Leita í fréttum mbl.is

Konur eru skrítnar skrúfur

 

Við konur erum stórfurðulegur þjóðflokkur. Það verður nú bara að segjast eins og er. Að karlar séu frá Mars og konur frá Venus er kannski klisja. En sönn klisja er það, eins og svo margar aðrar reyndar.

Í vikunni setti ég inn færslu sem var svona hugleiðing og upprifjun á fituskeiðum sem ég hef gengið í gegn um, um ævina. Í athugasemdakerfinu við þeirri færslu fékk ég staðfest frá nokkrum karlmönnum að hugsunarháttur okkar kvenna um þau mál er þeim hulin ráðgáta.

Í morgun, eftir æfingu, framkvæmdi ég gjörning fyrir framan spegil. Á meðan ég dúllaði mér við þennan gjörning rann upp fyrir mér ljós hversu fáránlegur hann er. 

Eftir hopp og skopp, magaæfingar, rassa- og hundaæfingu, lóðalyftinar fyrir brjóstvöðva, þríhöfða, tvíhöfða og sexhöfða eða hvað þetta heitir nú allt saman er ég ansi rjóð í framan. Það hef ég reyndar nefnt áður. Eftir sturtu og þerring með handklæði er ég byrjuð að svitna aftur og er þá rjóð og glansandi í andliti.

Þá er dreginn upp úr töskunni alls konar útbúnaður sem á að láta mig líta út fyrir að vera mennska og jafnvel bara nokkuð álitlega. Þessum græjum, sem eru u.þ.b. 78% af þyngd íþróttatöskunnar, er hrúgað á borð fyrir framan spegil og svo hefst ég handa. Fyrsta skref er að maka farða í andlitið sem þekur vel og losar mig við rjóðu kinnarnar. Svo er settur augnblýantur undir neðri augnahárin og ef ég er í stuði þá fer hann líka á efri augnlokin. Svo er það hvítur eye-liner inn í augnhvarmana. Maskari bætist við ef langt er liðið frá litun á augnhárum. Og svo er það punkturinn yfir i-ið; kinnalitur til að ná fram þessu náttúrulega og ferska lúkki sem rjóðar kinnar gefa manni.....

Maður ætti kannski bara að leyfa upprunalega rjóðu kinnunum að njóta sín... eða hvað?

 


Bloggfærslur 11. október 2007

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 1640737

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband