Leita í fréttum mbl.is

Klukkedí klukk

Ég hef verið klukkuð af Kristínu Kötlu og Benedikt.

Hér kemur nakinn sannleikurinn um mig í átta liðum:

1. Ég var afar kjaftfor sem barn (alls ekki lengur) og ekkert sérstaklega vel liðin af foreldrum annarra barna.

2. Ég drakk 5 Brjálaðar Bínur 7 kvöld á viku þegar ég var sem verst í djamminu (einf. Kalua, einf. vodki, einf. bailys)

3. Ég get orðið svo pirruð að mér líður eins og ég sé við það að springa

4. Letin er að drepa mig og mig langar í bryta sem heitir James (og gufar upp þegar ég þarf ekki á honum að halda)

5. 16 ára var ég tekin fyrir ölvunarakstur (það má reyndar lesa um það hér)

6. Sem krakki var ég stundum kölluð kínverji því ég þótti með svo skásett augu (hataði það meira en allt annað og átti þá ósk heitasta að vakna upp einn daginn með brún bambaaugu)

7. Oft hefur mér verið sagt að ég geti drepið með augnaráðinu (sem betur fer er það ekki satt því þá væru margi dauðir)

8. Afi kenndi mér þessa bæn: Vertu Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni. Hönd þín leiði mig út og inn svo allri synd ég hafni.

hearts1

Ég klukka Lísu Humpy, Helgu hugrökku, Emmu litlu, Hólmgeir superpabba, Ásdísi kisukonu, Röggu rauðku, Dodda dúlludóna og Kristjönu Raymond


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

ég skilidiggi

Guðríður Pétursdóttir, 11.7.2007 kl. 21:28

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

nú bloggar þú Emma mín. Segir hver klukkaði þig. Telur upp átta atriði um sjálfa þig sem er ekki svona alkunna. og klukkar svo 8 aðra bloggvini. Einhver fór af stað með þetta og þó þetta virki kannski corny þá er gaman að sjá hvaða átta liði fólk telur upp.

Jóna Á. Gísladóttir, 11.7.2007 kl. 21:33

3 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

já okídókí....

Guðríður Pétursdóttir, 11.7.2007 kl. 21:40

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Okey jóna mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 11.7.2007 kl. 22:26

5 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Roslega góð gamla færsla þin um 16 ára aldurinn.

Edda Agnarsdóttir, 11.7.2007 kl. 23:10

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Takk Edda mín. Við gleymum því stundum að við vorum einu sinni ung og vitlaus (misvitlaus að vísu). Það þarf að ræða meira við unglingana á þeirra level. Ekki alltaf einhvern vegin fyrir ofan þau.

Jóna Á. Gísladóttir, 11.7.2007 kl. 23:14

7 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

ég er búin

Guðríður Pétursdóttir, 11.7.2007 kl. 23:16

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hef aldrei vitlaus verið fyrr en eftir fertugt.  Ég var fullkomin þegar ég var 16. Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.7.2007 kl. 23:17

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

En þú Kristjana. Ert þú búin að klukkast?

Jóna Á. Gísladóttir, 11.7.2007 kl. 23:17

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jenný og fullkomin núna. Svítí

Jóna Á. Gísladóttir, 11.7.2007 kl. 23:22

11 identicon

Mér finnst nr. 6 krúttlegt, ég er með brún (bamba)augu. Mér finnst kínaaugu svo flott, ég hefði örugglega verið til í að skipta  Knús til þín frá úttlöndum - sakna þín líka

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 00:10

12 identicon

Oh, mig langaði alltaf í brún bambaaugu líka..... líklega vegna þess að bróðir minn er með þannig og mér fannst það algjör sóun........ 

Díta (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 00:16

13 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Anna vonandi getum við skoðað augun hvor í annarri í návígi fljótlega

Díta. Sammála. Óþolandi þegar strákar eru með stór brún augu og blævængi fyrir augnahár.

Jóna Á. Gísladóttir, 12.7.2007 kl. 00:18

14 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Jenný er með þessi fallegu brúnu bambaaugu og engin smá blakandi augnhár! Ég vona að hún tjúnist ekki upp við þetta leyndarmál, hún var ógislega sæt 16

Edda Agnarsdóttir, 12.7.2007 kl. 00:26

15 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Þessu trúi ég Edda. og ég er viss um að hún er miklu sætari núna.

Jóna Á. Gísladóttir, 12.7.2007 kl. 00:27

16 identicon

Er það þá málið? Ég þarf að finna einhver 8 atriði um mig til að pósta? Ég hélt ég væri að gera játningar hér hægri vinsti :þ

Ragga (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 00:34

17 Smámynd: Jens Guð

  Björk var líka kölluð Kínverji sem krakki og unglingur.  Og hvar væri þessi elska stödd í heimsfrægðinni í dag án síns sérstæða andlitsfalls?

Jens Guð, 12.7.2007 kl. 00:34

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er sæt núna og Edda ekki tala um mig í þátíð plís! ÉG LIFI OG MUN LIFA (sagði hún og féll örend til jarðar).

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.7.2007 kl. 00:37

19 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ragga þetta er sjálfsblekking ein. Engar játningar frá þér að hafa hingað til.

Jens. Sem krakki var ég einu sinni spurð hvort ég væri Björk. Ég vissi alveg afhverju.

Jóna Á. Gísladóttir, 12.7.2007 kl. 00:37

20 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Meilímeilímeil

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.7.2007 kl. 00:47

21 identicon

"Ragga þetta er sjálfsblekking ein. Engar játningar frá þér að hafa hingað til."

Hvað? 

Ragga (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 00:48

22 Smámynd: Helga Auðunsdóttir

Búin.. alveg elska þetta ekki að fara grufla afturá bak, er meira fyrir að horfa fram á veginn :)

Helga Auðunsdóttir, 12.7.2007 kl. 01:26

23 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Skemmtilegur klukkleikur  en corny - já sannarlega.

Marta B Helgadóttir, 12.7.2007 kl. 14:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 1639967

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband