Leita í fréttum mbl.is

Fordómar tæfunnar

 

Ég er uppfull af fordómum. Hef ég sagt ykkur frá því? Þoli afar illa þegar fólk beygir orð vitlaust. Samt geri ég það örugglega stundum sjálf. Vegna þessa er sjaldan lengi ládeyða á þessu heimili. Bretinn er nebblega breskur. Jahá.. þarna kom ég ykkur á óvart. Og breski Bretinn er ekki með íslenskuna 100% á tæru. Lái honum hver sem vill. Ég geri það. Muuhhaaaa.

Við gerum töluvert af því að misskilja hvort annað og svo þarf ég alltaf að kryfja það. Ég veit... óþolandi týpan.

Hann minntist eitthvað á læðuna okkar og spennur í sömu setningu í dag, og ég kveikti ekki á perunni. Horfði á hann með tómum svip. Spennur jú-nó, sagði Bretinn og skildi ekkert í þessu skilningsleysi. Það létti til í þokumistrinu í höfðinu á mér; maðurinn var að tala um spenana á dýrinu.

Eftir örlítinn misskilning við matarborðið í kvöld, varðandi muninn á ''á miðvikudegi'' og ''á miðvikudaginn'', fór eftirfarandi samtal fram á milli mín og míns heittelskaða:

Bretinn: Another confusing thing about Icelandic grammar

Ég: Láttu ekki svona. Annað með greini og hitt ekki greini. Þú hlýtur að þekkja muninn á því eftir 20 ár (meinfýsin tæfa, eins og Birna ''vinkona'' mín orðaði það svo skemmtilega í dag)

Bretinn (horfði einlæglega á mig og sagði hægt og mjööööög skýrt): I know the difference between a gun and a rifle.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

HAHAHAHAHHA

Góður Nic

Ómar Ingi, 6.4.2008 kl. 21:29

2 Smámynd: Ragnheiður

Hahahahahaha

Ragnheiður , 6.4.2008 kl. 21:30

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Refurinn sá við tæfunni;)

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.4.2008 kl. 21:32

4 identicon

oh my god, þetta breytist aldrei................ er það?

Fríða Brussubína (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 21:33

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ommi. Nick á sín móment

Heimir. það má segja það

Fríða mín. I guess not. hehe

Jóna Á. Gísladóttir, 6.4.2008 kl. 21:34

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Það er ágætt að geta hlegið af svona hlutum, haha!
Tæfan Jóna!!!!!
( hristist um af hlátri þegar ég skrifaði þetta)

Róslín A. Valdemarsdóttir, 6.4.2008 kl. 21:35

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

ARG, þú ert meinfýsin tæfa.  Sendu Bretann yfir.  Við ætulum að hjúkra honum.

Skammastín

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.4.2008 kl. 21:36

8 Smámynd: Linda litla

Það er óþolandi þegar manni er svarað svona

Linda litla, 6.4.2008 kl. 21:38

9 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Skemmtilegt, var ég búinn að segja þér frá Bólivíumanninum sem var með mér í skóla 2004, við vorum í bókfærslu, hét nú ábyggilega einhverju fínna nafni enda háskóli, daginn eftir kom maðurinn ósofinn og sagði ,,þessi helvítas íslensku,, við vildum fá að vita hvað væri að jú hann hafði setið uppi alla nóttina til að reyna að finna út hvað eiginn vasa ; í eiginn vasa ,, lesist og segist,, eiginnvasa, hann vissi hvað eiginkona er, reyndar ekki enn búinn að átta sig á að það er munur á eiginkonu og Íslenskri eiginkonu þó að við reyndum að útskýra það fyrir honum en það kemur. 

Högni Jóhann Sigurjónsson, 6.4.2008 kl. 21:41

10 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Já þessi helvítas íslensku

Guðríður Pétursdóttir, 6.4.2008 kl. 22:17

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Heppinn ertu með breska manninn þinn, alltaf gaman í bland við annað.  Eigðu góða vinnuviku elsku Jóna 

Ásdís Sigurðardóttir, 6.4.2008 kl. 22:26

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Róslín. Gaman að geta skemmt þér

Jenný. Þú mátt ættleiða hann... í smá tíma

Linda litla. Nebblega ekki. Dásamlegt. Kemur mér alltaf til að hlæja.

Högni. hahahaha. Dásamlegt. það er ekki langt síðan að ég kynnti fyrir Bretanum frasann: ''Ég kem af fjöllum''. Það gekk ekki að þýða það beint: I come from the mountains. hehe

Guðríður. Takk fyrir pottablómið um daginn

Jóna Á. Gísladóttir, 6.4.2008 kl. 22:30

13 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

sömuleiðis Ásdís mín.

Jóna Á. Gísladóttir, 6.4.2008 kl. 22:31

14 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 22:43

15 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Eþþagggggi!
Mér finnst bara gaman af flestum skrifum þínum, sem eru fyndin

Róslín A. Valdemarsdóttir, 6.4.2008 kl. 22:49

16 Smámynd: Sigríður Hafsteinsdóttir

Hehe, snilld að venju! Takk fyrir mig...

Sigríður Hafsteinsdóttir, 6.4.2008 kl. 23:31

17 Smámynd: Steingrímur Helgason

a eða an, greinilega ?

Steingrímur Helgason, 6.4.2008 kl. 23:31

18 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Haahahahaha

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 6.4.2008 kl. 23:32

19 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 6.4.2008 kl. 23:38

20 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

úps!

Sigrún Jónsdóttir, 6.4.2008 kl. 23:45

21 Smámynd: Sporðdrekinn

Sporðdrekinn, 6.4.2008 kl. 23:49

22 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

þið klikkið ekki í þessari fjölskyldu

Takk fyrir þetta hláturskast

Guðrún Jóhannesdóttir, 7.4.2008 kl. 00:04

23 Smámynd: Jens Guð

  Bretinn á sína góðu punkta.  Hehehe!

Jens Guð, 7.4.2008 kl. 00:15

24 Smámynd: Hlín Íris Arnþórsdóttir

Gaman að lesa bloggið þitt, vinkona mín er búin að tala um bloggið þitt í töluverðan tíma og er talsverður aðdáandi.

Ég kannast við margt sem þú skrifar um þar sem sonur minn er með svokallaða ódæmigerða einhverfu.

Hlín Íris Arnþórsdóttir, 7.4.2008 kl. 09:07

25 Smámynd: María Guðmundsdóttir

óborganlegt bara er búin ad gefast upp á ad reyna ad útskýra orðatiltæki íslenskunnar fyrir mínum manni  bara gerir sig ekki...en getur komið smellið út þegar maður prufar

María Guðmundsdóttir, 7.4.2008 kl. 10:25

26 identicon

Hahahaha....

Melanie Rose (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 10:35

27 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Jóna, hefurðu þýtt fyrir hann: "það liggur í augum uppi"? 

Ragnhildur Jónsdóttir, 7.4.2008 kl. 10:35

28 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Hlín!!!!!!!! Ertu til í að segja mér hvað það þýðir ,,ódæmigerð einhverfa,,

Er það ekki mjöglangtíma verkefni, Ragnhildur ?

Hér kemur glögglega í ljós hve kjeddlingar eru mikil kvikindi

Högni Jóhann Sigurjónsson, 7.4.2008 kl. 11:34

29 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Högni þú ert svo skemmtilega fróðleiksfús.

Þessi linkur skýrir þetta ansi vel:

http://www.gba.is/yn/verkefni/h97/einhverfa1/einhverfa.html

Jóna Á. Gísladóttir, 7.4.2008 kl. 12:43

30 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Er þessu marki brennd, er sífellt að leiðrétta fólk, enda prófarkalesari. Fer óendanlega í taugarnar á syni mínum þegar ég segi honum að segja vista í stað þess að seifa. Hann segir að ég sé eina manneskjan á Íslandi sem segir vista.

Helga Magnúsdóttir, 7.4.2008 kl. 13:05

31 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Þessi saga minnir mig óneitanlega á það þegar fyrrverandi nágranni okkar lét sér nægja að glotta út í annað þegar frúin hans, sem er fædd og uppalin í Mið-Englandi, sagði við okkur nágranna sína að hún vildi endilega reyna að finna gott ráð til að losna við öll þessi fífl úr garðinum þeirra...

Greta Björg Úlfsdóttir, 7.4.2008 kl. 13:36

32 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.4.2008 kl. 14:16

33 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Helga. Ég er með kolsvarta samvisku hvað varðar enskuslettur. Mér er reyndar sagt að ég sé sérstaklega slæm.

Greta Björg. Nú hló ég. Og eiginmaður hennar hefur kunnað að halda kjafta.. ólíkt mér

Jóna Á. Gísladóttir, 7.4.2008 kl. 15:43

34 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Bretinn er bara flottur og þú Jóna mín bara dásamleg

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 7.4.2008 kl. 16:02

35 Smámynd: Jónína Christensen

Bretinn á bágt!  Ég meina það svo innilega. Ég verð fyrir svona illkvittnislegri meðferð af mínum danska eiginmanni, hann er enn að spyrja mig "Har du nu igen ondt i din ONKEL, min skat !!!

ARGGGGG. Það eru 11½ ár síðan....

Jónína Christensen, 7.4.2008 kl. 16:54

36 Smámynd: Jónína Christensen

Og ekki er mamma skárri, fannst ástæða til að orga úr hlátri þegar mig misminnti aðeins hvað íslensku jólasveinarnir hétu, eftir alltof mörg ár hér í DK. Aðeins of fljót á mér kallaði ég einn þeirra Skyrbjúg....

Jónína Christensen, 7.4.2008 kl. 17:03

37 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jónína. Nú hló ég aftur. Skyrbjúg.... hahahahahaha

Jóna Á. Gísladóttir, 7.4.2008 kl. 17:10

38 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

Hahahahahah....Bretinn alltaf góður...

Agnes Ólöf Thorarensen, 7.4.2008 kl. 20:10

39 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Takk fyrir það Jóna ég lít á þetta.

Fyrir nokkrum árum vann ég með breta, hann var búinn að velta lengi fyrir sér hvað heilsudekk væri, það var og er mikið augýst heilsu þetta og heilsu hitt, svo spurði hann hvað heilsudekk væri og vitnaði í nokkra auglýsingar um heilsu eitthvað. Svar heilsársdekk.

Svo erum við auðvitað mikklu betir þegar við tölum útlensku

Högni Jóhann Sigurjónsson, 7.4.2008 kl. 21:22

40 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Just wondering which one he, the Brit British, was going to use; the gun or the rifle !?

Hólmgeir Karlsson, 7.4.2008 kl. 21:26

41 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ókey æ sí ná.

Enn ég held að ég þurfi að fara í greiningu:

spurningaflóð, stöðugur malandi og þráhyggja eru algeng persónueinkenni einhverfra.

Virðast heyrnarlaus, en eru það ekki.

Þeim virðist um megn að horfast í augu við fólk.

Streitast á móti breytingum.

Ef það væri bara þetta með heyrnleysið þá mundi ég flokka það undir karlmennsku, en mér lít ekki á þetta.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 7.4.2008 kl. 21:34

42 Smámynd: Óskar Arnórsson

..ég held ég sé einfeldningur en fékk allt aðra greiningu. Þunglyndur!

Fór til læknis sem skrifaði recept sem ég bað hann að éta sjálfur..receptið meina ég! Langaði ekki til að eitra fyrir honum..hann var nógu slæmur samt..

Óskar Arnórsson, 7.4.2008 kl. 22:31

43 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Ég átti svona móment þegar ég var að böggla út úr mér frönsku um árið og ætlaði að segja að það rigndi en tókst að segja að skýin grætu.  Ljóðrænt en því miður rangt!  Minn ágæti kennari gat næstum haldið andlitinu.

Þórdís Guðmundsdóttir, 7.4.2008 kl. 22:38

44 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Högni Jóhann Sigurjónsson, 7.4.2008 kl. 22:48

45 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Upgrade your email with 1000's of emoticon icons   Upgrade your email with 1000's of emoticon icons

Kjartan Pálmarsson, 7.4.2008 kl. 23:54

46 identicon

Ég bjó eitt ár úti í Japan og náði  þar að verða sjálfri mér og fósturfjölskyldu til skammar óþarflega oft. 

Það var samt ótrúlegt hvað þau náðu að halda andlitinu þegar ég tilkynnti í virðulegu matarboði að mér þætti verst að sitja í rassinum á flugvélum (ushiro=aftast/oshiro=rass) og sagði að margt væri pervertískt í Japan miðað við á Íslandi (hentai=pervertískt/hantai=öðru vísi)

Ingibjörg Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband