Leita í fréttum mbl.is

Ég er á lífi - linkur á Sólskinsdrenginn

 

Ég bið ykkur, hvert og eitt sem komið hér inn, að gefa ykkur tíma til að kíkja á viðtalið við Margréti Dagmar, móður Sólskinsdrengsins. Ég, sem lifi og hrærist í heimi einhverfs drengs, var gjörsamlega gáttuð yfir því sem ég sá í þessu stutta viðtali. Einhverfa og einhverfa er svo langt frá því að vera endilega sami hluturinn.. sama upplifunin.. sama fötlunin...

Ég á alveg von á því að það verði andlegt átak að sitja í eina og hálfa klukkustund og horfa á myndina. Ég hálfkvíði fyrir.. er hrædd um að hjartað í mér springi úr samúð. En jafnframt hlakka ég svo óendanlega til. Veit ég á eftir að læra svo margt. Uppgötva ótal hluti.

Hér er linkur á viðtal Þorsteins J. við Margréti Dagmar. Gefið ykkur nokkrar mínútur.

Sólskinsdrengur  

-------

Það tilkynnist hér með að ég er á lífi... ef einhver skyldi sakna mín. Ég hef verið ófyrirgefanlega löt að blogga undanfarið.

En ég er nú samt fyr og flamme og sama má segja um restina af fjölskyldunni.

Í gegnum Þann Einhverfa upplifi ég þessa barnslegu gleði yfir jólunum, sem mér þykir vanta svolítið í okkur hin. Börn jafnt sem fullorðna.

Hann heldur niðrí sér andanum í hvert skipti sem nýr kassi eða poki er dreginn fram. Með glampa í augum og lúmsk bros bíður hann eftir að sjá hvaða gersemar komi í ljós upp úr rykföllnu boxunum.

Hoppar af spenningi á meðan verið er að koma dótinu fyrir og virðir það svo fyrir sér með svip sem gefur til kynna að hann eigi heiðurinn af þessu öllu saman.

Jólaþorpið er komið upp. Og þó að erfitt sé að festa á filmu töfrana sem þessi litlu hús með ljósunum kalla fram, þá læt ég fylgja hér mynd.

jolaþorp I

Er farin í Smáralind. We talk soon...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

takk fyrir að linka viðtalið, ég veit allavega aðeins meira eftir að horfa á það, já og gott að heyra að þú lifir

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 21.12.2008 kl. 15:25

2 Smámynd: María Guðmundsdóttir

ædislegt jólathorp

María Guðmundsdóttir, 21.12.2008 kl. 16:00

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ofsalega fallegt jólaþorpið þitt.  Og sá einhverfi er fallegur líka.  Litla krúttið sem kann að upplifa fölskvalausa jólagleði.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.12.2008 kl. 16:40

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég sá viðtalið s.l. fimmtudag og ætla ekki að missa af myndinni.

Yndislegt jólaþorpið ykkar

Sigrún Jónsdóttir, 21.12.2008 kl. 17:17

5 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 21.12.2008 kl. 20:25

6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Dásamlega er þetta sætt jólaþorp. Og vitanlega á Sá Einhverfi heiðurinn af þessi öllu. En ekki hver?

Helga Magnúsdóttir, 21.12.2008 kl. 21:21

7 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Frábært viðtal, mig langar SVOOO að sjá myndina Skil þetta svo vel með mismuninn á þessum börnum. Ég er með tvö og þegar ég fékk Asperger greininguna á stelpuna líka, reifst ég nú svolítið og skammaðist. Þá sagði sérfræðingurinn mér að þegar þú ert búin að sjá einn einhverfan eða asperger þá ertu bara búin að sjá einn. Ég var svo ósátt þar sem mér fannst svo mikill munur á mörgu hjá þeim systkinunum þó að þau væru svona ná skyld og með nákvæmlega sömu greiningar, þá eru þau rosalega ólík. Guð hvað ég vona að það verði nú vakning þarna heima. Héðan er það að frétta að elsti minn er á heimavistaskóla, orðin 19, er með kærustu og ætlar að fara að læra fornleifarfræði næsta vetur. Og dóttirin er að byrja að koma meira og meira í ljós (úr sínum heimi), komin í fjölbraut og farin að eignast VINI

Knús og klemmur frá mér til þín Jóna mín og innilega til hamingju með bókina, kannski ég fái hana í jólagjöf frá Íslandi Sigrún.

En ef þú veist hvort eða hvenær væri hægt að sjá myndina í Noregi eða kaupa hana á netinu, viltu þá láta mig vita.

Sigrún Friðriksdóttir, 22.12.2008 kl. 00:03

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Jóna það er ljótt að blóta á blogginu þínu,geri það auðvitað ekki,en ég næ EKKI viðtalinu. P.S. (blóta sjálfri mér fyrir heimskuna). 

Helga Kristjánsdóttir, 22.12.2008 kl. 01:54

9 Smámynd: Anna

Er lifid ekki yndislegt

Anna , 22.12.2008 kl. 10:43

10 Smámynd: Ólöf Anna

Fallegt jólaþorp.

Ólöf Anna , 22.12.2008 kl. 13:34

11 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Já lífið er svo sannarlega ljúftknús og kossar

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 22.12.2008 kl. 14:25

12 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

,,Í gegnum Þann Einhverfa upplifi ég þessa barnslegu gleði yfir jólunum"

Hann á heiðurinn að þessu, það er bara þannig.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 22.12.2008 kl. 17:59

13 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Ég og mín kæra fjölskylda viljum óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þökkum árið sem er að líða.....Jólakveðja

 Linda og Fjölskylda :):):):)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.12.2008 kl. 00:46

14 identicon

Sæl.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 04:10

15 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ég saknaði þín.

Heiða Þórðar, 23.12.2008 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband