Fimmtudagur, 21. júní 2007
Gaddakylfan 2007
Gaddakylfan, smásagnakeppni Mannlífs, Grand Rokk og Hins íslenska glæpafélags, er haldin í fjórða sinn í ár. Glæpafélagið hélt keppnina fyrst í samvinnu við Grand Rokk fyrir þremur árum en ári síðar hætti Mannlíf sér út á refilstigu glæpasagnanna, gekk til liðs við Glæpafélagið og síðan þá hefur keppnin verið kennd við Gaddakylfuna, vígalegan verðlaunagripinn sem veittur er þeim sem skrifar bestu smásöguna hverju sinni.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu sögurnar að mati dómnefndar. Höfundur bestu sögunnar fær veglegan verðlaunagrip, Gaddakylfu, sem listakonan Kogga hannar, og öfluga fartölvu. Verðlaunafé fyrir annað sætið eru 30 þúsund krónur og 20 þúsund fyrir það þriðja. Þá verða verðlaunasögurnar þrjár birtar í bók sem mun fylgja Mannlífi í lok júní. Mannlíf áskilur sér einnig rétt til þess að velja fleiri innsendar sögur til birtingar í glæpasagnakverinu.
Mig langaði hrikalega í þessa fartölvu. Varð ekki að ósk minni en sagan mín verður birt í bókinni. Ég er mjög glöð yfir því. Langaði samt alveg helvíti mikið í fjandans fartölvuna.
Ég ætla ekki að birta þessa glæpasögu hér en í staðin kemur hér smásagan sem ég skrifaði sem verkefni á námskeiðinu hjá Þorvaldi sæta Þorsteinssyni. Ég tek það fram að það er engin skylda að lesa söguna. En þeim sem ekki lesa hana verður hent út af bloggvinalista hjá konunni. Verkefnið var byggt upp þannig að allt var gert í öfugri röð. Þ.e. fyrst fann ég titil á smásögu (alveg út í loftið) og svo skrifaði ég söguna. Vatnið sem hvarf var upphaflegi titillinn og var með smá tilllögubeiðni hér á blogginu til ykkar um hvaða vatn þetta væri sem myndi hverfa. Ég fékk hugmynd frá ykkur sem þróaðist og breyttist og endaði í nýjum titli:
Á ferðalagi hvernig sem viðrar
Tíu ára glókollur kemur valhoppandi eftir stígnum. Regndroparnir, sem falla reglulega úr hárinu á honum og smjúga niður hálsmálið á úlpunni, virðast ekki hafa truflandi áhrif á hann. Hann blístrar glaðlega falska tóna og kinnar og nefbroddur eru rjóð, líkt og sólin hefði leikið um andlit hans allan daginn.
Mamma stendur við stofugluggann og horfir á guttann sinn nálgast húsið. Hún nýtur þess að sjá hversu glaður og áhyggjulaus hann er því innan skamms mun það breytast.
Amma varð bráðkvödd í morgun og mamma er óviss hvernig glókollurinn hennar mun bregðast við fréttunum. Allt frá því að hann fæddist hefur amma búið hjá þeim og hann þekkir ekkert annað fjölskyldumunstur en að hafa bæði ömmu og mömmu á heimilinu.
Þegar hann var lítill vann mamma mikið. Þá var gott að hafa ömmu hjá sér og saman brölluðu þau tvö ótrúlegustu hluti. Þau tvö voru vinir. Bestu vinir.
Með ömmu lærði Glókollur að njóta náttúrunnar og sjá það fallega í öllum veðrabreytingum. Þau fóru í göngutúr á hverjum degi, sama hvernig sem viðraði og Glókolli lærðist að klæða sig eftir eftir veðri.
Þau fóru saman á leikvöllinn og amma mokaði í gríð og erg sandi ofan í marglitar plastfötur á meðan glókollur sturtaði úr þeim jafnóðum aftur. Þau veguðu salt og ýttu hvort öðru í rólunum. Amma kenndi honum að miðla málum á leikvellinum á ýmsan
hátt í stað þess að henda grjóti til að lýsa vanþóknun sinni og óánægju.
- - Góð pólitík að kunna að miðla málum, sagði amma stundum.
Þau gengu fjöruna og varplöndin í kring milljón trilljón sinnum á fyrstu æviárum Glókolls og þar lærði hann að bera virðingu fyrir fuglalífinu og hann lærði að verjast kríunni um varptímann með því að veifa húfunni, rekadrumb eða öðru handhægu fyrir ofan höfuðuð á sér.
Mörg kvöldin læddust þau um í blautu grasinu í garðinum, vopnuð vasaljósum og fötum með mosa í. Ofan í föturna týndu þau ánamaðka fyrir veiðiferðirnar hans Sigga á Snæbóli. Hann var vinur og veiðifélagi afa á meðan afi lifði.
Amma var alltaf skemmtilegur félagsskapur og aldrei að flýta sér eins og mamma. Hún hafði alltaf tíma fyrir Glókoll. Þó honum finndist hann vera orðinn of stór fyrir sögustundirnar hennar ömmu og segði engum frá þeim, þá var uppáhaldstíminn hans á kvöldin þegar hann var komin í náttfötin því þá var komin sögustund. Hann vissi ekkert betra en að liggja í stofusófanum með höfuðið í kjöltunni á ömmu og hlusta á sögurnar hennar. Stundur voru það ævintýri sem amma span jafnóðum og stundum voru það minningar frá æsku hennar. Það þótti Glókolli merkilegar sögur því amma fæddist snemma á síðustu öld og ólst upp í torfbæ. Æska ömmu var svo gjörólík því sem börn áttu að venjast í dag.
Glókolli dreymdi stundum á nóttunni að hann væri staddur á æskuslóðum ömmu. Hann hafði aldrei komið þangað en lýsingar gömlu konunnar á fólki og stöðum stóðu honum ljóslifandi fyrir hugskotssjónum.. Í þessum draumum var hann stundum að reka kýrnar heim í fjós eða leika sér með 'gulllin'' hennar ömmu. Amma kallaði öll leikföng gull og honum líkaði orðið vel.
Amma kynnti Guð fyrir Glókolli. Glókollur átti erfitt með að trúa því að Guð væri raunverulegur og amma sagði að það væri allt í lagi. Hverjum og einum væri í sjálfsvald sett hverju þeir tryðu. En hún útskýrði fyrir Glókolli að fyrir henni væri Guð æðri máttur og tákn alls þess góða sem í mannfólkinu býr.
-Mér þykir gott að trúa því að einhver sé okkur æðri og fylgist með okkur og leiðbeini þegar erfiðleikar steðja að, sagði amma og strauk Glókolli um hárið.
-Mikilvægast er að þú trúir á sjálfan þig og það góða sem í þér býr. Það mun færa þér hamingju og gott líf.
Og hún kenndi honum að fara með bænir.
Glókollur viðurkenndi það ekki einu sinni fyrir ömmu en á hverju kvöldi fór hann með allar bænirnar sem amma hafði kennt honum í hálfum hljóðum áður en hann fór að sofa.
Allt þetta rifjaði Glókollur upp í huganum um kvöldið, eftir að hafa fullvissað mömmu um að það væri allt í lagi með hann. En sannleikurinn var sá að hann er með skrýtinn hnút í maganum og honum líður eins og hjartað hans geti brostið á hverri stundu. Hann þrýstir andlitinu ofan í koddann til að mamma heyri ekki litlu kveinin sem brjótast út fyrir varirnar á honum. Að lokum sígur á hann höfgi og hann sofnar kærkomnum, draumlausum svefni.
Næstu dagar eru bæði skrítnir og annasamir. Fjöldinn allur af fólki kemur í heimsókn til að votta þeim samúð sína. Sumir koma með blómvendi og aðrir eitthvað að borða eins og smákökur, tertur eða pottrétti til að hita upp.
Ég elda nú stundum tautar mamma taugaveikluð og brosir skökku brosi.
Hún er þreytuleg og hefur miklar áhyggjur af Glókolli. Það hefur rignt stanslaust í þrjá daga og Glókollur eyðir löngum stundum við eldhúsgluggann og starir á regnið skella lárétt á rúðuna.
-Viltu ekki fara og heimsækja einhverja af vinum þínum spyr mamma Glókoll á um það bil klukkustundar fresti.
En hann situr bara sem fastast í stólnum hennar ömmu og handleikur uppáhaldskaffibollann hennar. Hann er þungbúinn á svipinn og það dregst varla orð upp úr honum.
Mamma er ráðvillt. Hún veit að drengurinn hennar er sorgmæddur og saknar ömmu sinnar. En frekar vildi hún að hann henti sér í gólfið og öskraði og gréti en að þessi þögn ríkti.
En það eru miklar annir hjá henni við að undirbúa jarðarförina og erfidrykkjuna. Það er margt sem þarf að huga að og skipuleggja. Sjálf er hún yfirkomin af þreytu og ekki síst þarf hún að takast á við eigin örvinglan og söknuð.
Mitt í öllu annríkinu reynir hún að hlúa að Glókolli eftir bestu getu en drengurinn er þögull sem gröfin og fæst ekki til að ræða við hana um það sem skiptir máli.
Hún finnur að hann er reiður.
Amma er jarðsett á þriðjudegi í byrjun júlí. Þegar Glókollur vaknar um morguninn og lítur út um gluggann er litur dagsins í fullu samæmi við sálina í honum. Eins grár og íslenskur sumardagur getur orðið. Himininn er alþakinn dökkum óveðursskýjum sem gefa loforð um úrhellisrigningu og auðséð er að brátt muni hvessa.
Glókollur stendur við gluggann með hönd undir kinn og talar við Guð. Orðin koma hikandi og röddin er örlítið brostin. Aldrei hefur hann áður talað upphátt við Guð.
-Guð... amma mín sagði að þú værir til. Amma skrökvaði aldrei að mér.... en það er ekki að skrökva þegar maður segir eitthvað og trúir því sjálfur... er það nokkuð? Ha..? Guð.
Guð.. ertu til?
Barnshugurinn þráir svarið ákaft en hann veit að það kemur ekki.
-Þú finnur svör við öllum heimsins spurningum innra með þér hafði amma stundum sagt.
Glókollur starir upp í þungbúinn himininn um stund. Skýin eru á fleygiferð.
Hann veltir því fyrir sér hvert dána fólkið á himnum fari þegar svona óveður geysar þarna uppi. Samt veit hann alveg að það er ekkert dáið fólk á himninum. Amma sagði að þegar fólk dæi væri það bara líkaminn sem væri jarðsettur. Sálin héldi áfram að lifa og hún gæti ferðast eins og hana lysti á örskotsstundu.
-Hvað gæti verið meira gaman en að geta heimsótt alla þá staði sem mann langar til? Jafnvel alla á sama deginum, sagði amma oft.
Sú hugsun hvarlar að Glókolli að kannski sé amma bara ekkert leið að vera dáin. Nú gæti hún ferðast um víða veröld eins og hana hafði alltaf dreymt um.
Glókollur ákveður á þessari stundu að leggja próf fyrir Guð. Ef Guð er til þá getur hann bara vel sannað það. Það er ekki nema sjálfsagt og réttlátt finnst Glókolli. Og það verður að vera erfið þraut. Eitthvað sem enginn getur gert... nema Guð... ef hann er þá til.
-Sem hann er örugglega ekki, botnar Glókollur eigin hugsanir stúrinn á svip. Enginn máttur sem væri góður myndi taka ömmu frá honum. En, það mátti reyna þetta.
-Guð, segir Glókollur ákveðinn. Ef þú ert til þá lætur þú vera sólskin og gott veður í dag. Hún amma mín á það skilið.
Svo hlakkar svolítið í honum því eins og skýin þjóta yfir er ekki ólíklegt að það verði þrumuveður þegar líður á daginn.
Honum líður betur og þegar mamma kemur inn í herbergi til hans með nýpressuð sparifötin er hann tilbúinn að mæta deginum.
Í kirkjunni er óskaplega margt fólk og Glókollur þekkir bara nokkur andlit finnst honum. Ókunnugt fólk kemur til hans og vill kyssa hann og knúsa og honum þykir nóg komið af því góða.
Mamma kreistir höndina á honum þegar þau eru sest og hann finnur að hún er örlítið skjálfhent. Þetta verður í lagi, segir hann með hljómblæ ömmu og klappar mömmu sinni hughreystandi á handarbakið.
Það koma viprur við munnvikin á mömmu og hún strýkur sér um augun. Svo kyssir hún hann á ljósan kollinn.
Glókollur furðar sig á því hversu mikið presturinn veit um ömmu. Hann segir allskonar sögur af henni og sumar fá fólk til að hlæja. Amma hafði líka alltaf verið góð í því. Að fá fólk til að hlæja og skemmta sér.
Glókollur fylgist með veðrahamnum út um marglitar rúðurnar á kirkjunni. Rigningin beljar á gluggunum og tréin fyrir utan dansa trylltan dans í takt við drunurnar.
Glókollur á afskaplega erfitt með að ímynda sér ömmu liggjandi ofan í hvítu kistunni sem stendur upp við altarið. Og þegar þau ganga á eftir kistunni út úr kirkjunni endurtekur hann sífellt í huganum: Þetta er bara líkaminn, þetta er bara líkaminn.
Rokið rífurog tætir í föt kirkjugestanna þegar út er komið og allir flýta sér sem mest þeir mega að bílunum sínum.
Á meðan Glókollur bíður eftir mömmu í anddyrinu kemur gömul kona í hjólastól og ávarpar hann. Höfuð hennar tifar til og frá eins og hún hafi ekki stjórn á því og vinstri höndin hennar er undarlega kreppt. En Glókolli líst vel á hana. Hún hefur svo góðleg augu.
-Sæll vinur minn, segir hún.
-Sæl, segir Glókollur kurteislega.
-Hún amma þín talaði mikið um þig.
Glókollur segir ekki neitt en honum þykir vænt um orðin.
-Ég heiti Sigríður frá Læk, heldur gamla konan áfram.
-Ó, segir Glókollur. Ert þú Sigga, æskuvinkona hennar ömmu?
-Já einmitt. Hún hlær örlítið. Við hittumst ekki oft þessi síðustu ár en töluðum reglulega saman í síma. Það er orðið svolítið erfitt fyrir mig að ferðast að norðan.
Hún klappar með heilbrigðu höndinni á arminn á hjólastólnum til að útskýra mál sitt.
-Það var gaman að sjá þig væni minn, segir hún hlýlega og strýkur honum um vangann.
-Já, segir Glókollur og brosir feimnislega.
Svo kemur bíll alveg upp að kirkjudyrunum og ungur maður stígur út.
Frakkinn hans verður rennblautur á þessum örfáu metrum sem eru á milli bílsins og kirkjudyranna.
-Jæja amma, segir hann hressilega, ertu tilbúin? Og svo hverfa þau út í rokið.
Á meðan líkfylgdin sniglast áfram áleiðis í kirkjugarðinn leikur Glókollur sér af því að teikna sól á móðuna á bílrúðunni. Mamma leyfir honum að sitja frammí.
-Bara í þetta eina skipti segir hún.
Glókollur teiknar augu og munn á sólina og hugsar um svolítið sem amma sagði einu sinni.
-Ég vona að þegar minn tími kemur að Guð gefi mér að ég fái að sofna svefninum langa. Á meðan ég er ennþá heilbrigð á sál og líkama.
Hann skildi ekki þá hvað amma meinti. En hann skilur það núna.
Presturinn stendur hátíðlegur við opna gröfina. Eins hátíðlegur og hægt er að vera þegar maður er gegnvotur. Öllum að óvörum hefur vindinn lægt og heldur dregið úr rigningunni.
Glókollur les í hljóði það sem stendur á legsteininum hans afa.
Ástkær eiginmaður og faðir Guðmundur Árnason. Hvíl í friði.
Glókollur var skírður í höfuðið á afa. Á legsteininum hafði verið skilið eftir pláss fyrir nafn ömmu. Við látum grafa það á steininn fljótlega hafði mamma sagt.
Þegar kistan sígur niður í jörðina passar Glókollur að horfa ekki ofan í opið. Hann einbeitir sér að auða blettinum á legsteininum og reynir að ímynda sér nafnið hennar ömmu þar. Friðleif Ásmundsdóttir.
Og nákvæmlega þar sem Glókollur heldur að Effið muni standa, birtist sólargeisli.
Geislinn stækkar og breikkar þar til allur legsteinninn er baðaður sólskini. Glókollur lítur til himins og feginsstraumur fer um hann allan.
Án þess að hann finni það streyma tárin niður rjóðar kinnarnar og mamma grípur utan um hann.
-Þetta lagast hvíslar hún blíðlega í eyra hans.
-Það er allt í lagi mamma, hvíslar hann á móti. Amma er á ferðalagi.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Bækur, Dægurmál, Lífstíll, Ljóð, Menning og listir, Stjórnmál og samfélag, Trúmál og siðferði, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 1640367
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2019
2018
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- solskinsdrengurinn
- skrifa
- jenfo
- gelgjan
- annambragadottir
- marzibil
- brynja
- hk
- gurrihar
- lehamzdr
- katlaa
- eddaagn
- jahernamig
- hronnsig
- martasmarta
- katrinsnaeholm
- palmig
- ipanama
- hallarut
- tommi
- ktomm
- poppoli
- svavaralfred
- kollajo
- bergruniris
- bene
- bennason
- jensgud
- solrunedda
- heidathord
- ringarinn
- tofraljos
- kjaftaskur
- ormurormur
- zeriaph
- unns
- ellasprella
- hjolagarpur
- salka
- nonniblogg
- markusth
- rebby
- birna-dis
- garun
- landsveit
- olofannajohanns
- brylli
- evaice
- ingolfurasgeirjohannesson
- rustikus
- singer
- jaxlinn
- krossgata
- mummigud
- blekpenni
- gerda
- baddahall
- holi
- grafarholt
- gudnylinda
- thegirl
- gretarorvars
- thordis
- herdis
- mammzan
- sigthora
- bet
- saedis
- emmgje
- sigurjonsigurdsson
- janus
- astromix
- overmaster
- thorasig
- gudni-is
- sunnadora
- kjarrip
- 810
- gislihjalmar
- beggagudmunds
- sirrycoach
- betareynis
- ilovemydog
- rannveigmst
- stormadis
- perlan
- bergdisr
- skondrumamma
- snar
- stormur
- ljonid
- raggipalli
- hjordiz
- almaogfreyja
- katja
- lady
- sigrunfridriks
- zunzilla
- olinathorv
- bidda
- smjattpatti
- jogamagg
- disadora
- harpao
- fuf
- alexm
- larahanna
- juliaemm
- saemi7
- gudrunmagnea
- svala-svala
- kari-hardarson
- hlf
- hlinnet
- annagisla
- einari
- lena75
- hector
- saethorhelgi
- ernafr
- birnarebekka
- heidistrand
- kerla
- hannamar
- jara
- supermamma
- monsdesigns
- malacai
- solveigth
- siggathora
- senorita
- snjaldurmus
- photo
- stingi
- pollyanna
- steingerdur
- icekeiko
- majaogco
- skordalsbrynja
- danjensen
- lilly
- heidabj
- omarpet
- helgamagg
- nori
- jamesblond
- gretaulfs
- rattati
- hogni
- ragjo
- kolgrima
- skjolid
- hugrunj
- egill75
- amman
- liljabolla
- asgerdurjoh
- okurland
- rannthor
- svalaj
- siggith
- vefritid
- zsapper
- laz
- graceperla
- rannug
- agbjarn
- alliragg
- fjarki
- birtabeib
- roslin
- lindape
- rosa
- tinnaeik
- muszka
- krummasnill
- lindalea
- fjola
- solan
- scorpio
- evabenz
- isleifure
- karitryggva
- ellasiggag
- beggita
- ollabloggar
- madddy
- songfuglinn
- emm
- lindagisla
- turettatuborg
- einarsigvalda
- huldadag
- siggasin
- credo
- loathor
- carma
- komaso
- fifudalur
- rosabla
- lillagud
- eythora
- griman
- eyrunelva
- svanurg
- strumpurinn
- godihundur
- hallidori
- annriki
- sibbulina
- helgurad
- huldumenn
- julianamagg
- berglindnanna
- huldam
- joik7
- venus
- osland
- liso
- amaba
- asako
- hryssan
- mammann
- leyla
- gunnarggg
- sigrunzanz
- fanneyunnur
- himmalingur
- helgabst
- bostoninga
- christinemarie
- jea
- elisabeta
- perlaoghvolparnir
- meyjan
- wonderwoman
- coke
- ragnhildurthora
- gullilitli
- tommi16
- ea
- mariaannakristjansdottir
- einarorneinars
- lindalinnet
- joninaros
- reynzi
- rosagreta
- lauola
- reynir
- elinora
- ma
- olapals
- bestalitla
- kolgrimur
- handtoskuserian
- vonin
- kaffi
- einarhardarson
- gleymmerei
- brandarar
- alf
- hreinsamviska
- litlakonan
- lucas
- reisubokkristinar
- jgfreemaninternational
- olofdebont
- thjodarblomid
- vilma
- ollana
- gudrununa
- holar
- gotusmidjan
- huldastefania
- mubblurnar
- bjarnihardar
- vild
- skrudur
- jyderupdrottningin
- sifjan
- letilufsa
- hrundt
- robbitomm
- brudurin
- anitabjork
- blindur
- astabjork
- bailey
- gattin
- draumur
- einhugur
- trygg
- eskil
- evags
- gudrunkatrin
- gudrunss
- nf26b
- topplistinn
- helgaas
- helgatho
- hildurhelgas
- drum
- innipuki
- ingal
- kikka
- astroblog
- oliskula
- joklamus
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- kariaudar
- vga
- thorolfursfinnsson
- motta
Athugasemdir
Tl hamingju Jóna... Yndisleg saga og þessar línur eru skrifaðar af manni með tárvot augu. Takk fyrir mig.
Þorsteinn Gunnarsson, 21.6.2007 kl. 12:43
Það er nú ekki amalegt að græta karlmenni eins og þig Þorsteinn . Takk kærlega fyrir kommentið. Gleður mína litlu sál.
Jóna Á. Gísladóttir, 21.6.2007 kl. 13:07
Elsku Jóna þetta er alveg yndisleg saga þú ert alveg frábær ég óska þér til hamingju með þessa fallegu sögu.
Kristín Katla Árnadóttir, 21.6.2007 kl. 13:32
Til hamingju með söguna, hún er full af von og trú og lætur manni líða betur
Guðríður Pétursdóttir, 21.6.2007 kl. 13:53
Snillingur ertu frú Jóna - meira, meira, meira.........
Ingibjörg Gunnarsdóttir, 21.6.2007 kl. 14:07
Yndislega falleg saga. Þú ert á réttri braut, ekki spurning. Til hamingju með að komast í bókina og næst færðu fartölvuna
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.6.2007 kl. 14:16
Yndisleg saga. Hér sit ég og tárin renna. Get varla skrifað fyrir flóðinu. Takk fyrir frábæra sögu sem er svo endalaust falleg
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.6.2007 kl. 14:28
Rakst á þessa ágætu bloggsíðu þína og mátti til með að skrifa hér inn.
Þetta er falleg saga og á erindi til okkar allra. Þú ættir að leggja þetta fyrir þig - ritstörf, enda varstu dugleg að skrifa í gamla daga og ég sé að það hefur ekkert breyst!
Það er gaman að lesa pistlana þína og fá fréttir af þér og fjölskyldu þinni. Bestu kveðjur frá gamalli æskuvinkonu....
Lilja Nafna Torfadóttir (IP-tala skráð) 21.6.2007 kl. 14:34
Þetta er yndislega saga Jóna og fær mann sjálfan til að hugsa til baka og rifja upp gamlar minningar. Til hamingju með þetta
Björg K. Sigurðardóttir, 21.6.2007 kl. 16:00
Til hamingju með útgáfuna á glæpasögunni þinni..... svekkelsi samt að fá ekki fartölvuna ;)
Haltu áfram að skrifa þú ert bráðskemmtilegur penni!
Ekki detta í vinsældargryfjuna og blogga fréttir.... plís plís :)
Eva Þorsteinsdóttir, 21.6.2007 kl. 17:11
Þetta er vel skrifað og virkilega góð saga :)
Hólmgeir Karlsson, 21.6.2007 kl. 18:45
VÁ, HVAÐ ÞETTA ER GÓÐ SAGA!!! Sorrí, ég ætlaði ekki að öskra en tilfinningarnar báru mig ofurliði, ég skældi helling yfir sögunni. Þú ert frábær penni, stelpa. Áfram á þessari braut!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 21.6.2007 kl. 19:55
Jóna, Jóna, Jóna!!! Þetta er svooo góð saga! Það er hreint ekki auðvelt verkefni að ná að snerta svona rækilega við fólki í knöppu formi eins og þessu. Þér tekst það listilega vel! Haltu áfram að skrifa. Ég ætla að kaupa bókina þína strax og hún kemur út og fá eiginhandaráritun takk!
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 21.6.2007 kl. 21:31
Það er alveg sama hvernig á það er litið, þið hafið öll alveg svakalega góðan smekk. Hvort sem ástæðan fyrir hömlulausu lofi frá ykkur hér, sem ég sýg í mig eins og og þurr og afskiptur svampur, er að: a) þið elskið söguna mína eða b) þið eruð hrædd um að detta út af bloggvinalista konunnar, þá ber það vott um þroskaðan og vitsmunalegan smekk með næmt auga fyrir því sem frábært er. Hversu djúpt var ekki þetta.
Eníhú.... takk kærlega fyrir yndisleg komment. Mikið betra en helv...... ......... fartölvan. Þið eruð góð við mig og hvetjandi fyrir wannabe rithöfund
Við Lilju Jónu æskuvinkonu mína langar mig að segja: milljón kossar og knús. Takk fyrir að láta sjá þig (eða þannig). Bið að heilsa Bakka-systrum og Dóru systur og... Afhverju erum við ekki í sambandi?
Jóna Á. Gísladóttir, 21.6.2007 kl. 22:25
Takk fyrir að deila sögunni með okkur Jóna. Hún er frábær. Hlakka til að fá að lesa meira eftir þig
Heiða B. Heiðars, 21.6.2007 kl. 23:21
Ég sannfærðist um leið eins og ég hef skrifað áður.
Texti þinn og skrif eru einlæg og holl lesning fyrir alla.
Hvenær kemur bókin út?
Kær kveðja frá Kalla Tomm úr Mosó.
Karl Tómasson, 22.6.2007 kl. 01:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.