Leita í fréttum mbl.is

Gelgjan, Tannálfurinn og Sá Einhverfi

 

Gelgjan fékk afskaplega fallegt silfurskrín í skírnargjöf á sínum tíma. Það er kringlótt, örsmátt og fóðrað að innan með kóngabláu filt-efni. Á lokinu situr undursmár, lítill tannálfur.

Skrínið rúmar eina.. í mesta lagi tvær barnatennur.

Þetta skrín hefur samviskusamlega verið lagt undir koddann, hvenær sem tækifæri hefur skapast og vegna míns einstaklega góða sambands við Tannálfinn hefur gelgjunni áskotnast íslenskar krónur í skiptum fyrir hverja tönn. Annars skilst mér að evran sé aðal gjaldmiðillinn.

Sá Einhverfi fékk ekkert slíkt skrín í skírnargjöf. Þó tel ég ekki að það sé ástæðan fyrir því að allar þær tennur sem hann hefur misst hafa horfið. Púff! Gjörsamlega gufað upp. Þeim Einhverfa hefur ekki áskotnast svo mikið sem tíeyringur fyrir sitt postulín.

Hann hefur sennilega ýmist spýtt þeim út úr sér þar sem hann stóð á hverjum tíma, kyngt þeim eða hent þeim í ruslið.

Á sunnudaginn síðasta heyrði ég kvörtunarhljóð frá mínum manni berast niður frá efri hæðinni.

Á mamma að hjálpa? kallaði ég upp til hans.

Hann þáði það og ég rölti upp stigann. Inn í herberginu sínu stóð Sá Einhverfi og gapti framan í mig, þegar ég birtist.

Það fyrsta sem mér datt í hug var tannpína. Andskotinn, hugsaði ég. En þegar ég fór að þreifa fyrir mér uppgötvaði ég að hann var með tvo lausa jaxla, sitthvoru megin.

Þetta er allt í lagi Ian, sagði ég. Lét hann setjast á rúmið með mér og teiknaði upp fyrir hann skælbrosandi munn með fullt af tönnum. Merkti þær sem voru lausar upp í honum, notaði ör til að sýna honum að þessar tennur myndu detta og reyndi að útskýra að hann myndi svo fá nýjar.

Drengurinn horfði á mig og það var augljóst hvað hann hugsaði: hvað er kerlingin að röfla núna!?

Svo potaði hann í tennurnar og kvartaði.

Ég gafst upp og fór niður aftur. Hugsaði með mér að þetta yrði bara að hafa sinn gang.

En mér skjátlaðist. Þegar ég fór inn á baðherbergi stuttu síðar, voru rifur af alblóðugum klósettpappír í klósettinu og á botninum glampaði á lítinn hvítan jaxl. Eða voru þeir tveir?

Ég hef enn ekki kannað hvort báðar tennurnar séu horfnar. Ég hef grun um að svo sé. Drengurinn er greinilega ekki á því að hafa einhverja skröltandi aukahluti upp í sér. Hann tekur málin í sínar hendur. Ekkert vesen.

Á meðan safnar Tannálfurinn vöxtum á íslensku krónurnar sem hann þarf ekki að leggja út. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Yndislegt

Sigrún Jónsdóttir, 9.6.2009 kl. 23:51

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.6.2009 kl. 01:09

3 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Bloggin þín eru gleðigjafi.

Hólmfríður Pétursdóttir, 10.6.2009 kl. 12:01

4 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Úff, sá er harður af sér

Margrét Birna Auðunsdóttir, 10.6.2009 kl. 12:09

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og sólarkveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 10.6.2009 kl. 12:45

6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Rétt hjá honum að vera ekki með einhverja skröltandi jaxla uppi í sér.

Helga Magnúsdóttir, 10.6.2009 kl. 18:47

7 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ian alltaf góður.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 10.6.2009 kl. 23:48

8 identicon

Dásamlegt að lesa bloggið þitt.

Aðalbjörg (IP-tala skráð) 11.6.2009 kl. 12:15

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sá hluta að þessum pistli í mogganum í morgun, snilld.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.6.2009 kl. 14:06

10 Smámynd: Ragnheiður

Kannast við þetta frá Himma mínum, hann hætti ekki fyrr en dýrið var úr

Ragnheiður , 11.6.2009 kl. 16:03

11 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 yndislegur drengur  ekkert helv.vesen hér,bara úr med skrøltid.

María Guðmundsdóttir, 13.6.2009 kl. 06:35

12 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

hann er yndi þessi drengur þinn

og þú ert engu minna yndi með pennann þinn kæra Jóna mín

Guðrún Jóhannesdóttir, 13.6.2009 kl. 11:54

13 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Skemmtilegur strákur sem tekur til sinna ráða.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 15.6.2009 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband