Leita í fréttum mbl.is

Check-in

 

Ég er á lífi og vel það.

Bretinn og égHér erum við Bretinn ''before árshátíð''. Það verður engin ''after árshátíð'' mynd. Ekki endilega vegna bágborins ástands heldur einfaldega vegna þess að þetta er eina myndin sem var tekin af okkur.

 

 

 

 

En það voru allir svo fínir og fallegir og gaman að sjá hvað fólk var ákveðið í að eiga góða kvöldstund saman.

Þetta var vel heppnað kvöld og þrælskemmtilegt. Og ólíkt því sem sumir spá í athugasemdakerfinu hjá mér, þá mun vafningur verða notaður aftur.... og aftur og aftur. Og Bretinn varð ekkert hræddur þegar ég afklæddist. Enda ekkert að sjá sem hann hefur ekki séð milljón sinnum áður.

Ég vaknaði upp með andfælum í morgun. Hélt ég hefði sofið yfir mig því Gelgjan átti að mæta á innanfélagsmót í fimleikum. Greip símann á náttborðinu og rýndi syfjuð, og vissulega rykug í hausnum, á klukkuna. Komst að því að allt var í góðu, ég hafði vaknað 2 mínútum áður en klukkan átti að hringja kl. 9.

Við Gelgjan læddumst um á tánum því aldrei þessu vant virtist Sá Einhverfi sofa á sínu græna eyra svona ''seint'' að morgni. En það síðasta sem ég heyrði áður en við skelltum útidyrahurðinni á eftir okkur var morgun-herópið hans.

Það teygðist úr mótinu því rafmagnið fór af íþróttahöllinni og reyndar af öllu Seláshverfinu. Annars komst ég að því í dag að það er ekki fyrir taugastrekkta að horfa á ungar stúlkur á jafnvægisslá. Margoft hrópaði ég upp yfir mig eða greip fyrir augun. Algjörlega móðursjúk. Eftir daginn er ég afskaplega fegin að Gelgjan er ekki í áhaldafimleikum.

 

 AM fiml

Hér er hún ánægð eftir skemmtilegt mót 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eftir langa setu í Fylkishöll, og barning í rokinu á bílastæðinu (ef ég væri í kjörþyngd hefði ég fokið) þráði ég bara sófann og teppi. En það var hvorki í spilunum né stjörnunum því Bretinn lá sem fastast í þeim sófa og meira að segja neitaði að láta mér teppið eftir. Ég hef því verið á skjálftavaktinni hér heima frá kl. 3 í dag. En eftir að Bretinn matreiddi ofan í mig hitaeiningar í kvöldmat er ég að ná upp í 37 gráðurnar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æðisleg mynd af ykkur Og dóttir þín er ekkert smá sæt stelpa.

Bryndís R (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 21:18

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Sæt mynd af ykkur

Marta B Helgadóttir, 27.1.2008 kl. 21:23

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Þú og Bretinn eruð barasta alveg eins og ég vil hafa ykkur!! :)

Heiða B. Heiðars, 27.1.2008 kl. 21:23

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gelgjan svo sæt í fimó.  Hjónin eru bara posh. OMG

Smjúts

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.1.2008 kl. 21:35

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Bryndís. Ég er sammála þér; Gelgjan mín er voðalega sæt

Marta.

Heiða. Elskan mín, gaman að heyra

Móðir góð. Ég held að eina breytingin frá í sumar felist í nokkrum margnefndum viðbótakílóum. Sastu einhvers staðar nálægt okkur? Leiðinlegt með hnéið en ég er forvitin og hlakka til að lesa bloggið þitt.

Jóna Á. Gísladóttir, 27.1.2008 kl. 21:38

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jenfo. Snúllan mín.

Beta. I know !!

Jóna Á. Gísladóttir, 27.1.2008 kl. 21:39

7 Smámynd: Þröstur Unnar

Jebb, bara myndarlegustu hjónakorn, og gelgja.

En vissirðu að það á að reyna við þig?

http://motta.blog.is/blog/motta/entry/425093/#comments

Þröstur Unnar, 27.1.2008 kl. 21:42

8 identicon

Mikið var gaman að hitta þig og Bretann í gærkvöldi á árshátíðinni. Þið eruð frábær. Kveðja Brynja og Þórhallur

Brynja Nordquist (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 21:44

9 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Rosalega ert krúttleg á myndinni en samt svo fyrirmannleg og þið bæði. Stelpan þín er náttla alveg eins og mig langaði að vera þegar ég var stelpa!

En ég skil alveg að þú hafir ekki fundið stelpuna mína eftir að hafa heyrt frá henni - þetta var víst eitthvað big big!

Edda Agnarsdóttir, 27.1.2008 kl. 21:46

10 identicon

Þið eruð frekar mikið krúttleg á þessari mynd

Og gelgjan ekki síður. Og mikið skil ég þig val að grípa fyrir augun. Éég á eina sem æfði Taikwondo, bardagaíþrótt. Mér stóð ekki alveg á sama þegar ég var að horfa á próf hjá krökkunum og þau þurftu að brjóta múrsteina og stökkva yfir hindranir og fleira skemmtilegt - ég var hreint út sagt skíthrædd. 

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 21:58

11 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Þröstur. Alltaf uppörvandi að láta reyna við sig. Gott fyrir egóið. Finnst þér það ekki?

Brynja og Þórhallur. Sömuleiðis. Frábært að hitta ykkur. Og ekki skemmdi fyrir að ég var send til að sækja þig.

Edda. Æi hvað þú ert sæt. Já, ég skreið um öll gólf en fann hvergi skóna

Jóna Á. Gísladóttir, 27.1.2008 kl. 22:00

12 Smámynd: Þröstur Unnar

Man´ða ekki Jóna.

Þröstur Unnar, 27.1.2008 kl. 22:05

13 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Þú ert svo fín á myndinni að það liggur við að ég finni ilmvatnslyktina af þér og auðvitað er Bretinn fínn líka

Svo er fimleika stelpan flott.....skil samt þessa taugaveiklun, mínar æfðu fimleika og ég skil bara ekki hvernig krakkar þora í allar þessar fettur, brettur, flikkflakk og heljarstökk......ok veit ég er kjúklingur. 

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 27.1.2008 kl. 22:10

14 Smámynd: Dísa Dóra

Flott hjón þarna á ferð (og vá hvað Ian er líkur pabba sínum og samt þér líka ).  Gelgjan er flott í fimleikabolnum sínum.

Dísa Dóra, 27.1.2008 kl. 22:40

15 identicon

Þið eruð sætustJóna, þú hefur hreinlega ekkert breyst, allavega ekki í fimmtán ár Sterkur svipur með ykkur mæðgum. Skil þessa taugaveiklun, á tvær skottur sem eru oft búnar að hræða líftóruna úr móður sinni með alls konar tilburðum.

þórdís (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 22:49

16 Smámynd: Ómar Ingi

Nick er flottur , gelgjan er flott, en Jóna þú ert alveg skruggu fín og flott

Er nú algerlega hættur að hlusta á vælið í þér varðandi eitt og annað sem viðkemur útliti  isssss.

Hvað má ljóta feita fólkið segja

Ómar Ingi, 27.1.2008 kl. 23:04

17 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

flott hjón og flott stelpa

Gott að helgin var fín. Njótið svo vinnuvikunnar framundan

Guðrún Jóhannesdóttir, 27.1.2008 kl. 23:28

18 Smámynd: Ragnheiður

Langflottust...ég gerði ákveðnar ráðstafanir í vinnunni minni í gær til að mannskapurinn kæmist heim aftur já og þar á meðal Brynja sem ferðaðist með kallinum mínum á staðinn hehe...ein að fylgjast með sínu fólki hoho

Ragnheiður , 27.1.2008 kl. 23:33

19 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Flott mynd af ykkur Jóna. Þú ert eins og frægur rithöfundur á leið á verðlaunaafhendingu og gott ef Bretinn "lúkkar" ekki eins og leikstjóri ...

Bloggknús og góðar kveðjur  ..

Hólmgeir Karlsson, 27.1.2008 kl. 23:38

20 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Þið eruð flott og gelgjan líka

Svanhildur Karlsdóttir, 27.1.2008 kl. 23:47

21 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

þú ert alveg svakalega falleg þarna með Bretalingnum þínum og dóttir þín er voðalega lík þér finnst mér..

sem sagt líka rosa falleg

gott að það var gaman hjá þér....hjá ykkur meina ég

Hörður minn er nýbyrjaður í karate og ég hef ekki séð hann í neinu ennþá, en karate reynir líka heilmikið á jafnvægisskynið, en ekki á eins taugatrekkjandi hátt og fimleikar á slá...

Guðríður Pétursdóttir, 28.1.2008 kl. 00:06

22 Smámynd: Sporðdrekinn

 Outstanding bæði tvö, takk fyrir að sýna okkur mynd

Systir mín var í fimleikum og ég man eftir að halda niður í mér andanum og krossa putta Falleg stelpan ykkar.

Sporðdrekinn, 28.1.2008 kl. 01:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband