Færsluflokkur: Dægurmál
Miðvikudagur, 4. mars 2009
Heimilisþvotturinn
Þvottahúsið er daglegur viðkomustaður. Hjá fimm manna fjölskyldu er alltaf hægt að finna sér eitthvað að dunda við í þvottahúsinu.
Síðustu mánuði hefur reyndar, hægt og bítandi, þróast hefð á heimilinu, sem ég kann afskaplega vel við;
ég sé um að setja í þvottavél (það felur í sér að tölta með, nær undantekningarlaust fulla, óhreina-taus-körfuna af efri hæðina niður í þvottahús, sortera í vélina og reka svo á eftir fatnaði sem hefur af einhverjum undarlegum ástæðum endað á gólfinu í barnaherbergjunum í staðin fyrir körfunni).
Hreini þvotturinn á sér fastan samastað í betri stofunni. Þar liggur hann í stól. Stundum í marga daga áður en einhver grípur í taumana.
Og þessi ''einhver'' er venjulega Bretinn. Þá kallar hann til krakkaskarann og skipar liðinu í samanbrot á þvotti. Úr verður hin skemmtilegasta samverustund. Glósur fljúga manna á milli vegna fatnaðar sem krökkunum finnst asnalegur, eins og síðar með tippagati eða g-strengur í eigu gömlu konunnar.
Svo er líka hægt að fylgjast með sjónvarpinu í leiðinni. Sá Einhverfi gerir reyndar meira ógagn en gagn en hann er þó farinn að bera þvottinn sinn samanbrotinn upp og ganga frá honum ofan í skúffur.
En Unglingurinn og Gelgjan verða færari í þvottafrágangi með hverri vikunni sem líður... líka Bretinn. Og það venst vel að leyfa öðrum að sjá um þennan hluta heimilisverkanna. Mjög vel.
Í kvöld var ég að rífa út úr þvottavélinni og henda í þurrkarann. Ég missti nokkrar flíkur í gólfið í hamaganginum og beygði mig niður til að taka þær upp. Fann fyrir sokk sem ég var eitt andartak, ekki viss um hvort væri blautur eða þurr og þá hvort hann tilheyrði þvottinum sem ég var að taka úr þvottvélinni eða ekki.
Án þess að hugsa mig um rak ég hann upp að nefinu og andaði djúpt og rækilega að mér. Svona eins og maður gerir þegar maður ætlar að njóta ilmsins af hreinum rúmfötum.
Ég komst að því á sekúndubroti að þessi átti heima í óhreina tauinu. Mæli ekki með þessari aðferð.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Þriðjudagur, 3. mars 2009
Atburðum hlaðinn mars-mánuður
Hvar er rigning? spurði Sá Einhverfi í morgun. Aldeilis standandi hlessa á þessum endalausa snjó.
Í gærmorgun var hann ekki jafn umburðarlyndur og argaði á mömmu sína yfir veðurfarinu. Mamman gargaði á móti. Hneyksluð á skilningsleysi krakkans: Ian það er vetur for Gods sake.
EKKI VETUR, gargaði hann á móti.
Sem sagt hugguleg morgunstund sem við áttum þarna mæðginin.
Ég hef ákveðið að bráðlega mun ég yfirgefa landið í vikutíma. Ætla að halda í milda veðrið í Þýskalandi. Það verður þó vinnuferð þar sem ég mun eyða tímanum við skriftir og heimildaöflun á daginn. En kvöldin mun ég eiga með Berlínar-Brynju. Oooo hvað það verður næs, svo ég tali ekta íslensku.
Fleira skemmtilegt er framundan hjá mér í þessum mánuði. Ball, árshátíð, ferming hjá Hafliða uppáhalds frænda, strípur og klipping (mjöög veigamikið atriði) og endahnúturinn verður rekinn í byrjun apríl en þá stendur brúðkaup fyrir dyrum í fjölskyldunni.
Upp úr því þarf svo bara að fara að huga að sumrinu. Almáttugur hvað tíminn líður fljótt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 2. mars 2009
Polli = Pólverji ?
Eitt eru ryskingar á milli tveggja drengja á unglingsaldri þar sem hormónaflæði er á fullu blasti, sem kannski endar með smá blóðnösum og særðu stolti. Annað er hrein og bein líkamsárás tveggja drengja á jafnaldra sinn, sem svo endar á slysadeild eða spítala.
Ég er furðu lostin yfir þessu viðtali við skólastjórann sem vill sem minnst úr málinu gera og finnst það blásið upp af fjölmiðlum. Hvað þýðir það? Blásið upp..? Staðreyndirnar liggja fyrir og þær eru ekki fallegar.
Ég er viss um (eða vona allavega) að þjálfarar í bardaga- og sjálfsvarnaríþróttum hvers konar leggja ríka og mikla áherslu á drengskap og það að nota ekki kunnáttuna utan æfinga og keppna. Nema að sjálfsögðu í sjálfsvörn.
Að mínu mati er þetta mál hið alvarlegasta af fleiri en einni ástæðu. Og ég er afar ósátt við þá vörn (eða kannski afneitun) sem skólastjórinn virðist vera í. Hún minnist ekki orði á að tekið verði á atvikinu og það rætt til að koma í veg fyrir endurtekningu. Hver eru eiginlega skilaboðin til annarra nemenda í skólanum ef tekið er á þessu af slíkri léttúð?
Og nú spyr sá sem ekki veit: getur verið að Polli sé nýyrði og sé notað sem uppnefni og í niðrandi tón um Pólverja?
![]() |
Blóðug slagsmál skóladrengja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 28. febrúar 2009
Hvaðan kemur fýlan
Ég fór í Kolaportið í dag og keypti mér hvít stígvél fyrir 500 kall. Þess utan græddi ég skó og tösku sem Helgu hálfsystur vantaði að losna við. Guð blessi hana Helgu hálfsystur. Svo keypti ég mér hallærisleg gleraugu í Tiger. Lillablá með steinum. Þurfti að skerpa sjónina fyrir saumaskapinn. Það má eiginlega segja að saumaskapurinn hafi átt hug minn allan í þunglyndiskastinu undanfarið. Enda hefur skotgengið með myndina sem ég er að sauma.
Nú hef ég kveikt á 9 kertum í stofunni og borðstofunni. Kveikt er á lömpum í öllum hornum en að öðru leyti eru ljósin slökkt. Gelgjan er hjá Viðhenginu, Unglingurinn hangir uppi í herberginu sínu, Bretinn lagði sig.. er eitthvað slappur, og Sá Einhverfi er í sínu herbergi að stúdera hulstur af DVD myndum.
Ég er því ein með sjálfri mér, sofandi hundi og blogginu sem ég hef heimsótt ansi takmarkað síðustu vikur.
Það er huggulegt og lágstemt í kringum mig, þó að Sá Einhverfi hafi komið hlaupandi niður stigann rétt áðan með hávaða og látum. ÞEGIÐU, kallaði hann í sífellu. Ég veit að hann er ekki að tala við mig og nenni ekki að ávíta hann.
Uppþvottavélin suðar, mér á vinstri hönd og hundurinn hrýtur lágt í antiksófanum hennar ömmu, hér hægra megin við mig.
Sem sagt huggulegt, rólegt og akkúrat eins og laugardagskvöld eiga að vera. Það eina sem brýtur upp stemninguna er þessi skítafýla sem leggur fyrir vit mér. Ég þarf virkilega að fara og finna út hvort þetta komi frá hesthúsahverfinu í Víðidal, eða hvort einu af heimilisdýrunum hafi orðið brátt í brók, hér í einhverju horninu.
Að því loknu ætla ég að steikja hamborgara ofan í þá fjölskyldumeðlimi sem hafa áhuga.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 20. febrúar 2009
Gulur litur
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 29. janúar 2009
Vafrað um í huganum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 28. janúar 2009
Þú ert alltaf...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 27. janúar 2009
Þegar mann langar að stökkva á afkvæmin og snúa þau úr hálsliðnum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 23. janúar 2009
Vorið má koma mín vegna með góðum rigningarkafla jáááááááááááááá
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 21. janúar 2009
Óvart allsber í sundi
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 1640737
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2019
2018
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
-
solskinsdrengurinn
-
skrifa
-
jenfo
-
gelgjan
-
annambragadottir
-
marzibil
-
brynja
-
hk
-
gurrihar
-
lehamzdr
-
katlaa
-
eddaagn
-
jahernamig
-
hronnsig
-
martasmarta
-
katrinsnaeholm
-
palmig
-
ipanama
-
hallarut
-
tommi
-
ktomm
-
poppoli
-
svavaralfred
-
kollajo
-
bergruniris
-
bene
-
bennason
-
jensgud
-
solrunedda
-
heidathord
-
ringarinn
-
tofraljos
-
kjaftaskur
-
ormurormur
-
zeriaph
-
unns
-
ellasprella
-
hjolagarpur
-
salka
-
nonniblogg
-
markusth
-
rebby
-
birna-dis
-
garun
-
landsveit
-
olofannajohanns
-
brylli
-
evaice
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
rustikus
-
singer
-
jaxlinn
-
krossgata
-
mummigud
-
blekpenni
-
gerda
-
baddahall
-
holi
-
grafarholt
-
gudnylinda
-
thegirl
-
gretarorvars
-
thordis
-
herdis
-
mammzan
-
sigthora
-
bet
-
saedis
-
emmgje
-
sigurjonsigurdsson
-
janus
-
astromix
-
overmaster
-
thorasig
-
gudni-is
-
sunnadora
-
kjarrip
-
810
-
gislihjalmar
-
beggagudmunds
-
sirrycoach
-
betareynis
-
ilovemydog
-
rannveigmst
-
stormadis
-
perlan
-
bergdisr
-
skondrumamma
-
snar
-
stormur
-
ljonid
-
raggipalli
-
hjordiz
-
almaogfreyja
-
katja
-
lady
-
sigrunfridriks
-
zunzilla
-
olinathorv
-
bidda
-
smjattpatti
-
jogamagg
-
disadora
-
harpao
-
fuf
-
alexm
-
larahanna
-
juliaemm
-
saemi7
-
gudrunmagnea
-
svala-svala
-
kari-hardarson
-
hlf
-
hlinnet
-
annagisla
-
einari
-
lena75
-
hector
-
saethorhelgi
-
ernafr
-
birnarebekka
-
heidistrand
-
kerla
-
hannamar
-
jara
-
supermamma
-
monsdesigns
-
malacai
-
solveigth
-
siggathora
-
senorita
-
snjaldurmus
-
photo
-
stingi
-
pollyanna
-
steingerdur
-
icekeiko
-
majaogco
-
skordalsbrynja
-
danjensen
-
lilly
-
heidabj
-
omarpet
-
helgamagg
-
nori
-
jamesblond
-
gretaulfs
-
rattati
-
hogni
-
ragjo
-
kolgrima
-
skjolid
-
hugrunj
-
egill75
-
amman
-
liljabolla
-
asgerdurjoh
-
okurland
-
rannthor
-
svalaj
-
siggith
-
vefritid
-
zsapper
-
laz
-
graceperla
-
rannug
-
agbjarn
-
alliragg
-
fjarki
-
birtabeib
-
roslin
-
lindape
-
rosa
-
tinnaeik
-
muszka
-
krummasnill
-
lindalea
-
fjola
-
solan
-
scorpio
-
evabenz
-
isleifure
-
karitryggva
-
ellasiggag
-
beggita
-
ollabloggar
-
madddy
-
songfuglinn
-
emm
-
lindagisla
-
turettatuborg
-
einarsigvalda
-
huldadag
-
siggasin
-
credo
-
loathor
-
carma
-
komaso
-
fifudalur
-
rosabla
-
lillagud
-
eythora
-
griman
-
eyrunelva
-
svanurg
-
strumpurinn
-
godihundur
-
hallidori
-
annriki
-
sibbulina
-
helgurad
-
huldumenn
-
julianamagg
-
berglindnanna
-
huldam
-
joik7
-
venus
-
osland
-
liso
-
amaba
-
asako
-
hryssan
-
mammann
-
leyla
-
gunnarggg
-
sigrunzanz
-
fanneyunnur
-
himmalingur
-
helgabst
-
bostoninga
-
christinemarie
-
jea
-
elisabeta
-
perlaoghvolparnir
-
meyjan
-
wonderwoman
-
coke
-
ragnhildurthora
-
gullilitli
-
tommi16
-
ea
-
mariaannakristjansdottir
-
einarorneinars
-
lindalinnet
-
joninaros
-
reynzi
-
rosagreta
-
lauola
-
reynir
-
elinora
-
ma
-
olapals
-
bestalitla
-
kolgrimur
-
handtoskuserian
-
vonin
-
kaffi
-
einarhardarson
-
gleymmerei
-
brandarar
-
alf
-
hreinsamviska
-
litlakonan
-
lucas
-
reisubokkristinar
-
jgfreemaninternational
-
olofdebont
-
thjodarblomid
-
vilma
-
ollana
-
gudrununa
-
holar
-
gotusmidjan
-
huldastefania
-
mubblurnar
-
bjarnihardar
-
vild
-
skrudur
-
jyderupdrottningin
-
sifjan
-
letilufsa
-
hrundt
-
robbitomm
-
brudurin
-
anitabjork
-
blindur
-
astabjork
-
bailey
-
gattin
-
draumur
-
einhugur
-
trygg
-
eskil
-
evags
-
gudrunkatrin
-
gudrunss
-
nf26b
-
topplistinn
-
helgaas
-
helgatho
-
hildurhelgas
-
drum
-
innipuki
-
ingal
-
kikka
-
astroblog
-
oliskula
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
kariaudar
-
vga
-
thorolfursfinnsson
-
motta
Tenglar
Mínir tenglar
Af mbl.is
Innlent
- Voru morðin ekki framin?
- Sér ekki hvernig menn ætla að klára þingið
- Þá var alveg upplagt að nota stera
- Ekkert nýtt, óvænt eða sérstakt
- 170 ár frá fyrstu vesturferðunum
- Ölvaður ökumaður á 125 km/klst
- Tveir með bónusvinninginn
- Vilji til að afgreiða bókun 35
- Hvetur fólk að sækja myndir fyrir förgun
- Þögul ganga til áminningar um Gasa
Erlent
- Á evuklæðum í hundruðum líkamsleita
- Thunberg nálgast Gasa
- Hótaði Musk alvarlegum afleiðingum
- Maður lést eftir eldsvoða á hjúkrunarheimili
- Stórfelld loftárás á Úkraínu
- Ferðabannið endurspegli kynþáttafordóma
- Endurheimtu lík taílensks gísl
- Myndskeið: Fíll braust inn í búð að ná sér í nasl
- Drepinn fyrir að reyna að ráðast á herstöð Rússa
- Weinstein viðurkennir siðlausa hegðun