Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Laugardagur, 8. nóvember 2008
Tilvalið að kíkja í kaffi eftir mótmælin á Austurvelli - Útgáfutilboð á bókum
Laugardaginn 8. nóvember stendur Sögur Útgáfa fyrir útgáfugleði í Eymundsson Austurstræti 18 frá klukkan 15-17. Fagnar þetta unga en ört stækkandi forlag útgáfu eftirfarandi bókatitla:
- ÉG ef mig skyldi kalla eftir Þráinn Bertelsson. Annar hluti í ævisagnabálki Þráins sem iðar af lífi og engist af sársauka.
- Sólkross eftir Óttar M. Norðfjörð. Sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Hnífur Abrahams en nú beinir Óttar sjónum sínum að landnámsmönnun Íslands.
- Sá Einhverfi og við hin eftir Jónu Á Gísladóttur, einn vinsælasta bloggara landsins. Hlý, fyndin og mannleg bók.
- Hetjuhandbók Latabæjar. Bók full af fjöri, leikjum, sögum, þrautum og fleiru.
- Ripleys Ótrúlegt en satt, hið ótrúlega afhjúpað . Farðu í ferð í kringum hnöttinn og hittu dularfullar verur, sjáðu skrýtna staði, og lentu í stórfurðulegt ævintýri.
- Jón Ólafur Jólasveinn eftir Kikku, höfund Ávaxtakörfunnar . Frábær barnabók um venjulegan strák sem gerist óvart jólasveinn.
- Hvernig ég hertók höll Saddams eftir Börk Gunnarsson, talsmann NATO í Bagdad. Ótrúleg lífsreynslusaga Barkar nokkra örlagaríka mánuði í Bagdad.
- Rótleysi, rokk og rómantík eftir Ingibjörgu Reynisdóttur. Hér fylgir Ingibjörg eftir hinni geysivinsælu unglingabók Strákarnir með strípurnar og gott betur.
- Tíu litlir bankastrákar eftir Óttar M. Norðfjörð gerir stólpagrín að útrásinni margumtöluðu.
- Öllu meiri fánýtur fróðleikur . Vitanlega gagnslausar upplýsingar en þó einkar mannbætandi og kætandi.
Boðið verður upp á kaffi og kleinur og djangódjassbandið Hrafnaspark leikur fyrir gesti. Rithöfundar verða einnig á staðnum til áritunar. Mörg ótrúleg útgáfutilboð aðeins í þetta eina skipti. Komið og þiggið veitingar, hlustið á tónlist og njótið þess að vera til
Föstudagur, 7. nóvember 2008
Maður er auðvitað léttgeggjaður
Ég held að flestir kannist við að fáránlegar hugsanir þjóta í gegnum huga þeirra einstaka sinnum.
Eins og þegar rafmagnið fer af hverfinu, það er vetur og fyrsta hugsunin er: æi ég ætla bara að njóta þess og hita mér kakó og sötra í myrkrinu.
Annars virðast mín rugl-andartök yfirleitt tengjast símtækjum á einhvern hátt.
Ég get verið mjög aktív þegar ég er að tala í gemsann. Tala og tala, set í þvottavél, uppþvottavél, brýt saman þvott, gef dýrunum að borða, lifi kynlífi... nei kannski ekki þetta síðasta en allt annað er satt. Svo dettur mér í hug í miðju símtali að kíkja í dagbókina í símanum og athuga hvort ég eigi tíma hjá tannlækni daginn eftir. Og fer að leita að símanum. Hef til og með blótað upphátt í eyra viðmælandans því ég finn hvergi helvítis símann. Sem er á sama tíma að brenna gat á eyrað á mér vegna ofnotkunar.
Það kemur oft fyrir í vinnunni að ég sit við skrifborðið mitt þar sem er að sjálfsögðu borðsími, og ég er að tala í gemsann. Þegar símtalinu lýkur reyni ég að slíta sambandið á borðsímanum. Ýti aftur og aftur á takkann og skil ekkert í því af hverju sónninn í eyranum á mér þagnar ekki.
Ég hef líka margoft rekið mig á að það þýðir ekkert fyrir mig að hafa borðsímann og reiknivélina hlið við hlið á skrifborðinu því þá er ég stöðugt í því að reyna að hringja á reiknivélinni og reikna út rúmmál fraktar á símtækinu.
Ég átti heldur langan vinnudag í dag og var á leið heim um sjöleytið í kvöld. Ég heyrði dauft hringingarhljóð frá gemsanum og ákvað að láta það eiga sig. Enda ekki sniðugt að fara að leita að símanum með aðra hendina á stýri og hina á kafi ofan í töskunni. Taskan sú er frumskógur og auðvelt að villast í henni. Týnast hreinlega.
En eftir nokkra stund hugsaði ég; kannski var þetta Bretinn að hringja og ætlaði að biðja mig um að koma einhvers staðar við á leiðinni. Svo ég skellti mér í frumskóginn. Ráfaði þar um, fram og til baka. Fór í vestur og svo í austur. Fann ekki gemsann hvernig sem ég gramsaði. ''Andskotinn'', hugsaði ég. ''Ég hef gleymt símanum í vinnunni''.
Samt hringdi hann nokkrum andartökum áður. Maður er auðvitað léttgeggjaður.
Fimmtudagur, 6. nóvember 2008
Reykvíkingur villist í leit að útvarpi allra landsmanna
Þegar ég les íslenskar bækur, óstaðsettar fréttir og heyri sögur af atvikum, þá staðset ég sögusviðið í huganum. Á einhverjum stað, í húsi eða annars staðar þar sem ég þekki til eða hef komið.
Oftar en ekki hef ég rekið upp stór augu þegar ég kemst að því að tiltekin frásögn átti sér stað í til dæmis Breiðholtinu en ekki í Garðabæ, þar sem ég hafði séð allt saman fyrir mér í huganum.
Þetta kom fyrir mig í morgun. Ekki á besta tíma eða við heppilegustu aðstæðurnar.
Klukkan 08:05 átti ég að vera mætt fyrir utan stúdíó 2 í RÚV í Efstaleiti, fyrir viðtal sem átti að hefjast 08:15.
Klukkan 08:01 keyrði ég eftir Bústaðarveginum, ánægð með sjálfa mig og óvenjulega stundvísi mína. Aðeins í einnar mínútu akstursfjarlægð frá áfangastaðnum.
En þar sem ég ek í bílskrjóðnum mínum fara skyndilega að renna á mig tvær grímur. Í huganum birtist mynd af húsvegg sem á stendur Veðurstofa Íslands. Einhvers staðar djúpt í iðrum hugans eru meitluð þessi tvö orð og húsveggurinn. Enda ekki skrítið þar sem ég keyrði þessa leið til vinnu í ein þrjú ár.
Og ég hugsaði: Ji minn almáttugur, Efstaleiti Efstaleiti Efstaleiti. Leiti-eitthvað getur ekki verið hér. Og ég hugsaði um Háaleitisbraut sem ég hafði rétt áður brunað um, Hvassaleiti og öll hin leitin. Efstaleiti getur ekki verið á þessum slóðum. Damn damn damn. Getur verið að mér hafi skjátlast um staðsetningu RÚV í öll þessi ár.
Af þrjósku einni saman beygði ég nú samt út af Bústaðarveginum og upp brekkuna sem liggur að.. jú Veðurstofu Íslands.
Klukkan var 08:05. Ég panikkaði og hætti að geta heyrt eigin hugsanir því hjartað í mér sló einhvers staðar uppi í heila. Ég hringdi í Bretann.
Ég var fastmælt, skýrmælt og yfirveguð. Gat ekki átt á hættu að algengur tungu-mála-misskilningur tefði fyrir. N i c k - h v a r e r R Ú V ?
Fimmtán ára þekking Bretans á þessari rammvilltu kerlingu hjálpaði upp á sakirnar. Einskis var spurt, aðeins svarað. Hann var jafn skýrmæltur, fastmæltur og rólegur og ég var. Nema bara að hans yfirvegun var ekta. Mín var grunn og yfirborðskennd eins og Rauðavatn á fimmta, heita sumardeginum í röð.
Og þegar ég, eftir afar greinagóðar leiðbeiningar Bretans, beygði inn á planið við RÚV bygginguna var það svona ''I knew that'' móment. ''Off course I knew that!!''
Ég var samferða Páli Magnússyni frá bílastæðinu og inn í húsið og einhverja örvinglan hefur hann lesið úr svipnum á þessari ljósku því hann tók mig upp á sína arma og yfirgaf mig ekki fyrr en ég var komin í hendurnar á Hrafnhildi.
Ég fékk mér vatnsglas á meðan fréttatíminn stóð yfir og mætti svo pollróleg fyrir framan hljóðnemann nokkrum mínútum seinna.
---
Það var árið 1983 sem Rás 2 tók til starfa, og hefur eftir því sem ég best veit, verið útvarpað frá Efstaleiti 1 frá upphafi.
Allan þennan tíma, þ.e. frá árinu 1983 hef ég staðið í þeirri bjargföstu trú að húsið sem stendur við Bústaðarveg 9 og er kyrfilega merkt Veðurstofu Íslands, sé RÚV-húsið.
Sjálf hef ég búið í Reykjavík síðan 1973.
Það þarf þó nokkra ''hæfileika'' í svona lagað.
Við tækifæri mun ég segja ykkur frá því þegar þrjár kerlingar, hver annarri fallegri, gáfaðri og glæsilegri, villtust á leið upp í Kjós á meðan sú fjórða beið upp í sumarbústað og velti því fyrir sér hvort hún hefði ruglast á dögum.
By the way... hér er viðtalið:
http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4440985
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
Þriðjudagur, 4. nóvember 2008
Ég um mig frá mér til mín
Það er að hellast í mig kvef. Það þykir mér ansi leiðinlegur kvilli. Nefrennsli og tilheyrandi eymsli í þeim líkamsparti leggjast illa í mig.
Samt er fáránlegt að kvarta yfir kvefi. Ef maður hefur ekki yfir neinu öðru að kvarta telst maður að vonum afar lánsöm manneskja.
Að vera nefmælt angrar mig samt sérstaklega núna, því ég er að fara í viðtal til Hrafnhildar og Gests í fyrramálið í Morgunþátt Rásar tvö. Guðrún Gunnars verður fjarri góðu gamni, að ég held.
Júb júb ða stemmir. É var ab geba út bók ogg langa ab seigja solídi fðá ðí....
Getur aldrei komið greindarlega eða sexý út í útvarpi. Kannski að ég ætti að fá mér gufubað eins og Ólafur Ragnar í Dagvaktinni.
Vikan kemur svo út á morgun eða fimmtudag og þar mun ég blasa við hverjum sem sjá vill. Allt mjög siðlegt þó. Og þrátt fyrir að ég, verandi kvenmaður og allt það, hlýt að hafa stórar áhyggjur af því hvernig myndirnar koma út, mun þetta Viku-viðtal alltaf lifa í minningunni sem skemmtileg reynsla. Blaðamaðurinn Björk, stílistinn og förðunarmeistarinn Haffi og Rakel ljósmyndari. Þetta fólk sá til þess að ég átti eftirminnilega stund við að gera það sem reynist mér alltaf erfitt: láta taka af mér myndir.
Útgáfupartý stendur fyrir dyrum á næstu dögum og svo taka væntanlega við upplestrar út um allan bæ.
Sá Einhverfi, sem ætti að vera þungamiðjan í þessu öllu saman, kærir sig kollóttan.´
Ég rak bókina upp í nefið á honum um daginn og var að vona að honum þætti spennandi að sjá mynd af sjálfum sér framan á bókarkápu. Það var öðru nær. Hann hafði nákvæmlega engan áhuga á málefninu.
Í kvöld sagði ég Gelgjunni að ég ætti að mæta í útvarpsviðtal í fyrramálið.
Já ok, sagði hún og geispaði. Ekki bara fara þarna inn og gaspra eitthvað um mig eins og þú gerðir í hinum útvarpsþættinum. Góða nótt mamma.
Einmitt. Allir með fæturna á jörðinni og hana nú!
Sunnudagur, 2. nóvember 2008
Kveðja upp á gamla mátann
Ég fór í Bónus á laugardaginn. Sem er svo sem ekki í frásögur færandi. En ég stóð mig að því að stara á hjónin sem voru á undan mér á kassanum.
Þetta var fólk um sjötugt. Fallegt fólk. Vel klætt. Konan var í hnésíðu gráu pilsi og ökklaskóm með breiðum, háum hæl. Hún bar pelsinn, sem náði niður á mið læri, vel. Hárið var nýlagt, gráhvítt og fallegt. Maðurinn hennar var í gráum frakka með hatt á höfðinu. Við hattbarðið, vinstra megin var slaufa.
Ég brosti með sjálfri mér. Minntist afa sem var fallegur maður fram á síðasta dag. Ávallt klæddur buxum með axlaböndum, skyrtu með ermahnöppum, vesti með silki í bakið og jakka. Úti fyrir var hann alltaf í frakka og með hatt á höfði.
Mér finnst ég heppin að hafa fengið að upplifa ''gömlu tímana'' í gegnum afa. Tískan var auðvitað ekki svona hjá pabba kynslóð en menn á afa aldri voru enn klæddir á þennan hátt þegar ég fluttist til ömmu og afa 1973. Og mér þótti afar gaman að sjá afa lyfta hattinum fyrirmannlega með örlítilli hreyfingu, hneigja höfuðið í átt til þeirra sem hann mætti á göngu og bjóða góðan dag.
Flottur siður. Eins og hver og einn skipti máli. Kurteisi skipti máli. Fólk tók sér tíma til að líta í augu náungans og óska honum góðs dags. Örlítil virðing vottuð við ókunnuga manneskju.
Það er með afa í huga sem ég býð ókunnugu fólki góðan dag þegar ég mæti því á göngu í Elliðarárdalnum eða við Rauðavatn. Sumir svara ekki. En það er aðeins brotabrot af fjöldanum. Flestir taka undir heilshugar og virðast gleðjast yfir kveðjunni. Jafnvel þó að Viddi Vitleysingur gelti að þeim eins og óður væri.... sem hann er að vissu leyti.
Föstudagur, 31. október 2008
Gott ráð frá Rússlandi í kreppunni
Þetta heilræði kemur frá Rússlandi sem var í þann veginn að gleypa okkur með góðfúslegu leyfi íslenskra stjórnvalda.
Rússar eru ekkert að velta sér upp úr hlutunum. Hreinar staðreyndir og ekkert kjaftæði. Þeir hefðu tekið okkur í nefið á skömmum tíma...
ЛИЧНО Я ВКЛАДЫВАЮ ДЕНЬГИ В ВОДКУ! ГДЕ ЕЩЕ МОЖНО
ПОЛУЧИТЬ 40%?
Þýðing
Persónulega, þá set ég alla mína peninga í vodka! Hvar annarsstaðar getur maður fengið 40%?
Fimmtudagur, 30. október 2008
Nokkurs konar framhald af renna-á-rassinum-niður-tröppur-bloggi
Mottó í kreppunni:
Dagurinn í dag er ekki rétti dagurinn til að hafa áhyggjur af morgundeginum.
Í morgun, áður en ég fór út úr dyrunum til vinnu, var mitt síðasta verk að safna saman fötum og öðrum nauðsynjavörum, sem ég hafði fengið lánuð hjá Ellisif bakarafrú. Ellisif lánað mér nokkra leppa fyrir myndatöku sem ég fór í í gær hjá Vikunni, ásamt armbandi sem hún fékk í fertugsafmælisgjöf 17. október.
Dýrgripina hafði ég tekið með mér í íþróttatösku sem ég dröslaði með mér á hálkunni á háhæluðu skónum, muniði... Ég notaði síðan ekkert af innihaldi töskunnar þegar til kom, en það er önnur saga.
Í morgun fór ég sem sagt í það að týna dótið hennar Ellisifar upp úr töskunni og setja í poka. Ætlaði að skjótast til hennar í hádeginu og skila. Þá uppgötvaði ég mér til mikillar hrellinga að armbandið var hvergi að finna. Boxið utan af því lá opið ofan í íþróttatöskunni.. en ekkert armband.
Jeremías minn. Ekki var tilfinningin góð. Ég næstum því reif töskuna í tætlur í von um að finna armbandið undir fölskum botni eða eitthvað slíkt. Æddi um allt hús og ímyndaði mér að ég hefði aldrei farið með armbandið út. Hvæsti á Bretann þegar hann ætlaði að vera mér andlegur stuðningur í hremmingunum. En allt kom fyrir ekki...
Jóna, breathe in... breathe out... think woman.. THINK
Og í huganum birtist mynd af fertugri konu (helvíti álitlegri að vísu) sem stóð í sjálfheldu efst í snævi þöktum tröppum. Konan hélt á grárri og rauðri íþróttatösku sem hún fleygði skyndilega niður tröppurnar. Svo settist hún niður og lét sig gossa á rassinum, það sem eftir var leiðar.
Ó mæ gúddness. Ég kvaddi Bretann stutt í spuna, líkt og hann ætti sök á öllum mínum vandræðum, hentist út í bíl og spændi á sumardekkjunum niður í Lyngháls. Lagði bílnum við títtnefndar tröppur og steig út. Hélt niðrí mér andanum þegar ég skannaði fönnina í kringum tröppurnar.
Það tók ekki nema sirka 7 sekúndur. Eitthvað glitraði í snjónum. Eitthvað dásamlega silfurlitað blikkaði mig í frostinu. Ég þorði vart að trúa eigin heppni þegar ég beygði mig niður og fingurnir gripu um armbandið. Þá, og aðeins þá, leyfði ég mér að anda aftur.
Takk fyrir lánið Ellisif
Miðvikudagur, 29. október 2008
Af tvennu illu...
Í morgun tók ég ákvörðun sem kom sjálfri mér nokkuð á óvart. Sérstaklega í ljósi þess að ég er þó orðin fertug og á að heita fullorðin einstaklingur. Það tók mig nokkur andartök að taka þessa ákvörðun, en ekki mikið meira en það.
Ákvörðunin var tekin þar sem ég stóð í þriðju, af sirka tuttugu snævi þöktum tröppum. Íklædd ullarkápu með belti í mittið, með virðulegan loðkraka um hálsinn og á himinháum hælum.
Ég hugsaði: hvort er verra.. að gera sig að fífli eða fótbrotna?
Svarið var einfalt þegar ég var búin að fara í gegnum ferlið með slysó, gipsið og hækjurnar, í huganum.
Tröppurnar sautján fyrir neðan mig voru ekki árennilegar að sjá.
Ég settist því niður og renndi mér á rassinum niður restina af tröppunum. Svo stóð ég upp, hagræddi ólinni á töskunni minni á öxlinni, dustaði snjóinn af buxum og kápu og gekk upprétt og virðuleg í fasi inn í fyrirtækið sem ég átti erindi í.
Blautur afturendi og smávegis rispa á úlnlið eru pís off keik á miðað við brotna leggi.
Þriðjudagur, 28. október 2008
Rasistinn verður Lafði og sonur hennar hálfrar aldar gamall
Bretinn þakkar kærlega fyrir allar afmæliskveðjurnar sem þið settuð í athugasemdarkerfið hjá mér. Hann las þær allar og þótti vænt um.
Laugardagskvöldið var skemmtilegt. 30 manna veisla í tilefni af hálfrar aldar afmæli karlsins.
Og þegar ég nefni hálfa öld þá dettur mér einna helst í hug aldraður maður með göngugrind. 50 ár er eitthvað svo mikið minna en hálf öld. En það breytir því ekki að þessi bráðhuggulegi karlmaður er hálfrar aldar gamall.
Og þegar Litla Lafðin hringdi (rasistinn sem ég breytti í Lafði úr Rasista vegna bókarinnar. Aldrei að vita nema að bókin verði þýdd á móðurmál Bretans og ég er hrædd um að það yrði uppi fótur og fit ef upp um það kæmist hjá enska slektinu að ég kallaði tengdamóður mína Litla Rasistann. Jú syndirnar koma alltaf í bakið á manni) á föstudagskvöldið og tilkynnti það að það væru akkúrat 50 ár síðan hún fór á fæðingardeildina, þá féllust mér hendur.
Hvernig er hægt að vera reffileg og kvik kona og tala um að hafa fætt barn fyrir hálfri öld? Þetta eru bara absúrd tölur.
En hér voru sem sagt um 30 manns á laugardagskvöldið til að fagna þessum merku tímamótum. Ég er fín frú og geri ekki handtak, svo að við pöntuðum mat frá Austur-Indíafélaginu og herregud.. þvílíkt lostæti. Lambakjöt og kjúklingur sem bókstaflega bráðnaði upp í manni, fyrir utan allt hitt lostætið.
Þeim Einhverfa leist ekkert á blikuna á tímabili og kom reglulega niður til að tékka á mannskapnum. Tók nokkrar vel valdar leikfimiæfingar á stigapallinum og hljóp svo upp aftur.
Gelgjan hafði félagsskap í Viðhenginu og þær læddust hér með veggjum, földu sig inn í þvottahúsi og lágu á hleri á meðan við tókum á móti gestunum í forstofunni og á einhverjum tímapunkti læstu þær forstofuhurðinni svo að síðbúnir gestir máttu berja allt að utan til að komast inn í gleðskapinn. Þær sem sagt höguðu sér nákvæmlega eins og stelpur gera sem eru á mörkum þess að komast á gelgjuna.
Unglingurinn hagaði sér eins og fullorðin manneskja, sá að mestu um einhverfa bróðir sinn og minglaði við gestina eins og þaulvanur selskapsherra.
Við Bretinn höfðum planað að reyna að fá Þann Einhverfa til að sofa í okkar herbergi til að hægt væri að loka inn til hans (það vantar enn hurðina á hans herbergi) en hann tók af okkur völdin. Hann kom sér sjálfur í rúmið sitt og steinrotaðist í öllum látunum. Það var ekki fyrr en síðustu gestirnir voru farnir og búið að slökkva á músíkinni, sem hann rumskaði aðeins en sofnaði fljótlega aftur.
Sérlega vel heppnað kvöld. Og enn erum við að borða Indverskan mat.
------
Bókin mín kemur úr prentun á fimmtudag og vonandi verður hún komin í allar bókabúðir fyrir helgina. Held að þeir byrji á tilboðsverði svo nú er um að gera að grípa tækifærið....
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
Laugardagur, 25. október 2008
Bretinn er fimmtugur í dag
say no more...
Hér er hann. Þessi fimmtugi. Ásamt elsta barninu sínu honum Daníel.
Myndin er tekin á Englandi síðasta sumar.
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2019
2018
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- solskinsdrengurinn
- skrifa
- jenfo
- gelgjan
- annambragadottir
- marzibil
- brynja
- hk
- gurrihar
- lehamzdr
- katlaa
- eddaagn
- jahernamig
- hronnsig
- martasmarta
- katrinsnaeholm
- palmig
- ipanama
- hallarut
- tommi
- ktomm
- poppoli
- svavaralfred
- kollajo
- bergruniris
- bene
- bennason
- jensgud
- solrunedda
- heidathord
- ringarinn
- tofraljos
- kjaftaskur
- ormurormur
- zeriaph
- unns
- ellasprella
- hjolagarpur
- salka
- nonniblogg
- markusth
- rebby
- birna-dis
- garun
- landsveit
- olofannajohanns
- brylli
- evaice
- ingolfurasgeirjohannesson
- rustikus
- singer
- jaxlinn
- krossgata
- mummigud
- blekpenni
- gerda
- baddahall
- holi
- grafarholt
- gudnylinda
- thegirl
- gretarorvars
- thordis
- herdis
- mammzan
- sigthora
- bet
- saedis
- emmgje
- sigurjonsigurdsson
- janus
- astromix
- overmaster
- thorasig
- gudni-is
- sunnadora
- kjarrip
- 810
- gislihjalmar
- beggagudmunds
- sirrycoach
- betareynis
- ilovemydog
- rannveigmst
- stormadis
- perlan
- bergdisr
- skondrumamma
- snar
- stormur
- ljonid
- raggipalli
- hjordiz
- almaogfreyja
- katja
- lady
- sigrunfridriks
- zunzilla
- olinathorv
- bidda
- smjattpatti
- jogamagg
- disadora
- harpao
- fuf
- alexm
- larahanna
- juliaemm
- saemi7
- gudrunmagnea
- svala-svala
- kari-hardarson
- hlf
- hlinnet
- annagisla
- einari
- lena75
- hector
- saethorhelgi
- ernafr
- birnarebekka
- heidistrand
- kerla
- hannamar
- jara
- supermamma
- monsdesigns
- malacai
- solveigth
- siggathora
- senorita
- snjaldurmus
- photo
- stingi
- pollyanna
- steingerdur
- icekeiko
- majaogco
- skordalsbrynja
- danjensen
- lilly
- heidabj
- omarpet
- helgamagg
- nori
- jamesblond
- gretaulfs
- rattati
- hogni
- ragjo
- kolgrima
- skjolid
- hugrunj
- egill75
- amman
- liljabolla
- asgerdurjoh
- okurland
- rannthor
- svalaj
- siggith
- vefritid
- zsapper
- laz
- graceperla
- rannug
- agbjarn
- alliragg
- fjarki
- birtabeib
- roslin
- lindape
- rosa
- tinnaeik
- muszka
- krummasnill
- lindalea
- fjola
- solan
- scorpio
- evabenz
- isleifure
- karitryggva
- ellasiggag
- beggita
- ollabloggar
- madddy
- songfuglinn
- emm
- lindagisla
- turettatuborg
- einarsigvalda
- huldadag
- siggasin
- credo
- loathor
- carma
- komaso
- fifudalur
- rosabla
- lillagud
- eythora
- griman
- eyrunelva
- svanurg
- strumpurinn
- godihundur
- hallidori
- annriki
- sibbulina
- helgurad
- huldumenn
- julianamagg
- berglindnanna
- huldam
- joik7
- venus
- osland
- liso
- amaba
- asako
- hryssan
- mammann
- leyla
- gunnarggg
- sigrunzanz
- fanneyunnur
- himmalingur
- helgabst
- bostoninga
- christinemarie
- jea
- elisabeta
- perlaoghvolparnir
- meyjan
- wonderwoman
- coke
- ragnhildurthora
- gullilitli
- tommi16
- ea
- mariaannakristjansdottir
- einarorneinars
- lindalinnet
- joninaros
- reynzi
- rosagreta
- lauola
- reynir
- elinora
- ma
- olapals
- bestalitla
- kolgrimur
- handtoskuserian
- vonin
- kaffi
- einarhardarson
- gleymmerei
- brandarar
- alf
- hreinsamviska
- litlakonan
- lucas
- reisubokkristinar
- jgfreemaninternational
- olofdebont
- thjodarblomid
- vilma
- ollana
- gudrununa
- holar
- gotusmidjan
- huldastefania
- mubblurnar
- bjarnihardar
- vild
- skrudur
- jyderupdrottningin
- sifjan
- letilufsa
- hrundt
- robbitomm
- brudurin
- anitabjork
- blindur
- astabjork
- bailey
- gattin
- draumur
- einhugur
- trygg
- eskil
- evags
- gudrunkatrin
- gudrunss
- nf26b
- topplistinn
- helgaas
- helgatho
- hildurhelgas
- drum
- innipuki
- ingal
- kikka
- astroblog
- oliskula
- joklamus
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- kariaudar
- vga
- thorolfursfinnsson
- motta