Leita í fréttum mbl.is

Dreymdi typpi í morgun

Mig dreymir aldrei typpi ég get svarið það.

En í morgun þegar ég var að losa svefn var mig að dreyma einhverja dellu eins og vanalega og þá...

þarna var einhver stúlka í kjól. Veit ekkert hver hún var en fannst hún vera einhver fræg. Svo skellti hún sér í handstöðu upp við vegg og kjóllinn féll náttúrlega niður. Innanundir voru engar nærbuxur heldur birtist bara sprelli pelli í allri sinni mynd.

Einhvern veginn féll kjóllinn aftur fyrir dýrðina og enginn viðstaddur sá þetta nema ég. Ég sneri mér undan og hugsaði að þetta mætti aldrei neinn frétta. Þetta myndi eyðileggja líf túlkunnar/drengsins.

Og svo vaknaði ég.

Er ég að bilast eða....? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Oft er ljótur draumur fyrir litlu efni.

Svava frá Strandbergi , 31.5.2007 kl. 18:49

2 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

neits ekkert að bilast mig, hefur dreymt allan fjandan, meira að segja typpi en reyndar ekki á stelpu 

Guðríður Pétursdóttir, 31.5.2007 kl. 18:51

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Eins got að Freud komist ekki í þig..hann myndi örugglega geta tílkað eitthvað voðalega dónalegt og duldar hvatir þínar Jóna mín..og ekki má gleyma öfundarduldinni heldur. Já þú gætir orðið keis eftir svona draum.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 31.5.2007 kl. 19:04

4 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

jaaaa...Þú ættir bara að vita Jóna mín hvað mig dreymdi í nótt. Mér bara leið illa þegar ég vaknaði.

Ekki typpi..bara enn verra...segi ekki meir.  Ég ætla að fara út á sjoppu og kaupa lotto!!!!!

Rúna Guðfinnsdóttir, 31.5.2007 kl. 20:08

5 Smámynd: Brattur

Það er fyrir mjög góðu að tYppið var með Ypsiloni... það er nokkuð ljóst... held þú eigir eftir að fara í ferðalag í sumar innanlands og fá betra veður en þú bjóst við í upphafi ferðar... venjulega tek ég 150.- kr. fyrir draumráðningar, en af því að tYppið var með Ypsiloni þá er þetta í boði hússins.

Brattur, 31.5.2007 kl. 20:31

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta er ansk góður draumur jóna  og fyndin.

Kristín Katla Árnadóttir, 31.5.2007 kl. 20:57

7 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Góður draumur maður  lítil typpi eru með Y...stór tippi eru með I...í minni orðabók.

Brynja Hjaltadóttir, 31.5.2007 kl. 22:59

8 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

ég hefði haldið að það væri öfugt.. mér finnst typpi miklu stærra heldur en tippi...

Guðríður Pétursdóttir, 31.5.2007 kl. 23:03

9 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Er eitthvað "No sex please... We're British" í gangi

Þorsteinn Gunnarsson, 31.5.2007 kl. 23:14

10 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Mér er bara orðið hálf óglatt af þessu typpatali öllu ;)

Nú fæ ég martröð í nótt um.....TYPPI!

Eva Þorsteinsdóttir, 31.5.2007 kl. 23:27

11 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Gaman að sjá elskurnar hvað þið sjáið mismunandi hluti út úr þessu. Sumir telja mig ruglaða, aðrir eðlilega, sumir telja mig kynsvelta (nefni engin nöfn) og svo græði ég peninga á þessu líka. Enn aðrir vilja ræða stafsetningu og if size does matter !! Þið eruð biluð en alveg svakalega skemmtileg. 

Og svo er Þorsteinn fundinn. 

Er ekki typpi með uppsiloni?? Ég man aldrei hvort typpi er skrifað typpi eða tippi og þá hvort trippi sér skrifað tryppi eða trippi....

Jóna Á. Gísladóttir, 31.5.2007 kl. 23:31

12 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Jóna:Samkvæmt minni orðabók er tippi skrifað mei i,annað er málvilla.

Magnús Paul Korntop, 31.5.2007 kl. 23:56

13 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Bæði jafn rétt tippi og typpi

Mér sýnist þetta bara hafa verið skemmtilegur draumur... en það segir kannski bara eitthvað um mig

Heiða B. Heiðars, 1.6.2007 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband