Leita í fréttum mbl.is

Ég á stefnumót við Valdísi í fyrramálið

 

Ég átti skemmtilega stund með Valdísi Gunnarsdóttur, dagskrárgerðarmanni, í gær. Mikið afskaplega er gott að tala við þá konu. Ég er viss um að þegar hún fær leið á útvarpinu, snýr hún sér að sálfræðihjálp.

Um leið og ég settist á móti henni var eins og við hefðum þekkst frá örófi alda og bla bla bla... Hún fór létt með að rekja úr mér garnirnar og það er aldrei að vita hversu mikið af minni kolsvörtu fortíð verður afhjúpuð í þættinum hennar í fyrramálið NinjaW00t.

Nú er bara að vakna í fyrramálið, fá sér góðan kaffibolla og stilla á Bylgjuna klukkan 9.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

ég þarf að vakna, verð í vinnunni og hlakka til að hlusta.

Hafðu það gott Jóna mín ..knús

Ragnheiður , 12.4.2008 kl. 12:17

2 Smámynd: M

vúu ég mæti við tækið

M, 12.4.2008 kl. 12:17

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég var búin að heyra um þig á Bylgjunni og ég ætla að hlusta.

Góða helgi

Kristín Katla Árnadóttir, 12.4.2008 kl. 12:21

4 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Hey...snilld....verður spennandi....hlakka til að heyra í þér!

Bergljót Hreinsdóttir, 12.4.2008 kl. 12:21

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Frábært,þættirnir hennar Valdísar eru meiriháttar góðir,hlakka til að hlustaannars áttu notalega góða helgi,kv.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 12.4.2008 kl. 12:25

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Fékk meil frá Valdísi í morgun, til að minna mig á að þú yrðir á morgun.  Gettu hvort ég kveiki ekki á útvarpinu?

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.4.2008 kl. 12:59

7 Smámynd: Linda litla

Frábært, það verður gaman að hlusta á þetta. Þú ert bara orðin fræg, kemu í sjónvarpi og útvarpi.

Linda litla, 12.4.2008 kl. 13:02

8 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 tengi mig inná bylgjuna á netinu á slaginu 9  hlakka til ad heyra tháttinn eigdu góda helgi.

María Guðmundsdóttir, 12.4.2008 kl. 13:02

9 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

Ég sem hélt að þátturinn væri í beinni... en ég ætla samt að hlusta!

Rannveig Lena Gísladóttir, 12.4.2008 kl. 13:17

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jenný. Dugleg stelpa

Rannveig. Þátturinn er í beinni. En Valdís er pro manneskja og hittir viðmælendur sína líka fyrir þáttinn.

Jóna Á. Gísladóttir, 12.4.2008 kl. 13:39

11 Smámynd: Hildur

Oh ég heyrði einmitt af þessu um daginn - ætlaði sko að reyna að vakna!

Ég kíki oft hérna inn og hef gaman af;) 

Hildur , 12.4.2008 kl. 13:49

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Takk fyrir það Hildur.

Hallgerður. Þetta er afar áhugavert. Heitir maðurinn þinn Kristján? Ég leitaði í gagnabanka Önnu systur og hún segir mér að tengdapabbi þinn er sonur ''ömmu'' í Sandgerði.

Ég hef heyrt Önnu margoft tala um Unu óg Únna. Það er skömm af því að ég skuli ekki þekkja móðurfólkið mitt að norðan. 

Jóna Á. Gísladóttir, 12.4.2008 kl. 14:26

13 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þetta getur þú gert mér !

Hjálp, ég þarf að hlusta á Valdísi, viljandi...

Takk.

Steingrímur Helgason, 12.4.2008 kl. 14:32

14 Smámynd: Anna Gísladóttir

Ætli þetta finnist ekki á netinu seinnipartinn á morgun ?  Ég verð nefnilega að vinna í nótt og eflaust nýsofnuð þegar þátturinn byrjar ........

Anna Gísladóttir, 12.4.2008 kl. 14:42

15 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Steingrímur. Ég á von á að þér veitist mun erfiðara á hlusta á mig og mína karla-rödd og hrossahlátur. Svo er auðvitað on/off takki á flestum viðtækjum sem nota má ótakmarkað.

Jóna Á. Gísladóttir, 12.4.2008 kl. 14:46

16 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

ég og Flóki verðum vakandi,bíðum spennt

Guðríður Pétursdóttir, 12.4.2008 kl. 14:51

17 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég verð mætt við tækið kl: 09:00,  til að fylgjast með stefnumóti þínu við hana Valdísi, hún er algjör snillingur konan, og þú ert það líka stelpa. 

  Og saman efast ég ekki um, að þið munuð rúlla upp, og rassskella, þau stjórnvöld, sem standa að því að brjóta á börnum, í skjóli þess, að þau, geta ekki, varið sig sjálf.  Þið munuð sjá til þess, að landinn, fái að vita um þann rétt, sem börnin eiga nú þegar, samkvæmt lögum, en ekki hefur verið staðið við, síðustu ár. 

- Og þið skuluð, bjóða þeim, að forgangsraða fyrir þau, upp á nýtt, því það hefur sannast, að stjórnvöld, hvorki hjá ríki, né borg, eru ekki hæf til þess. 

Oh, hvað ég hlakka til að hlusta.  Held að ég baki  pönnukökur. GANGI ÞÉR VEL STELPA!  OG GÓÐA SKEMMTUN!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.4.2008 kl. 14:53

18 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Vá, hvað það verður gaman að hlusta á ykkur. Valdís var sko í "mínumbekk" þegar við vorum 13 og 14. Bið að heilsa henni. Heyrði einmitt viðtalið við Jennýju okkar, en á Netinu (svaf ... hmmm) og hafði mjög gaman af. Frábært, frábært!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 12.4.2008 kl. 15:01

19 Smámynd: Ómar Ingi

Valdís vinkona , ég verð að hlusta á ykkur

Ómar Ingi, 12.4.2008 kl. 15:40

20 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Má ekki missa af þessu en ef ég sef þetta af mér er þá ekki endurtekið efni?? viltu láta mig vita og gangi þér vel í baráttunni elsku Jóna.

Ásdís Sigurðardóttir, 12.4.2008 kl. 15:43

21 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

p.s. gaman að sjá þig efst á listanum í dag, þú trónir svo sannarlega á réttum stalli. Ég er stolt að geta sagt að ég sé vinkona þín   Best Friends 1 

Ásdís Sigurðardóttir, 12.4.2008 kl. 15:44

22 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Vakna, á sunnudegi, snemma. Hallgerður þú ert frábær það er ekki hægt að finna betra efni til að snúa umræðunni á vitrænni veg svo ég spyr bara líka, Jóna! áttu skyldfólk í Eyjum ? Ég veit svo sem ekki hvort það eru ákveðnar eyjar eða bara einhverjar eyjar enda skiptir það mig eingu máli svo fremi að við tölum ekki um það að vakna snemma á sunnudegi.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 12.4.2008 kl. 17:34

23 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Já ég ætla alveg örugglega að hlusta.

Eyrún Gísladóttir, 12.4.2008 kl. 17:47

24 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Nú er ég fegin tímamismuninum, mæti klukkan 11 hér við tölvuna, vona að tengingin verði eins og manneskja rétt á meðan. 

Ía Jóhannsdóttir, 12.4.2008 kl. 18:10

25 Smámynd: Halla Rut

Ég ætla sko að hlusta.

Halla Rut , 12.4.2008 kl. 18:17

26 Smámynd: Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Valdís er besta útvarpkona og ég hlusta á þáttinn hinna og geri á morgun

og Takk fyrir að vera bloggvinur síðan er flott

Guð blessi þig

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 12.4.2008 kl. 18:43

27 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Móðurfólkið að norðann  þessar eyjar eru þá sumsé ekki Vestmannaeyjar

Högni Jóhann Sigurjónsson, 12.4.2008 kl. 19:04

28 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Uppí rúmi með kaffibolla, vakna með Valdísi og Jónu.  Líst vel á það!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 12.4.2008 kl. 21:08

29 Smámynd: Heidi Strand

Ég ætla að hlusta á þennan þátt í fyrsta sinn í fyrramálið.

Heidi Strand, 12.4.2008 kl. 21:30

30 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Hallgerður ert þú gift Árna Pálssyni frá Raufarhöfn? Á ekki Una Kristjánsdóttir systir sem heitir Helga? Ég hef gaman að þessu bloggi því ég var að tala við pabba minn og ræða ættfræði og þá barst það í tal m.a. að Helga og Una væru systur en Önundur (Únni) er hálfbróðir þeirra og við erum þremenningar ég og Únni.

Jóna má ég spyrja hver er "amma´" í Sandgerði. Ég ætla að hlusta á þig í fyrramáli e.t.v. kemurðu inná ættir þína. Gangi þér æðislega vel kveðja Kolbrún frá Raufarhöfn (femingarsystir Árna Pálssona og Unu Kristjánsdóttur

Kolbrún Stefánsdóttir, 12.4.2008 kl. 21:33

31 Smámynd: Þóra Sigurðardóttir

Ég er næstum viss um að ég verð ekki vöknuð kl. 9 í fyrramálið því.. ég elska að sofa frameftir morgni um helgar. En ég lofa þér því að ég hlusta á viðtalið á netinu

Þóra Sigurðardóttir, 12.4.2008 kl. 21:35

32 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég heyrði auglýsinguna hjá henni í kvöld. Og auðvitað sagði ég pabba áður en hún var búin að nefna þig að þetta væri sko Jóna Á. Gísladóttir..
Ég verð vöknuð snemma í fyrramálið, aldrei að vita nema að maður stilli á bylgjuna til að heyra í þér

Róslín A. Valdemarsdóttir, 12.4.2008 kl. 21:57

33 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Er hægt að heyra í þér frá Svíþjóð?

Gunnar Helgi Eysteinsson, 12.4.2008 kl. 22:01

34 Smámynd: Hundshausinn

Getur verið að þú hafir þörf fyrir raunverulega "sálfræðiaðstoð"... Veröldin gefur jú mun meiri möguleika en virðist....

Hundshausinn, 12.4.2008 kl. 22:18

35 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

Vá gaman..ég ætla sko að hlusta,hlakka til....

Agnes Ólöf Thorarensen, 12.4.2008 kl. 22:22

36 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Ég mun hlusta. kv .

Georg Eiður Arnarson, 12.4.2008 kl. 22:41

37 Smámynd: Rósa Jóhannesdóttir

Geggjað. Gangi þér vel. Kv. Rósa

Rósa Jóhannesdóttir, 12.4.2008 kl. 22:45

38 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Já það er eins gott að þið verðið öll við útvarpið í fyrramálið. Það verður sko lesið upp. Merkt í kladdann.

Osa. Ég skil þig ekki alveg en jú ég þarf alveg örugglega á sálfræðiaðstoð að halda. Don't we all?

Þið þarna ættfræðingar Hallgerður, Högni og Kolbrún. Það var sko settur á símafundur á þessu heimili við Önnu systur og Íslendingabók. Við rugluðum þarna fram og til baka að skoða ættina af Melrakkasléttunni og augun voru komin í kross á endanum, hægra heilahvel yfir til þess vinstra osfrv. Við höfum ákveðið leggjast yfir ættfræði við fyrsta tækifæri og negla ættina hennar mömmu niður á blað. Erum gjörsamlega lost í þessu.

Jóna Á. Gísladóttir, 12.4.2008 kl. 23:00

39 identicon

Vá Jóna, verð að vakna til að hlust á ykkur. Gaman.....

Knús

Elísa (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 23:17

40 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Hlakka til að heyra í þér skvís, gangi þér vel!!

kveðja Elísabet

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 12.4.2008 kl. 23:29

41 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Það verður setið við tækið á morgun. Gangi þér vel.

Svava frá Strandbergi , 13.4.2008 kl. 01:06

42 identicon

Af hverju segir þú karla-rödd. Þú hefur alls ekki karlarödd. Ég hef fylgst með blogginu þínu og tekið eftir að eftir sjónvarpsviðtal þá fannst sumum skrýtið að heyra röddina á bakvið bloggið. Það er kannski útaf því að fólk hefur einhverja Barbie ímynd af þér (þeirra vandamál) en þú hefur akkúrat rödd sem passar við þinn persónuleika  einfaldlega ákveðna kvenlega rödd sem passar við sjálfstæða ákveðna konu.

Gangi þér vel.

Sólþóra (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 01:48

43 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Nú eru ekki nema rétt tuttugu minútur þar til þátturinn byrjar og ég er tilbúin..kaffið að hitna og ég sendi þér bara alla mina bestu orkustrauma og gangi vel hjá ykkur!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.4.2008 kl. 08:39

44 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

Ég sit núna spennt ..Bylgjan í útvarpinu...og það verður sko hlustað vel.

kv  

Ásta Björk Hermannsdóttir, 13.4.2008 kl. 08:48

45 Smámynd: Ragnheiður

Hjartans Jóna, ýmislegt hefur þú á samviskunni. Allur bloggheimur kominn á lappir eldsnemma til að hlusta

Bíð spennt...knús í bæinn

Ragnheiður , 13.4.2008 kl. 09:12

46 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Gangi þér vel í þættinum elsku siss

Love you ;)

Anna Margrét Bragadóttir, 13.4.2008 kl. 09:38

47 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Er að hlusta .... uffff

Upgrade your email with 1000's of emoticon icons

Kjartan Pálmarsson, 13.4.2008 kl. 10:28

48 identicon

Jóna

Ekki varstu að vinna í Miklagarði í kringum "84-85-86"?

Helga

Þuríður Helga (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 11:06

49 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

Mikið var gaman að fá röddina á bak við  andlitið þitt

Ég verð nú að segja það að ég bara grét þegar þið töluðuð um fjölskylduna þína 

á ykkur öll.

Og ég veit þá hvaða lesefni verður á mínum borðum um jólin. 

Ásta Björk Hermannsdóttir, 13.4.2008 kl. 11:33

50 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Upgrade your email with 1000's of emoticon iconsÉg hlustaði með ofur athygli á ykkur Valdísi! Frábært,skemmtilegt,athyglisvert,fræðandi og átakanlegt.

Takk fyrir stóðst þig vel.

Upgrade your email with 1000's of emoticon icons

Kjartan Pálmarsson, 13.4.2008 kl. 11:35

51 identicon

Kæra Jóna, var að hlusta, og þó að ég þekki bernsku þína og Önnu Margrétar, þá runnu tárin í stríðum straumi, svo sárt ,enn þið eruð duglegar og flottar, ný búin að finna systur þína aftur eftir ein 10 - 15 ár og ætla ekki að " týna henni aftur " Kv frá eyjum Inga Hanna. P. s. 'A góðan vin sem heitir Jón Einarsson og pabbi hans hét Einar Indriðason frá Raufarhöfn

Inga Hanna Andersen (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 11:38

52 Smámynd: Elísabet Sigmarsdóttir

Viðtalið var mjög gott , það snerti mig eins og greinilega fleiri þegar þið voruð að tala um bernsku þína. En ég gat líka hlegið með ykkur.

Ég sendi knús á þig og þína

Gangi þér vel í framtíðinni.

Elísabet Sigmarsdóttir, 13.4.2008 kl. 11:51

53 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Frábært viðtal við þig vá ég bara grét með ykkur Valdísi þegar þú talaðir um fjölskylduna þína ,.ú stóðst þig svo vel.

Kveðja Heiður. 

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 13.4.2008 kl. 11:51

54 identicon

Hæ Jóna

Við hjónin hlustuðum á þig í morgun og mikið voða þykir mér vænt um þig Jóna mín. Þinn gamli félagi Axel. 

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 11:53

55 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Fyrir þá sem misstu af viðtalinu á Bylgjunni er hægt að hlusta hér.

Líka er hægt að hlaða hlutunum þremur niður. Hægrismella á "hlusta hér" og velja "Save target as", velja möppu til að geyma í og vista. Endurtaka með annan og þriðja hluta. Viðtalið vistast í .mp3 formi.

Lára Hanna Einarsdóttir, 13.4.2008 kl. 12:16

56 Smámynd: Fríða Eyland

Heyrði seinnipartinn, þú stóðst þig eins og hetja eins og ég bjóst við, enda ert þú hetja,  takk fyrir mig.

Sólskinskveðjur

Fríða Eyland, 13.4.2008 kl. 12:19

57 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Vá, hjarta mitt er enn meyrt eftir viðtalið við þig Jóna. Bloggaði pinku um upplifun mína af því. Þú ert í einu orði sagt FRÁBÆR!  

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 13.4.2008 kl. 12:19

58 Smámynd: lady

það var virkilega gaman að hlusta á þig í viðtalinu hjá Valdísi í morgunn, þú varst eitthvað svo yfirveguð og örugg með þig það er ekki bara nóg að þú ert falleg þú hefur líka mjög fallega rödd,,svo  var líka gaman að heyra þegar þið voruð að ræða um að þú værir ekki feit     en ég hlustaði alveg heilluð hvernig  þú talaðir við Valdísi ,,já ég er sammála þér ef Valdís hættir með þáttin,,þá á hún heima sem sálfræðingur  en þú komst með svo skýr skilaboð Jóna mín,,ég óska þér og fjölsk innilega góða stund ,,,með bestu kv Ólöf Jónsd

lady, 13.4.2008 kl. 12:36

59 Smámynd: Linda litla

Viðtalið í morgun var gott, ég missti reyndar af byrjuninni var búin að gleyma þessu.

Linda litla, 13.4.2008 kl. 12:42

60 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Gleði og sorg sveifluðust sitt á hvað er ég hlustaði á ykkur kjarnakonurnar í þættinum hennar Valdísar.  Þið voruð frábærar !

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 13.4.2008 kl. 13:12

61 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það var virkilega gott að hlusta á þig Jóna.  Núna fékk ég loksins svar við við "sorglegu" færslunni þinni.  Ég gerði mér grein fyrir því á sínum tíma að þú varst að fjalla um raunverulegan atburð, sem hefði átt að greipast í undirmeðvitundina, en nú veit ég að þetta átti sér stað á þeim tíma sem ég bjó í Bretlandi.  Þessi færsla var ein af þeim fyrstu, sem ég las á blogginu þínu og ég hef verið dyggur lesandi síðan.

Það verður bara gaman og spennandi að fylgjast með rithöfundinum þér í framtíðinni.

Sigrún Jónsdóttir, 13.4.2008 kl. 14:08

62 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þú stóðst þetta með gæðum. Hlustaði á allt og er búin að lesa fallega færslu hjá bloggvini þínum um viðtalið sem er mjög góð færsla.

http://jogamagg.blog.is/

Edda Agnarsdóttir, 13.4.2008 kl. 14:46

63 identicon

Valdís er fín.Ég missti af þessu vegna anna.Messuferð á mínum bæ hehehehehe.Þú hefur eflaust rúllað þessu upp eins og öðru sem þú tekur þér fyrir hendur.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 14:53

64 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Frábært að hlusta á viðtalið við þig

Guðrún Þorleifs, 13.4.2008 kl. 15:15

65 Smámynd: M

Gaman að hlusta á þáttinn í morgun. Bæði tilfinningaríkur og skemmtilegur

Kær kveðja M 

M, 13.4.2008 kl. 15:29

66 identicon

Er hægt að hlusta á netinu?

kv.

kbh

Katrin (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 15:35

67 Smámynd: Halla Rut

Ég var að hlusta á þáttinn núna (replay) en maðurinn minn var aktívur í morgun svo ég fékk að sofa.

Í byrjun viðtalsins þá vissi ég ekki af því fyrr en maðurinn minn hnippti í mig og spurði; af hverju ertu að grenja? Ég vissi ekki af því að tárin runnu niður kinnar mér. Það var sérstaklega örlög bróður þíns og auðvita ykkar allra. En þvílík átök og missir.  

Þú ert stórkostleg manneskja og þú þekkir sjálfa þig svo vel en það er einn besti kostur sem nokkur manneskja getur haft. 

Halla Rut , 13.4.2008 kl. 16:09

68 Smámynd: Halla Rut

Það er hægt að hlusta hér: http://www.bylgjan.is/?PageID=1901

Halla Rut , 13.4.2008 kl. 16:10

69 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Missti af þessari færslu í gær. Ætla að hlusta á netinu þegar ég kem heim úr vinnunni í kvöld.

Helga Magnúsdóttir, 13.4.2008 kl. 16:42

70 identicon

Ég hlustaði á þig á Bylgjunni í dag og fannst þú standa þig með prýði. Ég man atburðinn með brunann eins og gerst hafi í gær, ég er fædd og uppalin á Seyðisfirði og passaði ykkur nokkrum sinnum að kvöldi til.

Sissú Hilmarsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 17:32

71 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Þetta var frábær þáttur hjá ykkur.

Steingerður Steinarsdóttir, 13.4.2008 kl. 17:43

72 identicon

Viðtalið snart jafnvel steintröllin í fjöllunum...kv gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 17:54

73 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Takk fyrir þáttinn í morgun Jóna það var virkilega gott að hlusta á þig,og þú komst mjög mörgu góðu til skila.  Það hljóta margir farið að hugsa eftir að hafa hlustað á þig.   Takk fyrir mig..

Einar Vignir Einarsson, 13.4.2008 kl. 18:28

74 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Var vöknuð og búin að kveikja en Valdís náði að svæfa mig aftur með hugljúfum tónum....

...hlustaði svo á netinu í dag

Hrönn Sigurðardóttir, 13.4.2008 kl. 20:07

75 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Það var yndislegt að heyra rödd þína, sögu þína og að ógleymdum húmornum þínum. Þakka fyrir mig

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 13.4.2008 kl. 20:12

76 identicon

Þátturinn í morgun var alveg frábær, ég hlusta alltaf á hana Valdísi á sunnudagsmorgnum, gæðaþættir!  Þú stóðst þig vel Jóna og ert örugglega ekkert feit .... ... en það skiptir svo sem engu máli, þú ert svo innilega einlæg og góður penni og það skiptir máli ....

Maddý (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 21:03

77 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Fallega Jóna!

 

Hjartans þakkir fyrir heiðarlegt og notalegt viðtal hjá henni Valdísi í morgun.

Það var mjög þægilegt og áhugavert að hlusta á þig og þú gast bæði komið tárunum til að renna og eins hlátrinum til að klingja!

 

Takk fyrir það!

Bergljót Hreinsdóttir, 13.4.2008 kl. 22:02

78 identicon

Jóna mín, Jóna mín.

Þetta var skemmtileg viðtal, þú alveg jarðtengd og eðlileg - hvurnig ferðaðessu?

 Gaman að heyra af Tomma, hann er gamall skólafélagi að norðan. Greyið skilaðu kveðju til hans - Hermanns-kveðju :)

Sofðu rótt fallega kona.

kbh

Katrín Brynja (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 22:53

79 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Jóóóna þóó!

Heyrðu, sagðiru ekki kl. 9? Ég beið spennt eftir þér, en svo þegar ég var að koma á æfingu, þá varstu að koma inn í stúdíóið!

Pabbi bjargaði mér, sagði að ég gæti hlustað á upptöku bara, gaman, gaman!

Ég er að hlusta núna, þú ert FLOTT KONA!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 13.4.2008 kl. 23:06

80 Smámynd: Gunna-Polly

er að hlusta núna , hlátur og grátur í bland frábært viðtal

Gunna-Polly, 13.4.2008 kl. 23:16

81 Smámynd: Steingrímur Helgason

Já, Jóna, ég 'dánlódaði' þessu viðtali yfir fótboltanum í dag & hlustaði.  Nei, ég brúkaði því ekki 'off' takkan á viðtækinu í morgun, þó að ég sé með áunnið óþol gagnvart Valentínusarvældísinni, enda auðvitað jafnforvitinn um þig & þína & aðrir bloggvinir þínir hérna.

Ég viðurkenni seint & illa að ég hafi fengið tár í annann skrælnaða augnkrókinn fyrr en í seinni hálfleik samt.  Og þó.  Ojæja, þá það.  Mázke smá í byrjun, só, súmí, bætmí, eins & einhverjar sumar segja stundum.

Hvunndagshetja dagsins, er því náttúrlega þú fyrir að vera bara nákvæmilega eins í þínum talanda þarna, alveg eins & við upplifum & lesum frá þér í ritum þínum hérna á blogginu.  Sumt þarna í viðtalinu skýrði líka sumt.  Það þarf hörkutól til að deila svona með alþjóð, & ekki öllum jafnvel gefið & þér.  Ég náttla vil fá verðandi jólabókina áritaða, frá þeirri einu sem að skilur mig aldrei, viljandi.

En samt, öllu eðlilegri en þetta værir þú líklega einhver eðaleðla í eðli...

Takk.

Steingrímur Helgason, 13.4.2008 kl. 23:23

82 identicon

Var að enda við að hlusta á viðtalinu á netinu ( æðisleg tækni  ) og vildi bara þakka fyrir mig. Nú verður þú að fara að setjast niður og skrifa bókina þina því ég er farin að hlakka svo til að lesa hana .

Knús,

Doris (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 00:51

83 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þakka þér fyrir frábært viðtal, í dag Jóna.  Þú stóðst þig vel, eins og maður vissi svo sem.  Því það virðist vera þér eðlislægt, að vera í, hvort heldur sjónvarpi, eða útvarpi.  Svo ég átti ekki von á öðru en góðu viðtali.  Svo takk enn og aftur.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.4.2008 kl. 00:58

84 Smámynd: Brynja skordal

Var að enda við að hlusta á viðtalið núna á netinu takk fyrir mig þú ert yndisleg

Brynja skordal, 14.4.2008 kl. 01:32

85 Smámynd: Inga Dóra

ég sendi inn athugasemd  í gær enn hún virðist ekki hafa sæfast

Enn ég hlustaði á viðtalið og vá hvað þú ert sterk og indæl.

æ hvað ég fann til með litlu stúlkunni sem valdi sálmabækurnar fyrir fjölskylduna sína.Þvílíkur harmleikur.

 Ég knúsaði börnin mín extra vel og ég sendi þér risa knús og kram

Inga Dóra, 14.4.2008 kl. 10:35

86 identicon

Var ad hlusta a vidtalinu a netinu. Fallegt vidtal. Gangi ther rosalega vel i ollu, held afram ad fylgjast med. Guja

Guja (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband