Leita í fréttum mbl.is

Úr á hægri fimmtudagur

 

Sá Einhverfi kom heim úr Vesturhlið síðastliðinn föstudag, plástraður í bak og fyrir. Eða því sem næst. Þar sem hann virtist finna til í hendinni vakti plásturinn á hægra handarbaki sérstaklega forvitni mína. Ekkert var að sjá þegar hann var fjarlægður en okkur Bretanum tókst nú samt að sjá bæði vísbendingar um bruna, sem og tannaför. Nett ímyndunarveiki.

Í samskiptabókinni var ekkert að finna um nein meiðsli eða óhapp svo ég ákvað að hann hefði dottið og meitt sig örlítið. Ef stráksi finnur einhvers staðar til þá heimtar hann plástur og krem, þó að ekkert sé sárið.

Á laugardeginum sá ég að Sá Einhverfi hlífði höndinni eftir bestu getu og þegar ég þreifaði hana þá kveinkaði hann sér. En hann var nú samt skrifandi og ég gat beygt alla putta á honum o.s.frv. Ég ákvað því að ég nennti ómögulega að fara upp á bráðamóttöku, sitja þar í fleiri klukkustundir, bara til að láta segja mér að strákurinn væri tognaður og ekkert hægt að gera.

en eftir að hafa hlustað á sögur hjá vinum og vandamönnum um börn sem nánast klifu fjöll hand- og fótbrotin vegna þess að foreldrarnir ''neituðu að hlusta á þetta væl.. bara smátognun'' o.sfrv., þá ákvað ég að svo slæm móðir gæti ég ekki verið.

Það var haldið í leiðangur, Sá Einhverfi, Bretinn og ég. Með í för upp á slysavarðsstöfu var bakpoki með ferðatölvunni minni og einum 7 DVD myndum. Ég var sko viðbúin 10 tíma viðveru í Fossvoginum.

Sá Einhverfi var ótrúlega duglegur. Aðalvandamálið var að fá hann til að taka af sér vatnsþétta úrið sitt sem hann ber ávallt á hægri hendi, til að hægt væri að mynda hann.

Annað vandamál var að ég fór næstum að grenja þegar læknirinn sagði að hann ætti að vera í gifsi í tvær vikur, því Sá Einhverfi er að fara í sumarbúðirnar á sunnudaginn og þar er farið í sund á hverjum einasta degi. Hugurinn fór á flug: ég yrði að afpanta fyrri vikuna og það yrði hræðilegt fyrir hann... og mig. Geðið mitt hangir á bláþræði og sá þráður er beintengdur við nk sunnudag. Ef ég ekki ek prinsinum mínum í sveitina þann dag, þá er ég hrædd um að þráðurinn slitni og verði fyrir varanlegum skaða.

En þetta var eðallæknir því hann lofar okkur nýju gifsi á fimmtudaginn. Reimað skilst mér. Hægt að fjarlægja og setja á aftur án vandkvæða.

Það spaugilega var að allt í allt tók þetta ekki nema um eina og hálfa klukkustund. Og út gekk sá Einhverfi með gifs-spelku á brákuðum úlnlið og hann hafði ekki náð að horfa á nema bara brot af Kalla Blómkvist.

Eftir að heim var komið með gifsaðan dreng sýndi hann tilburði í þá átt að vilja plokka heftiplástur og sárabindi sem handleggurinn var vafinn með, af sér. Því ákvað ég að láta hann sofa upp í hjá mér á sunnudagsnóttina til að vakta hann. Bretann rak ég í rúm sonarins.

Ég vaknaði á sunnudagsmorguninn um sexleytið, við það að Sá Einhverfi fór framúr. Ég reis upp við dogg og horfði á hann svefndrukknum augum. Eitthvað dinglaði í hendi hans. Ég rýndi betur og grunaði strax hvers kyns var. Litla skrímslið hélt á gifsinu ásamt henglum af sárabindi og heftiplástri. Þetta hafði hann dundað sér við í rúminu við hlið móður sinnar. Varlega og ævintýralega hljóðlega.

ARGH...

Mamma róleg, sagði skrímslið.

En ég var langt frá því að vera róleg. Ég fór og keypti nýtt sárabindi og heftiplástur og barasta ''klæddi'' drenginn í allt heila klabbið aftur. Hann hefur ekki vogað sé að endurtaka leikinn. Og nú er bara einn dagur í nýtt gifs.

Ég er aftur á móti búin að ljúga að honum allan tímann að hann fái úrið sitt aftur á fimmtudaginn. Slík lýgi getur verið nauðsynleg. Eins og í þessu tilviki til að hann fáist á endurkomudeildina með mér.

Og hann staglast á sömu orðum margoft á dag: Mamma, úr á hægri fimmtudagur.

Já Ian, segi ég með lygaramerki á fingrunum. Úr á hægri á fimmtudaginn.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.6.2009 kl. 02:32

2 Smámynd: Ómar Ingi

Awwww

Er hann ekki orðinn spenntur fyrir Harry Potter myndinni

Ómar Ingi, 24.6.2009 kl. 20:00

3 Smámynd: Ragnheiður

ó mæ

hann er yndi...

sko, það var hringt í mig af leikskóla dótturinnar fyrir mörgum árum. Pabbi skutlaði barni á leikskóla eftir helgardvöl hjá honum. Barnið var úr olnbogalið og vildi ekki nota hendina en kvartaði ekki neitt....slæm mamma..been there done that

Ragnheiður , 24.6.2009 kl. 23:05

4 Smámynd: Dúa

Æi greyið. Ekkert vitað hvað kom fyrir hendina á guttanum?

Dúa, 24.6.2009 kl. 23:11

5 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Bergljót Hreinsdóttir, 25.6.2009 kl. 15:26

6 Smámynd: María Guðmundsdóttir

æ thad er svooooooooooo gaman ad lesa søgurnar af ykkur  

María Guðmundsdóttir, 25.6.2009 kl. 17:35

7 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég gerði mig seka um svona skeytingarleysi þegar minn eldri sleit liðbönd. "Hættu þessu væli, strákur, þetta er bara smátognun." Endaði með aðgerð og sex vikum í gipsi. Skömm sé mér.

Helga Magnúsdóttir, 25.6.2009 kl. 20:42

8 Smámynd: Anna Guðný

Úff, ég lenti í þessu með mína yngri þegar hún var 3. ára. Hún var búin að handleggsbrotin í heila viku þegar það uppgötvaðist. Að vísu fór ég með hana strax en mér var sagt á slysó að það væri ekkert og þyrfti ekki að mynda. En annað kom í ljós.

Gangi ykkur vel.

Anna Guðný , 25.6.2009 kl. 22:20

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hvað kom fyrir drenginn?  ég var einu sinni með dóttir mína handleggsbrotna í tvo sólarhringa, hafði bara ekki tíma. Svona getur maður verið skeytingarlaus. Vona að Ian batni fljótt og þú fáir þína nauðsynlegu hvíld dúllan mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 25.6.2009 kl. 23:05

10 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Vonandi verður hann sáttur við reimað gifs, það hlýtur að vera töff. 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 26.6.2009 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 1639864

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband