Leita í fréttum mbl.is

Ég er búin að sukka í allan dag

Er eitthvað leiðinleg í dag (gerist ekki oft. Svona cirka jafn oft og D og B eru ekki í samkrulli).
Veit ekki hvort ég hef sukkað í allan dag vegna þess að ég er leiðinleg eða hvort ég er leiðinleg vegna þess að ég hef sukkað í allan dag. Það skal tekið fram að með sukki á ég við áti.
Hef látið alls konar ófögnuð ofan í mig í dag. Pizzur, kökur, kleinuhringi, ómælt magn af kóki (í fljótandi formi), kexi og ég veit ekki hvað. Finn hvernig ýstran þrýstir sér í áttina að lyklaborðinu. Ég er svekkt út í stjórnarmyndunarreglurmyass. Er eiginlega bara í fýlu.
Þess vegna ætla ég bara að horfa á Boston Legal og fara snemma í háttinn.
Brennir maður ekki fullt af hitaeiningum á meðan maður sefur. Einhvern tíma heyrði ég það.
Góða nótt.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æi ég er búin  hálf leið í dag. Pantaði pizzu í dag fyrir familíuna. Er líka að fara sofa góða nótt Jóna mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.5.2007 kl. 21:56

2 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Ég ætla rétt að vona að maðu brenni einhverju þegar maður sefur....

Annars var dagurinn minn rólegur en ég er búin að sukka svolítið um helgina á áti... er að reyna að láta það ekki á mig fá

Guðríður Pétursdóttir, 13.5.2007 kl. 22:02

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Stelpur ef maður sukkar og það er óafturkallanlegt því ekki að njóta þess og passa sig frekar næst.  Njótið lífsins konur!! Smútsj. Jóna mín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.5.2007 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1640005

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband