Leita í fréttum mbl.is

málning á brjóstum og víðar

Eins og ég sagði áðan þá fór ég út í garð og byrjaði að reita arfa. Þar sem ég er þekkt fyrir flest annað en að vera mikil útivistarmanneskja þá á ég ekki einu sinni föt í garðinn. Og þá meina ég einhver svona föt sem mér er sama um og er tilbúin að skríða í á hnjánum í moldarbeðum o.þ.h.

Ég gramsaði þó í skápnum upp á von og óvon og fann buxur sem ég nota aldrei, klippti neðan af þeim því þær eru svo síðar. Svo skellti ég mér hvítan stuttermabol en innan undir hann fór í topp sem nær niður fyrir rass því buxurnar eru svo assgoti lágar í mittið. Get ekki verið þekkt fyrir að liggja út í beði með boruna beraða.

En af því að mér finnst nú ekki sérstaklega skemmtilegt að reita arfa þá var ég fljót að finna upp á einhverju öðru að gera. Mála! Það þarf að mála grindverkið fyrir framan hús ásamt bílskúrshurðinni og gluggakörmum. Nóg að gera á þessum bæ.

Ég tók fram pússi-rafmagnsgræjuna sem ég-veit-ekki-hvað-heitir og hamaðist á gluggakörmum, hurðum og grindverki. Fann svo svarta málningu inn í bílskúr og byrjaði að maka á grindverkið. Ég er ekki vön. Það verður að segjast eins og er. Mörgum sinnum er ég búin að styðja mig við nýmálaðan girðingarstaur, strjúka fingrum ötuðum málningu í gegnum ný-strípað hárið og greinilega klóra mér í vinstra brjóstinu (eða kannski rak ég það utan í hliðið) því það er svart (bolurinn auðvitað). Ég er ekki enn búin að skoða bakhlutann á mér en ég hef líka þurft að hysja upp um mig buxurnar mörgum sinnum og því er hætt við að rassinn á mér sé í svartara lagi.

Jæja, nú er ég búin í pásu. Ætla út aftur og mála meira.

 


ABBA - upphafið

Lítið vissu þau hvað biði þeirra. Heimsfrægð sem færði þeim ekki mikla hamingju. Allra síst Agnethu.

Það er gaman að hlusta og horfa á þetta myndaband sem er orginallinn úr Eurovision. Klæðnaðurinn er náttúrlega hræðilegur og hreyfingarnar ansi einfaldar. Enginn danshöfundur verið með puttana í málunum þarna. Einnig er ýmsu ábatavant í söngnum og mér heyrist að seinna hljóti laginu að hafa verið hraðað og einhverjar breytingar gerðar á útsetningum.

 


Vá hvað ég er búin að éta í dag

Með Mogganum: Kaffi með sykri og mjólk og ristabrauð (hvítt) með smjöri (ekki L&L eins og annars alltaf) og 26% osti (ekki 17% eins og venjulega)

með morgunblogginu: meira kaffi með sykri og mjólk

Í Mosfellsbakaríi Miðbæ hjá Ellisif vinkonu: Normalbrauð með smjöri og osti, tvöfaldan latte með sykri

Í kaffitímanum (það sem ég kippti með mér úr Mosó hjá Ellisif): eplaköku með þeyttum rjóma, skúffukökusneið (ar)

Í kvöldmatnum: Chinese frá Indókína (svínakjöt, lambakjöt, djúpsteiktar rækjur, súrsæta sósu, sojasósu, hrísgrjón)

Kvöldkaffi með blogginu: Te með sykri og mjólk, eplaköku (sleppti rjómanum því hann var búinn)

Einnig hef ég drukkið ómælt magn af Coke light í dag og er enn að. Mér tókst líka að skvísa snakki og öðrum ósóma þarna einhvers staðar á milli.

Ég er nefnilega í fitun í sumarfríinu. Bara svo ég geti farið í megrun eftir sumarfrí. Ætli nikótíntyggjó sé fitandi? En tannkrem?

 


Bloggfærslur 28. júní 2007

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband