Þriðjudagur, 13. janúar 2009
Baráttan við bílinn
Ég ákvað að sækja Þann Einhverfa í Vesturhlíð og dragnast með hann á sundæfingu (þetta heitir sko ''æfing'' eftir að kappinn tók þátt í sundmóti) kl 5 í gær. Ekki er hægt að segja að ég hafi verið hress eftir að hafa faðmað Gustavsberg óheyrilega nóttina áður.
Það var skelfilega kalt í gær og ég hefði getað sagt mér það sjálf að ég myndi lenda í vandræðum með að opna bílinn minn. En heilinn á mér var ekki vel vakandi svo ég hóf glímuna við frosnar bílhurðir heldur seint.
Bíllinn minn er station bíll og ég uppgötvaði að afturhlerinn var það eina á hjörum sem ekki var frosið fast aftur. Meira að segja læsingarnar voru pikkfastar.
Ég kallaði á Gelgjuna og skipaði henni að skríða inn eftir bílnum og starta honum og þenja miðstöðina í botn. Planið var að hita bílinn svo ég gæti opnað hurðarnar. Sá ekki alveg fyrir mér að það myndi ganga upp að láta Þann Einhverfa skríða inn og út úr bílnum.
En ég var orðin sein svo ég hafði ekki mikla þolinmæði í að bíða. Fór inn, tók saman sunddótið fyrir drenginn, dúðaði mig í úlpu og lúffur frá 66°norður, smeygði hinni ómissandi tösku minni yfir öxlina og fór út aftur. Byrjaði aftur að hjakkast á bílhurðunum og fór mikinn. Ákvað loks að það væri ekki um annað að ræða en að skríða sömu leið og Gelgjan hafði gert. Kannski gæti ég opnað hurðar með því að leggjast á þær innan frá. Og ef það brygðist þá myndi ég bara keyra niður í Vesturhlíð með allar hurðar frosnar aftur. Bíllinn hlyti að vera orðinn nógu heitur þegar niður í bæ kæmi.
Þar sem ég hef hvorki til að bera kattarhreyfingar Gelgjunnar né lítinn og petite líkama hennar þurfti ég að leggja niður aftursætin í bílnum. Annars hefði ég sennilega fest afturendann á milli topps og höfuðpúða. Svo henti ég mér á allar hurðar en engin haggaðist.
ARGH ég var orðin sveitt, pirruð, stressuð yfir tímaleysi og ógleðin lét mig ekki alveg í friði. Ég skreið aftur í bílinn, skellti hleranum í lás á eftir mér. Skreið aftur fram í bílinn. Festi læri hér og rasskinn þar. Hlussaðist að lokum í bílstjórasætið másandi og blásandi. Festi á mig beltið og ætlaði að fara að reykspóla út úr innkeyrslunni þegar mynd skaut upp í hugann á mér. Svartur sundpoki með rauðum stöfum og svört kventaska með axlaról. Hvar var nú draslið sem ég tók með mér út. Jú, lá í hvítu frostinu í innkeyrslunni. Nákvæmlega þar sem ég lagði það frá mér til að ná betra taki á hurðarhandföngum.
Ég var fangi í eigin bíl. Allar hurðir frosnar aftur nema afturhlerinn. Og hann er óopnanlegur innan frá. Enda ekki beint hannaður sem manngeng inn- eða útgönguhurð.
Hugsanirnar suðuðu hver um aðra þvera í hausnum á mér. Það eina sem mér datt í hug var að hringja í einhvern. Hringja í Gelgjuna og biðja hana að opna fyrir mér. Hringja í Vesturhlíð og segja að ég kæmi ekki eftir allt saman. Hringja í bílstjóra skólabílsins og segja að hann ætti að keyra Þann Einhverfa heim í dag, þó að ég hefði sagt annað um morguninn...
Það var aðeins eitt sem ekki gekk upp í þessu plani: síminn minn var í svörtu töskunni sem lá á jörðinni, ekki nema 30 cm frá fótum mér. Gallinn var sá að málmur skildi okkur að. Mig og töskuna mína og símann minn.
Öll ég stytta upp um síðir, stendur einhvers staðar og einhverjum tíma seinna hrundi ég út um hægri dyr að aftan eftir að hafa sett öxlina duglega í hurðina.
Við mættum korteri of seint á æfinu Sá Einhverfi og ég. Kátur drengur og marin móðir.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:29 | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 1640372
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2019
2018
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- solskinsdrengurinn
- skrifa
- jenfo
- gelgjan
- annambragadottir
- marzibil
- brynja
- hk
- gurrihar
- lehamzdr
- katlaa
- eddaagn
- jahernamig
- hronnsig
- martasmarta
- katrinsnaeholm
- palmig
- ipanama
- hallarut
- tommi
- ktomm
- poppoli
- svavaralfred
- kollajo
- bergruniris
- bene
- bennason
- jensgud
- solrunedda
- heidathord
- ringarinn
- tofraljos
- kjaftaskur
- ormurormur
- zeriaph
- unns
- ellasprella
- hjolagarpur
- salka
- nonniblogg
- markusth
- rebby
- birna-dis
- garun
- landsveit
- olofannajohanns
- brylli
- evaice
- ingolfurasgeirjohannesson
- rustikus
- singer
- jaxlinn
- krossgata
- mummigud
- blekpenni
- gerda
- baddahall
- holi
- grafarholt
- gudnylinda
- thegirl
- gretarorvars
- thordis
- herdis
- mammzan
- sigthora
- bet
- saedis
- emmgje
- sigurjonsigurdsson
- janus
- astromix
- overmaster
- thorasig
- gudni-is
- sunnadora
- kjarrip
- 810
- gislihjalmar
- beggagudmunds
- sirrycoach
- betareynis
- ilovemydog
- rannveigmst
- stormadis
- perlan
- bergdisr
- skondrumamma
- snar
- stormur
- ljonid
- raggipalli
- hjordiz
- almaogfreyja
- katja
- lady
- sigrunfridriks
- zunzilla
- olinathorv
- bidda
- smjattpatti
- jogamagg
- disadora
- harpao
- fuf
- alexm
- larahanna
- juliaemm
- saemi7
- gudrunmagnea
- svala-svala
- kari-hardarson
- hlf
- hlinnet
- annagisla
- einari
- lena75
- hector
- saethorhelgi
- ernafr
- birnarebekka
- heidistrand
- kerla
- hannamar
- jara
- supermamma
- monsdesigns
- malacai
- solveigth
- siggathora
- senorita
- snjaldurmus
- photo
- stingi
- pollyanna
- steingerdur
- icekeiko
- majaogco
- skordalsbrynja
- danjensen
- lilly
- heidabj
- omarpet
- helgamagg
- nori
- jamesblond
- gretaulfs
- rattati
- hogni
- ragjo
- kolgrima
- skjolid
- hugrunj
- egill75
- amman
- liljabolla
- asgerdurjoh
- okurland
- rannthor
- svalaj
- siggith
- vefritid
- zsapper
- laz
- graceperla
- rannug
- agbjarn
- alliragg
- fjarki
- birtabeib
- roslin
- lindape
- rosa
- tinnaeik
- muszka
- krummasnill
- lindalea
- fjola
- solan
- scorpio
- evabenz
- isleifure
- karitryggva
- ellasiggag
- beggita
- ollabloggar
- madddy
- songfuglinn
- emm
- lindagisla
- turettatuborg
- einarsigvalda
- huldadag
- siggasin
- credo
- loathor
- carma
- komaso
- fifudalur
- rosabla
- lillagud
- eythora
- griman
- eyrunelva
- svanurg
- strumpurinn
- godihundur
- hallidori
- annriki
- sibbulina
- helgurad
- huldumenn
- julianamagg
- berglindnanna
- huldam
- joik7
- venus
- osland
- liso
- amaba
- asako
- hryssan
- mammann
- leyla
- gunnarggg
- sigrunzanz
- fanneyunnur
- himmalingur
- helgabst
- bostoninga
- christinemarie
- jea
- elisabeta
- perlaoghvolparnir
- meyjan
- wonderwoman
- coke
- ragnhildurthora
- gullilitli
- tommi16
- ea
- mariaannakristjansdottir
- einarorneinars
- lindalinnet
- joninaros
- reynzi
- rosagreta
- lauola
- reynir
- elinora
- ma
- olapals
- bestalitla
- kolgrimur
- handtoskuserian
- vonin
- kaffi
- einarhardarson
- gleymmerei
- brandarar
- alf
- hreinsamviska
- litlakonan
- lucas
- reisubokkristinar
- jgfreemaninternational
- olofdebont
- thjodarblomid
- vilma
- ollana
- gudrununa
- holar
- gotusmidjan
- huldastefania
- mubblurnar
- bjarnihardar
- vild
- skrudur
- jyderupdrottningin
- sifjan
- letilufsa
- hrundt
- robbitomm
- brudurin
- anitabjork
- blindur
- astabjork
- bailey
- gattin
- draumur
- einhugur
- trygg
- eskil
- evags
- gudrunkatrin
- gudrunss
- nf26b
- topplistinn
- helgaas
- helgatho
- hildurhelgas
- drum
- innipuki
- ingal
- kikka
- astroblog
- oliskula
- joklamus
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- kariaudar
- vga
- thorolfursfinnsson
- motta
Athugasemdir
Ómar Ingi, 13.1.2009 kl. 22:28
hahaha nú frussaði ég yfir skjáinn
Dísa Dóra, 13.1.2009 kl. 22:41
LOL ha ha h ha ha haaa Ferlega er ég búin að hlæja upphátt að þessu!!!! BARA fyndið!!!!
Ju hvað ég sé þetta fyrir mér..... ó mæ god....... er ennþá að hlæja!!!!
Takk kærlega fyrir hlátur dagsins!!!!!
LBH (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 23:05
Jóna: Þú ert eina konan (fyrir utan moi) sem getur gert svona og í engu verið að segja ósatt.
Svei mér þá ég er í kasti.
Ég held að mér sé bara farið að líka við þig. Múha.
Have I told you lately?
Jenný Anna Baldursdóttir, 13.1.2009 kl. 23:50
Á mínum heimazlóðum er oft dona kalt líka. Þar hinz vegar bregðazt alvöru karlmenn rétt við aðztæðum & kaupa þeim mun stærri skutbíla, (station), eftir því sem að konur þeirra verða 'skutmeiri', til að einfalda þeim álíka aðstæður & þú svo skemmtilega lýzir.
(Með fjarstýrðu rafztarti, zgo ...)
Steingrímur Helgason, 14.1.2009 kl. 00:13
Frábær lesning
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.1.2009 kl. 00:47
thú ert óborganleg!! hahahahaha
María Guðmundsdóttir, 14.1.2009 kl. 05:56
*glott*
Þetta er eins og fyrsti bíllinn minn.... (já og sá 3. líka) ........
Nema þeir voru ekki með skuthurð...........
(og... ég hef ekki lent í því að læsast inni með gemsann úti í poka!)
Einar Indriðason, 14.1.2009 kl. 08:28
Maður er varla svona óheppinn !
Anna Gísladóttir, 14.1.2009 kl. 10:09
Jóna mín næst.... sem vonandi verður ekki í bráð skaltu fara inn og fylla hraðsuðuketilinn af sjóðandi vatni og hella á helv... hurðina, svínvirkar.
Svo fæst lásasprey á bensínstöðvunum svona defrost eitthvað hehehe...
Góða kveðjur héðan úr frostinu mikla.
Ía Jóhannsdóttir, 14.1.2009 kl. 10:17
Högni Jóhann Sigurjónsson, 14.1.2009 kl. 13:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.