Leita í fréttum mbl.is

Valtýr Björn og nýja skrifstofan

Það er kannski stranglega bannað að blogga svona um fólk undir nafni. Ég læt þetta samt flakka.

Eitt sinn, er ég var að vinna á Stöð 2, var verið að taka húsnæðið aðeins í gegn eins og gengur. Stigi sem var á gangi rétt fyrir utan matsalinn var pússaður til og opinu undir stigapallinum lokað. Þetta var ágætis geymslurými og því var sett þarna hurð sem hægt var að ganga inn um eða kannski skríða. Hurðin var að sjálfsögðu lág eða um 120 cm á hæð.

Gárungar á staðnum (ég held að það hafi verið fólkið á fréttastofunni) tók sig til og merkti hurðina Skrifstofa Valtýs Björns. Hann varð ekkert ofsalega glaður en sá nú samt spaugilegu hliðina á málinu.

Stundum er bara fyndið að vera kvikindislegur  valtyr

 

Svo er hér nokkur gullkorn sem Valtýr hefur látið út úr sér við lýsingar á leikjum:

  • Þetta er svartur svertingi
  • Það er hellingur af fullt af fólki
  • Þeir eru með bandarískan Ameríkana
  • Nú er það svart, það er ljóst

og að lokum:

Einu sinni var Valtýr Björn að lýsa leik í ítölsku deildinni. Einhver ónefndur leikmaður skaut á markið vel fyrir utan vítateig, og fór boltinn hátt yfir. Þá sagði Valtýr: ''Nei, nei. Ef menn ætla að skjóta af svona löngu færi þá verða menn að fara nær 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kast.  Hann fer pottþétt í mál við þig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.7.2007 kl. 16:03

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Þú ert upplífgandi svona á sunnudegi

Jóna Á. Gísladóttir, 8.7.2007 kl. 16:09

3 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Ef ég væri íþróttafréttamaður, væri ábyggilega til langur listi af "mismælum" enda á ég til að hugsa eitt og segja annað eða segja eitthvað án þess að hugsa nokkuð. Ég er því Valtískur.

Benedikt Halldórsson, 8.7.2007 kl. 16:13

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

 Góður.

Jóna Á. Gísladóttir, 8.7.2007 kl. 16:14

5 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Þú ert vond  En ekki tala við mig...ég er leiðinleg.

Brynja Hjaltadóttir, 8.7.2007 kl. 17:08

6 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Valtískur hahahahahahahahha

Guðríður Pétursdóttir, 8.7.2007 kl. 17:43

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Meilímeilímeil.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.7.2007 kl. 18:36

8 Smámynd: Ómar Ingi

Ég vann með honum Valtý í nokkur ár og hann alveg fyndinn kallinn svo er hann líka FRAMari kallinn eins og allt gott fólk, En hann er nátturlega alveg ofboðslega lítill og hann fékk sér frakka sem lafði niður í götuna aðeins of stór og þá sagði ég alltaf við kallinn   "Ekki er jakki frakki nema síður sé"  Hann varð alltaf jafn fúll þegar ég sagði þetta við hann ?

Ómar Ingi, 8.7.2007 kl. 20:00

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahaha. Aumingja Valtýr. hann hefur sko fengið að heyra það í gegnum tíðina.

Jóna Á. Gísladóttir, 8.7.2007 kl. 20:20

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér finnst svo gaman að hlusta á Valtý í útvarpinu. Hann hefur stundum verið að tala við strákana í Reykjavík síðdegis og það er svo fyndið að heyra hann hlægja að ég missi mig alveg með honum. Þvílíkt dillandi og kátínan að drepa hann.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.7.2007 kl. 22:51

11 identicon

Valtýr er alltaf góður. Skemmtilegur fjölmiðlamaður einmitt vegna mismælanna.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 08:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1639959

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband