Leita í fréttum mbl.is

Freaky friday

 

Þessa stundina situr Sá Einhverfi fyrir framan tölvuna og horfir á uppáhalds bíómyndarbrotið sitt. Freaky friday.

Ég ranghvolfdi í mér augunum áðan, þegar ég sá hvaða leitarorð hann var að stimpla inn á Google. Ef hann langar í gott hláturskast þá leitar hann þetta myndbrot uppi.

Tekur þá við dillandi og afskaplega smitandi hlátur sem yljar um hjartað og hrífur mann með... í svona 10 mínútur. Fljótlega upp úr því á maður þá ósk heitasta að stráksi hætti í þessu, sem virðist, stjórnlausa hláturskasti. Hann er svo píreygður að það rétt rifar í augun og hann tekur andköf í lengstu hláturskviðunum. Yndisleg sjón en eftir 20 mínútur væri grátkast fýsilegri kostur og eftir hálftíma er maður tilbúinn að rífa router-inn úr sambandi og fleygja tölvunni út í garð... og drengnum á eftir.

Hér er myndbrotið sem fær mig til að tæta af mér öll líkamshár

 

 

 

Gerir þetta eitthvað fyrir ykkur?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei.... ég get ekki sagt það ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 13.8.2009 kl. 23:06

2 Smámynd: Ómar Ingi

Awwwww

Er hann orðin Lilo vifta drengurinn , farðu nú með drenginn frekar á Harry potter

Ómar Ingi, 13.8.2009 kl. 23:13

3 Smámynd: Swami Karunananda

Sæl, Jóna.

Alltaf gaman að lesa bloggið þitt - að vanda áhugavert, vel skrifað og húmorískt. Ég starfaði við umönnun þriggja einhverfra stráka á Tjaldanesi í Mosfellsdal í rétt tæpt ár 2001-2002. Svo ég veit bæði hversu erfitt og hversu gefandi það getur verið að umgangast það stórmerkilega fólk sem einhverra hluta vegna ákveður að fæðast með þessa þroskahömlun (því ég trúi því einarðlega að við ákveðum hlutskipti okkar í stórum dráttum sjálf áður en við fæðumst - án þess að ég hafi nokkuð annað fyrir mér í þeirri trú en að mér finnist hún aðlaðandi ).

Kærar kveðjur, Kári Auðar Svansson.

Ps. Gangi þér vel með bókina sem þú ert að skrifa!

Swami Karunananda, 16.8.2009 kl. 16:52

4 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.8.2009 kl. 17:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1639940

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband