Leita í fréttum mbl.is

Viltu vinna milljón?

Ljóskan tók þátt í viltu vinna milljón.

Hún fékk eftirfarandi spurningar:

Hve langan tíma tók 100 ára stríðið?

           a) 116
           b) 99
           c) 100
           d) 150 
         

Hún sat hjá í þessari spurningu (ég man reyndar ekki eftir þeim valmöguleika)



            2. Í hvaða landi er Panama hatturinn fundinn upp? 


           a) Brasilíu

           b) Thili
           c) Panama
           d) Equador 


Ljóskan spurði salinn


           3.Í hvaða mánuði er október by
ltingin haldin hátíðleg ? 


           a) Janúar
           b) September
           c) Október
           d) Nóvember
           

Ljóskan hringdi


            4. Hvert er skírnarnafn Georgs konungs VI? 


           a) Albert
           b) Georg
           c) Manuel
           d) Robert
           Ljóskan tekur út tvö röng svör



            5. Eftir hvaða dýri eru Kanarí eyjar nefndar? 

           a) Kanarífugli
           b) Kengúru
           c) Sel
           d) Rottu 

Ljóskan hætti 


           

Ef þú heldur að þú sért vitrari en ljóskan og hlærð að henni, 
Þá skaltu lesa réttu svörin að neðan
    

 

1. 100 ára stríðið tók 116 ár, frá 1337 til 1453. 
2. Panama hatturinn var hannaður í Equador. 
3. Október byltingin er haldin hátíðleg 7.nóvember 
4. Georg konungur VI hét Albert. 1936 skipti hann um nafn 
5. Kanaríeyjar eru nefndar eftir sel. Latneska nafnið Insukaria Canaria þýðir Selseyjar. 


           

Guys. Ég sel þetta ekki dýrara en ég keypti það. Ég hef ekki hundsvit á þessu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er dökkhærð og þú ert DAUÐ fyrir mér.  Hahahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.8.2007 kl. 19:30

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

OMG. Gerði ég eitthvað af mér?

Jóna Á. Gísladóttir, 16.8.2007 kl. 19:37

3 identicon

Ég er sköllóttur og vissi einungis helminginn af þessu ... var ljósskolhærður hér áður fyrr og er með rauðleitt skegg þegar ég safna því ...

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 20:27

4 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

ég vissi fyrstu og þriðju, enda er ég skolhærður

Hallgrímur Óli Helgason, 16.8.2007 kl. 20:37

5 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Ég er ljóska að innan og utan sannaðist algjörlega þegar ég sá þessar spurningar.

Björg K. Sigurðardóttir, 16.8.2007 kl. 21:20

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Var að hugsa um að senda þennan á þig eftir smá svona til að ítreka orð mín hér að ofan

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.8.2007 kl. 21:20

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahahah þetta er kostulegt!! Aldrei hægt að stóla á nokkurn skapaðan hlut.

Hrönn Sigurðardóttir, 16.8.2007 kl. 21:23

8 identicon

Huh ég svaraði öllu rétt þangað til að ég las svörin ..

Guðrún B. (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 21:27

9 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Er enn með hár ( fá ) en náði einni spurningu

Halldór Sigurðsson, 16.8.2007 kl. 21:27

10 Smámynd: Þröstur Unnar

Vissi öll svörin og veit að ég er vitrari en ljóskan, en hlæ aldrei að henni.

Ætla ekki að tjá mig um hár, nema að það virðist oft færast af höfði karlmanna og niður á höku.

Þröstur Unnar, 16.8.2007 kl. 21:44

11 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Held reyndar að Kanaríeyjar þýði hundaeyjar en ekki Sels-eyjar. Sel það þó heldur ekki mjög dýrt.

Markús frá Djúpalæk, 16.8.2007 kl. 21:50

12 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hvurslags fíflagangur er þetta? Er ekkert annað betra við tímann að gera en hæðast af ljóskum?

Edda Agnarsdóttir, 16.8.2007 kl. 22:02

13 identicon

 takk ´sskan ...  fyrir að benda mér á ... að ég ER ljóska!

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 22:09

14 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég vissi öll nema eitt! Enda dökkhærrrrrrð!
Algjört aukaatriði að ég hafi séð þetta áður og klikkaði þá á öllum nema 100 ára stríðinu:)

Heiða B. Heiðars, 16.8.2007 kl. 22:43

15 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Iss eg vissetta næstum allt enda dökkhærð

Marta B Helgadóttir, 16.8.2007 kl. 22:52

16 Smámynd: Bjarney Hallgrímsdóttir

 Mo=ljóska...

Bjarney Hallgrímsdóttir, 16.8.2007 kl. 22:55

17 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég verð bara segja sniðugt. Elsku Jóna mín .

Kristín Katla Árnadóttir, 16.8.2007 kl. 23:07

18 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahahaha. Ég er ljóshærðust af öllum ljóshærðum. Þegar ég las þetta fyrst þá tísti alveg í mér af illgirni yfir því hvað þessi ljóska hafði verið ótrúlega heimsk. Ég hafði náttúrlega ekki hugmynd um neitt af þessu.

Edda mín. Vertu úti

Markús. Gúgglarðu þetta ekki fyrir okkur?

Jóna Á. Gísladóttir, 16.8.2007 kl. 23:13

19 Smámynd: Hugarfluga

Ég er einmitt ljós oní rót og stolt af því og fer ekki ofan af því að blondes do have more fun!

Hugarfluga, 16.8.2007 kl. 23:17

20 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ég er líka ljós ofan í rót... þegar ég er nýkomin úr strípum.

Hvernig setur maður svona hreyfimyndir (og reyndar myndir yfirhöfuð) inn í komment?

Jóna Á. Gísladóttir, 16.8.2007 kl. 23:19

21 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

ja ég er dökkhærð en var örugglega ljóska í fyrralífi

Guðríður Pétursdóttir, 16.8.2007 kl. 23:21

22 Smámynd: Hugarfluga

I use my friend; Mr. Copy Paste.

Hugarfluga, 16.8.2007 kl. 23:27

23 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér fannst ljóskan ótrúlega heimsk, þetta var bara borðleggjandi, en svona getur þetta verið. Ljóskur eiga örugglega eftir að ná heimsyfirráðum.

Ásdís Sigurðardóttir, 16.8.2007 kl. 23:28

24 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.8.2007 kl. 23:28

25 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

copy/paste, nákvæmlega.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.8.2007 kl. 23:29

26 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Guðríður. þetta er eins góð skýring og hver önnur

Hugarfluga. hann er ekki vinur minn. Allavega ekki í kommentakerfinu

Ásdís. Það getur bara meira en verið.

Jenný. Ég henti kallinum út

Jóna Á. Gísladóttir, 16.8.2007 kl. 23:31

27 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Úff...... ég skil ekki hvernig ég náði barnaskólaprófinu. 

Anna Einarsdóttir, 16.8.2007 kl. 23:38

28 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Var próf!!??!!

Heiða B. Heiðars, 16.8.2007 kl. 23:59

29 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Anna. Ég held þetta hafi ekki komið á þeim prófum

Heiða. Shiiiit misstirðu af því?

Jóna Á. Gísladóttir, 17.8.2007 kl. 00:49

30 Smámynd: Rebbý

vá ég sem taldi mig svo gáfaða - fer skelfingu lostin héðan af síðunni þinni í kvöld

Rebbý, 17.8.2007 kl. 00:54

31 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Fallin. . . 

Hverskonar byrjun á degi er þetta eiginlega? Farin eitthvert þar sem ég get tekið gleði mína á ný. ( skellihurðumkall )

Guðrún Þorleifs, 17.8.2007 kl. 06:14

32 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Hættu að spila svona "leiðinleg" spil.......  Og fyrir alla muni - ekki vera að eyðileggja daginn fyrir fullt af fólki sem þykir vænt um þig!  En ég er sammála Markúsi - ég held að Kanarý-eyjar séu nefndar eftir hundum...... Sel það þó ekki dýrar - en Markús keypti það.

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 17.8.2007 kl. 08:21

33 Smámynd: Þröstur Unnar

Hvurslags hógværð er þetta, að selja ekki dýrar en maður keypti. Hvernig á þá að hagnast?

Svo eitt enn: Ekki er ætlast til að settar séu myndir og annað augnakonfekt í kommentin, samkvæmt skilmálum Moggabloggsins.

Sel það 40% dýrara en ég keypti það.

Þröstur Unnar, 17.8.2007 kl. 08:31

34 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Markús - við erum snillingar..........

The islands' name is likely derived from the Latin term Insula Canaria, meaning Island of the Dogs, a name applied originally only to the island of Gran Canaria. It is thought that the dense population of an endemic breed of large and fierce dogs, like the Presa Canario, was the characteristic that most struck the few ancient Romans who established contact with the islands by the sea.

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 17.8.2007 kl. 08:34

35 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Skooo!!!! maður lærir eitthvað nýtt á hverjum degi.

Takk fyrir þetta Ingibjörg.

Og Þröstur. Ég hlýði þá bara moggamönnum og hætti að hafa áhyggjur af myndskreytingum í kommentum.

Jóna Á. Gísladóttir, 17.8.2007 kl. 09:37

36 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Ingibjörg, þú ert flinkari gúgglari en ég. Eða vinnusamari.

Markús frá Djúpalæk, 17.8.2007 kl. 10:32

37 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Jæja það er þó eitt sem ég græddi á þessu ég er ekki að grána heldur að lýsast og það hratt.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 17.8.2007 kl. 10:55

38 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Lísa mín. Það sem ég hef alltaf sagt. Það eru ekki endilega ljóskurnar sem eru ljóshærðastar.

Markús. Ingibjörg er ofvirk

Högni. Það þarf vissa hæfileika til að sjá alltaf ljósu punktana

Jóna Á. Gísladóttir, 17.8.2007 kl. 11:11

39 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég var alveg viss um að ég væri sá sem ætti að plata þegar ég sá fyrstu spurninguna, sem sagt ég sá það alveg að 100 daga stríð gat alveg verið kallað 100 ára stríð þó svo að það hafi ekki staðið í 100 ár slétt en þegar ég sá spurningu 2 þá hlaut hún að vera ansi tæp greyið og alltaf kom það betur og betur í ljós að hún "ljóskan" var þannig í mínum huga að s.s. að það væri bara engin heima þarna á efstu hæðinni jú ljósin voru kveikt, gott ef þau voru samt ekki farin að dofna, svo langt var síðan einhver hreyfing sást að pósturinn var fyrir löngu hættur að koma við.

Enn þegar ég sá svörin þá var ég fyrst að hugsa um að fara bara útaf síðunni þinni og kíkja ekki þangað fyr en eftir viku en af því að ég kann nú svo sem ekkert á tölvu þá hélt ég að kannski sæist að ég hafði lesið þetta og af því að ég var einn hérna þá gat ég gefið mér smá tíma, hann mátti ekki vera lengi kanski færi þá einhver að hlæja af því hvað lengi væri engin hreyfing hjá mér, svo ég hugsaði nú verð ég að leika mig klárann annað gengur ekki, datt í huga að slíta skjáinn úr sambandi svo ég gæti sagt að rafmagnið hafi fari af, en á meðan ég velti vöngum sá ég í spegli að ég væri farinn að grána meira eftir að ég lét klippa mig og sá að ég myndi bara slá því upp í fyndni, ef einhver myndi mynnast á það og segja að skærin hjá rakaranum væru ekki meira ekta en það að þau hafi gefið lit og í sama mund kom þetta svar ég væri nú ekki að grána heldur væri bara ljósk? eftir alltsaman.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 17.8.2007 kl. 14:12

40 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

LOL. Vá!! ég get ekki alveg fylgt þessu eftir hjá þér Högni. Er of ljóshærð til þess.

Jóna Á. Gísladóttir, 17.8.2007 kl. 17:45

41 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég hlít að vera ljóska og litblindur því mér finst hárið á mér vera dökkbrúnt

Brynjar Jóhannsson, 17.8.2007 kl. 18:43

42 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er ljóska... þessi færsla fær

Gunnar Helgi Eysteinsson, 17.8.2007 kl. 20:32

43 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Okey, ég er ekki fær um að útskýra þetta nema í mjög mörgum línum, það átti reyndar að vera 100 ára stríð en ég sé að mér tóks að draga það niður í 100 daga stríð þarna á einum stað.

Það var þannig að ég taldi sum sé að ég vissi nú strax á fyrstu spurningunni að þetta væri trix(sem það reyndar varð svo) en á annari spurningu féll ég, því að sjálfsögðu hlaut Panama hatturinn að vera fundinn upp í Panama og svo þegar sú þriðja kom sá ég að ljóskugreyið var all verulega tæp, bæði augun opin sem sagt öll ljósin kveikt á efstu hæðinni, en þó aðeins farin að dofna, pósturinn hættur að koma við  það var ekki til neins það gerðist greinilega ekki neitt þarna inni.  Sem sagt margur heldur mig sig.

Restin var bara afleiðing af því að ég tók allar pillurnar mínar í einu þarna um morguninn en á að taka þær á 4 tíma fresti eða svo, en það er nú bara hugsað til að fólk sjái ekki að ég sé "verri" en ég er að öllu jöfnu einn virku dagana og það langt uppi í sveit, svo ég sturta þeim stundum öllum upp í mig í einu með morgunkaffinu, mér finnst ég fá svo mikkla orku af því.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 20.8.2007 kl. 03:22

44 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Okey, ég er ekki fær um að útskýra þetta nema í mjög mörgum línum, það átti reyndar að vera 100 ára stríð en ég sé að mér tóks að draga það niður í 100 daga stríð þarna á einum stað.

Það var þannig að ég taldi sum sé að ég vissi nú strax á fyrstu spurningunni að þetta væri trix(sem það reyndar varð svo) en á annari spurningu féll ég, því að sjálfsögðu hlaut Panama hatturinn að vera fundinn upp í Panama og svo þegar sú þriðja kom sá ég að ljóskugreyið var all verulega tæp, bæði augun opin sem sagt öll ljósin kveikt á efstu hæðinni, en þó aðeins farin að dofna, pósturinn hættur að koma við  það var ekki til neins það gerðist greinilega ekki neitt þarna inni.  Sem sagt margur heldur mig sig.

Restin var bara afleiðing af því að ég tók allar pillurnar mínar í einu þarna um morguninn en á að taka þær á 4 tíma fresti eða svo, en það er nú bara hugsað til að fólk sjái ekki að ég sé "verri" en ég er að öllu jöfnu einn virku dagana og það langt uppi í sveit, svo ég sturta þeim stundum öllum upp í mig í einu með morgunkaffinu, mér finnst ég fá svo helv. mikkla orku af því.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 20.8.2007 kl. 03:23

45 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

 Högni. Muna svo bara að dreifa pillutökunni jafnt yfir daginn. Þó þú sért í sveitinni.

Jóna Á. Gísladóttir, 20.8.2007 kl. 07:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband