fyrir mér núna,,ég elska þennan sigrihrósandi svip sem hann setur upp,,þegar hann hefur betur ;)

Kannast við að reyna slíta fötin af krakkanum til að geta þvegið þau.

Knús inn í dagin ;)

Anna Margrét Bragadóttir, 30.4.2008 kl. 07:16

7 Smámynd: Linda litla

Þú veist líka að þú átt aldrei að gera það sem þú getur komið yfir á aðra. hehehe eigðu góðan dag.

Linda litla, 30.4.2008 kl. 08:36

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 30.4.2008 kl. 08:57

9 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Svo má líka breyta mottóinu eins og Hörður Haraldsson kennari og hlaupari kenndi mér endur fyrir löngu: Frestaðu því aldrei til morguns sem þú getur alveg eins gert hinn daginn.

Sæmundur Bjarnason, 30.4.2008 kl. 10:31

10 identicon

- þetta eru alveg frábærar tillögur hér að frestun á leiðindarmálum - Sæmundur kom með alveg nýtt sem ég hef  aldrei heyrt áður.  Skemmtilegt fólk sem lítur hér við - gefur lífinu lit.

Odda (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 11:06

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 30.4.2008 kl. 11:40

12 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Letin er stórlega vanmetinn kostur. Við skulum átta okkur á því að letin hefur fært okkur flestar framfarirnar. Menn finna jú upp á öllum mögulegum og ómögulegum hlutum til að komast af með minni vinnu 

Og mottóið mitt "Þetta bíður sér ekki til batnaðar" er sko ekkert merki um dugnað... heldur er bara skárri útgáfan af "illu er best aflokið" og er nottla bara merki um að það sé skárra að eiga ekki eitthvað ógeð yfir höfði sér... því auðvitað er dagurinn hvort eð er ónýtur ef maður þarf að gera eitthvað

Þorsteinn Gunnarsson, 30.4.2008 kl. 12:32

13 Smámynd: María Guðmundsdóttir

   gódar tilløgur..sérstaklega thessi med ad gera thad bara hinn daginn s.s ekki á morgun heldur HINN.. list best á hann

María Guðmundsdóttir, 30.4.2008 kl. 14:21

14 Smámynd: Heiðrún Björk Jóhannsdóttir

Aldrei að gera í dag, það sem aðrir geta gert á morgun..

Heiðrún Björk Jóhannsdóttir, 30.4.2008 kl. 15:09

15 identicon

ég segi nú bara, ekki gera neitt í dag sem þú getur fengið einhvern annan til þess að gera fyrir þig á morgunn ;)

Þórhildur (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 19:49

16 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Betra er vit en strit, segir góður vinur minn þegar komið er að honum þar sem hann ætti að vera að gera eitthvað anna en ekkert.

,,Ekki gera í dag það sem þú getur hugsanlega fengið einhvern annan til að gera á morgunn,,

Ég er sammála Þorsteini í því að leti er stórkostlega vanmetinn kostur og eins er þetta hjá þeim Guðríði og Sæmundi frábært.

Að öllu jöfnu lifi ég eftir þessu mottói og má á vömbini sjá að ég hef það bara gott

Högni Jóhann Sigurjónsson, 30.4.2008 kl. 23:20

17 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Manjana is good enough for me!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 2.5.2008 kl. 12:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband