Miðvikudagur, 11. apríl 2007
Tíðarhringur og öruggir dagar
Er ekki alveg að átta mig á hvort vinnuveitendur ætli að nýta sér þessar upplýsingar til að koma í veg fyrir ótímabæran getnað. Finna út ''örugga'' daga fyrir ríkisstarfsmenn til að stunda kynlíf.
Það væri nú hagræðing í þessu fyrir mann. Geta hringt í yfirmann sinn upp úr hádegi á sunnudegi. ''Heyrðu, krakkarnir eru úti að leika sér og okkur hjónunum langar að nýta tímann. Hvernig stendur á hjá mér í tíðarhringnum núna? Er þetta óhætt?''.
Myndi spara manni stórfé sem annars færu í alls konar getnaðarvarnir.
![]() |
Indverskir kvenríkisstarfsmenn beðnir að lýsa tíðahringnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 11. apríl 2007
Við erum að gera börnin okkar að aumingjum held ég bara
Það er tvennt sem ég sé eftir í lífinu. Að hafa ekki gengið menntaveginn (orðið t.d. dýralæknir eins og ég ætlaði mér sem barn) og að hafa aldrei stundað íþróttir.
Því tók ég þá ákvörðun snemma í lífi Gelgjunnar, að ég skyldi sko finna íþrótt/hreyfingu sem hentaði henni og hún hefði gaman af. (Menntaveginn eigum við eftir að ræða á alvarlegum nótum).
Held bara að þetta sé fundið. Allavega for now. Reiðnámskeið á sumrin og freestyle dans á veturna. Hún tók þrjú reiðnámskeið síðasta sumar og ætlar aftur í ár.
Freestyle dansinn kom inn núna eftir áramót og líkar vel.
Það er hin besta skemmtun að sitja og horfa á danstímana. Kennarinn er ung og glæsileg stúlka sem vinnur að því hörðum höndum að undirbúa ansi aldursbreiðan hóp fyrir nemendasýningu í vor. Eins og gefur að skilja eru stúlkurnar misáhugasamar (þetta eru allt stelpur). Eflaust fullt af svona mömmum eins og mér sem hafa skikkað aumingja dæturnar í danstíma því þær sjá svo eftir því að hafa ekki orðið ballerínur.
Því þarf danskennarinn ansi oft að brýna raustina og setja ofan í við nemendurna. Skammar þær kannski svolítið fyrir of letilegar hreyfingar, æpir svolítið því þær eru ekki að hlusta á taktinn í laginu, skipar þeim að endurtaka aftur og aftur og aftur sömu hreyfingarnar sem hún er ekki ánægð með o.sfrv. Hún hefur t.d. skammað gelgjuna fyrir óuppsett hár og skipað henni höstug úr flíspeysunni. Allt mjög eðlilegt að mínu mati. Mig langar oft til að standa upp úr stólnum og hrista þær svolítið til.
Frétti það í dag að nokkrar stúlkur hafa verið fjarlægðar úr tímunum því kennarinn þótti of strangur.
Je dúdda mía. What is the world coming to. Afhverju pökkum við ekki bara litlu ungunum okkar inn í bómul og selló og stillum þeim upp á hillu til skrauts. Já, ég er bara hneyksluð og hana nú!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 11. apríl 2007
Hugleiðing um sorgina
Hver hefur sinn djöful að draga eins og þar stendur og svo mikið er víst að þeir djöflar eru misþungir. Mörg hugtök eru afstæð og svo er líka um um þunga. Það sem einum þykir þungt er létt byrði fyrir annan.
Sumir atburðir eru fyrirsjáanlegir, t.d. þegar ástvinur okkar lýtur í lægra haldi fyrir langvarandi sjúkdómi eða þegar afi, sem hélt síðustu 6 árin sem hann lifði, að þú værir pabbi þinn, sofnar svefninum langa. Fyrirsjáanlegir atburðir sem þessir geta verið áfall, ekki síður en þeir ófyrirsjáanlegu.
Það er bara óskiljanlegt hvernig fólk kemst í gegnum svona lagað segjum við oft þegar við heyrum af erfiðleikum og sorgum í lífi annarra.Þetta myndi ég aldrei afbera. En það dásamlega er að við erum þeim eiginleikum gædd að tekist á við næstum hvað sem er. Þegar við stöndum frammi fyrir sorg, fjölskylduvandamáli, sjúkdómi eða öðrum áföllum þá, á einhvern óútskýranlegan hátt, fyllumst við innri styrk, brettum upp ermarnar og tökumst á við það sem um er að ræða. Og jafnvel hörðustu trúleysingjar verða að viðurkenna að við ástvinamissi er ekki ólíklegt að styrkur okkar komi frá æðri máttarvöldum. Öðruvísi væri oft á tíðum erfitt að útskýra hvernig fólk kemst í gegnum stór áföll í lífinu. Við berum sorgina mismikið utan á okkur og enginn syrgir á sama hátt. Það getur vissulega hjálpað að minnast þess að það eru fleiri sem eiga um sárt að binda, en við verðum að gæta þess að falla ekki í þá gryfju að efast um réttmæti eigin sorgar; að finnast við ekki eiga rétt á því að syrgja þar sem erfiðleikar okkar séu svo smávægilegir í samanburði við annarra. Að segja við sjálfan sig, þrátt fyrir tætta og rifna sál, að maður verði bara að herða upp hugann, halda áfram og hætta þessum aumingjaskap gerir ekkert annað en að auka á vanlíðan og setja eðlilegt sorgarferli á bið.Oft á tíðum gerum við samt nákvæmlega það; herðum upp hugann og höldum áfram. Förum þetta á hnefanum vegna þeirra sem á okkur þurfa að halda: börnin okkar, maki, vinur. En í leiðinni er mikilvægt að viðurkenna að sorgin er til staðar og að gefa henni svigrúm til að hafa sinn gang á réttum forsendum. Sorgin gerir okkur mannleg. Hún er óumflýjanlegur hluti af lífinu og raunveruleikanum. Sorgin er þroskaferli sem á þátt í að mynda okkur sem einstaklinga og persónur og hún getur breytt lífsmynstri okkar, trú og veraldararsýn.Við verðum að gefa henni svigrúm.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggfærslur 11. apríl 2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2019
2018
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
-
solskinsdrengurinn
-
skrifa
-
jenfo
-
gelgjan
-
annambragadottir
-
marzibil
-
brynja
-
hk
-
gurrihar
-
lehamzdr
-
katlaa
-
eddaagn
-
jahernamig
-
hronnsig
-
martasmarta
-
katrinsnaeholm
-
palmig
-
ipanama
-
hallarut
-
tommi
-
ktomm
-
poppoli
-
svavaralfred
-
kollajo
-
bergruniris
-
bene
-
bennason
-
jensgud
-
solrunedda
-
heidathord
-
ringarinn
-
tofraljos
-
kjaftaskur
-
ormurormur
-
zeriaph
-
unns
-
ellasprella
-
hjolagarpur
-
salka
-
nonniblogg
-
markusth
-
rebby
-
birna-dis
-
garun
-
landsveit
-
olofannajohanns
-
brylli
-
evaice
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
rustikus
-
singer
-
jaxlinn
-
krossgata
-
mummigud
-
blekpenni
-
gerda
-
baddahall
-
holi
-
grafarholt
-
gudnylinda
-
thegirl
-
gretarorvars
-
thordis
-
herdis
-
mammzan
-
sigthora
-
bet
-
saedis
-
emmgje
-
sigurjonsigurdsson
-
janus
-
astromix
-
overmaster
-
thorasig
-
gudni-is
-
sunnadora
-
kjarrip
-
810
-
gislihjalmar
-
beggagudmunds
-
sirrycoach
-
betareynis
-
ilovemydog
-
rannveigmst
-
stormadis
-
perlan
-
bergdisr
-
skondrumamma
-
snar
-
stormur
-
ljonid
-
raggipalli
-
hjordiz
-
almaogfreyja
-
katja
-
lady
-
sigrunfridriks
-
zunzilla
-
olinathorv
-
bidda
-
smjattpatti
-
jogamagg
-
disadora
-
harpao
-
fuf
-
alexm
-
larahanna
-
juliaemm
-
saemi7
-
gudrunmagnea
-
svala-svala
-
kari-hardarson
-
hlf
-
hlinnet
-
annagisla
-
einari
-
lena75
-
hector
-
saethorhelgi
-
ernafr
-
birnarebekka
-
heidistrand
-
kerla
-
hannamar
-
jara
-
supermamma
-
monsdesigns
-
malacai
-
solveigth
-
siggathora
-
senorita
-
snjaldurmus
-
photo
-
stingi
-
pollyanna
-
steingerdur
-
icekeiko
-
majaogco
-
skordalsbrynja
-
danjensen
-
lilly
-
heidabj
-
omarpet
-
helgamagg
-
nori
-
jamesblond
-
gretaulfs
-
rattati
-
hogni
-
ragjo
-
kolgrima
-
skjolid
-
hugrunj
-
egill75
-
amman
-
liljabolla
-
asgerdurjoh
-
okurland
-
rannthor
-
svalaj
-
siggith
-
vefritid
-
zsapper
-
laz
-
graceperla
-
rannug
-
agbjarn
-
alliragg
-
fjarki
-
birtabeib
-
roslin
-
lindape
-
rosa
-
tinnaeik
-
muszka
-
krummasnill
-
lindalea
-
fjola
-
solan
-
scorpio
-
evabenz
-
isleifure
-
karitryggva
-
ellasiggag
-
beggita
-
ollabloggar
-
madddy
-
songfuglinn
-
emm
-
lindagisla
-
turettatuborg
-
einarsigvalda
-
huldadag
-
siggasin
-
credo
-
loathor
-
carma
-
komaso
-
fifudalur
-
rosabla
-
lillagud
-
eythora
-
griman
-
eyrunelva
-
svanurg
-
strumpurinn
-
godihundur
-
hallidori
-
annriki
-
sibbulina
-
helgurad
-
huldumenn
-
julianamagg
-
berglindnanna
-
huldam
-
joik7
-
venus
-
osland
-
liso
-
amaba
-
asako
-
hryssan
-
mammann
-
leyla
-
gunnarggg
-
sigrunzanz
-
fanneyunnur
-
himmalingur
-
helgabst
-
bostoninga
-
christinemarie
-
jea
-
elisabeta
-
perlaoghvolparnir
-
meyjan
-
wonderwoman
-
coke
-
ragnhildurthora
-
gullilitli
-
tommi16
-
ea
-
mariaannakristjansdottir
-
einarorneinars
-
lindalinnet
-
joninaros
-
reynzi
-
rosagreta
-
lauola
-
reynir
-
elinora
-
ma
-
olapals
-
bestalitla
-
kolgrimur
-
handtoskuserian
-
vonin
-
kaffi
-
einarhardarson
-
gleymmerei
-
brandarar
-
alf
-
hreinsamviska
-
litlakonan
-
lucas
-
reisubokkristinar
-
jgfreemaninternational
-
olofdebont
-
thjodarblomid
-
vilma
-
ollana
-
gudrununa
-
holar
-
gotusmidjan
-
huldastefania
-
mubblurnar
-
bjarnihardar
-
vild
-
skrudur
-
jyderupdrottningin
-
sifjan
-
letilufsa
-
hrundt
-
robbitomm
-
brudurin
-
anitabjork
-
blindur
-
astabjork
-
bailey
-
gattin
-
draumur
-
einhugur
-
trygg
-
eskil
-
evags
-
gudrunkatrin
-
gudrunss
-
nf26b
-
topplistinn
-
helgaas
-
helgatho
-
hildurhelgas
-
drum
-
innipuki
-
ingal
-
kikka
-
astroblog
-
oliskula
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
kariaudar
-
vga
-
thorolfursfinnsson
-
motta