Leita í fréttum mbl.is

Frá Kóngsins Köben

Þessi orð eru rituð úr brakandi hreinum og vellyktandi sængurfötum frá Hilton á Kastrup í Kóngsins Köben. Er á leiðinni á Sjávarútvegssýningu í Brussel.

Að gera hvað? gætu sumir spurt og ég reyndar líka. Takmarkið er að vera Icelandair Cargo til sóma. Sennilega fer ég létt með það þó að eitthvað vanti upp á að ég geti ráðlagt fiskframleiðendum hvert sé best að senda ferska fiskinn frá Íslandi.

Við erum þrjú á þessu ferðalagi, og ég er 3ja persóna vegna þess að Mikki, þessi elska, vill ekki yfirgefa hana Evu sína sem á von á þeirra þriðja barni. Er ekki dásamlegt hvað tímarnir hafa breyst? Ekki eru mörg ár síðan að karlmaður hefði ekki setið heima vegna barna og konu. Ég fylli því í skarðið og mun standa á bás Icelandair Cargo næstu 3 daga og brosa og vera sæt og skemmtileg eins og mér er einni lagið.

Hádegisfluginu í gær (sunnudag) til Köben seinkaði og því misstum við af tengifluginu til Brussel. Nóttinni er því eytt hér á Hilton á Kastrup og ég tek ofan fyrir sjálfri mér að hafa afrekað að tengjast internetinu. Hef reyndar ekki hugmynd um hvað ég þarf síðan að borga fyrir það.

Ég mun gera tilraun til að tengjast netinu á Hilton í Brussel og láta í mér heyra. Sjáum til hvort það tekst og hvort tími vinnist til. Kannski fer öll mín orka í vinnuna. Sjáum til.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

blessuð góða hlauptu bara áður en þeir koma með reikninginn

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 20.4.2008 kl. 22:20

2 Smámynd: Ómar Ingi

Chill Jóna

Ómar Ingi, 20.4.2008 kl. 22:31

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Knús á þig elsku dúllan mín.  Fórstu á MOJO? 

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.4.2008 kl. 22:38

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góða skemmtun og tilbreytingu.

Sigrún Jónsdóttir, 20.4.2008 kl. 22:46

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Rosalega skemmtilegt að heyra.  Skemmtu þér vel í bland við vinnu.  Gott að komast í smá distance frá hversdagnum.   Air Force Woman 

Ásdís Sigurðardóttir, 20.4.2008 kl. 22:51

6 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Góða skemmtun alveg örugglega kærkomið frí frá amstrinu hér :-) 

Ég gef mér leifi til að línka á bloggið þitt í gríð og erg, vona að þér sé sama haha

kv Elísabet

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 20.4.2008 kl. 23:00

7 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

OOhh nú erum við næstum nágrannar Njóttu vel !!!!

Sigrún Friðriksdóttir, 20.4.2008 kl. 23:20

8 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Gangi þér vel, bæði á ferðalaginu og ekki síður á vaktinni, þetta getur verið þreytandi.

Tek undir með Elínu ,, blessuð hlauptu bara áður en þeir koma með reikninginn,,

Högni Jóhann Sigurjónsson, 20.4.2008 kl. 23:25

9 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Góða skemmtun í útlöndum!

Bergljót Hreinsdóttir, 20.4.2008 kl. 23:53

10 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Njóttu þín meðan þú Hiltonast

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 20.4.2008 kl. 23:58

11 identicon

Góða skemmtun

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 00:17

12 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Mikið held ég að þú hafir gott af því að komast í annað umhverfi, jafnvel þótt þú sért að vinna allan tímann.

Njóttu í botn! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 21.4.2008 kl. 00:18

13 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ef að mig misminnir ekki all illilega þá gengur lest til Bruxxel á tveggja tíma fresti frá Köben.  Þetta hótelgjálífi er því óþarft & mun ég sem hluthafi setja fram alvarlega athugasemd um það á næsta aðalfundi.

Á meðan þá bara bruðlar þú bara vel með arðlækkunina mína & reynir að skemmta þér stutt á kvöldin, því að þessar sýníngar eru tómt púl.

Góðir skór eru nauðsyn, ekkert háhælapjatt á básnum. 

Steingrímur Helgason, 21.4.2008 kl. 00:44

14 identicon

Að sjálfsögðu munt þú standa þig með ljóma, eins og þér einni er lagið.... og svo ullaru bara á St.H. þegar arðhækkun hans fer að skína í gegn - þér einni að þakka     .....  

Edda (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 01:01

15 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

NEI Nei nei Jóna þú þrft ekkert að hlaupa, notaðu netið úí eitt og jafnvel eins og eitt á búss og sendu svo nótuna bara á St.H og svo slakarðu bara á.

Allavega hvað sem þú gerir, ekki ger.........nei hvaða bull er þetta, þetta er auglýsing.

Ég er ekki fær um að gefa öðrum ráð, enn skemmtu þér sammt vel.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 21.4.2008 kl. 01:18

16 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Hafðu það gott og reyndu að njóta ferðarinnar sem best

Love you

Anna Margrét Bragadóttir, 21.4.2008 kl. 07:03

17 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Vertu bara í góðum skóm, ekkert pjatt ef þú átt að standa á básnum í þrjá daga Jóna mín.  Góða skemmtun.

Ía Jóhannsdóttir, 21.4.2008 kl. 07:13

18 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

já eða vertu bara í engum skóm,sokkum og síðum buxum, svo enginn sér að þú ert skólaus

annars hef ég aldrei staðið straight í 3 daga svo good luck with that

Guðríður Pétursdóttir, 21.4.2008 kl. 07:19

19 identicon

yndislegt í Brussel mannstu,njóttu sem best

love

Ásta Birna (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 08:36

20 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Reyndu bara að njóta þín og hafðu það gott

Svanhildur Karlsdóttir, 21.4.2008 kl. 09:30

21 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Næs 

Edda Agnarsdóttir, 21.4.2008 kl. 10:37

22 Smámynd: Brynja skordal

Hafðu það gott þarna úti og njóttu vel

Brynja skordal, 21.4.2008 kl. 11:40

23 Smámynd: Ómar Pétursson

Hef staðið á nokkrum sýningum, alveg nauðsynlegt að hafa tvenna skó og skipta á daginn, til að fríska sig upp.  gangi þér vel.

Kveðja

Ómar Pétursson, 21.4.2008 kl. 12:35

24 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þú munt verða stolt þjóðar okkar í Brussel. Ekki spurning.

Helga Magnúsdóttir, 21.4.2008 kl. 13:23

25 Smámynd: Arnheiður Fanney Magnúsdóttir

Þú ert örugglega jafn flott á borði (bás) og á orði hehe :o) gangi þér vel.

Arnheiður Fanney Magnúsdóttir, 21.4.2008 kl. 14:30

26 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hafðu það sem best.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.4.2008 kl. 15:24

27 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Frábært að fá smá brake Jóna, mundu að njóta vel og ég er einhvernveginn viss um að þú hefur tekið með þér síða pilsið og töfflurnar...er það ekki annars

Eva Benjamínsdóttir, 21.4.2008 kl. 17:07

28 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Góða skemmtun elsku Jóna mín

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.4.2008 kl. 17:23

29 identicon

Njóttu vel

Anna Lilja (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 19:55

30 Smámynd: Rebbý

njóttu tilbreytingarinnar á vinnudeginum

Rebbý, 21.4.2008 kl. 20:01

31 identicon

Öllum til sóma, auðvitað JÓNA. Góða skemmtun.

Björk (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 22:21

32 identicon

Njóttu Köben mín kæra. Yndisleg borg. 

Guðrún B. (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 22:59

33 Smámynd: Heiða  Þórðar

Það klikkar ekki Jóna að í hvert sinn sem ég kem hér inn....fer ég glaðari í "sinni " út. Takk fyrir mig.

Heiða Þórðar, 21.4.2008 kl. 23:36

34 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Góða skemmtun!

Rúna Guðfinnsdóttir, 22.4.2008 kl. 11:16

35 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

Njóttu ferðarinnar

Ásta Björk Hermannsdóttir, 22.4.2008 kl. 11:59

36 Smámynd: Halla Rut

Góða skemmtun og njótti.

Halla Rut , 22.4.2008 kl. 17:29

37 Smámynd: Halla Rut

Þetta átti að vera njóttu.

Halla Rut , 22.4.2008 kl. 17:29

38 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Góda ferd og skemmtu thér vel

María Guðmundsdóttir, 23.4.2008 kl. 11:58

39 identicon

Njóttu, njóttu, njóttu - og góða ferð heim

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 20:57

40 identicon

Gleðiegt sumar mín kæra, og takk fyrir veturinn.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 08:38

41 Smámynd: Hanna

Hei.... Jóna!!!! Skrifaðu eitthvað kona, skrifaðu!  Þú ert dottin af topp 10 listanum.

Þú átt að vera þar alltaf, jafn skemmtileg og þú ert :)  Gangi þér annars vel á sýningunni.

Hanna, 24.4.2008 kl. 10:59

42 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Gleðilegt sumar og takk fyrir bloggveturinn Jóna mín 

Góða ferð heim.

Marta B Helgadóttir, 24.4.2008 kl. 11:11

43 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn.

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 24.4.2008 kl. 11:57

44 identicon

Góða skemmtun efast ekki um að þú verðir landi og þjóð til sóma hehe.

Eyrún Gísladóttir (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 15:23

45 identicon

Bara kasta á þig kveðju og óska þér og þínum gleðilegs sumars.

Vona að þú hafir haft það gott í útlandinu:)

Knús frá Boston

Inga

Inga í Boston (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 16:08

46 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Gleðilegt sumar elsku Jóna mín og fjölskylda

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 24.4.2008 kl. 17:17

47 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Gleðilegt sumar Jóna mín og þakka þér fyrir veturinn hér í bloggheimum. Stundum hafa skrif þín hrært mig til tára og stundum hef ég hlegið og glaðst. Það er verðmætt.

Steingerður Steinarsdóttir, 24.4.2008 kl. 18:36

48 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Gleðilegt sumar

og

takk fyrir

skemmtilegan vetur fullan af fróðleik, tárum og mörgum brosum. Haltu áfram að vera þú !!

Risa knús og klemmur frá mér
 

Sigrún Friðriksdóttir, 24.4.2008 kl. 21:29

49 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Happy Summer

Gleðilegt sumar, hugrakka og duglega bloggvinkona!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 25.4.2008 kl. 00:27

50 identicon

Gleðilegt sumar, kæra Jóna!!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 1639928

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband