Leita í fréttum mbl.is

Matar- og undirfatatrend Þess Einhverfa

 

Í gegnum árin hafa skotið upp kollinum, ýmsar sérþarfir hjá Hinum Einhverfa. Eða sérviska eins og amma kallaði það. Þú ert agalega sérvitur, sagði amma ansi oft við mig, svo drengnum kippir klárlega í kynið.

Alls konar árátta eða æði grípur Þann Einhverfa og stendur yfir í mislangan tíma. Margt af því tengist mat. Hann borðar kannski næstum ekkert nema skyr í langan langan tíma og ísskápurinn er fylltur af skyri í hverri innkaupaferðinni á fætur annarri. Það bregst aldrei að daginn sem mega-innkaup eru gerð á þeirri dillunni sem í gangi er í það skiptið, þá ákveður hann að þetta sé orðið gott. og við sitjum uppi með fullan ísskáp/skúffu/skáp af skyri/hrísgrjónum/eplum/bönunum eða hvað það nú er í það skiptið.

Fyrir mörgum mánuðum beit hann það í sig að hann væri ekki klæddur og kominn á ról fyrr en hann væri kominn í stuttbuxur utanyfir boxer-nærbuxurnar. Það stuttbuxnaæði stendur enn yfir og sér ekki fyrir endann á því. Ég held hann eigi orðið 8 eða 9 stuttbuxur til skiptanna.

Í Englandsförinni nú um páskana keypti Bretinn ein 10 pör af boxer á drenginn. Þær eru með ívið þrengri skálmum en þær sem hann á fyrir, og mega í raun ekki vera neitt minni en þær eru, til að fitta utan um hin dásamlega þykku læri sem drengurinn hefur.

En þær eru rosalega flottar, með hermannamunstri og allavega. Og það kom í ljós í gær að Þeim Einhverfa finnst þetta klárlega of flottar buxur til að fela undir stuttbuxunum, svo hann tróð sér í hermannaboxerbuxurnar utan yfir gömlu þykku víðu boxerbuxurnar sínar.

Ian, þetta eru nærbuxur, sagði ég. Fannst múnderingin ekki benda til þess að honum gæti þótt hún neitt sérstaklega þægileg.

Hann mótmælti þvi hástöfum. Stuttbuxur skyldu þetta vera.

Og ekki ætla ég að eyða orku eða geðheilsu í að leiðrétta það. Mér gæti ekki verið meira sama þó að boxer breytist í stuttbuxur og stuttbuxur í boxer ef því er að skipta. Á meðan hann heimtar ekki að vera í hermannaboxerbuxunum utan yfir síðbuxum, þá er þetta í góðu lagi.

Annað trend hjá stráksa núna eru fótboltasokkar. Háir og þykkir alvöru fótboltasokkar. Og þeir eru sko togaðir upp á mið læri ef mögulegt er. En hann hefur þann leiða ávana að dunda sér við að finna lykkju í sokkunum og rekja þá upp. Stundum finn ég í sófa eða stól, heilan hnykil af bandi og rekst svo svo á drenginn á rölti einhvers staðar í húsinu, í hálfum sokkum.

Fótboltasokkar eru fáránlega dýrir. Reyndar þykja mér sokkar yfirhöfuð fáránlega dýrir. Þetta er orðin munaðarvara.

Ég sé ofsjónum yfir að kaupa sokkapar á 2000 kall, sem ég veit að verður fljótlega rakið upp í óendurnýtanlegt garn.

Því hækkaði ég röddina um nokkur desibil þegar ég stóð hann að verki með kóngabláan þráð í höndunum í gær.

Iiiiiiaaaaan þú MÁTT EKKI GERA ÞETTA. EF ÞÚ HÆTTIR EKKI AÐ REKJA UPP SOKKANA ÞÍNA ÞÁ TEK ÉG ÖLL SOKKAPÖRIN ÞÍN OG HENDI ÞEIM Í RUSLATUNNUNA ARGH....

Hann rétti bláa þráðinn í áttina til mín og sagði hneykslaður: MAMMA, RÓLEG!

 

Barnið mitt er farið að rífa kjaft við mig og mér finnst það æðislegt.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Þið eruð bæði tvö æðisleg.

Ómar Ingi, 21.4.2009 kl. 18:21

2 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

elsk'ann

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 21.4.2009 kl. 20:05

3 Smámynd: Jens Guð

  Þú kannt svo sannarlega galdurinn við að gera úr hversdagslegum atburðum krúttlega færslu.  Virkilega krúttlega.  Mér hlýnar alltaf um hjartarætur að kíkja hér við þó ég sé latur við að kvitta fyrir innlit.

Jens Guð, 22.4.2009 kl. 05:32

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Bara róleg Jóna mín hann er algjör DÚLLA þessi strákur.

Ía Jóhannsdóttir, 22.4.2009 kl. 17:55

5 Smámynd: gaddur

Þakka þér fyrir bloggvináttuna.Hann er yndislegur drengurinn þinn og þú frábær mamma.Kveðja

gaddur, 22.4.2009 kl. 17:59

6 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

já, þessar mömmur sko, stundum soldið tregar.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 22.4.2009 kl. 22:47

7 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Hann er æði þessi drengur. Allavega að lesa um hann í bloggheimum þótt ég trúi því vel að hann geti tekið á þolinmæðina svona stundum í raunheimum.

Helga Magnúsdóttir, 23.4.2009 kl. 19:28

8 identicon

Það fást flottir Puma fótboltasokkar á 800 kr. í puma outletinu í grafarholtinu.

Hulda (IP-tala skráð) 24.4.2009 kl. 01:25

9 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Skemmtilegar þessar sögur þínar og létta lund okkar sem lesa alveg eins og þínar.

En -- Að kippa í kynið tekur með sér þágufall -- drengnum kippir í kynið. Nema þetta sé einhver alveg ný merking og nær nærbuxunum en mig grunaði við lestuninn.

Sigurður Hreiðar, 25.4.2009 kl. 15:22

10 Smámynd: Sporðdrekinn

Verdur thú ekki bara ad fara ad prjóna á hann legghlífar?!

Sporðdrekinn, 25.4.2009 kl. 17:42

11 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Ég tek undir orð Jens Guð, það er alltaf gaman að koma í heimsókn á þessa síðu. Gleðilegt sumar.

Hallgrímur Guðmundsson, 26.4.2009 kl. 23:13

12 Smámynd: Helga Linnet

úff.....finnst eins og ég hafi verið að lesa um dóttur mína!

Þau eru yndisleg þessi börn með "sérþarfir"....en það finnst ekki öllum

Við sem eigum svona "sérþarfa og sérlundabörn" skiljum þetta mjög vel og höfum þolinmæði gagnvart þeim og sumir skilja ekki hvernig við förum að því að hafa svona mikla þolinmæði.

Björtu dagarnir eru samt alltaf fleiri.

Alltaf jafn gaman að lesa færslurnar þínar. Maður kemst alltaf í gott skap

Helga Linnet, 27.4.2009 kl. 08:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband