Leita í fréttum mbl.is

Nokkur atriði um mig

Ég var klukkuð af meyju og Elísabetu og skorast ekki undan því. Enda fátt sem mér þykir skemmtilegra en að tala um sjálfa mig.

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina

  • Í Miklagarði sáluga. Þar steig ég mín fyrstu skref á vinnumarkaðnum. Á sérstaklega góðar og skemmtilega minningar um þann stað og vinnufélagana.
  • Á smáauglýsingadeild DV. Þegar smáauglýsingar voru smáauglýsingar og við rúluðum á markaðnum. Þegar Leoncie var upp á sitt besta og átti keppinaut sem hét Bonnie (eða var það Bonny?). Þegar bannað var að auglýsa eftir ríkum manni í einkamálaauglýsingunum en ''fjárhagslega sjálfstæður maður'' var í lagi.
  • Á Aðalstöðinni þegar bræðurnir Þormóður og Baldvin Jónssynir réðu þar ríkjum og gamla húsið í Aðalstrætinu var mitt annað heimili og ég þekkti hvern krók og kima og vissi hvar ég mátti ekki stíga á gólfið því þá færi ég niður úr því.
  • Á auglýsingadeild Bylgjunnar og Stöðvar 2 þegar fyrirtækið óð í peningum og trítaði starfsfólkið sitt

 

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á  (Erfitt að velja 4)

  • Full Monty (og margar aðrar svona litlar, sætar, breskar bíómyndir)

  • Something gotta give (þú veeeerður að sjá þessa)

  • Four weddings and a funeral

  • As good as is gets

 

Fjórir staðir sem ég hef búið á

  • Raufarhöfn

  • Seyðisfjörður

  • Hönefoss Ringerike, Norge

  • Reykjavík (amma og afi komu mér út úr krummaskuðunum)

  •  

  • Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar

  • Friends (ójá, þeir eru ekki dauðir enn)

  • House (hann er svo yndislega andfélagslegur)

  • So you think you can dance (mér finnst bara svo gaman að horfa á fallega líkama hreyfa sig á svo þokkafullan hátt. Kannski vegna þess að þetta hefur mig alltaf langað til að geta þetta sjálf)

  • King of Queens (finn til svo mikillar samkenndar með Carrie þegar henni langar að lúskra á kallinum)

  • Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum

    • Spánn
    • England 
    • Danmörk
    • Sauðárkrókur

  Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg

  • mbl.is
  • simaskra.is
  • landsbankinn.is - gengi
  • og fjöldinn allur af cargo tracking síðum: dhl, ups, Lufthansa, Transborder....

Fernt sem ég held uppá matarkyns

  • Kjúklingur (endalaust hægt að éta kjúlla)
  • Fiskur fiskur fiskur
  • Spari Indverskur a la Bretinn
  • Lasagne a la Ellisif (sem mér tekst bara þokkalega að búa til sjálf og er uppáhalds matur Þess Einhverfa)
  • Og ég verð að bæta við: grilluð pizza a la Ásta Birna (gleymi þessari aldrei) og rjúpur a la Anna frænka með sósu a la Arnór.... OMG ég var búin að gleyma blómkálssúpunni hans Bigga hennar Önnu systur....

 

  Fjórar bækur sem ég hef lesið oft

ég er ekki stolt af því en einu bækurnar sem ég hef lesið margoft eru eftir Bodil Forsberg, Barböru Cartland og Else Marie-Nohr (ég trúi því ekki að ég muni þessi nöfn) og þetta var þegar ég var á aldrinum 9-12 ára

  • og svo bækur sem ég las fyrir Gelgjuna hérna í denn

Fjórir bloggarar sem ég klukka  

Jenfo því ég veit hún hatar svona leiki en elskar mig svo mikið að hún fyrirgefur mér

Ívar því  hann er ekki nógu duglegur að blogga um sjálfan sig og er held ég alveg búinn að gleyma rithöfundarhæfileikum sínum. 

Gunnar Svíafari því ég hef áhuga á því að vita hvað hann gerir á milli þess sem hann hjálpar mér með tæknileg atriði á blogginu og hannar toppmyndir á síðuna mína

Högni því hann er alltaf svo góður við mig


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Á Aðalstöðinni hefur þú sennilega unnið með frábærri konu sem heitir Guðrún Lilja Ketilsdóttir og er skólasystir mín frá Laugarvatni.  Og annarri líka frábærri sem bloggar og heitir Katrín Snæhólm.  Við unnum saman á Útvarpi Rót.  Hún vinnur núna á Útvarpi Sögu.

Jens Guð, 9.9.2008 kl. 00:44

2 Smámynd: Hulla Dan

Mig langar óskaplega í uppskrift af lagsagne alaellesif, elska bara lagagne og er að verða leið á mínu hehe. Ef þú vildir vera svo væn

Og svo

Hulla Dan, 9.9.2008 kl. 00:50

3 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ó mæ god og ég sem er félagslega vanþroskaður Jóna og fæddur með alzhamer. Ég hefði betur slept því að vera að þvælast á bloggið.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 9.9.2008 kl. 01:20

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Uppáhaldsbíómyndirnar mínar eru þarna allar.

Gat ekki klárað að lesa færsluna því ég missti sjónina um leið og ég kom að þeim sem þú klukkar.

Hvíl í friði.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.9.2008 kl. 01:21

5 Smámynd: Ívar Pálsson

Takk fyrir skemmtilegar færslur og að muna eftir pínulitla alter- egóinu mínu, sem heldur einstaka sinnum á blekpenna á helgarmorgni og horfir út á sjóinn. Það verður þá oftar, amk. er þá einn lesandi kominn!

Ívar Pálsson, 9.9.2008 kl. 08:29

6 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Takk fyrir þetta Jóna - Núna veit ég nákvæmlega hvað ég ætla skrifa um á sunnudaginn.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 9.9.2008 kl. 10:29

7 Smámynd: Ómar Ingi

Það var nú gaman að vinna í gamla húsinu á Aðalstöðinni , en ég var nú meira á efri hæðinni

Ómar Ingi, 9.9.2008 kl. 11:58

8 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þetta er fróðleg lesning.

Helga Magnúsdóttir, 9.9.2008 kl. 12:20

9 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Varst þú ekki í grænmetinu í Miklagarði?

Ég var í unnu kjötvörunum. Það var afskaplega gefandi að þræða skinku- og hangikjötsbréfin upp á pinna.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 9.9.2008 kl. 12:36

10 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

híhí ég klukkaði þig nú líka :-) gaman að lesa svörin þín, en skemmtilegast fannst mér að sjá SAUÐÁRKRÓKUR!!! enda minn fæðingar og uppvaxtarstaður :-)

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 9.9.2008 kl. 14:38

11 identicon

Þessi Guðrún Lilja Ketilsdóttir sem Jens Guð talar um heitir nú alveg ábyggilega Guðrún Björg Ketilsdóttir og er oft kölluð Lilla, allavega vann hún lengi á Aðalstöðinni. Vildi bara benda á það úr því að ég rakst hér inn og það vill svo til að Lilla þessi er föðursystir mín.

Elínborg (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 16:00

12 Smámynd: Sigríður Þórarinsdóttir

Gaman að þessu

Sigríður Þórarinsdóttir, 9.9.2008 kl. 17:14

13 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Habbla ha

Kjartan Pálmarsson, 10.9.2008 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 1640367

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband