Leita í fréttum mbl.is

Blátt áfram

 

Ekkert þykir mér viðurstyggilegra í þessum heimi en kynferðisleg misnotkun á börnum. Ekkert! Undir engum kringumstæðum á gerandi slíks verknaðar sér málsbætur, að mínu mati.

Ekkert í þessum heimi gerir mig sorgmæddari en vissan um öll þau börn sem sæta slíku ofbeldi og geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Jafnvel svikin af þeim sem þau elska mest.

Ekkert fær mig til að finna til eins mikils vanmáttar og fréttir og frásagnir af litlum sálum sem hafa þurft að upplifa slíka martröð.

En ég þarf að yfirstíga vanmáttarkenndina og trúa því að ég geti lagt lóð á vogarskálarnar. Við getum það öll. Með því að hafa augu og eyru opin. Látum okkur málið varða. Tökum þátt í að opna umræðuna. Tölum ofbeldið í hel í stað þess að þegja þunnu hljóði og leyfa meininu að vaxa og dafna.

Verum óhrædd að tala við börnin okkar. Notum réttu orðin. Verum opinská. Að fræða börnin okkar og kenna þeim að þau hafi fullan umráðarétt yfir eigin líkama, er besta vörnin þeirra.

Í gær fékk ég þessa tilkynningu senda í tölvupósti. Ég hvet alla til að dreifa þessu á þann hátt sem þeir best geta; á blogginu, í fjölmiðlum, á netinu, eða bara hvernig sem er:

 

FRÁ BLÁTT ÁFRAM.. samtökum.

 

Kæri vinur,
It is important to show children that not all adults are caught up in the conspiracy of silence!

Bið þig að senda þetta áfram á þinn vinahóp og spyrja hvort þau vilji hafa áhrif á hvort börn verði fyrir kynferðislegu ofbeldi á Íslandi ??

Eftir fyrstu auglýsingaherferð Blátt áfram, kom til mín kona með tárin í augunum og sagðist vilja þakka fyrir að hafa séð auglýsinguna í sjónvarpinu. Sat og horfði á með 11 ára gamalli dóttur sinni sem brotnaði saman og sagði frá kynferðislegu ofbeldi.

Önnur ung stúlka sagði frá og kom þá í ljós að sá maður var að beita margar ungar stúlkur kynferðislegu ofbeldi og fékk hann dóm í kjölfarið.

Þetta hefur áhrif !

1 af hverjum 5 stúlkum og 1 af hverjum 10 drengjum verða fyrir kynferðislgu ofbeldi fyrir 18 ára aldur(Hrefna Ólafsdóttir 2002)

Styrktartónleikar verða haldnir á fimmtudaginn til að safna fyrir birtingu á nýrri auglýsingaherferð, átakið „Verndarar barna“

Blátt áfram þarf á þinni hjálp að halda, komdu og hlustaðu á eina af þínum uppáhaldshljómsveitum og styrktu gott málefni.

 

Styrktartónleikar 8 maí 2008
Stórtónleikar á NASA

 

Styrktar tónleikar á NASA 8 maí 2008.

12 af bestu hljómsveitum landsins koma fram

Húsið opnar klukkan 19:00 og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00

Fram koma:

Nylon, Sálin hans Jóns míns, Ný Dönsk, Ljótu Hálfvitarnir, Buff, Á móti sól, Merzedes club, Rokksveit Rúnars Júlíussonar, Einar Ágúst, Brain Police, Sverrir Bergmann, Bermuda

Miðaverð er 2000 kr og rennur allur ágóðinn til Blátt áfram.

Safnað er fyrir nýrri auglýsingaherferð „Verndarar barna“

Miðasala á Pizzo Pizzería á Grensásveg !!

Blátt áfram þakkar fyrir þetta frábæra framtak!

 
 
Bestu kveðjur,
Sigríður Björnsdóttir
Blátt áfram!
 
 
 
Kringlunni4-6, 6. hæð, 103 Reykjavík
Sími GSM (mobile): 893-2929, Netfang (e-mail):   sigga@blattafram.is
Heimasíða (homepage):   www.blattafram.is   Forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.5.2008 kl. 00:54

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 7.5.2008 kl. 00:58

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Þetta hefur hér með verið áfram sent.

Ég "já" allt sem að þú sagðir hér að ofan

Sporðdrekinn, 7.5.2008 kl. 01:59

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 7.5.2008 kl. 02:02

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

  margfalt heyr heyr.

María Guðmundsdóttir, 7.5.2008 kl. 06:59

6 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Svanhildur Karlsdóttir, 7.5.2008 kl. 08:26

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 7.5.2008 kl. 08:33

8 Smámynd: Dísa Dóra

Mjög svo sammála þessu pistli þínum

Dísa Dóra, 7.5.2008 kl. 08:53

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 7.5.2008 kl. 10:21

10 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Það er engin afsökun til,  ekkert sem réttlætir að barn þurfi að þola afbrigðilegar langanir fullorðins fólks, sama hvernig æska gerandans hefur verið.

Ég fyllist hatri og heift þegar ég heyri um svona mál, ég tárast yfir skelfingu barnsins sem ekki veit af hverju þetta er að gerast, af hverju þessi maður, sem tilheyrir jafnvel fjölskyldunni, gerir svona hluti.

Hvernig er hægt að gera svona hluti við saklaust barn, jafnvel eigið barn?

Rúna Guðfinnsdóttir, 7.5.2008 kl. 10:34

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 7.5.2008 kl. 10:58

12 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 7.5.2008 kl. 11:13

13 Smámynd: Elinóra Inga Sigurðardóttir

Það er ekkert sem afsakar kynferðislega misnotkun á börnum.
Blátt áfram og Stígamót eiga HRÓS skilið fyrir sína vinnu:

Elinóra Inga Sigurðardóttir, 7.5.2008 kl. 11:27

14 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 7.5.2008 kl. 12:28

15 identicon

Sæl Jóna,

Ég má til með að segja þér hvað mér fynnst hausmyndin þín flott. Þú ert alveg æðislegur bloggari , svo gaman að lesa bloggin þín

Elísabet Sigmarsdóttir (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 12:39

16 identicon

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 14:53

17 Smámynd: Tiger

  Við verðum að halda fast í trúnna á það góða í mannkyninu, en samt verður að viðurkennast að undir mörgum steinum liggja rotin eintök sem svífast einskys í því að svala óendanlega ljótum fýsnum sínum.

Ég er svo mikið sammála þér með að mér finnst ekkert, alls ekkert, eins viðurstyggilegt og fólk sem misnotar sér stöðu sína og styrk til að fá svölun fyrir brenglun sinni - á börnum eða þeim sem ekki geta eða kunna að verja sig. Óhugnanlegt en raunverulegt samt því miður - að hellingur af fólki er sjúkt á þennan veg.

Ég myndi aldrei nokkurn tíma hlýfa eða þegja yfir svona grimmum verknaði, alveg sama hver ætti í hlut. Ég myndi aldrei líða neinum að misnota börn eða þá sem hafa ekki þroska eða vit til að verja sig. Hjálpi þeim sem slíkt myndi fremja ef ég kæmi þar að, þá myndi himin og jörð skjálfa vegna reiði minnar og hugsanlega myndi ég í framhaldi af því lenda á bakvið rimla, en það væri þess virði ef ég gæti bjargað lítilli saklausri sál frá slíkri grimmd.

Tiger, 7.5.2008 kl. 18:04

18 Smámynd: Jens Guð

  Mæl þú manna heilust.

Jens Guð, 7.5.2008 kl. 23:09

19 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Bergljót Hreinsdóttir, 7.5.2008 kl. 23:14

20 Smámynd: Erna

Stöndum saman hvar sem við erum gegn svona barnssálarmorðum. Kveðja til þín Jóna

Erna, 7.5.2008 kl. 23:44

21 Smámynd: Hulla Dan

Gæti ekki verið meira sammála.
Frábær samtök og ég vildi að ég gæti farið á þessa tónleika.

Kveðja frá Dk... Þar sem er bæðavej 24° og sól og fallega blár himinn. Fuglasöngur og suð í allvega flugum er hrikalega gott fyrir sálina.

Hafðu það sem allra best.

Hulla Dan, 8.5.2008 kl. 10:29

22 identicon

Ég er svo mikið sammála þér. Maður fyllist hryllingi þegar maður opnar blöðin og les en samt gott að þessi mál séu að líta dagsins ljós frekar en börnin kveljist ein. Við verðum að standa við bakið á þessum samtökum þau eru að gera góða hluti. Sat fyrirlestur hjá þeim í vetur og í dag ræði ég þessa hluti við alla sem heyra hvort sem þeir vilja eða ekki.  1 manneskja getur bjargað fullt af börnum með því að láta heyra í sér og fræða fólk.

Sirrý (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 10:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 1640369

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband