Leita í fréttum mbl.is

Andskotans djöfulsins helvítis helvíti

 

Þið fyrirgefið þó ég gerist ekki mjög málefnaleg. Hef ekki mikið meira að segja um þetta mál.

Það er endalaust verið að mismuna fólki.

 

Annars er ég bara fín.


mbl.is Fötluðum á sambýli gert að borga heimilistækin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Er þetta ekki dæmigert, ég skil vel að þú sért reið og ekkert skrítið við það.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.5.2008 kl. 10:43

2 Smámynd: M

Það er eitthvað meiriháttar mikið að forgangsröðuninni í þessu þjóðfélagi, gæti gubbað

M, 8.5.2008 kl. 10:43

3 identicon

Hér er sko talað á kjarnyrtri íslensku, og satt best að segja vel viðeigandi.

Allataf gaman að lesa þitt skemmtilega blogg.

Sigurlaug Gísladóttir (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 10:46

4 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Sammála, #*!=%$$&, !%&="$,

Þetta er í góðu samhengi við sparnaðaraðgerðir borgarstjórans sem kaupir ónýta skúra á hálfan milljarð, ræður afdankaðan poppara með munnræpu fyrir 900 þús á mánuði, heimtar að ríkið leggji borginni til 9 milljarða í óþörf Sundajarðgöng svo eitthvað af bullinu sé nefnt.

Hvað er hægt að kaupa mikið af uppþvottavélum fyrir 9 milljarða?

Svei, manni verður flökurt! 

Sveinn Ingi Lýðsson, 8.5.2008 kl. 10:55

5 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Vona að þeim svelgist svo illa á freyðivíninu í næsta kokteilboði þarna á Svæðisskrifstofunni að þeir skaði sig og þurfi á fokdýrum EKKI NIÐURGREIDDUM hjálpartækjum að halda!

Nei ég meina það! manni er svo gjörsamlega misboðið hvernig þegnunum er mismunað og farið er með almannafé í þessu landi að maður getur ekki á sér setið.

Það stefnir í siðrof þessa samfélags - mér líst ekki á þetta!

Soffía Valdimarsdóttir, 8.5.2008 kl. 11:02

6 Smámynd: Dísa Dóra

Hér var sko blótað í morgun þegar ég las þessa frétt.  Ótrúlegt alveg hreing að alltaf skuli vera tekið af þeim sem minna meiga sín og geta jafnvel ekki varið sig   Ætti að láta þessa stjórnmálamenn lifa af 120 þús krónum á mánuði í eins og ár eða svo og sjá hvort að ákvarðanir þeirra yrðu ekki aðeins öðruvísi eftir það.

Dísa Dóra, 8.5.2008 kl. 11:05

7 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Jóna mín.  Svona, svona. Einhvernveginn þarf að fjármagna kampavínið þegar skálað er fyrir opnun nýrra sambýla. Láttu nú ekki svona.

Kær kveðja, Björn bóndi.

Sigurbjörn Friðriksson, 8.5.2008 kl. 11:07

8 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

kannski jakob frímann geti lánað þeim fyrir þvottavél ... tja eða olís ?? alveg er ég búin að gefast upp á að lesa fréttir á þessu andskotans skítaskeri, það er allt að fara til fjandans og allir benda á hinn og enginn gerir neitt ... auglýsi eftir því hvað einntveir&geir ætlar að gera eftir fundinn fína um daginn, sennilega ekki neitt ...

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 8.5.2008 kl. 11:07

9 identicon

Hvað er eiginlega að ? var ekki í fréttum í gær að ónefndur maður væri með um 800.000 í laun þei væri nær að lækka hann í launum þessir andsk.... Og eyða í eitthvað sem væri sómi af.

jón þór (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 11:12

10 Smámynd: Hermann Karl Björnsson

ég segi nú bara eins og nokkrir @#!"$#!$%!"#!"

 ég skil ekki hvernig nokkrum manni dettur í hug að gera svona þar sem að örorkubætur eru ekki miklar og þær fara allar í nauðsynjar.

mér finnst að leigan sem að er borguð af þessu eigi að fara í endurnýjun á tækjum eins og uppþvottavél, þvottavél og þannig lagað en ekki bara beint í vasan á þeim sem á íbúðina.

þetta væri svosem eðlilegt ef að þetta væri vinnandi fólk en ekki fötluðu fólki sem getur ekki unnið mikið vegna fötlunar.

ég segi að þetta séi siðlaust. 

Hermann Karl Björnsson, 8.5.2008 kl. 11:12

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jakob Frímann gæti nú græjað upp eitt sambýli upp fyrir cirka ein mánaðarlaun......

Hrönn Sigurðardóttir, 8.5.2008 kl. 11:31

12 identicon

Heyri þið mig, það er ekki nóg með að þessir einstaklingar þurfi að borga svona, það er líka þannig að þau reka heimilið og ef það eru breytingar t.d fólk er að flytjast milli heimila og herbergi standa auð um einhvern tíma  þá borga þau meira í heimilishald því það deilist þá á færri hendur að borga. Þarna borðar starfsfólk frítt eða sko á þeirra kostnað, og yfirleitt eru allar sjónvarpsrásir keyptar hvort sem þau horfa á það eða ekki

Sissú (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 11:48

13 Smámynd: Kolbrún Jónsdóttir

Ætla svo sem ekki að tjá mig um þetta mál en vil þó koma fram einni leiðréttingu á framfæri til Sissúar,  það er ekki rétt að starfsfólk borði frítt á þeirra kostnað því að sambýlið fær fæðispeninga fyrir starfsfólk frá ríkinu sem renna beint til sambýlisins.

Ég á eftir að fylgjast með þessari umræðu áfram hjá þér Jóna mín, en auðvitað þætti mér skemmtilegra að lesa comment frá fólki sem er málefnanlegt og kemur ekki með fullyrðingar á borð við kokteilboð hjá Svæðisskrifstounni.  Ég hef unnið í fjölda ára hjá Svæðisskrifstofunni og hef aldrei vitað til að skrifstofan standi fyrir kokteilboðum.

Jóna.... ég mun koma aftur í Hólaberg í sumar og taka við starfi forstöðuþroskaþjálfa þar.  Þannig að við hittumst hressar í sumar og tökum stöðuna yfir góðum kaffibolla.

Kolbrún Jónsdóttir, 8.5.2008 kl. 12:25

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Helvítis, andskotan, djöfulsins, er bara nokkuð málfenalegt þegar tekið er tillit til aðstæðna á þessu guðsvolaða skeri.

Knús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.5.2008 kl. 12:27

15 Smámynd: Kolbrún Jónsdóttir

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/05/08/engar_breytingar_vardandi_kaup_a_heimilistaekjum/

Skv þessu er þetta svo bara eins og Viddi segir... allt á misskilningi byggt:) 

Kolbrún Jónsdóttir, 8.5.2008 kl. 12:53

16 identicon

Ég er að mörguleiti sammála því að það sé asnalegt að þau borgi þessa hluti en samt eðlilegt að mörguleiti að þau geri það. Þetta eru hlutir sem venjulegir leigendur borga venjulega það er uppþvottavél, ískápur, þottavél og þurkari ef þetta er inni þá er leiga mjög há sem er nú ekki á sambýlum. ca 11-20 Þ á mánuði.

Mér finnst hinssvegar asnalegt að íbúar þurfi sjálfir að borga viðhald á húsi því það gerir enginn eða fáir leigendur. Starfsfólk málar pallana sjálfir til að haldakostaði niðri og þau greiða mállinguna.  Íbúar borga sjálfir fyrir mállingu á herbergjum sínum svo dæmi séu nefnd.

Sirrý (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 15:50

17 identicon

Þetta er bara ósangjarnt Fatlaðir eiga að hafa sömu aðstöðu til húsnæðis og aðrir. En ég sé ekki mikla ástæðu til að vera reið á meðan við það sem ríkistjórnin er að gera.

Arnór Heiðar Benónýsson (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 14
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1639956

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband