Sunnudagur, 9. september 2007
Að drepa frekar en að vera drepinn
Hann vissi að hann yrði að segja skilið vinkonu sína. Því fyrr því betra. Reyndar hefði hann átt að vera löngu búin að því. Það voru svo mörg ár frá því að hann vissi hvernig hún var innrætt. Undirförul. Lét honum líða svo vel. Fullnægði honum. En undir hvítu og sléttu yfirborðinu leyndist banvæn blanda. Hún vildi honum ekkert gott og hafði aldrei viljað. Takmark hennar frá þeirra fyrstu kynnum var að gera hann veiklundaðan. Háðan sér og þeim tilfinningum sem hún vakti. Hann hafði barist gegn þessum tilfinningum svo lengi. Logið að sjálfum sér. Allt til þess að þurfa ekki að taka ákvörðun. Hann vildi hana úr lífi sínu. En samt hélt hann í hana dauðahaldi. Þrátt fyrir að hann vissi að það væri aðeins spurning um tíma hvenær hún dræpi hann. Hún var nú þegar byrjuð að myrða hann á sinn hægláta, hljóða og undirförla hátt.
Ákvörðunin var skyndileg og kom honum á óvart. En skyndiákvarðanir eru oft þær sem auðveldast er að standa við og uppfylla.
Hann þreif til hennar og fleygði henni á jörðina. Naut þess að stíga á hana og þrýsta ofan í svaðið. Þrýsti henni svo fast ofan í drulluna að hún hvarf sjónum hans. Loginn var slokknaður. Að eilífu.
Hann gekk að næstu ruslatunnu og henti restinni af sígarettupakkanum.Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Stjórnmál og samfélag, Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2019
2018
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- solskinsdrengurinn
- skrifa
- jenfo
- gelgjan
- annambragadottir
- marzibil
- brynja
- hk
- gurrihar
- lehamzdr
- katlaa
- eddaagn
- jahernamig
- hronnsig
- martasmarta
- katrinsnaeholm
- palmig
- ipanama
- hallarut
- tommi
- ktomm
- poppoli
- svavaralfred
- kollajo
- bergruniris
- bene
- bennason
- jensgud
- solrunedda
- heidathord
- ringarinn
- tofraljos
- kjaftaskur
- ormurormur
- zeriaph
- unns
- ellasprella
- hjolagarpur
- salka
- nonniblogg
- markusth
- rebby
- birna-dis
- garun
- landsveit
- olofannajohanns
- brylli
- evaice
- ingolfurasgeirjohannesson
- rustikus
- singer
- jaxlinn
- krossgata
- mummigud
- blekpenni
- gerda
- baddahall
- holi
- grafarholt
- gudnylinda
- thegirl
- gretarorvars
- thordis
- herdis
- mammzan
- sigthora
- bet
- saedis
- emmgje
- sigurjonsigurdsson
- janus
- astromix
- overmaster
- thorasig
- gudni-is
- sunnadora
- kjarrip
- 810
- gislihjalmar
- beggagudmunds
- sirrycoach
- betareynis
- ilovemydog
- rannveigmst
- stormadis
- perlan
- bergdisr
- skondrumamma
- snar
- stormur
- ljonid
- raggipalli
- hjordiz
- almaogfreyja
- katja
- lady
- sigrunfridriks
- zunzilla
- olinathorv
- bidda
- smjattpatti
- jogamagg
- disadora
- harpao
- fuf
- alexm
- larahanna
- juliaemm
- saemi7
- gudrunmagnea
- svala-svala
- kari-hardarson
- hlf
- hlinnet
- annagisla
- einari
- lena75
- hector
- saethorhelgi
- ernafr
- birnarebekka
- heidistrand
- kerla
- hannamar
- jara
- supermamma
- monsdesigns
- malacai
- solveigth
- siggathora
- senorita
- snjaldurmus
- photo
- stingi
- pollyanna
- steingerdur
- icekeiko
- majaogco
- skordalsbrynja
- danjensen
- lilly
- heidabj
- omarpet
- helgamagg
- nori
- jamesblond
- gretaulfs
- rattati
- hogni
- ragjo
- kolgrima
- skjolid
- hugrunj
- egill75
- amman
- liljabolla
- asgerdurjoh
- okurland
- rannthor
- svalaj
- siggith
- vefritid
- zsapper
- laz
- graceperla
- rannug
- agbjarn
- alliragg
- fjarki
- birtabeib
- roslin
- lindape
- rosa
- tinnaeik
- muszka
- krummasnill
- lindalea
- fjola
- solan
- scorpio
- evabenz
- isleifure
- karitryggva
- ellasiggag
- beggita
- ollabloggar
- madddy
- songfuglinn
- emm
- lindagisla
- turettatuborg
- einarsigvalda
- huldadag
- siggasin
- credo
- loathor
- carma
- komaso
- fifudalur
- rosabla
- lillagud
- eythora
- griman
- eyrunelva
- svanurg
- strumpurinn
- godihundur
- hallidori
- annriki
- sibbulina
- helgurad
- huldumenn
- julianamagg
- berglindnanna
- huldam
- joik7
- venus
- osland
- liso
- amaba
- asako
- hryssan
- mammann
- leyla
- gunnarggg
- sigrunzanz
- fanneyunnur
- himmalingur
- helgabst
- bostoninga
- christinemarie
- jea
- elisabeta
- perlaoghvolparnir
- meyjan
- wonderwoman
- coke
- ragnhildurthora
- gullilitli
- tommi16
- ea
- mariaannakristjansdottir
- einarorneinars
- lindalinnet
- joninaros
- reynzi
- rosagreta
- lauola
- reynir
- elinora
- ma
- olapals
- bestalitla
- kolgrimur
- handtoskuserian
- vonin
- kaffi
- einarhardarson
- gleymmerei
- brandarar
- alf
- hreinsamviska
- litlakonan
- lucas
- reisubokkristinar
- jgfreemaninternational
- olofdebont
- thjodarblomid
- vilma
- ollana
- gudrununa
- holar
- gotusmidjan
- huldastefania
- mubblurnar
- bjarnihardar
- vild
- skrudur
- jyderupdrottningin
- sifjan
- letilufsa
- hrundt
- robbitomm
- brudurin
- anitabjork
- blindur
- astabjork
- bailey
- gattin
- draumur
- einhugur
- trygg
- eskil
- evags
- gudrunkatrin
- gudrunss
- nf26b
- topplistinn
- helgaas
- helgatho
- hildurhelgas
- drum
- innipuki
- ingal
- kikka
- astroblog
- oliskula
- joklamus
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- kariaudar
- vga
- thorolfursfinnsson
- motta
Athugasemdir
Ég var farin að halda að núna væri að koma morðsaga!! en svona í hreinskilni, núna langar mig að hætta að reykja
Huld S. Ringsted, 9.9.2007 kl. 22:37
góð
Hrönn Sigurðardóttir, 9.9.2007 kl. 22:38
Gamla geit ... hehehehhehe
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 9.9.2007 kl. 22:41
Þetta er eitthvað sem ÉG ætti að vera löngu búinn að gera.
Eiríkur Harðarson, 9.9.2007 kl. 22:45
thíhíhí
Jóna Á. Gísladóttir, 9.9.2007 kl. 22:48
Vá ! Þvílíkur endir. Eða var þetta ekki endirinn ? Stígur hún kannski upp úr drullunni og hendist í sturtu ? Hvað veit maður !
Anna Einarsdóttir, 9.9.2007 kl. 22:50
Þetta er the end Anna mín. Vinkonan var sígaretta... svona ef þú skyldir ekki vera alveg með á nótunum
Jóna Á. Gísladóttir, 9.9.2007 kl. 22:55
Ég var orðinn spenntur, hélt líka að þarna væri að fæðast sakamálasaga og röflaði með sjálfum mér að það væri ekki verið að hugsa um okkur eldri borgarana verandi með þennan panil á bak við örsmátt letur og svo endaði sagan bara á meðan.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 9.9.2007 kl. 23:02
Ég hélt að þetta væri hluti af sögunni, las með áfergju, varð fyrir vonbrigðum. en gat ekki annað en hlegið. Já Anna við skulum henda henni í sturtu og þurrka hana, það verður eitthvað að vera eftir fyrir Þjóðminjasafnið.
Edda Agnarsdóttir, 9.9.2007 kl. 23:13
HeHe ég hélt að þú væri að segja mína sögu. Guðina bænum haltu áfram þetta er mjög spennandi.
Kristín Katla Árnadóttir, 9.9.2007 kl. 23:33
Góð Jóna, góð. Æ læk jú !"
Guðrún B. (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 23:34
Ég er hér með hætt að reykja, bráðum sko
Jenný Anna Baldursdóttir, 9.9.2007 kl. 23:36
Aldrei skilið reykingar sem betur fer (finnst mér )
Ómar Ingi, 9.9.2007 kl. 23:41
Þú ert miskunnarlaus það deyja alltaf einhverjir í sögunum þínum jóna.
Georg Eiður Arnarson, 9.9.2007 kl. 23:47
Góð! Með þjálfun úr auglýsingabransanum? Óvænta uppákoman virkaði, ég sá þetta ekki fyrir.
Ívar Pálsson, 9.9.2007 kl. 23:54
Þér farast alltaf vel úr hendi tvíræðar sögur og óvæntir endar. Það er alveg þinn kaffibolli.
krossgata, 9.9.2007 kl. 23:56
Nú fórstu alveg með mig -ég hélt að þetta væri 6. hlutinn af framhaldssögunni. Góð
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 23:59
Góð morðsaga
Marta B Helgadóttir, 10.9.2007 kl. 00:52
Góð, er einmitt að undirbúa morðið mitt á vinkonunni....Champix held ég að vopnið mitt heiti
Bjarndís Helena Mitchell, 10.9.2007 kl. 00:53
Þú ert frábær!
Heiða Þórðar, 10.9.2007 kl. 03:12
Átti ekki von á þessum endi :o)
Vignir, 10.9.2007 kl. 08:45
Jóna þetta átti að vera djók hjá mér.
Kristín Katla Árnadóttir, 10.9.2007 kl. 09:52
Góð þessi
Ásta Björk Hermannsdóttir, 10.9.2007 kl. 10:38
Frábært hjá þér!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 10:54
Snilld
Ásdís Sigurðardóttir, 10.9.2007 kl. 11:48
Er byrjuð að leggja drög að því að slíta ástarævintýrinu með viðkomandi óþverra. Þökk sé yður
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.9.2007 kl. 12:20
Flott saga!
Hugarfluga, 10.9.2007 kl. 12:49
Þú mátt fána þí évileggisjáana
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.9.2007 kl. 13:37
Ótrúlega flott saga hehe...
Svala Erlendsdóttir, 10.9.2007 kl. 13:49
Þú ert best!
Gunnar Helgi Eysteinsson, 10.9.2007 kl. 16:13
Hætti einmitt í gær. Fín saga
Valgerður G., 10.9.2007 kl. 17:07
Jiiiii ég hef enga drepið en alveg steingleymt að reykja í marga daga??
Sniðug saga!!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 10.9.2007 kl. 17:12
frábært hjá þér kona, flott spenna að myndast sem varð svo að brandara þegar sagan kláraðist.
Fannst ég vera jafn blöffuð og þegar ég heyrði pípulagið í fyrsta sinn sem hljómaði eins og fínasta ástarjátning.
Pant þó meira af framhaldssögunni takk ....
Rebbý, 10.9.2007 kl. 17:27
Frábær saga
Sædís Ósk Harðardóttir, 10.9.2007 kl. 19:52
Við viljum meira....................
Elísa (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 20:08
Snilldar pistill ..
Hólmgeir Karlsson, 10.9.2007 kl. 22:23
Júhú! Ég drap í minni síðustu sígarrettu þann 10. október í fyrra. bráðum ársafmæli. En svakalega var ég undrandi þegar ég las þessa sögu, því ég hélt að þetta væri endirinn á sögunni um Líneyju.
Svava frá Strandbergi , 10.9.2007 kl. 23:00
Ég verð að taka mér þessa sögu til fyrirmyndar
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 10.9.2007 kl. 23:47
Maður fær hroll við lesninguna og les ákafur áfram.
Þú ert snillingur í að gera frásagnir spennandi
Takk fyrir mig
Ása Hildur Guðjónsdóttir, 10.9.2007 kl. 23:47
Sko til. Upphaf á enn einni sögunni sem lofar góðu. Þú hefur réttu tökin á þessu. Nú bíður maður á tánum spenntur eftir framhaldinu.
Jens Guð, 11.9.2007 kl. 00:32
Snilld. Ég er búin að drepa í
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 08:31
Takk fyrir komment öll. Gaman að sjá hvað margir eru búnir að drepa í. Ég mæli alveg með því. Drap sjálf í í febrúar á þessu ári og ætla ekki að kveikja í aftur fyrr en á Grund.
Fyrir ykkur sem ''bíðið spennt eftir framhaldinu''... dont hold your breath. Þetta er upphaf, endir og miðja. Verður ekkert framhald á þessu.
Jóna Á. Gísladóttir, 11.9.2007 kl. 09:15
Góð
Guðrún Þorleifs, 11.9.2007 kl. 12:14
Úff! Ég var orðin í senn spennt og hrædd
Anna Sigga, 11.9.2007 kl. 14:10
Snilld hjá þér! 10 fyrir þessa!
Áddni, 11.9.2007 kl. 23:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.