Leita í fréttum mbl.is

...fyrir þér ber ég fána / þessa framtíðarlands

 

Heyrði þetta lag/texta spilað og sungið í Útvarpi Latabæ í gær.

Kom eitthvað við kauninn á mér þó að árstíðin eigi ekki við akkúrat núna.

 

Ó hve létt er þitt skóhljóð
ó hve leingi ég beið þín,
það er vorhret á glugga,
napur vindur sem hvín,
en ég veit eina stjörnu,
eina stjörnu sem skín,
og nú loks ertu komin,
þú ert komin til mín.

Það eru erfiðir tímar,
það er atvinnuþref,
ég hef ekkert að bjóða,
ekki ögn sem ég gef,
nema von mína og líf mitt
hvort ég vaki eða sef,
þetta eitt sem þú gafst mér
það er alt sem ég hef.

En í kvöld lýkur vetri
sérhvers vinnandi manns,
og á morgun skín maísól,
það er maísólin hans,
það er maísólin okkar,
okkar einíngarbands,
fyrir þér ber ég fána
þessa framtíðarlands.

(Lag: Alþýðulag/Jón Ásgeirsson. Ljóð: Halldór Laxnes)


Bjáni, bjáni, bjáni, kallaði Sá Einhverfi háum rómi úr rúminu sínu í kvöld. Ég veit að hann var að horfa á Bubba Byggi en hann hefði allt eins getað verið að horfa á einhvern ráðherrann á sjónvarpsskjánum. Og þó... Bubbi Byggir hefur helling að miðla af sinni visku og réttlætiskennd. Ráðamenn virðast ekki hafa neinu að miðla þessa dagana.

Ég held að þjóðin sé eins og tifandi tímasprengja.


mbl.is „Hefði átt að vera búið að stoppa ykkur fyrir löngu"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það held ég líka....og kominn tími til.

Til hamingju með bókina

Sigrún Jónsdóttir, 4.11.2008 kl. 00:05

2 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Já, það ólgar og kraumar allt hér á klakanum okkar kalda og því miður held ég að stóra sprengjan eigi eftir að koma...og þá fyrst fer að halla undan fæti hjá "ráðamönnunum" eða Óráðamönnunum...og ætli sjái þá ekki undir iljarnar á þeim.....

Við erum ekki vön að láta vaða yfir okkur á skítugum skónum mjög lengi...

Bergljót Hreinsdóttir, 4.11.2008 kl. 00:15

3 identicon

Já ein og tifandi tímasprengja.Ekki minkar hættan á því að sprenging verði með nýjustu fréttum af afskriftunum.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 00:21

4 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Mér finnst við einmitt vera nokkuð vön að láta vaða yfir okkur á forugum skónum svo ég kommenti á komment..

En annars reyni ég að vera sparsöm fram í desember.. svo ég geti eytt einhverju af ráði.. eða óráði

Guðríður Pétursdóttir, 4.11.2008 kl. 08:20

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Endalaust fallegt lag. Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 4.11.2008 kl. 09:33

6 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knúsilíus knús frá okkur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 4.11.2008 kl. 10:03

7 identicon

Kærar kveðjur úr norðri!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 11:08

8 Smámynd: Hulla Dan

Knús yfir hafið

Hulla Dan, 4.11.2008 kl. 11:13

9 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 4.11.2008 kl. 19:41

10 identicon

 

Ákvað að henda þessu hérna inná hjá þér svona ef þú skyldir ekki kíkja við á mína síðu... er að reyna að auglýsa út um allt!

Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 21:00

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Takk Jóna, það er einhvern veginn öðruvísi núna að hlusta á lög - í þessu ástandi. Ég held ég hafi átt eftir að óska þér til lukku með bókina þína! Geri það hér með!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 4.11.2008 kl. 21:37

12 Smámynd: Gylfi Björgvinsson

Fallegt ljóð  og undur fallegt lag ...... gott að koma með eitthvað jákvætt þessa dagana, og jú ástandið er vissulega eldfimt

Gylfi Björgvinsson, 4.11.2008 kl. 22:15

13 identicon

Kíktu aftur á síðuna mína, held að þetta sé komið núna.

Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband