Leita í fréttum mbl.is

málning á brjóstum og víðar

Eins og ég sagði áðan þá fór ég út í garð og byrjaði að reita arfa. Þar sem ég er þekkt fyrir flest annað en að vera mikil útivistarmanneskja þá á ég ekki einu sinni föt í garðinn. Og þá meina ég einhver svona föt sem mér er sama um og er tilbúin að skríða í á hnjánum í moldarbeðum o.þ.h.

Ég gramsaði þó í skápnum upp á von og óvon og fann buxur sem ég nota aldrei, klippti neðan af þeim því þær eru svo síðar. Svo skellti ég mér hvítan stuttermabol en innan undir hann fór í topp sem nær niður fyrir rass því buxurnar eru svo assgoti lágar í mittið. Get ekki verið þekkt fyrir að liggja út í beði með boruna beraða.

En af því að mér finnst nú ekki sérstaklega skemmtilegt að reita arfa þá var ég fljót að finna upp á einhverju öðru að gera. Mála! Það þarf að mála grindverkið fyrir framan hús ásamt bílskúrshurðinni og gluggakörmum. Nóg að gera á þessum bæ.

Ég tók fram pússi-rafmagnsgræjuna sem ég-veit-ekki-hvað-heitir og hamaðist á gluggakörmum, hurðum og grindverki. Fann svo svarta málningu inn í bílskúr og byrjaði að maka á grindverkið. Ég er ekki vön. Það verður að segjast eins og er. Mörgum sinnum er ég búin að styðja mig við nýmálaðan girðingarstaur, strjúka fingrum ötuðum málningu í gegnum ný-strípað hárið og greinilega klóra mér í vinstra brjóstinu (eða kannski rak ég það utan í hliðið) því það er svart (bolurinn auðvitað). Ég er ekki enn búin að skoða bakhlutann á mér en ég hef líka þurft að hysja upp um mig buxurnar mörgum sinnum og því er hætt við að rassinn á mér sé í svartara lagi.

Jæja, nú er ég búin í pásu. Ætla út aftur og mála meira.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

OMG ég hélt að þú værir að lýsa mér!  Erum við systur, eða mæðgur eða frænkur eða frændur???? Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.6.2007 kl. 17:05

2 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Þú ert semsagt svona utan við þig...... eins og ég ;)

Eva Þorsteinsdóttir, 28.6.2007 kl. 17:05

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jenný ég held við séum frændkonur í beinan karllegg systur föður barnabarna beggja.

Eva.. ég held ég hafi ekki einu sinni þá afsökun.

Jóna Á. Gísladóttir, 28.6.2007 kl. 17:07

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna mín, meila þér söguna og Abba ævintýrið fljótlega. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.6.2007 kl. 17:11

5 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

hver er beggji??

Guðríður Pétursdóttir, 28.6.2007 kl. 17:11

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Afi barnabarnanna.

Anna Einarsdóttir, 28.6.2007 kl. 17:17

7 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

of course...

Guðríður Pétursdóttir, 28.6.2007 kl. 17:20

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hvað skolli ertu dugleg, Iss er hræðilega utanvið mig eins og þú

Kristín Katla Árnadóttir, 28.6.2007 kl. 17:29

9 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Þetta er bara allt í lagi..þetta fer af..með tímanum

Rúna Guðfinnsdóttir, 28.6.2007 kl. 17:41

10 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Skil hvað þú ert að fara Guðmundur

Rúna Guðfinnsdóttir, 28.6.2007 kl. 18:27

11 Smámynd: Hugarfluga

 Lovlí! Maður á alltaf að passa upp á að vera ekki með bera boruna út í loftið þegar maður er í garðvinnu. Einhver gæti plantað tré þar.

Hugarfluga, 28.6.2007 kl. 19:24

12 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ósköp er nú annars notalegt að vera komin með mynd á þig, kæra bloggvinkona.

Heiða Þórðar, 28.6.2007 kl. 19:47

13 identicon

Oh hvað þú hlýtur að vera smart og kúl núna  svart er flottast, sérstaklega með röndóttu, varstu ekki annars í röndun (lesist strípum) um daginn???

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 28.6.2007 kl. 20:08

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jenný. Í alvöru!? frábært.

Guðríður. ég sé að Anna hefur svarað þessu

Kristín Katla. Jebb, óvenju dugleg í dag

Guðmundur og Rúna. Finnið ykkur aðra síðu til að ræða mig ykkar á milli

Hugarfluga.  Hefur það komið fyrir þig

Heiða. Ég var að uppgötva að við erum ekki formlegar vinkonur. Hef bætt úr því og borið upp bónorð

Anna. Ég er alltaf smart og kúl  en extra núna. Eins og Zebra hestur.

Jóna Á. Gísladóttir, 28.6.2007 kl. 20:32

15 identicon

Hvernig lítur lyklaborðið þitt út núna ... engar svartar slettur á því?

Og þó það kannski eigi ekkert við hér, þá hef ég mikinn áhuga á bodypaint....

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 28.6.2007 kl. 20:45

16 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Jóna mín núna er bara að fara út og mála dágóða stund með hvítu og þá verður þú orðin eins og dalmatíutík Helga mín er álika í málningarvinnunni... áður en eitt pensilfar er komið á vegg er hún orðin klístruð uppúr og niðrúr og meiri málning komin á pensilskaptið en í burstann sjálfan. - Þannig að hún er nú orðin stikkfrí í þessum efnum

Þorsteinn Gunnarsson, 28.6.2007 kl. 20:51

17 Smámynd: Helga Auðunsdóttir

Hmmm máling, jú mér finnst gaman að mála eins og þér Jóna, enda á ég orðið alveg spess málingarföt sem hylja mig vel eins og  síðermapeysur.. verst þegar málingin lekur inn um ermaopið og upp undir axlir ekki að það komi fyrir mig.. vinkona mín sagði mér af því :)

Helga Auðunsdóttir, 28.6.2007 kl. 21:33

18 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Doddi. Lyklaborðið er svart frá náttúrunnar hendi. Ég er það aftur á móti ekki svo bodypaint is happening.

Þorsteinn. Þú varðst að nota þetta orð er það ekki?! Tík!! Ég er sko ekkert stikkfrí. Hér fyrir utan getur að líta meistaraverk; hurðir, gluggakarma og grindverk. Þú getur sjálfur verið tík.

Helga. Lítill fugl hvíslaði því að mér að þú fengir ekki að mála lengur

Jóna Á. Gísladóttir, 28.6.2007 kl. 21:44

19 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Hvernig heldur þú að þú lítir út eftir að verkinu verður lokið, það er að segja ef því líkur í sumar?

Hafðu það ætíð gott Litli SVARTI Sambó. 

Eiríkur Harðarson, 28.6.2007 kl. 22:00

20 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

hahaha, mín sunnudagaföt eru einmitt þau föt sem þið notið í garðvinnuföt...

Nema auðvitað eitthvað sérstakt standi til

Guðríður Pétursdóttir, 29.6.2007 kl. 01:21

21 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

@ Jóna... Sorrý... ég kunni bara ekki við að segja dalmatíuhundur

Þorsteinn Gunnarsson, 29.6.2007 kl. 01:22

22 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Eiríkur. Sennilega eins og litla svarta Samba

Elísabet. Þú ert ekki sem verst sjálf addna

Ægir. Það er reyndar bara assgoti gaman að mála. Ég er ekki svona skipulögð í fatamálunum eins og þú.

Guðríður. Ég þarf þá að skila fötunum fyrir helgina svo þú hafir eitthvað til að fara í á sunnudaginn

Þorsteinn. Er hundur í þér?

Jóna Á. Gísladóttir, 29.6.2007 kl. 01:25

23 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

hahaha,já takk ekki veitir af

ekki gleyma grænu húfunni og gráu sokkunum, alveg ómissandi á sunnudögum

Guðríður Pétursdóttir, 29.6.2007 kl. 01:27

24 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Guðríður. Má ég hafa hvítu lakkskóna aðeins lengur. Plís

Jóna Á. Gísladóttir, 29.6.2007 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband