Leita í fréttum mbl.is

I'm still alive in case somebody is interested

 

Hér er allt við það sama. Tóm helvítis hamingja. Eða þannig.

Fór í fertugs afmæli hjá Bakaranum á föstudag. Varð eitt af þessum partýum sem maður endurlifir í huganum aftur og aftur... brosir breitt eins og bjáni út í loftið við að rifja upp hinar og þessar uppákomur.

Búin að taka nokkur símtöl með vinkonunum og hlæja hrossahlátri af upprifjunum.

Bretinn yfirgaf samkvæmið um þrjúleytið um nóttina, ásamt fleira fólki sem kunni sig. Ég kom syngjandi glöð heim klukkan sjö um morguninn.

Jebb. Eitt af þessum partýum þar sem maður opnar augun morguninn eftir (seinnipartinn) og það fyrsta sem gerist er að það breiðist bros yfir andlitið á manni. Kannist þið við þetta?

Ég er dugleg í ræktinni þessa dagana. Ætla mér að halda því þannig. Fer engum hamförum en mæti hvenær sem ég get mögulega komið því við.

Ég hins vegar geysist lítið um ritvöllinn um þessar mundir. Hef á tilfinningunni að ég sé komin með örlítið ofnæmi fyrir tölvuskjám. Ég hef litla orku til að tala í símann heima hjá mér á kvöldin, eftir að hafa setið með heyrnartól á eyrunum allan daginn í vinnunni. Sennilega er það svipað með tölvuskjáinn. En vonandi er þetta aðeins bráðaofnæmi sem verður skammvinnt.

Við erum að sigla inn í sumarið. Framundan eru vorpróf hjá Gelgjunni og tónleikar hjá Unglingnum í FÍH.

Unglingurinn ætlar að heimsækja mömmslunar sína í Sverige í sumar, Gelgjan mun sækja sitt árlega reiðnámskeið sem er henni ómissandi og Sá Einhverfi fer í sínar heittelskuðu sumarbúðir í tvær vikur. Ég verð að viðurkenna að eyrun á mér eru farin að þrá þá hvíld. Hann er svo hávær blessaður þessa dagana. Allir karakterar í bíómyndum og leikritum, sem hann tekur ástfóstri við, eru óþekku og háværu börnin og hér heyrist stundum ekki mannsins mál þegar Lotta, Emil, Halla hrekkjusvín, Nenni níski og Maggi mjói eru öll saman komin í stofunni hjá mér. Verst þykir mér þó þegar Sá Einhverfi breytist í Sollu stirðu þegar hún er að reyna að ná í tærnar á sér... þau öskur nísta í gegnum merg og bein.

Litli Rasistinn er að íhuga að heimsækja klakann ásamt frænku gelgjunnar en þær eru jafnaldrar og ná afskaplega vel saman og þetta verður mjög skemmtilegt fyrir þær ef af verður.

Svo held ég að þetta sumar verði jafn heitt og sumarð 1991.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Bíddu nú við hvernig var sumarið '91 ?., var það heitt, var það rigningarsumar, eða ?!?!?!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 5.5.2009 kl. 01:06

2 Smámynd: Ómar Ingi

Love U 

Vertu nú duglegri að koma með færslur eða lofaðu okkur nýrri jólagjöf , já nýrri bók : )

Ómar Ingi, 5.5.2009 kl. 02:13

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þú þarft að vera löt smá tíma hreinsaðu út allt þetta gamla sem inni í þér býr og byrjaðu upp á nýtt.
Ljós og orku færðu frá mér
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.5.2009 kl. 07:42

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Blessuð, þú hér?  Hehe.

Gaman að þessu.  Ég hélt að þú værir flutt úr landi.

Knús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.5.2009 kl. 09:55

5 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Gaman að heyra frá þér. En satt að segja eru fleiri latir við skriftir þessa dagana. Ég spái að sumarið verði gott, það kemur svo í ljós hvort ég er sannspá. Kærleikskveðja

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 5.5.2009 kl. 11:29

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ skvís. Gaman að rekast á þig, reyndar hef ég sjálf verið löt, lofaði bloggfríi sem ég svo þverbraut fyrir kosningar og núna er kallinn í rúminu svo ég fer lítið og þá er gott að blogga.  ´Kær kveðja á þig og þína og njóttu sumarsins.  það verður örugglega hlýtt

Ásdís Sigurðardóttir, 5.5.2009 kl. 13:46

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hver man ekki eftir sumrinu 1991..

knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 5.5.2009 kl. 16:57

8 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

oh ég vona það líka..

En sumarið er allavega alveg að verða komið.. falleg kvöld birtan hressir mig svo mikið, og já ég er líka dugleg að hreyfa mig,fer reyndar ekki í ræktina en er að gera pilates bara heima..

Vonandi hvílast eyrun þín svo í þessar tvær vikur, þú nærð þá ofur djúp svefni og getur notið the silence of the lazytown

Guðríður Pétursdóttir, 5.5.2009 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband