Leita í fréttum mbl.is

Hvađan kemur fýlan

 

Ég fór í Kolaportiđ í dag og keypti mér hvít stígvél fyrir 500 kall. Ţess utan grćddi ég skó og tösku sem Helgu hálfsystur vantađi ađ losna viđ.  Guđ blessi hana Helgu hálfsystur. Svo keypti ég mér hallćrisleg gleraugu í Tiger. Lillablá međ steinum. Ţurfti ađ skerpa sjónina fyrir saumaskapinn. Ţađ má eiginlega segja ađ saumaskapurinn hafi átt hug minn allan í ţunglyndiskastinu undanfariđ. Enda hefur skotgengiđ međ myndina sem ég er ađ sauma.

Nú hef ég kveikt á 9 kertum í stofunni og borđstofunni. Kveikt er á lömpum í öllum hornum en ađ öđru leyti eru ljósin slökkt. Gelgjan er hjá Viđhenginu, Unglingurinn hangir uppi í herberginu sínu, Bretinn lagđi sig.. er eitthvađ slappur, og Sá Einhverfi er í sínu herbergi ađ stúdera hulstur af DVD myndum.

Ég er ţví ein međ sjálfri mér, sofandi hundi og blogginu sem ég hef heimsótt ansi takmarkađ síđustu vikur.

Ţađ er huggulegt og lágstemt í kringum mig, ţó ađ Sá Einhverfi hafi komiđ hlaupandi niđur stigann rétt áđan međ hávađa og látum. ŢEGIĐU, kallađi hann í sífellu. Ég veit ađ hann er ekki ađ tala viđ mig og nenni ekki ađ ávíta hann.

Uppţvottavélin suđar, mér á vinstri hönd og hundurinn hrýtur lágt í antiksófanum hennar ömmu, hér hćgra megin viđ mig. 

Sem sagt huggulegt, rólegt og akkúrat eins og laugardagskvöld eiga ađ vera. Ţađ eina sem brýtur upp stemninguna er ţessi skítafýla sem leggur fyrir vit mér. Ég ţarf virkilega ađ fara og finna út hvort ţetta komi frá hesthúsahverfinu í Víđidal, eđa hvort einu af heimilisdýrunum hafi orđiđ brátt í brók, hér í einhverju horninu.

Ađ ţví loknu ćtla ég ađ steikja hamborgara ofan í ţá fjölskyldumeđlimi sem hafa áhuga.

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

 Sá Einhverfi er í sínu herbergi ađ stúdera hulstur af DVD myndum.

Ómar Ingi, 28.2.2009 kl. 20:04

2 Smámynd: Jón Agnar Ólason

Hey - heil fćrsla á Moggablogginu?! Tímabćr glađningur!

En hvađ er ađ heyra međ ađ lundin hafi legiđ niđri undanfariđ? Ég er svolítiđ frönskusmitađur frá fyrri tíđ en ég veit um tvö međul viđ stuđleysi sem bćđi eiga rćtur ađ rekja til Frankríkis; annađ er bíómynd og hitt er bók.

Le Fabuleux Destin d'Amélie Poulain - eđa Amélie eins og hún heitir utan Frakklands - er ein af ţeim myndum sem mađur skilur bara ekki hversu góđar eru fyrr en mađur sér hana. Ţetta meistaraverk kemur mér alltaf í gott skap, og skilur viđ mann hugsi og skćlbrosandi í senn.

Le Petit Prince - Litli prinsinn - er ein af meistaraverkum franska flugmannsins og rithöfundarins Antoine de Saint-Éxupery, en allt sem hann setti á blađ er snilld. Ţessi bók hans er frábrugđin hinum ađ ţví leyti ađ hún er sett upp sem barnabók en fljótlega áttar lesandinn sig á ţví ađ hann er ađ lesa efnismeiri og merkingarţrungnari texta en flest "fullorđins" sem mađur hefur lesiđ. Enginn sem les ţessa bók gleymir henni, og enginn les hana bara einu sinni.

Međ ósk um hćkkandi sól, bćđi í heiđi sem og í sinni 

kv.,

Jón Agnar Ólason, 28.2.2009 kl. 20:28

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Knús á ţig.  Hvenćr á ađ kíkja?

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.2.2009 kl. 22:45

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Gaman ađ heyra frá ţér Jóna mín. 

Ía Jóhannsdóttir, 1.3.2009 kl. 06:40

5 Smámynd: María Guđmundsdóttir

notalegt barahafdu gódan sunnudag Jóna.

María Guđmundsdóttir, 1.3.2009 kl. 10:47

6 Smámynd: Anna

Góđur díl í Kolaportinu. En ţú minntist ekki á manninn ţinn.

Anna , 1.3.2009 kl. 11:44

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús og ljúfur fađmur af ást og hlýju til ţín elskulegust.....Ástarkveđjur frá mér til ţín..:=)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 1.3.2009 kl. 15:48

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 1639970

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband