Leita í fréttum mbl.is

Hvar er vorið?

 

Lítið að frétta frá þessum vígstöðvum. Við gerum okkur klár fyrir veturinn eins og aðrir Íslendingar. Andlega meira en hitt. Sá Einhverfi tjúllast við hverja hvíta flygsu sem kemur af himnum ofan og það var töluvert um slíkt um daginn.. sennilega í þar síðustu viku. Skiptist á haglél og slydda.

Hvar er vorið? grætur stráksi og ég get eiginlega tekið undir það.

Hvort það er aldurinn eða efnahagskreppan, þá kvíði ég í fyrsta skipti fyrir vetrinum. Aðallega fyrir því að þurfa að dúða mig á morgnana og fara út að skafa. En svo má ég auðvitað þakka fyrir að hafa eitthvað til að skafa, ekki satt?! Að ég tali nú ekki um að þakka fyrir að hafa eitthvað til að dúða mig í.

Nú þarf ég bara að brosa út að eyrum, birgja mig upp af kertum og finna leið til að fá Þann Einhverfa til að rúlla niður buxnaskálmunum og láta af stuttbuxna-þrákelkninni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er aldurinn, been there done that, nú hlakka ég til enda orðin 53 ára.

Ásdís Sigurðardóttir, 5.10.2009 kl. 17:39

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

æj ég veit ekki hvort þetta er aldurinn eða ástandið... Ætli það sé ekki sitt lítið af hvoru? Mér hefur til dæmis ekki hlýnað síðan ég fór út i morgun..

Hrönn Sigurðardóttir, 5.10.2009 kl. 21:33

3 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Kannski bæði og...en það er samt eitthvað notalegt við snjóinn...eitthvað svo ...hreint og tært...og jólalegt!!! Um að gera að vera bara bjartsýnn...

Bergljót Hreinsdóttir, 5.10.2009 kl. 21:38

4 Smámynd: Ragnheiður

úpps..þá hefur kvöldið líklega ekki verið sérlega notalegt...ekkert smá margar flyksur

Ragnheiður , 5.10.2009 kl. 22:39

5 Smámynd: Ómar Ingi

Já þunglyndið eina þessi viðbjóður sem snjórinn er

Ómar Ingi, 5.10.2009 kl. 23:07

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Minnir mig á, panta nýtt zæti á znjózleðann, gaman í vændum.

Steingrímur Helgason, 5.10.2009 kl. 23:45

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hér örlar á haustinu og ég þarf ekki að hugsa um að dúða mig fyrr en í janúar sem betur fer. 

Ía Jóhannsdóttir, 6.10.2009 kl. 08:18

8 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Æi já gamanið hefur kárnað í gærkvöldi og væntannlega hjá ykkur báðum þá.

Hvað er barnungt fólk að tala um aldur.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 6.10.2009 kl. 10:47

9 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Skil ykkur vel, vorið er vissulega yndislegt og vitneskjan að þá er sumarið í nánd. 

Mér finnst reyndar gaman að fá fyrsta snjóinn, það kallar fram barnið í manni, fara út, leggjast í hann og gera engil í snjóinn er gott ráð til að taka hann í sátt og hafa gaman að honum. (og gera nokkra snjóbolta og kasta í einhvern sem hefur húmor fyrir því  

Marta B Helgadóttir, 6.10.2009 kl. 12:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 1639942

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband