Leita í fréttum mbl.is

Dagur 1 í sumarfríi - Ég keypti mér skó í gær

 

Mánudagur 29. júní 2009

1. dagur sumarfrís. Kerlingin eyddi peningum. Karlinn fór í golf.

 

Ég keypti mér skó í gær...................................................................

Segir það ekki allt sem segja þarf um gærdaginn? Það gefur auga á leið að hann var vel heppnaður.

Friis & Company, Kringlunni, bauð mér (ásamt heilum helling af öðrum dömum) að koma og versla eftir lokun. Og ég mætti á svæðið með einbeittan brotavilja, þ.e. að eyða peningum.

Að máta skó og skart með hvítvínsglas í annarri hönd, er ekki amalegt. Og vökvinn gerir það að verkum að kortið er rétt fumlaust fram og án alls samviskubits.

Svo vaknar maður bara upp með eyðslu-timburmenn sem rjátla af manni og eru horfnir með öllu upp úr hádegi.    ....þar til Visa-reikningurinn dettur inn um lúguna. 

En það breytir því ekki að eftir stendur gordjöss par af skóm sem eru mínir. MÍNIR!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Friis og Co veit ég ekki hverjir eru en flottir á því.  Ég keypti mér líka skó í gær allsgáð!  Enda borgaði ég slikk fyrir eða rétt um 20.000.- ísl. það þykir gefið hér í Evrópunni.

Ía Jóhannsdóttir, 30.6.2009 kl. 16:14

2 Smámynd: Ómar Ingi

Skólaus getur dísin ekki verið

Ómar Ingi, 30.6.2009 kl. 17:13

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ía mín. Friis & co er yndisleg lítil búð í Kringlunni. Getur gert hverja konu brjálaða að koma þar inn og kíkja á skóna, skartið og töskurnar.

Ommi. Þar rataðist þér loks rétt orð á munn

Jóna Á. Gísladóttir, 30.6.2009 kl. 18:07

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

..og bæði skórnir og skartið algjörlega toppurinn.

Gaman að hitta þig eftir svona langan tíma elsku vinkona.

Nú verður styttra á milli.

Ef þú átt pott (ég veit átt hann ekki) en ef þá láttu renna í, kem í næsta sólskini.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2009 kl. 18:19

5 Smámynd: Ívar Pálsson

Jóna Á. Marcos, I.hluti! Nú vantar bara skóskápana.

Ívar Pálsson, 30.6.2009 kl. 22:05

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Vá, flott á því, hvar er þessi búð segirðu?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 1.7.2009 kl. 00:12

7 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

..... hefði farið í golf með karlinum Jóna fyrir hádegi, keypt skóna eftir hádegi.  Friis er uppáhaldstöskubúð dóttur minnar,  þó hún hafi ekki búið á Íslandi síðan 8 ára.  Svo þessi litla búð er spes.   Gleðilegt sumarfrí.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 1.7.2009 kl. 07:34

8 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

mmm heppin, ég er reyndare sjálf ekki skó manneskja, ef  ég gæti þá mundi ég labba á tánum allstaðar,líka úti

Guðríður Pétursdóttir, 1.7.2009 kl. 11:41

9 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 1.7.2009 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband