Leita í fréttum mbl.is

Freaky friday óskast - DVD mynd óskast til kaups

 

Laugardaginn síðastliðinn var mér og minni fjölskyldu boðið í mat hjá vinafólki. Langt er síðan við höfum eytt tíma með þessu vinafólki okkar og var þetta boð kærkomið og mér mikið tilhlökkunarefni.

Unglingurinn og Gelgjan voru þó upptekin við aðra iðju og það varð til þess að mig langaði helst að fá pössun fyrir Þann Einhverfa og njóta kvöldsins barnlaus.

Barnapía fékkst ekki og í sannleika sagt fór laugardagurinn svolítið í það hjá mér að hafa áhyggjur af því að Þeim Einhverfa yrði ekki haggað úr húsi. Ég vissi að geðheilsa mín stóð tæpt og að ég myndi virkilega erfa það við son minn ef hann yrði til þess að ég kæmist ekki í matarboðið um kvöldið.

Svo öllu var tjaldað. Nammi og nýr DVD diskur var í boði, bara ef stráksi var til í að lofa því að koma í bílinn með mömmu og pabba klukkan sex.

- Eigum við að fara í bílinn klukkan sex Ian? Fara og kaupa DVD mynd og kannski smávegis nammi?

- Já

(yes yes yes) Hvaða mynd langar þig í?

- Freaky friday

(nei nei nei hún er of gömul hún fæst örugglega ekki lengur) Ok Ian frábært.

Restin af deginum fór í að reyna að ná í BT og kanna vörulagerinn þar. Ekki var svarað í símann á þeim bænum en Videohöllin átti myndina.. til leigu.

Ég hef aldrei leigt mynd hana Þeim Einhverfa. Ég veit að það er ekkert grín að skila henni aftur. Frekar eru DVD myndir keyptar í bunkum og bílförmum.

Klukkan sex keyrðum við sem leið liggur í BT Skeifunni en ekki fannst myndin. Þá var keyrt í Videohöllina í Lágmúla og Freaky friday leigð. Auðvitað var hulstrið bara merkt Videohöllinni. Það vantar allt fútt í hulstrin á þessum leigumyndum. Engin kreditlistar fyrir drenginn að skrifa upp eða aðrar veigamiklar upplýsingar, svo sem framleiðsluár, leikstjóri og framleiðandi.

Sá Einhverfi velti hulstrinu í smá stund fram og til baka í höndunum og hefur örugglega hugsað sitt en hann virtist sáttur þegar hann tölti aftur út í bíl með DVD mynd í annarri hendi og bland í poka í hinni.

Kvöldið varð jafn yndislegt og ég átti von á og Sá Einhverfi skemmti sér konunglega í sjónvarpsherberginu yfir Freaky friday. Þegar kominn var tími til að halda heim harðneitaði hann að fara. Enda ekki búinn að klára að skrifa upp allan kreditlistann. Hann er orðinn snillingur í að spóla fram og til baka og nota pásu-takkann til að geta rýnt í allt lesefni sem kemur á eftir bíómyndum.

Svo rann upp skuldadagur. Myndinni þurfti að skila. Ég laumaði henni í töskuna mína á mánudagsmorguninn og skilaði henni í hádeginu.

Friðurinn var rofinn á ljúfu og rólegu mánudagskvöldi þegar hávær og reiðileg rödd byrjaði að góla:

NEEEEEEEEEEEEEEIIIIIII PABBI HVAR ER FREAKY FRIDAY HVAR ER FREAKY FRIDAY HVAR ER FREAKY FRIDAY...

Við plötuðum hann. Nörruðum hann. Blekktum hann viljandi. Hann hefur ekki hugmynd um hvað myndbandaleiga er. Í hans huga á hann hverja einustu DVD mynd sem villist í gegnum hendurnar á honum. Hann treður inn á sig álitlegum bíómyndum þegar hann fer í afmælis- eða kaffiboð og reynir að smygla þeim úr húsi.

Mér finnst ég skulda honum eitt stykki Freaky friday til eignar.

Mér datt í hug kæra fólk að þessi mynd leyndist einhvers staðar í hillu eða skáp hjá ykkur, rykfallin og gleymd öllum á heimilinu. Ef þið kannist við það ÞÁ VIL ÉG KAUPA ÞESSA MYND.  KAUPA KAUPA KAUPA

501512~Freaky-Friday-Posters

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vill hann hafa íslenskan texta á myndinni? Ef það er ekki nauðsynlegt og myndin finnst ekki hér á landi þá er þetta tilvalið: http://catalog.ebay.com/?_pid=6477404&_trksid=p3907.l1428

 Bestu kveðjur, Guðrún H.

Guðrún Hallgríms (IP-tala skráð) 17.11.2009 kl. 23:27

2 identicon

thepiratebay.com

Jon (IP-tala skráð) 17.11.2009 kl. 23:40

3 Smámynd: Ómar Ingi

Skondið það var einhver kona sem hringdi í mig í vikunni að leita að þessari kvikmynd , hummm.

Það er verið að kanna málið , en ekki er hún til hjá mér allvega.

Kveðja á ykkur , en Harry Potter kemur eftir rétt rúma viku.

PS

Jon IP tala ekki stela.

Ómar Ingi, 18.11.2009 kl. 00:44

4 Smámynd: Helga Linnet

Perlan er með markað....eða réttara sagt það er markaður í Perlunni og ég sá að þeir voru með ótrúlega margar gamlar og góðar myndir. Myndi skoða það hratt og örugglega...eða hringja þangað.

Maður kannast alveg við svona ævintýri...þó svo a mín dama sé ekki alveg jafn slæm.

Helga Linnet, 18.11.2009 kl. 08:15

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Kærar þakkir krakkar mínir

Guðrún. Já myndin verður pöntuð ef ekki vill betur til. En þetta á auðvitað helst að gerast NÚNA, skiluru

Ommi minn já en fyndið. Það var sem sagt ég. Ég man alveg að maðurinn sem ég talaði við hét Ómar. Ertu með einhvern spæjara í málinu? Í alvöru? Gott að vita af Harry Potter.

Helga. Ég er sko búin að tékka í Perlunni.

Jóna Á. Gísladóttir, 18.11.2009 kl. 09:46

6 identicon

Mér finnst að ég hafi séð þessa mynd í Bónus fyrir nokkru síðan á inna við 1000 kr. Alveg þess virði að athuga það.

Svava (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 11:51

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Svava. Kærar þakkir. Ég var að skella á Bónus. Þeir eru víst búnir að taka öll DVD-borð niður til að rýma fyrir bókunum fyrir jólin ;o)

Jóna Á. Gísladóttir, 18.11.2009 kl. 12:36

8 Smámynd: Ragnheiður

Á hana ekki því miður ...ætla að deila þessu á facebook í þeirri von að einhver eigi hana ..

Ragnheiður , 18.11.2009 kl. 12:56

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Æi takk Ragga

Jóna Á. Gísladóttir, 18.11.2009 kl. 12:58

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er að athuga málið, þú lætur vita ef þér áskotnast hún. Kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 18.11.2009 kl. 13:26

11 identicon

www.amazon.co.uk

http://www.amazon.co.uk/s/ref=nb_ss?url=search-alias%3Daps&field-keywords=freaky+friday&x=0&y=0

eða leigja hana...finna einhvern með Apple tölvu...gera Disk Image og brenna svo eintak á DVD...fara á www og cópera coverið og voila! allt komið

http://www.imdb.com/title/tt0322330/

thora gunnarsdottir (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 14:14

12 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Sæl Jóna

Ertu búin að athuga hjá Myndform, Senu eða Sam-myndum? Þetta eru helstu dreifingaraðilar DVD mynda og aldrei að vita nema þeir lumi á eintaki  á einhverjum lager hjá sér.

Kveðja,

Björg K. Sigurðardóttir, 18.11.2009 kl. 14:15

13 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

hæ jóna mín ég leitaði í öllu dvd safninu mínu en ég á hana ekki til :( .annars hefði ég gefið honnum hana ef ég ætti hana en ég skal hafa augun hjá mér þegar ég fer að versla í vikuni.

Guðrún unnur þórsdóttir, 18.11.2009 kl. 14:38

14 identicon

Sæl,

 Ég á þessa mynd og er alveg til í að selja þér hana. Hún er vel með farin og fín. Síminn hjá mér er 848-9103 ef þú hefur áhuga.

Kv. Sigrún:)

Sigrún Vala Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 16:11

15 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

obbosí greyið kallinn og greyið þið, þetta er ansi vandlifað og ég veit ekki hvort ég hefði eitthvað sem mætti kalla geðheilsu eftir í ykkar sporum.. þið eruð hetjur.. thundercats ofurhetjur

Guðríður Pétursdóttir, 18.11.2009 kl. 22:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband