Leita í fréttum mbl.is

Bloggvinkona losar mig við kvíða

Ég lét loksins verða af því að taka upp símann í morgun og hringja eitt símtal varðandi Þann Einhverfa. Ég var búin að fresta þessu símtali í heilar þrjár vikur af þeirri einföldu ástæðu að ég var ekki tilbúin í það.

Í lok maí fengum við bréf þess efnis að Sá Einhverfi væri komin með pláss í skammtímavistun 2 virka daga í mánuði. Það þýðir að í stað þess að koma heim eftir skóla/viðveru þá er hann keyrður í vistunina og sóttur þangað að morgni og ekið í skólann. Góð tilbreyting fyrir bæði foreldra og barn.

En þetta er samt eins og að senda barnið sitt að heiman og maður breytist í hænumömmu við tilhugsunina. Ég sótti um svona pláss fyrir sennilega 2-3 árum síðan vitandi að biðlistinn væri langur og hugsaði; jæja, ég verð tilbúin að senda hann í burtu þegar hann loksins fær pláss.

Nú er sem sagt komið að því og bara að taka upp símann og staðfesta móttöku bréfsins og koma á aðlögunartíma voru þung skref.

Ég semsagt hringdi í morgun og kynnti mig með nafni. Sagðist hafa fengið bréf varðandi skammtímavistun og....

-er það fyrir Ian spurði indæla konan

- ha? Já einmitt sagði ég svolítið hissa (hvernig vissi hún það)

svo byrja ég eitthvað að tjá mig og konan segir glaðlega, ég veit náttúrlega svo margt um Ian og ykkur...

-ha, segi ég alveg hrikalega confused.

Þarna kemur sem sagt í ljós að konan er bloggvinkona mín. Þetta var eins og ég hefði himinn höndum tekið. Skyndilega var ég að tala við vinkonu í staðin fyrir einhverja ''stofnun út í bæ''.

Bjargaði deginum. Takk mín kæra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er bloggsamfélagið í sinni fallegustu mynd - knús

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 27.6.2007 kl. 12:29

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Guð en krúttlegt.  Ég fékk gæsahúð.  Svona geta hlutirnir stundum verið auðveldir þegar maður loksins lætur til skarar skríða.  Smjútsaðu bloggvinkonu frá mér fyrir að vera svona yndisleg við þig

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.6.2007 kl. 12:29

3 Smámynd: Ómar Ingi

Wonderful world

Ómar Ingi, 27.6.2007 kl. 13:05

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Það hefur sína kosti að búa í litlu samfélagi. Yndisleg frásögn og til hamingju

Marta B Helgadóttir, 27.6.2007 kl. 13:28

5 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

stofnanir eru oft svolítið erfiðar... gott að geta 'persónugert' þær...

Ég á líka einhverfan gaur 

Aðalheiður Ámundadóttir, 27.6.2007 kl. 14:21

6 Smámynd: Kolbrún Jónsdóttir

Hlökkum til að kynnast ykkur öllum

Kolbrún Jónsdóttir, 27.6.2007 kl. 14:39

7 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

en yndislegt

Guðríður Pétursdóttir, 27.6.2007 kl. 14:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband